Morgunblaðið - 04.05.1966, Qupperneq 13
Miðvftrudagur 4. maí 1966
MORGU NBLAÐIÐ
13
Aðeins
þnð beztn
LISTERgarnið
PHSLDAR-garnið
HJARTA-garnið
GAVARDO-garnið
í úrvali
Alullargarn 7 gróíl.
XJll og JVIohair
Ull og Dralon
Xweed-garn
Bómullargarn
Bómull og hör, nýtt.
Anigóru-garn
Nælongarn
Orlongarn
Courtelle-garnið
Crimplene-garnið
Flauelsgamið
Glitgarnið nýja
Garnið með silfraða
og gyllta þræðinum
Prjónar og heklunálar
GARNIÐ FÆST í
HRINGVER
Austurstræti — Búðagerði.
Vartburg *57
Vartburg station ’57, ekki
mikið keyrður til sölu. öll
fimm dekk ný. Nýir demp-
arar, geymir og bremsudæliar.
Nokkrir varahlutir fylgja.
Gott samband við norskt
fyrirtæki í varahlutum fylgir.
Sími 34115. Verð 10—12 þús.
Húsnæð/
Óskað er eftir leiguhúsnæði
fyrir imga reglusama stúlku,
einu eða tveimur herbergjum
og eldhúsi. Tilboð merkt
„Fyrirframgreiðsla 777“ send-
ist afgr. Mbl. fyrih 7. maí.
Hasselblad 500 C
myndavél til sölu
Planar 80 1:2,8.
Sonnar 150 1:4.
2 bök 6x6, 2 proxarlinsur,
filterar og 2 töskur.
Tilboð á afgr. Morguntol.
Skrifstofustarf
óskast
Amerisk kona sem talar ís-
lenzku óskar eftir skrifstofu-
slarfi hálfan eða allan daginn.
Kann vélritun og enska hrað-
ritun. Tilibið merkt „Skrif-
stofustarf — 9102“.
19 daga skemmtiferð
til Rínarlanda
Ferðin er ekki eingöngu Rínarferð. Þetta er ferð um Norðurlönd
og Þýzkaland. Af Norðurlöndum sjáum við Gautaborg, suðurhluta
Svíþjóðar, Kaupmannahöfn, eyjarnar Sjáland og Láland auk við-
komunnar í Færeyjum. Þýzkalandi eru gerð góð skil, en þar er
farið um Rínarhéruðin og auk þess komið til margra annarra
merkra staða svo sem Heidelberg og t. d. Hamborgar. Rínarferðir
eru sem annað margvíslegar og mismunandi, en þessi ferð er þannig
úr garði gerð, að farið er nokkuð hægt yfir og þeir staðir skoðaðir,
sem um aldaraðir hafa verið rómaðir fyrir fegurð. Auk þess er
nægur tími í borgunum Hamborg og Kaupmannahöfn fyrir þá,
sem njóta vilja stórborgarlífsins og verzla.
■Jr ferðin hefst þann 20. júní
•Jr siglt utan en flogið heim
■Jr ferðin kostar kr. 14.900.—
í áætlun okkar er lýst 39 öðrum ferðum.
22 daga skemmtiferð —- Stóra Mið-Evrópuferðin
GAUTABORG — BERLÍN — DRESDEN — PRAG — VÍNARBORG — BALATON —
BERCHTESGADEN — KASSEL — HAMBORG — KAUPMAN NAHÖFN
■Jr ferðin hefst þann 8. júlí
-jr fararstjóri er Guðmundur Steinsson
tAt ferðin kostar kr. 18.600.—
■Jr flogið báðar leiðir.
Nefna má nokkur atriði, sem telja má ferð-
inni til ágætis: Komið er í þrjár höfuðborgir,
Berlín, sem er ein umtalaðasta borg okkar
samtíðar — Prag, sem ávallt hefur talizt til
fegurstu höfuðborga álfunnar, og Vínarborg,
sem fræg er fyrir skemmtanalíf sitt af flestu
tagi. Hvað fegurð snertir er erfitt að dæma
hvað telja beri fyrst: Ekið er um fjallahéruð
Tékkóslóvakíu og Austurríkis — í Ungverja-
landi er dvalið við Balaton-vatn. Þetta er
stærsta stöðuvatn Mið-Evrópu. Þar geta menn
baðað sig, sem væri við Miðjarðarhafið, siglt
á seglbátum, sem fást leigðir, leikið sér á
vatnasldðum, farið hestaferðir um nágrennið,
dansað á kvöldin. Ekki má gleyma Berchtes-
gaden, sem er einn fallegasti blettur þýzku
Alpanna. Svo getið sé um skemmtanalífið
auk þess sem sagt var um Vínarborg, þarf
ekki nema nefna Hamborg og Kaupmanna-
höfn, sem íslendingar hafa ávallt kunnað vel
að meta.
LÖND “LEiÐIR
Adalstrœti 8 simar
2 0 8 00
2 0 7 6 0