Morgunblaðið - 04.05.1966, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 4. maí 1966
Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Ritstjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Auglýsingar:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
Askriftargjald kr. 95.00
í lausasölu kr.
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti 6. Sími 22480.
á mánuði innanlands.
5.00 eintakið-
ORSAKIR
VERDBÓLGU
T útvarpsumræðunum síðast-
liðið mánudagskvöld, vakti
forsætisráðherra, Bjarni Bene
diktsson m.a. athygli á því,
að á síðastliðnum tæpum
tveimur árum, þ.e. frá því að
stefnubreyting varð í kjara-
málum í júní 1964, hefur kaup
máttur tímakaups verka-
manna í lægstu flokkum
Dagsbrúnar vaxið um 15%
til 25%. Hér er um athyglis-
verðar upplýsingar að ræða,
sem sýna glögglega þann
árangur, sem náðst hefur á
því 2ja ára tímabili, sem
vinnufriður hefur ríkt og hóf-
legir kjarasamningar verið
gerðir.
En þótt kjarasamningar síð-
ustu tveggja ára hafi verið
hóflegri en áður, urðu samn-
ingarnir sumarið 1965 þó
mun óhagstæðari en árið áð-
ur og torvelduðu mjög að
halda verðlagi í skefjum, eins
og forsætisráðherra benti á í
ræðu sinni í fyrrakvöld. Með
kjarasamningum síðustu
tveggja ára hefur óneitanlega
verið stigið fyrsta skrefið í
átt til samvinnu atvinnurek-
venda, verkalýðsfélaga og rík-
isvalds um takmörkun verð-
bólgunnar, en það skref hefur
þó ekki verið stigið nægilega
langt, og þess vegna hefur
ekki betur tekizt til, enn sem
komið er, en raun er á.
Forsætisráðherra ræddi
verðbólguvandamálið í ræðu
sinni í útvarpsumræðunum
og sagði:
„Sífellt kapphlaup stétt-
anna hverrar um sig og allra
í hópum að heimta sem mest
til sín, gerir stöðvun verð-
bólgunnar óviðráðanlega, á
meðan svo fer fram. Við
þessu verður lítt gert á með-
an svo fullkominn glundroði
ríkir innan stéttarfélaganna
og þeirra í milli sem nú. Sá
glundroði á einnig verulega
sök á því, að Alþýðusamband-
ið hefur enn ekki látið uppi
álit sitt um fram komnar til-
lögur um styttingu vinnu-
tímans. Bændastéttinni er og
lítill greiði gerður með því að
láta svo sem erfiðleikar henn-
ar um samkeppni á erlendum
mörkuðum stafi eingöngu af
verðbólgunni, en þegja um
þau áhrif, sem veðurfar og
landshættir hafa til að skapa
bændum hér erfiðari aðstöðu
en stéttarbræðrum þeirra í
nágrannalöndum. Vitanlega
eiga þessar aðstæður megin-
þátt í hversu hátt verðlag
þarf á íslenzkri búvöru."
í ræðu sinni lýsti forsætis-
ráðherra ennfremur yfir því,
að ríkisstjórnin mundi gera
sitt til þess að halda verð-
bólgunni í skefjum með því
að tryggja greiðsluhallalaus
fjárlög og styðja að hóflegri
útlánastarfsemi fjármála-
stofnana. Og síðan sagði
hann:
„Svo mikil breyting er nú
orðin til bóta, að hætt er við
að sumum gleymist ástandið
sem áður var, og ætla að
það, sem áunnizt hefur, sé
sjálfsagt og haldist án at-
beina almennings. Vilji menn
áfram efla heill og hag, frelsi
og framtak þjóðar og ein-
staklinga er hollast að fylgja
sömu stefnu, og til góðs hef-
ur leitt undanfarin ár. Hin
leiðin er einnig til, leið ófarn-
aðar, afturhalds og ofstjórn-
ar.“
STÓRIÐJA í
ÖLLUM LANDS-
HLUTUM
¥ ræðu þeirri, sem Sigurður
■*■ Bjarnason, forseti Neðri
deildar Alþingis, flutti í út-
varpsumræðunum sl. mánu-
dagskvöld, vék hann að marg
þættum framtíðarverkefnum
sem úrlausnar bíða og benti
á, að landshlutaáætlanir þær,
sem núverandi ríkisstjórn
vinnur að, gegnir þýðingar-
miklu hlutvðfki í þeim efn-
um. Hann sagði að framtíðar-
stefnan hlyti að vera sú, að
stóriðjufyrirtæki risu í öllum
landshlutum. Þannig yrði að
teljast líklegt, að í framtíð-
inni yrði önnur álverksmiðja
byggð við Eyjafjörð, á Vest-
fjörðum væru góð skilyrði til
fullkominnar fiskiðnaðarverk
smiðju, við Breiðafjörð væru
talin góð skilyrði til bygg-
ingar þangverksmiðju, og í
Vestmannaeyjum og víðar
um land ætti fiskiðnaður í
ennþá stærri stíl örugga fram
tíð, og rækjuverksmiðju
þyrfti að byggja við nýfundin
rækjumið í Húnaflóa. Fisk-
rækt í fjörðum landsins væri
nú orðin nauðsynjamál í sam-
bandi við vernd landgrunns-
ins, og bætt hafnarskilyrði
aðkallandi verkefni.
Verkefnin eru því mörg,
sem framundan eru og greini-
lega er nú komið fram, að
stórvirkj unin við Búrfell og
bygging álbræðslunnar í
Straumsvík mun verða at-
vinnu- og iðnþróun í landinu
og öilum byggðum landsins
til eflingar og styrktar I fram-
tíðinni.
Wfj
UTAN ÚR HEIMI
Froskmenn leita líks Ben Barka
Hvarf hans enn hulin ráðgáta
FRANSKA lögreglan fékk í
sl. viku upplýsingar um að
lík marokkanska stjórnarand-
stöðuleiðtogans Ben Barka
væri e.t.v. að finna í uppi-
stöðulóni skammt frá La
Ferte Allias, í nágrenni Par-
isar.
Engin örugg vitneskja er
fyrir hendi, hvað orðið hef-
ur um Ben Barka, frá því
hann var brott numinn af
götu í París um hábjartan
dag fyrir sex mánuðum. Al-
mennt er litið svo á, að hann
hafi verið myrtur.
Froskmenn úr frönsku lög-
reglunni tóku þegar í sl. viku
að kanna botn fyrrgreinds
uppistöðulóns, en ekki hefur
frétzt um árangurinn. Lón
þetta er á landsvæði, sem er
í einkaeign.
Upplýsingarnar
í upplýsingum þeim, sem
1 sagðar eru hafa borizt frönsku
i lögreglunni, er frá því skýrt
að franski stórglæpamaðurinn
Georges Boucheseiche, hefði
verið vanur að veiða í lónínu.
Eftir að hafa verið á brott
numinn, var Ben Barka flutt-
ur til húss Boucheseiches, sem
er nokkurn spöl frá umræddu
lóni.
Ben Barka
Franska lögreglan segir, að
hafizt hafi verið handa um
að láta froskmenn kanna lón-
ið, eftir að henni hefðu borizt
upplýsingar „utan frá“. Á
meðan leitað var í lóninu hélt
fjöldi lögreglumanna forvitn-
um manngrúa kippkorn frá
því, á meðan froskmennirnir
köfuðu frá litlum gúmmíbát-
um.
Allar tilraunir í þá átt, að
FÖSTUDAGINN 29. apríl voru
brautskráðir 13 nemendur með
verzlunarprófi frá Verzlunar-
skóla íslands. Hlutu 43 I. eink-
unn, 52 II. einkunn og 10 III.
einkunn. Efstur var Gunnar H.
Guðmundsson, sem hlaut I., 7.38,
(notaður er örsteds-einkunna-
stigi), annar Guðmundur Hannes
son með I., 7.32 og þriðji örn
Aðalsteinsson með I., 7.21.
Farandbikar skólans hlutu að
ÞRJAR SKOLA-
STOFNANIR
|7yrir nokkru var athygli
* vakin á því hér í Morgun-
blaðinu, hve skólabyggingum
í Reykjavík hefur fleygt
fram undanfarin ár, en skóla-
húsnæði Reykjavíkur hefur
aukizt um 26,6% á síðustu 5
árum, á sama tíma og nem-
endafjöldi hefur aukizt um
9,3%.
En þótt vel hafi þannig
verið unnið að í skólamálum
almennt, er þó sérstök ástæða
til að vekja athygli á þrem-
ur skólastofnunum, sem starf
rækt^ar eru á vegum Reykja-
víkurborgar. Þar er um að
ræða heimavistarskólann að
Jaðri upp af Elliðavatni, en í
þeim skóla eru nemendur,
sem af einhverjum orsökum
eiga ekki samleið með öðrum
börnum í skóla og þurft hafa
að komast í annað umhverfi.
Höfðaskólinn er rekinn fyrir
börn, sem eiga erfitt um nám
í öðrum skólum skyldustigs-
ins, og loks er skólinn að
Hlaðgerðarkoti í Mosfells-
sveit, en þar er skóli fyrir
stúlkur í Reykjavík, sem
eiga erfiðar heimilisaðstæður,
eða eiga af öðrum sökum erf-
itt með áð stunda skólanám
í bænum.
Þessir þrír skólar miða að
því að veita menntun og
fræðslu börnum og ungling-
um eiga ekki samleið með
börnum og unglingum í hin-
um almennu skólum borgar-
innar. Þessum skólum veitir
forstöðu áhugasamt fólk, sem
greinilega leggur sig mjög
fram í starfi sínu, og hefur
verið ánægjulegt að lesa við-
töl þau, sem birzt hafa við
forstöðumenn þessara skóla í
Mbl. að undanförnu.
Reykjavíkurborg vinnur í
þessum efnum þarft og sjálf-
sagt verk, og eiga borgaryfir-
völd og forráðamenn þessara
skóla skilið fyllsta stuðning
almennings í störfum sínum.
520 stunduðu nám í
i
Verzlunarskóla íslands
grennslast fyrir um örlög
B«n Barka, eftir að hann var
fluttur til húss stórglæpa-
mannsins, hafa verið árang-
urslausar.
Mikil rannsókn var hafin,
sem m.a. beindist að öllum
flughöfnum Frakklands, en
við rannsókn þessa kom ekk-
ert það í ljós, sem benti til
þess að Ben Barka hefði verið
smyglað úr landi, eins og
margir töldu vera.
Sex fyrir rétti
Brott^ám Ben Barka 29.
október sl. var mesta stjórn-
málalega hneykslismál Frakk
lands frá því að heimsstyrjöld
inni lauk, og varð málið til
þess, að samband Frakklands
og Marokkó komst á fremstu
nöf.
í sl. mánuði lauk nefnd lög-
fræðinga 19 vikna rannsókn á
málinu með 5000 blaðsíðna
*
skýrslu, sem send var ríkis-
saksóknaranum, en snemma í
sl. viku var tilkynnt, að frek-
ari rannsókn myndi enn fara
fram.
Draga á sex manns fyrir
rétt í París vegna meintrar
hlutdeildar í ráni Ben Barka,
og geta fimm þeirra búizt við
lífstíðarfangelsL
þessu sinni eftirtaldir nemend-
ur:
Erling Ólafsson hlaut Vil-
hjálmsbikarinn, Guðmundur Han
esson bókfærslubikarinn, Gunn-
ar H. Guðmundsson malabik-
arinn og Erna Hauksdóttir vél-
ritunarbikarinn.
Peningaverðlaunum voru þess
ir nemendur sæmdir:
Gunnar H. Guðmundsson hlaut
kr. 1.000.— frá skólanum og kr.
250.— úr Walthersjóði. Þeir Guð
mundur Hannesson og Örn Aðal
steinsson hlutu kr. 500.— hvor
frá skólanum. Erling Ólafsson
hlaut kr. 1.200.— úr Minningar-
sjóði Ragnars Blöndals fyrir
góða frammistöðu í íslenzku.
Verðlaun úr Minningarsjóði Jóns
Sivertsen fyrir beztan árangur í
stærðfræði á burtfararprófi hlaut
Kristín Halldórsdóttir, kr. 1.50,—
Verðlaun úr Minningarsjóði
Steindórs Jóns Þórissonar fyrir
ágætan árangur í stærðfræði á
burtfararprófi hlaut Guðmundur
Hannesson, kr. 950.—.
Verzlunarmannafélag Reykja-
víkur veitti kr. 2.000.— til verð-
launa fyrir beztan árangur í vél-
ritun á burtfaraprófi. Þau verð-
laun hlaut Erna Hauksdóttir.
Bókaverðlaun frá skólanum
hlutu þessir nemendur:
Gunnar H. Guðmundsson, Guð
mundur Hannesson, Örn Aðal-
steinsson, Arnar Hauksson, Elín
Pálsdóttir, Guðrún Jónasdóttir
og Matthías Steingrímsson. Höfðu
allir þessir nemendur sýnt frá-
bæran námsárangur.
Á lokaprófi námskeiðs í hag-
nýtum verzlunargreinum var
efstur Björn Eysteinsson. Var
hann sæmdur bókaverðlaunum,
Nemendur, sem efstir voru á
ársprófi í I. — III. bekk, voru
sæmdir bókaverðlaunum:
í I. bekk Þórlaug Haraldsdótt-
ir, I., 7.29, í II. bekk Árni Árna-
son I 7.13 og í III. bekk Guðrún
Magnúisdóttir, I. 7.28.
Gamall vélunnari skólans, Jón
Framhald á bls. 21