Morgunblaðið - 04.05.1966, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 04.05.1966, Qupperneq 17
Miðvikudagur 4. maí 19W MORGU NBLAÐIÐ 17 Irsk málaralist Stuölar - strik - strengir stendur i miklum blóma Á ÍRLANDI, sem þekktast er fyrir ljóðskáld sín og rithöf- unda, hefur engin listgrein þróast og blómgazt eins hratt á síðustu 20 árum og málaralist. í eina tíð var málarinn Jack Yeats sá eini sem nokkurt orð fór af á írlandi, en í dag hefur vaxið upp þró.ttmikil og at- hafnasöm kynslóð málara, einkum í Dublin. I>ar er starf- andi félagsskapur, sem nefnir sig „Lifandi list á írlandi" og hpldur hann árlega athyg ,is- verðar málverkasýningar, sem stuðlað hafa að ört vaxandi áhuga meðal borgarbúa. kyrir tilstilli þessa félagsskapar, hef- ur almenn málverkasala auk- izt og hagur hinna skapandi listamanna þar af leiðandi batnað verulega. Að sjálfsögðu bregður fyrir margbreytilegum stíleinkenn- um hjá núlifandi málurum á írlandi; sumir þeirra hafa numið list sína í Bretlandi, aðrir á meginlandinu, einkum í París. Patrick Collins er afar sein- virkur málari, sem segir fyrir- myndir sínar vera hið írska landslag, enda þótt það hvarfli að fáum er þeir virða fyrir sér verk hans. Collins kveðst fremur „finna“ fyrirmyndir sínar en sjá þær, og eru mynd- ir hans í hæsta máta „non- figuratifar“. Eins og títt er um írska málara notar Collins ógjarnan hvassar línur í mynd „Shelly Banks“, landslagsmynd eftir McGuinness. „Virgin River“, landslagsmynd eftir Collins. Patrick Collins um sinum, en er 'hir.svegar mjög hrifinn af dökkum litum. Collins telur litadýrð írskrar náttúru hafa meiri áhrif á sig en afmörkuð hlutlæg fyrir- brigði. Hinir „írsku“ litir, sem málarinn notar mikið, eru blátt, grænt og grátt. Með- fylgjandi málverk eftir Coll- ins, sem hann nefnir „ Virgin River“, er einkennandi fyrir stíl hans. A síðari árum hafa konur Iátið mjög að sér kveða i mynd list á Írlandi og ber þar hæst tvö nöfn Anne Yeats og Norah McGuinness. Anne Yeats er af merku lista- t fólki komin; faðir hennar var William Butler Yeats þekktasta ljóðskáld írlands og föður bróðir hennar var listmálarinn Jack Yeats, sem áður er nefnd- ur. Anne lagði snemma stund á leikmyndagerð og staríaði við Abbey leikhúsið í Dublin fram að stríðsbyrjun. Árið 1941 tók hún að mála fyrir al- vöru og hefur getið sér góðan orðstír á því sviði. Þrengingar stríðsáranna og áranna eftir stríðið höfðu mikil áhrif á Anne Yeats, og sem dæmi um hugarástand sitt þetta tíma- bils bendir hún á, að flestar myndir hennar fram til ársins 1948 fjölluðu að ein- hverju leyti um mat. Séra Jack Hanlon er þekkt- astur fyrir trúarlegar myndir. Allmargar þeirra eru í kúbísk- Norah McGuinness Frakkar banna sýningu á nýrri kvikmynd — sem gerð er eftir sögu Diterots „Nunnon“ F Y R I R nokkru er lokið í Frakklandi töku kvikmynd- ar sem byggð er á skáldsögu Diderots „La Religieuse“ (Nunnan) og hefur vakið mikið umtal, ekki sízt er víst varð um heiftuga and- stöðu ýmissa kaþólskra manna gegn myndinni, sem nú hefur verið bönnuð þar í landi. Kvikmyndaeftirlitið franska hafði að vísu mælt með því að myndin yrði sýnd og var það upplýsingamálaráðherrann sem þá tók af skarið og beitti valdi því sem honum er veitt að lög- um til að banna að myndin kæmi fyrir sjónir almennings, á þeim forsendum að hún „kynni að særa djúpt tilfinn- ingar og samvizku mikils hluta þjóðarinnar“. Þykir bann þetta þeim mun undarlegra, sem bók sú er myndin er á byggð, „La Reli- gieuse" eftir Denis Diderot (1713 — 1784) var ekki 1 nýja klaustrinu. „Abbadisin þar var ung og falleg“, sagði Suzanne“, hún borfði á míg hýr og glettin og sagði: Suz- anne, þykir þér vænt um mig? — og ég vissi ekki hvaðan á á mig stóð veðrið“. sett á skrá bannaðra bóka er hún kom út fyrir tveimur öld- ur og ekki var heldur amazt við leikriti sem tekið var til sýningar í París fyrir þremur árum og byggt var á bók Did- erots. Það var einmitt þetta leikrit sem varð til þess að franski kvikmyndastjórinn Jacques Rivette, fékk hug á að kvik- mynda skáldsögu Diderots, er fjallar um unga stúlku, sem gerist nunna nauðug viljug og það sem á daga hennar drífur innan klaustursmúranna. Er myndin sögð þræða all-ná- kvæmlega sögu Diderots en lyktar þó nokkuð á annan veg. Myndin rekur sögu nunn- unnar ungu (sem leikin er af Önnu Karinu), er ekki hefur minnstu köllun til þessa lífs, sem að henni er rétt en gengst undir heit sín viljalaus og und- ir áhrifum abbadísar einnar, sem er mildin og manngæzkan persónugerð. Er önnur abbadís kemur í stað hinnar fyrri verða snögg umskipti á högum nunn- unnar ungu. Nýja abbadísin leggur megna fæð á allar þær nunnur, sem voru í einhverjum metum hjá fyrirrennara. henn- ar og svo fer að ungat nunnan er talin haldin illum öndum, varpað í myrkrastofu og með- höndluð á hinn hörmulegasta máta. Abbadísin fær þó makleg máiagjöld áður en langt um líður og nunnan er send í ann- að klaustur, þar sem hún og stallsystur hennar lifa við lít- Framhald á bls. 23 um stíl enda hafði séra Hanlon numið list sína í París undir handleiðslu André Lhote, sem var einn af brautryðjendum kúbismans í Frakklandi. Han- lon er einskonar milliliður milli eldri og yngri kynslóð- anna í írskri málaralist og gætir ýmissa nýlegra stílteg- unda í myndum hans þótt ávallt sé þar að finna leifar frá námsárunum . Listakonan Norah McGuinn- ess er þekktust fyrir landslags- málverk og er stíll hennar Framhald á bls. 23 Schlesinger hlaut Pulitzer- verðluunin PRÓFESSOR Arthur J. Schles inger var á mánudagskvöld sæmdur Pulitzer-verðlaunun- um bandarísku fyrir ævjsögu þá er hann hefur ritað um Kennedy Bandaríkjaforseta, „A Thousand Days: John F. Kennedy in the White House“. Schlesinger starfaði sem kunnugt er þrjú ár fyrir Kennedy forseta sem sérlegur ráðunautur hans og er bókin öðrum þræði persónulegar minningar hans um forsetann. Þetta er í annað sinn sem Schlesingar hlýtur Pulitzer- verðlaun, hið fyrra sinnið var er honum voru veitt þau fyrir sagnfræðiritið „The age of Jackson" um stjórnartíð Jack- sons Bandaríkjaforseta. Verðlaunin fyrir bezta fram- lag til blaðamennsku á árinu voru veitt Peter Arnef.t, 33 ára gömlum blaðamanni frá Nýja Sjálandi, sem starfar fyrir Associated Press í S-Vjetnanu Með illu skal illt út drífa. Þrjár eldri nunnur binda hendur Suzanne á bak aftur »g beita öðru harðræði til þess að Iosa hana við þá illu anda .. _in þær segja hana haldna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.