Morgunblaðið - 04.05.1966, Page 30
30
MORCU NBLAÐIÐ
Miðvikudagur 4. maí 1966
Handboltalands-
liðið til USA
Leikur tvo landsleiki auk leiks v/ð
New York og hraðkeppni
LANDSLIÐ Islands í handknatt
leik heldur til Bandarikjan.ia 13.
maí n.k. Leikur liðið þar Ivo
landsleiki við Bandaríkjamenn,
leikur einnig við úrvalsiið New
York og tekur þátt í hraðkeppni
þar sem auk Bandaríkjamanna
verður landslið Kanada, en
Kanada hefur tryggt sér rétt til
keppni í lokabaráttu um heims-
meistaratitilinn sem háð verður
milli 16 liða í Svíþjóð í janúar
n.k.
HSf var boðið að senda lands-
lið íslands í þessa keppni þá er
Bandaríkjamenn komu hingað
1963 og léku hér tvo landsleiki.
fslendingar unnu þá báða með
miklum yfirburðum.
Landsleikir íslendinga ytra
nú verða leiknir 14. maí í
Athletic Club, New York og 17.
maí í Union, New Jerséy.
Hinn 19. maí leikur liðið við
úrvalslið New York og 21. maí
verður hraðkeppnin í Living-
stone með þátttöku íslands, úr-
valsliðs New Jersey og úrvals-
liðs Kanada.
Milli þessara leikja gefst isl.
leikmönnunum kostur a að heim
sækja aðalstöðvar S þ., 'Wall
Street, Chase Manhattan bygg-
inguna og Frelsisstyttuna,
West Point, Hvíta húsið, Arling-
ton grafreitinn, sjá baseball
keppni o.fl. Förin stendur frá
13. maj til 22. maí.
Landsliðið sem fer þessa ferð
er: Hjalti Einarsson, Þorsteinn
Björnsson, Auðunn Ólafsson,
Birgir Björnsson, Gunnlaugur
Hjálmarsson, Hermann Gunnars
son, Ingólfur Óskarsson, Karl
Jóhannsson, Páll Eiríksson, Sig-
urður Einarsson, Stefán Jónsson,
Stefán Sandholt og Viðar Sím-
onarson.
I
,Hjón" og „gamlingjar"
skemmtilegri skídakeppni
Cóð tilbreytni hjá skíðamönnum
HJÓNAKEPPNI á skíðum fór
fram við Skíðaskálann í Hvera-
dölum sl. sunnudag 1. maí og
hófst keppni kl. 2 e. h. Fimm
hjón tóku þátt í keppninni og
fóru leikar þannig:
1. Bjarni Einarsson 24.0
Sesselja Guðmundsdóttir 34.0
Samtals 58.0
2. Rúnar Steindórsson 31.5
Jakobína Jakobsdóttir 28.8
Samtals 60.3
3. Víðir Finnbogason 27.7
Karen Magnúsdóttir 45.8
Samtals 72.5
4. Einar Eyfells 29.7
Unnur Eyfells 109.0
Samtalsl38.7
Enska knattspyrnan
URSLIT leikja í ensku deildar-
keppninni, sem fram fóru sl.
laugardag, urðu þessi:
1. deild
Aston Villa — Arsenal 3-0
Blackburn — Sheffield W. 1-2
Blackpool — Northampton 3-0
Fulham — Stoke 1-1
Leeds — Newcastle 3-0
Leicester — N. Forest 2-1
Liverpool — Chelsea 2-1
Sheffield U. — W. B. A. 0-2
Sunderland — Everton 2-0
Tottenham — Burnley 0-1
West Ham — Manchester U. 3-2
2. deild
Bristol City — Leyton O. 2-0
Bury — Plymouth 1-0
afl auglýsing
i útbreiddasta blaðinu
borgar sig bezt.
Cardiff — Crystal Palace
Carlisle — Huddersfield
Coventry — Middlesbrough
Derby — Preston
Manchester C. — Birmingh.
Norwich — Port^mouth
Rotherham — Ipswich
Southampton — Charlton
Wolverhampton — Bolton
1-0
2-0
2-1
1-0
3-1
1-3
0-0
1-0
3-1
f Skotlandi urðu úrslit m. a.
þessi:
Dundee U. — Stirling A. 1-1
Dunfermline — Rangers 1-2
Morton — Celtic 0-2
Motherwell — Dundee 2-0
St. Mirren — Hearts 1-1
Staðan er þá þessi:
1. deild
1. Liverpool 60 st.
2. Burnley 53 —
3. Leeds 50 —
4. W. B. A. 47 —
Liverpool hefur þegar tryggt
sér sigur í 1. deild, en niður í
II. deild færast Blackburn og
Northampton.
2. deild
1. Manchester C. 53 st.
2. Huddersfield 51 —
3. Southampton 51 —
4. Coventry 51 —
5. Wolvenhampton 50 —
Huddersfield, Coventry og
Wolverhampton hafa leikið 41
leik hvert af 42. ManChester City
38 leiki og Southampton 39 leiki.
5. Stefán Hallgrímsson 29.8
Edda Bjömsdóttir 140.0
Samtals 169.8
„Old boys“ karlar 35—50 ára:
1. Víðir Finnbogason 52.9
2. Þorsteinn Þorvaldsson 56.1
3. Stefán Hallgrímsson 57.6
4. Einar Eyfells 58.7
5. Rúnar Steindórsson 63.5
6. Jóakim Snæbjörnsson 71.2
7. Leifur Múller 75.3
8. Einar L. Guðmundss. 77.2
„Old girls“ Konur 30 ára og
eldri:
1. Karen Magnúsdóttir 96,8
2. Sigrún Sigurðard. 120.2
3. Unnur Eyfells 163.0
Mótstjóri var gestgjafi Skíða-
skálans í Hveradölum Óli J. óla-
son, brautarstjóri Haraldur Páls-
son, Í.R. sem einnig annaðist
frystingu brautarinnar.
Mjög margir áhorfendur komu
í Skíðaskálann þennan dag og
börn keppendanna voru undan-
farar á mótinu. Geysilegur spenn
ingur var í áhorfendum á með-
an keppnin stóð yfir og eru allir
sammála um að slíka keppni
skuli endurtaka næsta vetur. Að
móti loknu var kaffisamsæti og
verðiaunaafhending í Skíðaskál-
anum og við það tækifæri hélt
Stefán G. Björnsson ræðu og
þakkaði m. a. öllum sem lagt
höfðu hönd á plóginn við fram-
kvæmd þessa móts. Óli J. Ólason
þakkaði keppendum fyrir kom-
una og bætti við, að á næsta ári
yrði einnig reynt að koma við
„fjölskyldukeppni" sem án efa
yrði mjög vinsæit. Fyrir hönd
keppenda talaði Sigurjón Þórð-
arson, sem á þessu móti var
keppandi fyrir Í.R. Sigurjón varð
því miður úr leik, en bað gest-
gjafa Skíðaskálans og aðra fram-
kvæmdarmenn móts þessa f.h.
þeirra er þátt tóku í hjónakeppn-
inni að taka við beztu þökkum
fyrir skemmtilegan dag í Hvera-
dölum. Hann var þess fullviss
að nú myndu allir „old boys og
ÞETTA er lið Víkings, sem
vann sér rétt til setu í 1. deild
| handknattleiksmanna á sið-
I asta íslandsmóti, eftir að hafa
unnið bæði ÍR og sítfar Þrótt
1 með yfirburðum í auka-
| keppni þessara þriggja liða
i um lausa sætið. Það var rang-
lega hermt hér á síðunni á
dögunum, að Víkingar hefðu
I lengi verið í 2. deild. Liðið
i hafði aðeins ársdvöl þar og
er nú aftur eftir verðskuldað-
^ an sigur í 2. deild meðal 6
I liða í 1. deild.
Ljósm. Sv. Þorm. /i
old girls“ fara heim með hugann
fullan af fyrirheitum um að
hefja æfingar strax á næsta
hausti.
Fyrsta glímukeppni á
Akureyri um árabil
Clímt var um drykkjarhorn KEA
Akureyri, 2. maí: —
FYRSTA kappglíma, sem háð
hefur verið hér á Akureyri um
áraraðir fór fram í íþróttahúsinu
á laugardaginn. Fyrir henni geng
ust íþróttabandalag Akureyrar
og Ungmennasamband Eyjafjarð
ar.
Sömu aðiljar gengust fyrir
glímunámskeiði hér í bæ síðla
vetrar og sóttu það 54 ungir
menn. Kennari var Haraldur M.
Sigurðsson. Hefur það framtak
mælzt mjög vel fyrir, að reynt
skuli hafa verið að endurvekja
glímuáhuga hér í bæ. En virðu-
legasti verðlaunagripur, sem
glímt er um á íslandi nú, Grettis
beltið, er frá Akureyri runninn.
Yfirdómari í kappglímunni var
Þorsteinn Kristjánsson frá Glímu
sambandi fslands, en glímustjóri
var Haraldur M. Sigurðsson. —
Keppendur voru 9 í tveimur ald
ursflokkum. Glímt var um stórt
silfurbúið drykkjarhorn, sem
Kaupfélag Eyfirðinga gaf í því
skyni.
Sigurvegari í eldri flokki og nú
verandi handhafi hornsins var
Þóroddur Jóhannsson. Annar Val
geir Stefánsson. Þriðji Sigurður
Sigurðsson. í yngri flokki var
fyrstur Haraldur Guðmundsson,
annar Halldór Jónsson og þriðji
Áskell G. Jónsson. — svp.
FH og Fram í íþróttahöllinni
ÁKVEÐID hefur verið að efna
til kappleiks milli íslandsmeist-
ara FH og Fram í handknattleik
í íþróttahöllinni í Laugardal nk.
föstudagskvöld. Mun marga fýsa
að sjá hvernig þessí lið eru á
stórum velli, en þau hafa nú i
vetur unnið hvort annað til
skiptis í litla salnum að Háloga-
landi. Þetta eru einu ísl. karla-
liðin er þátt hafa tekið í Evrópu-
keppni í handknattleik. Komst
þá FH í 2. umiferð en Fram varð
úr keppni í 1. umferð.
Að vísu hefur þessi leikur enga
þýðingu fyrir hvorugt liðið til
titla eða meistarastigs. En víst
munu þeim báðum þykja sigur-
inn sætur — og þá ekki sízt
Fram.
Leikurinn er haldinn til
ágóða íyrir HiSÍ sem nú sendir
ísl. landslið til Bandaríkjanna og
greiðir ferðakostnað (flugferðir)
allar, en fyrir tveim árum komu
Bandaríkjamenn á sömu skil-
málum hingað til lands.
Á undan þessum „aðalleik" í
fþróttahöllinni þetta kvöld leika
Víkingur — nýliðarnir í 1. deild
— og KR-ingar, sem er íalliðið
í 1. deild. Gefst þar gostur á að
sjá hver er styrkleikamunur
milli efsta liðs í 2. deild og þess
er lakastan hlut bar frá borði
í 1. deild. Miðar kosta kr. 100
sæti, stæði 76 kr. og 10 kr. fyrir
börn.