Morgunblaðið - 08.05.1966, Side 31
gftmnudagur 8. maí 1966
MORGUNBLADIÐ
31
Ingibjörg Magnúsdóttir Kristbjörg Pétursdóttir Ingibjörg Halldórsdóttir U^Udóra Gunnarsdóttir Kristín Pétursdóttir
Sjálfstæðiskonur á Akureyri efna
til fundar um bæjarmálefni kvenna
mALíEFNI kvenþjóðarinnar
verða tekin til sérstakrar með-
ferðar á fundi með kvenkjós-
endum á Akureyri í Sjálfstæðis-
húsinu niðri n.k. þirðjudag kl.
8,30.
Ingibjörg Magnúsdóttir for-
stöðukona, gerir þar grein fyrir
þeim málum, er hún mun sér-
staklega beita sér fyrir i bæjar
stjórn, ef hún nær kosningu, en
hún skipar nú baráttusæti á lista
Sjálfstæðisflokksins.
Kristbjörg Pétursdóttir kenn-
ari, mun fjalla um skóla- og
fræðslumál og hvað framundan
sé í því efni.
Ingibjörg Halldórsdóttir hús-
freyja, ræðir skyldur bæjarfé-
lagsins við elztu borgarana og
gerir grein fyrir elliheimilsmál
unum.
Halldóra Gunnarsdóttir, kenn-
ari, fjallar um hlutverk kven-
þjóðarinnar í bæjarmálum.
Kristín Pétursdóttir verður
fundarstjóri, en fundarritarar
Guðlaug Hermannsdóttir og Ás-
gerður Snorradóttir.
Ingimar Eydal mun leika létta
tónlist meðan setið er yfir kaffi.
Er ekki að efa að konur, jafnt
eldri sem yngri, muni sækja
þennan fund vel og eru þær
hvattar til að mæta stundvís-
lega.
— Uppgjöf
Framhald af bls 1
„Grana“ segir, að Júgóslavia
taki sömu afstöðu til styrjaldar-
innar í Vietnam og bandarískir
heimsvaldasinnar, því að stjórn
Júgóslavíu styðji tillögur um
friðarumleitanir, án þess að gért
sé að kröfu, að bandarískt her-
lið verði fyrst dregið til baka
frá S-Vietnam, og stöðvaðar
verði loftárásir þeirra á N-Viet-
nam.
Forsætisráðherra Júgóslaviu,
Peter Stambolics, hefur nýlega
verið í heimsókn í Austurlönd-
um til þess að afla fylgis við
friðarumleitanir í Vietnam.
— Handritin
Framhald af bls. 1
„Berlingske Tidende“ segir,
næst á eftir fyrirsögn: „Bráða-
birgðadómurinn“. Svo heldur
áfram, og segir, að forsendur
dómsins verði að teljast óvæntar.
Með því að slá því föstu, að Árna
safn sé sjálfseignarstofnun þótt
lögin (um hafhendinguna) séu í
raun og veru þvingunarafhend-
ing, séu fengnar forsendur fyrir
dómsuppkvaðningu, sem sé
fræðslumálaráðuneytinu í óhag.
Síðan komi sá hluti forsendanna,
sem renni stoðum undir þá skoð-
un, að rétt sé að sýkna (fræðslu-
málaráðuneytið). Hér sé iögð
áherzla á, að ráðstöfunarréttur
Árnasafns yfir handritunum sé
takmarkaður, og geti stofnunin
náð tilgangi sínum, þótt skipting
safnsins eigi sér stað. Það sé ein-
kennilegt, og sennilega nýtt í
danskri réttarsögu, að ákvörðun,
sem sé í raun og veru þvingun-
arafhending, skuli falla utan við
73. grein stjórnarskrárinnar.
„Berlingske Tidende“ telur það
einnig einkennilegt, að landsrétt-
urnn skuli leggja á það áherzlu,
að Árni Magnússon hafi verið
umboðsmaður konungs, er hann
safnaði handritunum. Rétturinn
leitist við að byggja á forsögu
stofnunar Árnasafns, og tilgangi
skipulagsskrárinnar, sem enginn
vilji nú brjóta gegn, en það verði
að teljast undarlegt. Að lokum
segir blaðið, að forsendur dóms-
ins séu þannig, að meiri eftir-
vænting ríki nú um dóm hæsta-
réttar.
Vinstriblaðið „Fyns Tidende“
segir: „Þingið hefur ekki brotið
í bága við stjórnarskrána, og
leggur landsrétturinn á það
áherzlu í forsendum sínum. Þessi
niðurstaða hlýtur að vekja
ánægju, bæði í Kristjánsborg og
utan veggja þingsins. Þingið hef-
ur hagað ákvörðun sinni í sam-
ræmi við góða sambúð íslands
og Danmerkur . Þetta sjónarmið
hefur verið viðurkennt“.
Blaðið „Börsen“ segir: „Við
vonumst til þess, að hæstiréttur
stöðvi afhendinguna. Telja verð-
ur að gengið sé á rétt vorn, er
þjóðþingið krefst þess, að einka-
stofnun afhendi eignir sínar, sem
fram til þessa hefur verið farið
með í samræmi við skipulagsskrá
hennar. Þá verður það að teljast
furðulegt, ef ekki á að taka neitt
tillit til álits þeirra sérfræðinga,
sem látið hafa til sín heyra. og
sjónarmið stjórnmáialegs eðlis
eiga að ráða í þessu máli“.
fhaldsblaðið „Aalborg Sitistid-
enda“ segir: „Lögin hafa, um
stundarsakir hlotið staðfestingu,
og það verður að viðurkenna, að
það er alvarlegt, ef dómstólarnir
ónýta ákvörðun þingsins. Þó er
það í valdi dómsvaldsins að gera
það, ef rétt þykir. Það er eðli-
legt, að slík ákvörðun sé tekin af
hætarétti“.
Akranes
Sjálfstæðisfélag Akranes held
ur almennan fund í félagsheini-
ili templara n.k. mánudagskvöld
9. maí, kl. 8.30.
Fundarefni: Möguleikar á
hitaveitu fyrir Akranes: Sveinn
S. Einarsson, verkfræðingur.
Öllum heimill aðgangur.
— Grensás
Framhald af bls. 2
leysa brýna þörf á því sviði.
Á vegum sóknarnefndarinnar
hafa tvær nefndir starfað að und
irbúningi fyrirhugaðra fram-
kvæmda.
Undir forystu Atla Ágústsson-
ar, verkstjóra, hefur starfað
þriggja manna framkvæmda-
nefnd. Hefur hún nú veríð aukin
og verður hún jafnframt bygg-
ingarnefnd. Formaður nefndar-
innar er Guðmundur Árnaon,
forstjóri og Atli Ágústsson er
varaformaður.
Fjáröflunarnefnd er einnig
starfandi á vegum sóknarnefnd-
arinnar. Formaður henar er Jó-
hann Finnsson, tannlæknir.
Bygging safnaðarheimilisins er
fjárfrek framkvæmd og verður
því ekki komizt hjá að leita til
margra aðila um fjárhagslegan
stuðning. Áður en langt um líður
mun því verða efnt til almennrar
fjársöfnunar í sókninni og er
mikilvægt að sem allra flestir
veiti þessari þýðingarmiklu fram
kvæmd styrk svo aS takast megi
að reisa safnaðarheimilið á þessu
sumri.
Kvenfélag Grensássóknar var
stofnað í janúar 1964, og hefur
það starfað af miklum þrótti og
þegar orðið safnaðarstarfi Grens
ássóknar til mikils stuðnings,
m.a. í sambandi við fermingar-
guðsþjónustur og kirkjudaga.
Formaður kvenfélagsins er frú
Ragna Jónsdóttir kennari.
Tvívegis (í maí 1964 og 1965)
hefur verið efnt til kirkjudaiga
til kynningar á starfsemi safnað-
arins m.a. til kynningar á fyrir-
huguðum byggingarframkvæmd-
um og fjáröflunar.
Kirkjukór Grensáísóknar hef-
ur einnig veitt mikilvæga aðstoð
á kirkjudögum safnaðarins.
Organisti fyrstu tvö árin undir
stjórn Gustafs Jóhannessonar, nú
Guðmundar Gilssonar, en formað
ur kórsins er Valdimar Hannes-
son, málarameistari.
Kirkj'ukórinn og kvenfélagið
hafa í samvinnu við sóknarnefnd
ina gengist fyrir stofnun orgel-
sjóðs til kaupa á hljóðfæri í vænt
anlegt safnaðarheimili. í sjóðnum
eru nú nær 50 þús. kx.
New York, 7. maí. — NTB
Flugvélasamsteypan S A S
skýrði frá því í gær, að senn
yrðu hafnar á hennar vegum
reglubundnar flugferðir milli
New York og Moskvu. Notað-
ar verða þotur af gerðirmi
DC-8 á leið þessari. Millilent
verður í Kaupmannahöfn og
Stokkhólmi.
Frá upphafi hafa ýmsir vel-unn
arar þessa unga safnaðar fært
honum höfðingleagr gjafir eins
og áður hefur verið getið í frétt-
um, svo sem fagran hökul, rykki-
lín, barnasöngbækur, sálmabæk-
ur og biblíu og ennfremur pen-
ingagjafir.
Þannig afhenti gömul kona nú
nýlega kvenfélagi Grensássóknar
10 þús. kr. gjöf, sem hún óskar
eftir að verði notaður til kaupa
á ljósakrossi. sem settur yrði upp
inni í kirkjunni eða utan á kirkj-
unni eftir því sem bezt þykir
henta. Gefandinn er frú Ragn-
heiður Sölvadóttir. Hún gefur
þessa gjöf í minningu um fyrri
mann sinn Jón Árnason og dótt-
ur Idu Nikulásdóttur.
Ennfremur hafa söfnuðinum
borizt tveir vandaðir gólfvasar
gerðir af Guðmundi ÍEinarssyni
frá Miðdal, gefnir af hjón-unum
Jóhanni Hjörleifssyni og konu
hans frú Aðalheiði Halldórsdótt-
ur.
Margir ónefndir gefendur hafa
fært söfnuðinum peningagjafir
og áheit.
Sóknarnefndin er þannig skip-
uð: Magnús Gíslason námsstjóri,
foi’maður; Gunnlaugur Snædal,
dr. med. læknir. varaformaður;
frú Ingibjörg Þorvaldsdóttir, rit-
ari;, Guðmundur H. Halldórsso'n,
húsgagnabólstrari, gjaldkeri; Jó-
hann Hjörleifsson, umsjónarmað
ur, meðstjórnandi. Varamaður:
Ásgeir Hallsson, framkv^tj. —
Einar Th. Magnússon, fulltrúi er
safnaðarfulltrúi.
Faðir okkar
GIÐMUNDUR KR. ERLENDSSON
vélstjóri,
Strandgötu 21, Hafnarfirði,
andaðist 6. þessa mánaðar.
Kristín Guðmundsdóttir,
Erlendur Guðmundsson.
Faðir minn og fósturfaðir
BJÖRN HALLDÓRSSON
andaðist að Hrafnistu 6. þessa mánaðar.
Halldór Björnsson,
Baldvina H. Hafliðadóttir.
Kosningaskrifstofur
Sjálfstæðisflokksins
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN hefur kosningaskrifstofuv
utan Reykjavíkur á eftirtöldum stöðum:
AKRANESI
Vesturgötu 47, sími: 2240
opin kl. 10—12 og 14—22.
ÍSAFIRÐI
Sjálfstæðishúsinu II. hæð, sími 537 og 232
opin kl. 10—19.
SAUÐÁRKRÓKI
Aðalgötu 5, sími 23 — opin kl. 10—18.
SIGLUFIRÐI
Sjálfstæðishúsinu, sími 71154
opin kl. 13—19.
AKUREYRI
Hafnarstræti 101, sími 11578
opin kl. 10—12, 14—18 og 20—22.
VESTMANNAEYJUM
Samkomuhúsinu, Vestmannabraut 19, simi 223S
opin kl. 10—22.
SELFOSSI
Hafnartúni, sími 291
opin kl. 9—17 og 19,30—21.
KEFLAVIK
Sjálfstæðishúsinu, sími 2021
opin kl. 10—19.
HAFNARFIRÐI
Sjálfstæðishúsinu, sími 50228
opin kl. 9—22.
GARÐAHREPPI
Lyngási 8, sími: 51690 — 52340 — 52341
opin kl. 15—18 og 20—22,
laugardaga og sunnudaga kl. 14—18.
KÓPAVOGI
Sjálfstæðishúsinu, sími: 40708
opin kl. 9—22.
SELTJARNARNESI
Melabraut 56, sími 24378
opin kl. 18—22.