Morgunblaðið - 25.05.1966, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 25.05.1966, Qupperneq 10
10 MORGUNBLADIÐ Miðvikudagur 25. mai 1966 Ábyrgðarmerking á húsgögnum Húsgagnameistarafélag Reykja vikur er að hefja ábyrgðar merkingu á framleiðslu félags- manna í samráði við Neytenda- samtökin. Fylgir ábyrgðarskír- teini öllum hinum merktu vör- um, sem sýnir að sérstök ábyrgð er á hlutnum í eitt áir, frá þvi að hann er keyptur í verzlun- inni. Þá segir einnig í skírtein- inu, hvert kaupandi skuli snúa sér, ef hann telur að galli komi fram á vörunni innan 12 mán- aða. Veit kaupandin að þessi merkta vara er undir eftirliti fagmanna, og getur því treyst því að hér er um góða fram- leiðslu að ræða. Getur hann gert kaupin upp á eigin spýtur, ef honum líka hlutirnir að gerð og útliti, án þess að fá fagmann með sér til þess að skoða þá. Af þessum sökum má búast við að þetta verði almenningi til mikils hægðarauka við húsgagna val. Þetta kom m.a. fram á blaða- mannafundi sem Húsgagna- meistarafélagið og Neytendasam- tökin héldu í gær. Hafði Karl Maack, formaður Húsgagnameist arafélagsins, aðallega orð fyrir húsgagnameisturum, en Sveinn Ásgeirsson fyrir Neytendasam- tökunum. Karl sagði m.a., að mál þetta væri mjög umfangsmikið og hefði verið lengi í undir- búningi hjá þessum aðilum, eða í hálft annað ár, enda myndi þetta vera í fyrsta skipti sem félag tæki upp gæðamat á fram leiðsluvöru félaga sinna. Kvað hann félagið hafa fengið mjög góða fyrirgreiðslu hjá Iðnaðar- mannasambandi íslands um fyrirkomulag við slíkar ábyrgð- ar merkingar, sem er, eins og áður segir ,óþekkt hér á landi, og væri það sniðið eftir danskri fyrirmynd. Hann gat þess að það eitt að vera félagi í Hús- gagnameistarafélaginu nægði ekki til þess að merkja fram- leiðslu sína með þessu merki heldur þyrfti sérhver meistari að sækja um leyfi til sérstakr- ar matsnefndar. Væri hún skip- uð tveimur félögum úr Húsgagna meistarafélaginu og tveimur fé- lögum úr Neytendasamtökun- um. Sveinn Ásgeirsson lýsti ánægju sinni yfir því að nú skyldi hafa verið stofnuð matsnefnd varð- andi smíði húsgagna, og kvað. vandlega hafa verið unnið að því máli. Kvaðst hann einnig vilja lýsa því yfir, sem von þeirra í Neytendasamtökunum, að með stofnun hennar hefði verið lagður grundvöllur að fleiri matsnefndum á hinum ýmsu sviðum viðskipta, og gat þess jafnframt í því sambandi að ýmislegt væri í deiglunni, og búast mætti við að fleiri mats- nefndir yrðu stofnaðar, t.d. væri það nú í undirbúningi hjá ból- strurum. Sveinn sagði, að félag hús- gagnameistara hefði sýnt víð- sýni í undirbúningi þessa máls, og það mæ‘ti verða fordæmi og að aðrir sigldu í kjölfarið. Þær skuldbindingar, sem því fylgdu að láta ábyrgðarskírteini félagsins og merki verða áfast framleiðsluvörum, væru mjög strangar, en slíkar kröfur skyldu menn gera til alls, er þeir byðu öðrum til kaups, því að þá mundu báðum aðilum viðskipta vegna betur. Hann sagði að lokum, að með ábyrgðarskírteini því, sem hér um ræddi, væri einungis átt við 12 rpánuði, og svo sem lög kvæðu á um, en aftur á móti væri það meginatriði málsins, að í henni fælist fljótt afgreiðsla ágrein- ingsmála, og jafnframt væri skapað aðhald til vöndunar, ekki aðeins vörunnar, heldur og allr- ar þjónustu í sambandi við við- skiptin. SLÍPPFÉLAGIÐ í REYKJAVÍK 5TOFNAÐ 21. OKTÓBER 1902 EÍ.ZTA STARFANDl H LUTAFÉLAC fíf.R A LANDl Sigiutfur Júnsion, vcrkfrmtingur. Tilgangurinn mcð stofnun félagsíns .var aíf byggja og •tarfrækja s'kipavid'gerðastöíf og var fyrsta dráttarbraut- ’in, og jafnframt sú fyrsta á íslaudi, sem því nafni mætti nefnast, byggð árið 1902. Fyrstu stjórn íélagsins skipuðu; Tryggvi Gunnarssont bankastjóri, Ásgeir Sigurðsson, konsúll, og Jes Zimsen, lónsúU. Fyrsti frarakvæmdastjóri félagsiua var 0. EU- ingsen. Árið 1904 var byggð önnur dráttarbraut fyrir allt að 200 smál. skip, og var hún í nolkun til drsins 1932, er félagið byggði 2 dráttarbrautir, aðra fyrir 400 smál. skip og hina fyrir 800 smál. skip, og var þá í fyrsta skipti bægt að taka togarn á land á íslandi. Slippfclagið starf rækir nú 3 drátlarbrautir: 1) fyrir-1500 smál. skip með blíðarfærslum fyrir þrjú 1000 smállcsta skip, byggð 1948, 2) fyrir 2500 smál. skip, byggð 1954, , 3J fyrir 500 smál. skip, með hliðarfærslu fyrir báta, byggð 1956. Húsakostur félagsins er nú ca. 7000 fermetra gólfflöturv 25,000 teningsmeLrar.'Vélakostur 1500 ha. Frá árinu 1932 licfur félagið tckið á land ca. 6000 ski(» (3,5 millj. hr.t.) og hafa engin óhöpp komið fyrir '* þcssu tímabilL Auk upptöku skipa og skipaviðgerða, starfrekið félagiff skipa- og timburverzlanir, málningarírainleiðslu og u«> smíðaverkstæði. Núverandi stjórn skipa: Forhiaður, Kristján Siggeir#* son, kaupmaður, meðstjómcndur: Tryggvi ófeigsson* útgcrðarmaður, Bencdikt Gcöndal, forstjóri, og Valgeir Bjömsson, hafnarstjóri. Franikvæmdnstjóri er Sigurður Jónsson, verkfrœðiugur. Myndin hér að ofan er tekin úr bókinni „ísland í dag“, og er af grein, sem birtist þar áriff 1961. Með henni eru staðfestar þær staðreyndir, sem fram koma í meðfylgjandi leiðrettingu. Rúðstefno ungrn mnnnn um snmstöðn NATO-ríkjnnnn Slippurinn í Reykjavík er stærsta dráttarbraut landsins DAGANA 17. til 23. apríl sl. var haldin í Haag ráðstefna ungra manna í aðildárríkjum Atlants- hafsbandalagsríkj anna“ (The Cohesion of the Alliance). Tveir fslendingar, þeir Jón Abraham Ólafsson, fulltrúi yfirsakadóm- ara, og Hilmar Jónsson, bóka- vörður, sóttu ráðstefnuna á veg- um VARÐBERGS — félags ungra áhugamanna um vest- ræna samvinnu. Alls voru þátt- takendur yfir 30 frá öllum fimmtán ríkjum bandalagsins. í upphafi ráðstefnunnar voru fluttir 3 fyrirlestrar: Dr. C.L. Patijn, prófessor, og Anthony E. M. Duijnstee, báðir þing- menn, ræddu um samstöðuna á sviði stjórnmála og hermála, en Dr. K. Hahn fjallaði um þýðingu NATO í samskiptum austurs og afstöðu stjórnar de Gaulle. í umræðunum á ráðstefnunni var m. a. rætt ýtarlega um við- horfin til hinnar nýju stefnu Frakka — og hvernig bregðast bæri við henni. Kom fram mikill áhugi á að efla og treysta bandalagið, svo að því verði kleift að tryggja áfram öryggi aðildarríkjanna og treysta frið- inn í heiminum. Þátttakendur fóru í tvær kynnisferðir meðan ráðstefnan stóð yfir, þ.á.m. með tundur- duflaslæðurum, sem voru að æfingum á Norðursjó. Loks hélt borgarstjórinn í •Haag boð-fyrir þátttakendurna. (Frá Samtökum um vestræna samvinnu). VEGNA greinar í heiðruðu blaði yðar þ. 28. apríl sl. með fyrir- sögninni: Samið um smíði drátt- arbrautar á Akureyri — verður langstærsta dráttarbraut á land- inu. Ennfremur segir m.a. í nefndri grein, að dráttarbrautin eigi að vera fyrir 2000 lesta skip með einni hliðarfærslu fyrir 800 lesta skip og að áætlað sé að brautin verði tilbúin í árslok 1967 eða snemma árs 1068. Þar sem hér er talið að þetta verði langstærsta braut á land- inu, vil ég leyfa mér að gera eftirfarandi athugasemd: Slippfélagið í Reykjavík h.f. starfrækir nú 3 dráttarhrautir: 1. Fyrir 1500 lesta skip með hliðarfærslum fyrir 3 skip 1000 lesta hvert (brautin tekin í notkun árið 1947). 2. Fyrir 2500 lesta skip (braut in tekin í notkun árið 1954). 3. Fyrir 500 lesta skip með hliðarfærslu fyrir báta (brautin tekin í notkun árið 1956). 4. Ofangreindar dráttarbraut- ir eru byggðar með 5 til 6 földu burðaröryggi, þannig að mikið þyngri skip er hægt að taka upp án áhættu. Byggingarkostnað þessara dráttarbrauta ásamt undirstöð- um mætti áætla með núverandi verðlagi yfir 300 millj. krónur. Sigurður Jónsson, forstjóri Slippfélagsins í Reykjavík h.f. Sjötugur: Þorsteinn Jónsson vesturs. Tveir umræðuhópar þátttak- enda sjálfra tóku síðan ýmsa þætti ofangreindra mála til með ferðar. Aðra fyrirlestra á ráðstefn- unni fluttu þeir van der Stoel frá hollenzka utanríkisráðuneyt- inu, sem ræddi um þátttöku smærri ríkjanna í starfsemi Atlantshafsbandalagsins, van Campen frá NATO um stjórn- málastarfið innan bandalagsins, og Frakkinn Pierre Mahias, framkvæmdastjóri „Atlantic Treaty Association (ATA)“, um Leiðrétting í VIÐTALI, er birtist í blaðinu í gær við Ófeig Guðnason átt- ræðan var sagt, að hann hefði farið landveg vestur á Bíldudal. Þetta er misskilningur, því að Ófeigur fór aðeins landveg á milli Patreksfjarðar og Bíldu- dals. Þá var sagt, að Ófeigur hefði hrakizt 2500 mílur á Biscaya- flóa á styrjaldarárunum fyrri. Þar átti að standa 250 sjómílur. Eru hlutaðeigendur beðnir vel- virðingar á þessu. ATHUGIB Þegar miðað er við útbreiðslu. er langtum ódýrara að auglýsa í Morgunblaðinu en öðrum biöðum. Hryssan með þrífætta folaldið sitt. Ljósm. O. E. folald I ■ ■ HVOLSVELLI, 23. maí — Annan framfótinn ásamt ; Fyrir nokkrum dögum kast-bóg vantaði alveg. aði 10 vetra hryssa frá Mar- Þeir sem vit hafa á, telja ; mundi Kristjánssyni á Svana- þetta mjög fágætt fyrirbrigði « vatni í Austur-Landeyjum. og sjaldgæft að svona folald ; Þegar að var komið, blasti lifi lengi, en þetta er ákaflega • við fágæt sjón, því folaldið hraustlegt, bregður meira að ; var aðeins með þrjá fætur. segja á leik, prjónar og eys. hreppstjóri Jörfa VIÐ hlíðarætur sunnan Hauka- dalsár í Dalasýslu við fótskör hins háa og rismikla Jörfahnúks er höfuðbólið fornfræga, Jörfi í, Haukadal. Þar hafa löngum búið höfðingsmenn og kjarnakonur, sem gert hafa garðinn frægan. Þangað varð mörgum gengið á gleðifnd fyrr á öldum. Þaðan hefur oft stafað ylgeislum glettni, söngva og gamanmála út yfir grundir og engi hins sumarfagra fjalladals. Að Jörfa hefur nú búið um aldarfjórðungsskeið Þorsteinn Jónasson, hreppstjóri, ásamt konu sinni, Margréti Oddsdóttur. Foreldrar Þorsteins voru Jónas Klemensson á Krossi í Haukadal og Guðrún Guðmundsdóttir. Á æskuárum stundaði Þorsteinn nám í alþýðuskólanum að Hvít- árbakka í Borgarfirði. Reyndist hann góðum og traustum náms- gáfum gæddur og lét hvergi sinn hlut eftir liggja, ef honum þótti nokkurs við þurfa. Síðar lagði hann stund á barnafræðslu um skeið. Að Oddsstöðum í Miðdöl- um bjó hann á árunum 1934— 1941. — Og 9. maí sl. varð hús- bóndinn á Jörfa sjötugur, en 26. apríl sl. varð Margrét húsfreyja sextug. — Börn þeirra eru Hún- bogi, kennari við Samvinnuskól- ann að Bifröst, Álfheiður, hús- freyja að Bæ í Miðdölum, gift Baldri Friðfinnssyni, og Marta, húsfreyja í Búðardal, gift Guð- brandi Þórðarsyni. Öll eru börn- in mannvænleg og vel gefin. Barnabarnahópur þeirra Jörfa- hjóna er þegar orðinn stór og álitlegur í bezta lagi. Þorsteini á Jörfa hafa verið falin fjöldamörg trúnaðarstörf I þágu sveitar og sýslu, m. a. hefur hann lengi verið sýslunefndar- maður og hreppstjóri Haukdæla. Hann er sérstæður hæfileika- og mannkostamaður, sem stendur djúpum rótum í íslenzkri mold, óhvikull sem drangur í fjalls- hlíð. Hann býr yfir margvísleg- um fróðleik frá fyrri tíð, sem vert væri að skrá og geyma. Hann tekur ógjarnan til máls á opinberum fundum. Segist geta orðiÖ full tannhvass, ef svo ber undir. En jafnan er hlustað, þegar hann kveður sér hljóðs — og það svíkur engan. Þá streyma orðin fram, kjarnmikil og mark- sækin, stundum glettin, en ávallt gjörhugsuð. Um. Þorstein mætti margt skrifa og einnig hina ágætu eig- inkonu hans, en hér verður stað- ar numið. Margar minnisstæðar stundir á heimili þeirra hjóna ber að þakka, svo og aðra sam- fundi. Eg óska þeim innilega til hamingju í þessum áfanga og vona, að þau og niðjar þeirra njóti allra heilla á komandi ár- uro F. Þ.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.