Morgunblaðið - 25.05.1966, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 25.05.1966, Blaðsíða 12
12 MOHGUUBLAÐID Miðvikudagur 25. mal 1968 FASTEIGNAVAL Skólavörðustíg 3 A, 2. hæð. Símar 22911 og 19255. Til sölu m.a.: Iðnaðarhúsnæði Tvær 240 ferm. hæðir á góðum stað í Austurborg inni'. Sérstaklega byggt fyrir þungar vélar. — Mjög góð aðkeyrsla. — Upplýsingar aðeins á skrif- stofunni, ekki í síma. Jón Arason hdL Hafnarfjörður 3ja herb. íbúð á 2. hæð við Brekkugötu er til sölu. íbúðinni fylgir hálfur kjallari. íbúðin getur orðið laus fljótíega. ÁRNI GRÉTAR FINNSSON, HDL. Strandgötu 25, Hafnarfirði. Sími 51500. Vélritunarstúlkur óskast Landsvirkjun, Suðurlandsbraut 14, óskar eftir að ráða tvær stúlkur vanar vélritun. Umsóknir óskast sendar skriflega með upplýsingum um menntun, aldur og fyrri störf. Frá Tónlistaskólanum í Reykjavík Skólauppsögn verður í dag, miðvikudag 25. maí, kl. 2 síðdegis. SKÓLASTJÓRI. Skrifstofustulka óskast nú þegar til starfa á lögfræðiskrifstofu. — Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf sendist afgr. Mbl. fyrir föstudagskvöld, merkt: „Lögfræðiskrifstofa — 9815“. Glæsilegt úrval af sumarhöttum barna IMýkomið fallegt úrval af ungbarnafatnaði og barnateppum. Aðalstræti 9. — Sími 18860. Sveinn Guðmundsson, Seyðisfirði Er tímabært að stofna síldarsölusamlag? EITTHVAÐ verður að gera til að breyta því ófremdarástandi sem ríkir í verkun og sölu síld- ar. Bezta sönnun þess, að eitt- hvað verði að gera er ársyfirlit það, er, formaður Síldarútvegs- nefndar skrifar í 2. tölubl. Æg- is í ár. 1 því segir hann meðal annars: „Það er ekki ætlunin í þessu yfirliti að rekja árangur eða framkvæmdir þessara samninga, aðeins vil ég segja að ekki hafi vel til tekizt. Má e.t.v. rekja það til síldarskorts á tímabili, eftirgangssemi umboðsmanna síldarkaupmanna, og undaniats- semi einstakra síldarsaltenda og skorti á samvinnu þeirra við Síldarútvegsnefnd. Síldarskort- urinn á timabilinu júlílok til seinnihluta ágústmánaðar kann að hafa átt sinn þátt í því, að slaka varð á um gæði og vöru- vöndun, og ég er ekki í neinum vafa um það, að ýmsir umboðs- menn sænskra síldarkaupmanna eiga þar mesta sök. Því miður hlusta enn margir síldarsiit- endur um of á þeirra vafasömu ráðleggingar og „hollráð". Því miður virðist svo á stundum, að það gleymist að síldarsöltun byggist á vöruvöndun, bæði um gott hráefni og verkun. Síldar- gæðin voru vonum beri, stærð- arhlutföllin betri en búizt var við, og fitumagn í bezta lagi. Smærri síldin, ef vel er verkuð er Ijúffeng og góð vara til neyzlu en hinu má ekki gleyma, að beztu viðskiptavinir okkar, sem kaupa sumarsíldina vilja stóra síld, en umfram allt þó jafna stærð í hverri tunnu“. Síldarútvegsnefnd er skipuð 7 mönnum, sem ýmist eru kosnir af Alþingi eða skipaðir af ráð- herra, eftir tilnefningu Alþýðu- sambands íslands, Landssam- bands íslenzkra útvegsmanna, Félags síldarsaltenda á Norð- ur- og Austurlandi og Félags síldarsaltenda á Suðvesturlandi. Samkvæmt lögum á Síldar- útvegsnefnd að sitja á Siglu- firði á síldarvertíð norðanlands og í Reykjavík á síldarvertíð sunnanlands. _ Á síðustu árum hefur söltun- arsvæðið flutzt að mestu leyti frá Norðurlandi til Austfjaröa. Einnig hefur nú í tvö ár verið söltuð síld á Austfjörðum upp í Suðurlandssamninga. Þessi Austfjarðasíld virðist ekki kunna að fara áð lögum, því að ekki virðast þau gera ráð fyrir að hún sé söltuð. Nú síðustu ár er mér ekki kunnugt um að Síldarútvegs- nefnd hafi setið neitt að ráði á Siglufirði, enda ef til vill ekki mikil ástæða til, þar sem lítið hefur verið saltað þar. Þeim mun meiri ástæða virðist það vera fyrir einstaka nefndar- menn og. nefndina í heild að kynna sér ástandið á aðal sölt- unarsvæðinu. Ég hef aldrei orð- ið var við að Síldarútvegsnefnd hafi ferðast um Austurland hvað þá kynnt sér ástandið neitt að ráði. Einsakir nefndarmenn hafa að vísu verið hér á ferð, venju- lega í Öðrum erindum en sem meðlimir Síldarútvegsnefndar. Ég leyfi mér til dæmis að efast um að formaður Síldarútvegs- nefndar hafi nokkurn tíma kom ið á austfirzka söltunarstöð. Aðr ir nefndarmenn hafa að vísu ekki troðið okkur síldarsaltend- um mikið um tær, en þeir hafa látið það vera að senda okkur tóninn. Yfirleitt held ég að salt- endur þekki ekki meðlimi Síld- arútvegsnefndar og Síldarútvegs nefnd þekki ekki síldina sem þeir láta salta. Því furðulegra er að formaður Síldarútvegs- nefndar skuli leyfa sér annan eins skæting og dylgjur í garð síldarsaltenda og hann viðhefur í Ægisgreininni. Formaður tal- ar um skort á samvinnu síldar- saltenda við Síldarútvegsnefnd. Getur nokkur annar en hann láð okkur þó að við séum ekki að elta þessa herra uppi, fyrst að þeir eru ofgóðir til að kynna sér það sem þeir eiga að gera, þá mundu þeir víst lítið læra þó að við færum að eltast við þá. Þetta vandræða ástand hefur skapazt vegna þess, að Síldar- útvegsnefnd hefur enn ekki við- urkennt þá staðreynd að síldin hefur breytt göngum sínum. Síldin er söltuð á Austfjörðum, skrifstofur Síldarútvegsnefndar eru á Siglufirði og nefndarmenn irnir eru út um allt, aðallega þó í Reykjavík. Umboðsmenn kaupenda fluttu sína síldarverk- un eftir síldinni en Síldarútvegs nefnd flutti sig frá Siglufirði til Reykjavíkur og gafst upp við síldarsöltun og lætur for- manninn skrifa eina skætings- grein á ári. Það er alveg furða hvað starfsmönnum Síldarútvegs nefndar á Siglufirði hefur tek- ist að hafa samvinnu við salt- endur á öðru landshorni, þrátt fyrir lélegt símasamband og lít- il persónuleg kynni. En sam- bandið við Síldarútvegsnefnd sjálfa hefur algjörlega brugð- izt. Þróunin virðist hafa verið sú að undanförnu að í Síldar- útvegsnefnd hafa aðallega valist atvinnupólitíkusar með takmark aðan áhuga á verkefninu. Sölusamninga, sjá Síldarsalt- endur aldrei hvað þá skýringar við þá, aðeins bréf og nokkur skeyti. Engin aðili fylgist með yfirtöku síldarinnar fyrir hönd Síldarútvegsnefndar. Umboðs og yfirtökumenn virðast vera nokkurs konar hæstiréttur í þessum málum: „Því miður hlusta enn margir sildarsaltend- ur um of á þeirra vafasömu ráðleggingar og „hollráð“. Á þessu er formaður Síldarútvegs’ nefndar hissa. Ég er meira hissa að hann kuli þora að minnast á þetta. Það er Síldarútvegs- nefnd, sem gefið hefur þessum mönnum það vald sem þeir hafa. Það er staðreynd að rússnesk- ir yfirtökumenn hafa hvað eft- ir annað neitað síld sem að Síld armat ríkisins hefur áður yfir- Framhald á bls. 18 Til sölu Nýleg 2ja herb. íbúð við Kleppsveg. Góð 3ja herb. íbúð við Álfheima, sem er laus nú þegar. FASTEIGNASALAN Skólavörðustíg 30. - Símar 23987, 20625. Yfirlýsing Að gefnu tilefni viljum við taka fram að ferð sú til Miðjarðarhafsins, sem efnt er til á vegum Karla kórs Reykjavíkur og Ferðaskrifstofunnar Lands- sýn er okkur að öllu leyti óviðkomandi. Félag íslenzkra ferðasfofa Ferðaskrifstofan Saga Ferðaskrifstofan Útsýn Ferðaskrifstofan Lönd og Leiðir Ferðaskrifstofa Akureyrar Ferðaskrifstofa Zoega Ferðaskrifstofan Sunna Efncafræðingur Óskum eftir að ráða til okkar efnaverkfræðing eða mann með svipaða menntun( til umsjónar með dag legum rekstri verksmiðjunnar. Góð vinnuskilyrði fyrir hendi. Æskilegt að minnsti ráðningartími væri 2 ár. — Þarna er í boði vel launað framtíðar- starf fyrir ungan og duglegan mann. Allar nánari upplýsingar gefur Björn Dagbjarts- son, símar 2100 og 2101, Vestmannaeyjum. Fiskimjölsverksmiðjan í Vestmannaeyjum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.