Morgunblaðið - 25.05.1966, Side 16
10
MORGU NBLAÐIÐ
Miðvikudagur 25. maí 1966
Vinnuliuxur!
Drengjastærdir frá Kr.110—
^ Karlmannastærdir frá Kr. 176—
VINSÆLÖST * ODYRUST * ENDINGARBEZT
íbúðir tíl sölu
Til sölu eru 2ja, 3ja, 4ra og 5 herb. íbúðir á hæð-
um í sambýlishúsum við Hraunbæ. Seijast tilbún
ar undir tréverk og sameign úti og inn oftast
fuilgerð. Sumar íbúðirnar tilbúnar til afhendingar
nú þegar. Hagstætt verð. Teikningar til sýnis á
skrifstofunni.
Arni stefansson, hrl.
Málflutningur — Fasteignasala.
Suðurgötu 4 — Sími: 14314.
Vel heppnnð
Fræðsln-
nómskeið
Dagana 18. til 20. þ.m. var
fræðslunámskeið haldið við
Garðyrkjuskólann Reykjum
fyrir meðlimi Gardyrkjuverk-
takaféags íslands.
Námskeið þetta er hið fyrsta
sem haldið er í hinni nýju bygg-
ingu Garðyrkjuskólans. Þar
voru tekin fyrir eftirtalin verk-
efnj: Meðferð mælitækja land-
og hallamælingar og rúmmáls-
útreikningar við tilfærslu jarð-
vegs. Kennslu annaðist Marteinn
Björnsson byggingarfulltrúi, Sel-
fossi. Axel Magnússon kennari
að Reykjum, flutti erjndi um
jarðveg og áburðarnotkun. Reyn
ir Vilhjálmsson skrúðgarðaarki-
tekt flutti skýringar á garðteikn
ingum og uppbyggingu nýrra
garða. 1 ræðu, er skólastjóri
Garðyrkjuskólans flutti í lok
námskeiðsins sagði hann meðal
annars að hann hefði gjarnan
viljað, að húsakynni hefðu leyft
víðtækara og stærra námskeið
en nú var unnt að hada og von-
aðist hann til, að húsnæði skól-
ans, sem nú er í byggingu gerði
kleift a ðauka þessa starfsemi
og stækka í sniðum, sér hefði
lengi verið ljós þörf námskeiða
í hinum ýmsu greinum garð-
yrkjunnar, en starfsskilyrði ekki
verið fyrir hendi, en sín von
væri, að þetta gæti verið upp-
haf að víðtækari fræðslustarf-
semi af skólans hálfu, fyrir starf
andi garðyrkjumenn.
Ég vil því leyfa mér fyrir
hönd okkar, sem þetta nám-
skeið sóttum, að flytja kénnur-
um þakkir fyrir þann fróðleik,
er þeir miðluðu okkur og á-
nægjulegar samverustundir.
Ennfremur þakka ég skólastjóra
hans undirbúnings og móttökur
aliar, sem voru í hvívetna til
fyrirmyndar og ekki sízt vil ég
þakka honum fyrir það að hafa
hrint í framkvæmd starfsemi,
sem að rekin er á svo hagnýtan
hátt, sem hér var raun á, og
vil ég hiklaust telja að mættj
vera öðrum starfsgreinum til fyr
irmyndar. Þessir dagar í hinum
vistiegu hýbýlum nýbyggingar
Garðyrkjuskólans sannfærðu
okkur, sem þátt tókum í nám-
skeiðinu um gildi slíkrar starf-
semi og vönum við að skóla-
stjóranum verði gert kleift að
auka siíkt starf svo sem hugur
hans stendur til og að Garð-
yrkjuskólinn verði þar með leið-
andi fræðslumiðstföð íslenzkrar
garðyrkj ustéttar.
Reykjavík, 22. marz 1966,
Björn Kristófersson.
»® auglýsing
i útbreiddasta blaðlnu
borgar sig bezt.
IHorgunblatod
ÖS VANDEÐ VALRI -VELJLÐ VOLVO
IVotaðir Volvo bílar
Höfum til sölu eftirtaldar notaðar
VOLVO bifreiðir:
Duett Stationbifreið, árgerð 1962,
krónur 140.000,00.
P-544 Favorit, árgerð 196j,
krónur 130.000,00.
P-544 Favorit, árgerð 1963,
krónur 145.000,00.
Rifreiðarnar eru til sýnis hjá oss.
GUNNAR ASGEIRSSON H. F.
Suðurlandsbraut 16. — Sími 35200.
Hestamannafélagið Andvari
Garða- og Oessastaðahreppi
Aðalfundur félagsins verður haldinn í samkomu-
húsinu að Garðaholti fimmtudaginn 26. þ.m. og
hefst kl. 8,30 e.h.
DAGSKRÁ:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Á fundinum verður skráð í hagagöngu fyrir sum
arið, eru því þeir félagar, sem hyggjast láta hross
sin í hagagöngu hjá félaginu, hvattir til að mæta.
STJÓRNIN.
*
Frá Verzlunarskóla Islands
Auglýsing um lausa kennarastöðu við skólann.
Verzlunarskóli íslands óskar að ráða einn fastan
kennara í ensku á hausti komandi.
Nauðsynlegt er að væntanlegir umsækjendur hafi
lokið háskólaprófi.
Launagreiðslur og önnur kjör eru í samræmi við
það, sem gerist við opinbera skóla á hverjum tima.
Lífeyrissjóðsréttindi.
Umsóknir ber að stíla til skólanefndar Verzlunar-
skóla íslands, Pósthólf 514, Reykjavík. Umsókn
fylgi greinargerð um menntun og fyrri störf. —
Umsóknarfrestur til 15. júní þ. á.
Skólastjóri.
Seljum næstu daga
meðan birgðir endast, einangrunarplast, afskorn-
inga á tækifærisverði. — Hentugt til einangrunar
á sumarbústöðum, sem tróð í loft o. fl.
Afgreitt í verksmiðjunni
Oskum eftir að ráða rafvirkja
vanan vélaviðgerðum. — Nánari upplýsingar gefur verk-
istjórinn, Sigurður Sigurjónsso n.
Rafmagnsverkstæði SÍ8
Ármúla 3. — Sími 3-89-00.
ARMA PLAST
KLEPPSVEGI.
Þ. Þorgrímsson & Co
Suðurlandsbraut 6. — Sími 38640.