Morgunblaðið - 25.05.1966, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur ?5. rnai 1966
Allgóður árangur
á Vormóti Í.R.
f GÆR fór fram á Melavellin-
um fyrsta frjálsíþróttamót sum-
arsins, Vormót ÍR. Þátttaka var
góS, keppni skemmtileg í mörg-
um greinum og árangur góöur
í einstökum greinum og lofar í
heild góðu fyrir sumarið. Virð-
ast frjálsíþróttamenn nú í all-
góðri æfingu og áhugi vera vax-
andi.
Valbjörn Þorláksson var sá er
bar hæst á mótinu. Hann sigraði
í spjótkasti með 61,21 metra, í
100 metra hlaupi á 11,2 og í lang
stökki, stökk 6,52. f 800 metra
hlaupi var keppni mjög skemmti
leg milli þeirra félaga Þórarins
Ragnarssonar og Halldórs Guð-
björnssonar úr KR. Reyndist
Þórarinn sterkari á endasprett-
inum og sigraði á 2:00,7, en Hall
dór fylgdi fast á eftir. í sleggju-
kasti var keppni einnig skemmti
leg, en þar sigraði Þórður B.
Sigurðsson, Jón H. Magnússon
ÍR með 49,75 metr., gegn 47,15
metr. Jón er mikið efni og er
ekki ólíklegt að hann eigi eftir
að bæta sig mikið í sumar og
jafnvel krækja í íslandsmet
Þórðar.
Úrslit mótsins urðu annars
þessi:
100 m. hlaup:
1. Valbjörn Þorláksson KiR 11,2
2. Kristján Mikaelsson, Á 11,5
3. Þórarinn Ragnarsson KR 11,6
800 m. hlaup:
1. Þórarinn Ragnar&son KR 2:00,7
2. Halldór Guöbjörnss. KR 2:01,8
3. Þórður Guðm.son UMSK 2:04,2
4x100 m. boðhlaup:
1. Sveit Á 46,1 sek.
2. SveitKR 46,5 —
M0LAR
Tel Aviv — Það þótti tíð- 1
indum sæta að ísraelska liðið l
Maccabi vann á mánudaginn l
ensku bikarmeistarana, Ever- /
I ton, í knattspyrnukappleik er ;
I fram fór í Tel Aviv. Úrslitin)
voru 1-0.
Byrjað er að ræða um
næsta móther ja Cassiusar
Clay. Er talað um bandaríska
negrann Doug Jones, sem lík-
legastan eða að öðrum kosti
þýzka meistarann Karl Mild-
enberger. Clay hefur sagt, að
hann vilji fá næsta leik inn-
an tveggja mánaða.
Þýzki hlauparinn Harald
Norpoth, sem vann silfur í 5
km. á Rómarleikunum, náði
mjög góðum árangri í fyrstu
keppni sinni í ár. Hann hljóp
míluna á 3:58.8 og er fyrsti
Þjóðverjinn sem hleypur
skemmri tíma en 4 min.
1
Hástökk:
1. Jón Þ. Ólafsson, ÍR _ 1,95
2. Sigurður Lárusson, Á 1,70
3. Ingimundur Ingimundars. 1,70
Langstökk:
1. Val'björn Þorláksson, KR 6,52
2. Úlfar Teitfeson, KR 6,50
3. Páll Eiríksson, KR 6,24
Spjótkast:
1. Valbjöm Þorláksson, KR 61,21
2. Björgvin Hólm, £R 57,04
3. Páll Eiríksson, KR 55,71
Kúluvarp
1. Guðm. Hermannss. KR, 15,51
2. Erlendur Valdimarss. ÍR 13.54
3. Valbjörn Þorlákss., KR, 12.77
Kringlukast
1. Þorst. Alfreðss. UMSK 44.75
2. Þorsteinn Löve, ÍR, . . 44.71
3. Erlendur Valdimarss., ÍR, 43.65
Sleggjukast
1. Þórður B. Sigurðss., KR, 49.75
2. Jón H. Magnússon, ÍR, 49.15
3. Friðrik Guðmundss., KR, 44.50
„Hin göfuga list
til sjálfsvarnar"
„HIN göfuga list til sjálfs-
varnar" hefur hnefaleika-
íþróttin stundum verið nefnd.
Og vera má að stundum geti
einhverjir séð eitthvað göf-
ugt við hana. En þessar mynd
ir bera ekki vott um göfgi
iþróttarinnar. Þær eru teknar
í leik þeirra Clay og Coopers
um heimsmeistaratitilinn. Sú
stærri sýnir Clay þjarma að
hinum brezka meistara, eftir
að skurðurinn hafði opnast á
vinstri augabrún hans hafði
opnast.
Clay sagði eftir leikinn, að
hann hefði hætt er blóðið tók
að renna; hann hefði ekki get
að fengið af sér að sækja að
hinum særða. En þessi mynd
er tekin í þann mund er hann
hefur gefið Cooper högg með
vinstri hendi í opinn skurð-
inn — en skurðinn opnaði
Clay með hægri handar
höggi. Vel má greina að
Cooper á óhægt um vik og
sér í þessari stöðu sennilega
ekkert til Clays.
Á minni myndinni sézt
hvernig Cooper leit út er
hann gekk til sætis síns eftir
að dómarinn hafði stöðvað
leikinn. Hann er alblóðugur,
blóð var um allan hringinr,
á Clay og á fréttariturunum
er næst sátu hringnum.
Cooper hafði staðið sig
mjög vel fram að því að
skurðurinn opnaðist, sótt
mjög, unnið 3 lotur á stigum
(tapað einni). Clay hafði
farið hægt. lokkað hinn til
sóknar unz í 6. lotu að hann
breytti um aðefrð, tók að
sækja og til tíðindanna dró.
Valsmenn gegn ,pressuliði'
í Laugardal á morgun
Fyrsfti leikurinn í Laugardalnum
ANNAÐ kvöld er fyrsti knatt
spyrnukappleikur sumarsins á
grasvellinum í Laugardal. Má
með nokkrum rétti segja að
með þeim leik hefjist í raun og
veru knattspyrna sumarsins.
Þessi fyrsti leikur í Laugardaln
um er afmælisleikur Vals og
leika Valsmenn við lið er íþrótta
fréttamenn hafa valið.
Valur varð 55 ára á dögunum
Einar Geirsson Baldvin
Fram
Guðjón Guðmundsson
Akranesi
Jón Leósson
Akranesi
og að gömlum reykvískum sið
heyja félögin afmælisleiki og
Valsmenn sem nú eygja mögu-
leika til Reykjavikurmeistara-
titils færast ekki minna í fang
en að mæta úrvalsliði allra ann-
arra félaga.
Iþróttafréttamenn hafa valið
lið það er þeir ætla að geti
velgt Valsmönnum undir ugg-
um og er það þannig:
Baldvinsson Axel Axelsson
KR Þrótti
Eyleifur Hafsteinsson
KR
Magnús Torfason
Keflavík
Jóhannes Atlason
Fram
Varamenn eru valdir Hallkell
Þorkelsson Fram, Kristinn Jóns
son KR, Jón Björgvinsson,
Þrótti, Ólafur, Ólafsson Fram,
Einar ísfeld KR og Hörður Mark
an KR.
Valsmenn munu án efa tefla
fram sínu sterkasta liði og í
ljós hefur komið að Valsliðið
getur verið sterkt lið ef það
nær samstillingunni. Að sjálf-
sögðu verður Hermann Gunn-
arsson með í liðinu, en hann
hefur sett sinn sterka svip á báða
leiki er hann hefur leikið með
Val í vor — m.a. vann hann
Ihreinlega KR í leik liðanna í
fyrrakvöld og skoraði öll þrjú
mörk Vals.
Spurningin er hvað Hermanni
tekst að gera með félögum sin-
um móti úrvalsliðinu er liðin
leika fyrsta „grasleikinn" í
Reykjavík á árinu 1966?
Anton Bjarnason
Fram
Bjarni Felixson
KR
Guðmundur Pétursson
KR
Skíðamót í Siglu-
ijarðarskarði 28. maí
SKARÐSMÓTIÐ 1966 verður að
venju haldið í Siglufjarðar-
skarði um hvítasunnuna. Laug-
ardaginn 28. maí hefst svigmót
í karla- kvenna- og unglinga-
flokki 12—15 ára kl, 4 e.h. Á
hvítasunnudag 29. maí hefst stór
svigsmót kl. 3.30 e.h., og verður
þá einnig keppt í karla- kvenna-
og unglingaflokki 12i—15 ára.
Eftir stórsvigskeppnina á hvíta-
sunnudag hefst keppni í knatt-
spyrnu milli Siglfirðinga og
utanbæjarmanna, sem tekið
hafa þátt í mótinu. Kl. 8.30 um
kvöldið verður kaffisamsæti og
verðlaunaafhending á Hótel
Höfn. Þar sem mikill snjór er
nú í Siglufjarðarskarði eru litl-
ar líkur til að Skarðið verði
fært fyrir hvítasunnu og kepp-
endur og aðrir sem hafa í
hyggju að fara á Skarðsmótið
verða því að gera ráðstafanir til
að komast sjóleiðis til Siglu-
fjarðar. Á Skarðsmót mæta kepp
endur frá Akureyri, Ólafsfirði,
ísafirði, Reykjavík og að sjálf-
sögðu frá Siglufirði. Skarðsmót-
ið 1966 er 10. Skarðsmóið í röð,
og aðeins tveir keppendur hafa
mætt á öll mótin, eru það Jó-
hann Vilbergsson frá Siglufirði
og Ásgeir Úlfarsson, KR. Skarðs
mót er árlega mjög stór við-
burður í starfsemi skíðaíþróttar-
innar.
Mótsstjóri verður Helgi Sveins
son íþróttakennari á Siglufirði
og veitir hann allar nánari upp-
lýsingar um mótið.
Kennsla í golfi
hjó G.R.
GOLFKLÚBBUR Reykjávíkur
er nú að hefja kennslu í golfi.
Hefst kennslan í dag, 25. maí,
á golfvelli klúbbsins við Grafar
holt. Kennari hefur verið ráð-
inn Magnús Guðmundsson, ís-
landsmeistari í golfi. — Upplýs-
ingar varðandi kennsiuna er að
fá í síma 10375 alla daga nema
laugardaga og sunnudaga kl.
9—12 fyrir hádegi.