Morgunblaðið - 21.06.1966, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 21.06.1966, Blaðsíða 21
Þriðjuðagur 21. JÆní 1966 MORGU NBLAÐIÐ .* 21 Svava JúEíusdóttir Minning F. 31.13. 1937. D. 13. 6. 1966. GÓÐUR skólabróðir minn hringdi í mig snemma morguns þann 14. þ. m. og spurði mig hvort það væri mögulegt, að hún Svava, skólasystir okkar, væri dáin. Mig •etti hljóðan. Jú, ég hafði vitað, að hún lægi í sjúkrahúsi og ó- vissa rikti um batahorfur. Það var ekki um að villast, hún Svava hafði kvatt hópinn okkar. Við vorum nær sextíu, sem útskrif- uðumst úr Verzlunarskóla ís- lands vorið 1946, og nú hafa fjög- ur bekkjarsystkin látizt. Þessi hópur var annars ekki svo fjöl- imennur eða svo fannst okkur því samheldnin var alveg óvenju ieg. Það er því þessvegna, sem okkur finnst að tekið sé eitthvað nákomið frá okkur og við fyll- umst söknuði. Ég get ekki látið hjá líða að gefa tilfinningum mínum lausan tauminn og skrifa mokkur kveðjuorð til þín, Svava mín. Það verður aldrei of oft brýnt fyrir skólaæsku lands okkar, hve dásamleg skólaárin eru. Nú til dags er verið að troða mörgum unglingnum nauðugum, viljugum í gegnum skóla, en áður mátti margur gráta sáran yfir vesæld sinni að hafa ekki ráð á einhverri lítilfjörlegri skólagöngu. Vi'ð vor um sannarlega ekki öll rík af veraldlegum auðæfum, hópurinn, sem útskrifaðist fyrir 20 árum, en við vorum þeim mun auðugri í anda, ef svo mætti segja. Ég hefi mörgum ágætis skólamanninum kynnzt á lífsleiðinni, en engan hefi ég fyrirhitt, sem jafn vel lofar skólasystkin sín og þessi fyrrnefndi hópur. Þegar maður leitar að orsökinni fyrir þessu, þá verður vart hægt að snið- iglanga þann möguleika, að þarna Utvarpsviðgerð- arstofa í nýju húsnæði Akureyri, 12. júní. STEFÁN Hallgrímsson hefir nú flutt útvarpsviðgerðastofu sína í *»ýtt og glæsilegt húsnæ'ði, sem hann hefir reist við Glerárgötu 92. Er þar bæði sölubúð, þar sem «eld eru viðtæki og hvers konar útvarpsbúnaður, ratsjár, fiski- leitartæki og margt fleira. Hið nýstárlegasta, sem gestinum mætir, þegar inn kemur, er sjón- varpstæki, þar sem hver getur «éð sjálfan sig á tjaldinu, því að sjónvarpsmyndavél kúrir úti í einu horninu og ljósmyndar allt, •em fram fer í búðinni, og leiðir inn í viðtækið. Hafa viðskipta- vinir af þessu hina beztu skemmt un. — Innar af verzluninni eru svo •far fullkomnar vinnustofur, bjartar, vistlegar og vel skipu- lagðar. Birgðageymslur eru einn- ig mjög vel skipulagðar, og er hin mesta vinnuhagræðing að hvoru tveggja. Sérstök stofa er ætluð til kennslu lærlinga, og er þar á- gætt tímarita- og fræðibókasafn. Kemur þetta í mjög góðar þarfir, því að bæði er dýrt og óhag- kvæmt að senda nemana suður til Reykjavíkur til náms. Þó þurfa þeir enn að fara suður til að taka sveinspróf. Einn af starfs mönnum Stefáns var i vetur á tveggja mánaða sjónvarpstækni- námskeiði syðra, svo að fyrir- tækið er þegar farið að gera sínar ráðstafanir til undirbúnings komu sjónvarpsins til Norður- lands. Stefán Hallgrímsson vinnur geysimikið að viðgerðum og við- haldi fiskileitartækja, ratsjáa og hvers konar siglinga- og fjar- skiptatækja í fiskiskipaflotanum, og m.a. sér hann um uppsetn- ingu allra slíkra tækja í hið nýja etálskip, sem verið er að ljúka emíði á hér í Slippstöðinni, Sig- urbjörgu ÓF 1. — Sv. P. ' hafi verið margur mannvænleg- ur unglingurinn á ferð, og í þeirra hópi var þig að finna, Svava mín. Síðan við skildum við skólann og leiðir okkar lágu saman, varst þú alltaf sami trygg lyndi félaginn og umhyggja þín fyrir skólasystkinunum var þér ofarlega í huga. Lífið sjálft, þar sem skiptust á skin og skúrir, hófst skjótt fyrir þig að lokinni skólagöngu. Ævi þín hér hjá okkur var stutt, en þó liggur eft- ir þig gott dagsverk. Ég veit að söknuður drengjanna þinna og mannsins þíns er mikill og ég bið góðan guð að gefa styrk til að standast raunirnar og veita þeim blessun sína svo að framtíð þeirra megi verða hamingjurík og hugsunin um góða móður og konu muni ætíð lifa með þeim. Jón Skúlason ú Gillastöðum Af heilum hug ber ég fram hjart- ans kveðjur og þakkir okkar skólasystkina þinna, Svava mín, og bið að þú megir sjá þínar glæstu vonir og þrár rætast. Bekkjarbróðir. Ólafur Kjartansson Minning Fæddur 1. marz 1944. Dáinn 5. júní 1966. ÞEGAR sú sbrgarfregn barst okkur, að vinur minn og frændi, Ólafur Kjartansson, væri látinn, með svo sviplegum hætti, setti okkur hljóð. Veruleikinn er stundum tor- skilinn. — Gat það verið, að hann Óli, eins og við kölluðum hann, væri dáinn, þessi góði og gáfaði drengur, sem við væntum svo mikils af, en fengum svo allt- of stutt að njóta samvista við. Hann var svo óvenjulega sér- stæður persónuleiki, að mig lang- ar til, að þess sjáist getið. Líf hans og starf, snerist mest um það, að liðsinna öðrum. Hann hafði lag á að vera alltaf eins og laus og óbundinn, ef hann vissi vini sína þurfa íið- veislu við. Hann hafði líka lag á því að koma greiðvikni sinni svo fyrir sem hreinni tilviljun. Aldrei mátti minnast á það síð- ar, að hann hefði gert nokkuð þakkarvert. v Við ólumst upp saman og alla tíð var hann sérstakt uppáhald okkar allra, skyldra sem vanda- lausra. Hann var dulur að eðlis- fari, aðeins nánustu vinir hans vissu, hve djúpt hann hugsaði. Þyngsta áfall ævi hans var að missa móður sína. Þá leyndi hann harmi sínum, svo sem hann mátti til þess að geta orðið föð- ur sínum og bræðrum meiri styrkur. Ólafur var hár og fríður, hlé- drægur en skoðanafastur. Vi'ð- mótið hlýtt og með glaðværð sinni, gáska og greind laðaði hann fólk að sér. Kom það bezt fram í umgengni hans við börn, þau dáðu hann og virtu. Fráfall hans er mikill harmur og missir, fyrir alla hans ástvini, því að hann var öllum styrkur, þegar á reyndi, með ráðum eða dáð. Færi ég honum þakkir, fyrir alla hans margháttuðu liðveizlu, og gæði hans við börn mín og systur minnar, sem elskuðu hann eins og bróður. Föður hans, bræðrum, ungri dóttur og öðrum ástvinum, votta ég mína dýpstu samúð. ■ Guð blessi minninguna um góð an dreng. Páll Sigurbergsson. Minning MÁNUDAGINN 23. maí »1. var útför Jóns Skúlasonar, bónda á Gillastöðum í Laxárdal, gerð að Hjarðarholtskirkju í Dölum, en hann andaðist að heimili sinu hinn 13. sama mánaðar. Jón Skúlason var fæddur 21. okt. 1912. Foreldrar hans voru Skúli Eyjólfsson á Gillastöðum og kona hans; Kristín Jónsdóttir. Jón ólst upp á Gillastöðum og þar bjó hann eigin búi frá 1937 til dauðadags, ásamt bróður sín- um, Skúla Eyjólfi. Ekkja Jóns heitins er Jóhanna Sigurlaug Kristvinsdóttir frá Enniskoti í Víðidal. Börn þeirra eru 5: Skúli Heiðdal, Ingi Heiðdal, Sigurlaug Gerður, Jóhannes og Kristín. Þau eru öll heima á Gillastöðum, hið yngsta innan fermingar. Á Gillastöðum undi Jón vel hag sínum. Þar bjó hann stórbúi á fjölmennu og samhentu heim- ili. Þar uxu börn hans úr grasi og komust á legg. Hag þeirra og velfei’ð bar hann mjög fyrir brjósti. Hann naut þess að sjá bú sitt stækka, ærnar skipta mörg um hundruðum, ræktun aukast, girðingar umlykja tún, engi og úthaga, nýjar byggingar rísa upp af moldu og afkastamiklar vinnu Björn Ólafsson, Varmalandi: Garðyrkjuvandamálin NÚ UM kosningahelgina fékk ég smásendingu frá kunningja min- um, og var þar í eintak af Vik- unni 19. tbl. frá 12 maí sl. og Nýjum vikutiðindum 19. tbl. frá 13. s. m., en jafnframt stutt bréf, þar sem ég er minntur á, að ég hafi látið ósvarað fyrirspurnum er til mín var stefnt í grein er birtist í Morgunblaðinu þann 11. marz í vor. Rétt er það hjá þessum kunn- ingja mínum, að svar mitt við nefndum fyrirspurnum til mín, hafa ekki komizt til skila, en ekki er það að öllu leyti mín sök. Ég hafði fyrir því að svara, og sendi svar mitt til ritstjórnar Morgunblaðsins í pósti. Þar dag- aði svo grein mín uppi og lét ég það gott heita, enda taldi ég fullsýnt, að til lítils væri fyrir okkur garðyrkjumenn, að vera að mögla yfir okkar hlut í til- verunni, þar sem okkar um- kvörtun er lítill eða enginn gaumur gefinn af þeim forustu- mönnurn þjóðarinnar, sem tróna yfir velferðarmálum okkar, að minnsta kosti ekki meðan hægt er að benda erlendum ferðalöng um á glerhallir okkar og gufu- stróka frá hverasvæðunum, eða leiða þá inn í blómadýrðina, hjá þeim Edenlundar-skála- mönnum er byggt hafa við þjóð- brautina, sem liggur að Gullfossi og Geysi. Þó sé ég það nú, eftir að hafa lesið Vikuna og Vikutíðindi, að til eru þó menn, sem ekki hafa með öllu gefizt upp við að hug- leiða vandamál íslenzkrar garð- yrkju. Gísli Sigurbjörnsson, skrifar um „Skáldið og jarðhitann“ í Vikuna og skopast að ástandi garðyrkjunnar í þjóðarbúskapn- um — » . . . . Nú eru Islending- ar farnir að skilja hvers virði jarðhiti er fyrir gróðurhúsarækt og ræktun yfirleitt — og þeir hagnýta sér hann betur en nokkru sinni fyrr“. — Og Gísli Sigurbjörnsson heldur skopinu áfram — „Má að vísu segja að þetta hefur tekið langan tíma og sinnuleysið, deyfðin og frænd- semin hafa of lengi ráðið öllu í þessu máli. Árum saman höfðu garðyrkju- menn, sem skildu og sáu hvert fór, skorað á ráðherra þann, sem með málin fór, að gera hér um- bætur á. En ekkert gekk lengi vel. Þó kom að því, að skóla- nefnd var loks skipuð og í hana valdist m.a. atorku og dugnaðar- fólk, sem hefur lyft Grettistaki síðan. Nefndin sá sem var, að þannig mátti ekki lengur ganga og með dugnaði og samvinnulipurð leystust mörg vandamál, sem áður höfðu verið óleysanleg". Hér hef ég aðeins leyft mér, að taka örlítið sýnishorn úr grein Gísla Sigurbjörnssonar Það fer áreiðanlega ekki fram- hjá neinum garðyrkjumanni hvert hann er að fara með kald- hæðni sinni í okkar garð og menntaseturs okkar, sem ríkið heldur uppi af slíkum myndar- skap að jafnvel Ný vikutíðindi gera skólanum þann heiður 13 maí, að helga honum feitasta letur á forsiðu og segja: Van hirtur ríkisskóli — með undir fyrirsögn: „— Kippa þarf rekstri Garðyrkjuskóla ríkisins í lið- inn“. Ritstjórinn Geir Gunnars son birtir eftirfarandi lýsingu á ástandi skólans: — „tæpast mun önnur eins vanhirða vera á nokkurri stofnun hérlendis og iþessu þjóðþrifafyrirtæki. Griðarstór gróðurhús að falli komin ber þar hæst, og ef gægst er inn um óhreinar rúð- umar, er það, sem ræktað er í húsunum, nær eingöngu ill- gresi“. Ég vil vekja athygli á því að margir garðyrkjumenn hafa á undanförnum árum krafizt þess af fullri einurð að menn- ingarástand Garðyrkjuskólans komist til jafns við aðrar ís- lenzkar menntastofnanir. En á slíkar kröfur hefur of oft ver- ið litið, sem persónulegar árásir á skólastjóra skólans. Þó gerðust þau fáheyrðu tíðindi að skipuð var skólanefnd við skólann og starfaði hún um eins árs skeið, en var þá leyst upp eft ir að hafa skýrt frá viðleitni sinni til umbóta á högum skól- ans í langri og hreinskilinni skýrslu, sem er bæði fróðleg og táknræn heimild um ástand þess arar ríkisstofnunar. Þarf víst ekki að taka það fram, að skóla- nefndin fékk engu umþokað til hagsbóta á Garðyrkjuskólanum, og situr þar enn við það sama og áður — en þær vonir sem garðyrkjumenn höfðu alið í vélar létta erfiði af stritandi höndum. Alls þessa naut hann í ríkum mæli, því að hann var bæði bóndi og hugsjónamaður og fylgdist vel með því, sem var að gerast hverju sinni. Hin miklu umsvif Jóns í búskapnum kröfð- ust að sjálfsögðu mikils fjár. Þurfti því mikla árvekni og út- sjón til að afla þess, þar sem efni voru af skornum skammti fyrir. Hygg ég, að þeir, sem til þekktu, verði samdóma um það, að Jón hafi sýnt frábæran dugn- að og elju við að sjá búi sínu borgið og standa hvarvetna x skilum. Jón heitinn var mikill félags- hyggjumaður og kunni vel að meta gildi góðrar samvinnu. Hann var ákveðinn og einlægur í skoðunum og falslaus í við- móti. Fyrir nokkrum árum kenndi Jón sjúkdóms fyrir hjarta. Gekk hann því ekki heill til skógar og gat ekki lagt á sig mikið erfiði. Þó leið honum allvel, gat unað heima, glaður við sitt. Ég hitti hann síðast á heimleið að Vega- mótum að áli'ðnum vetri. Var hann þá enn sem fyrr bjartsýnn og horfði fram á veg bættra sam- gangna og búskaparhátta í Laxár dal. En íslenzk voryrkja krefst ævinlega átaka, sem geta reynzt um megn veikbyggðu hjarta. Nú er Jón á Gillastöðum hniginn í valinn aðeins 54 ára að aldri. Blessuð sé minning hans og bless un fylgi jafnan frændgarði hans í Laxárdal. F. Þ. brjósti við tilkomu skólanefnd- arinnar orðnar að engu. Til eru þó þeir menn, sem una málunum vel eins og þau eru komin. Eihn þessara manna er uppgjafa garðyrkjubóndi héð an úr Borgarfirði heitir sá Svavar Kjærnested. Hann sendi mér fyrirspunir þær er hér ?ar fyrr að vikið. Tilefnið var það, að ég hafði í febrúar skrifað grein í Morguniblaðið, þar sem ég ræddi m.a. þýðingu Garðyrkju skóians fyrir íslenzkan garð- yrkjubúskap. Fyrirspurnir Svav ars voru þó í engu samhengi við grein mína og þar af leið- andi lítil ástæða fyrir mig að taka það í minn hlut að svara. Þó var margt í spurningum þess um á þann veg, að gætti ómak- legrar rætni og tilefnilausrar í minn garð og okkar Borgfirð- inga. Fann hann megna „forar- lykt' af skrifum mínum og taldi það nokkurri furðu gegna, að samtök okkar garðyrkju- bænda skuli vera með — ........ tilburði til afskipta af skólamál- um garðyrkjunnar.“ Þykir mér og sjálfsagt fleirum í garðyrkju- stéttinni, að Svavari farist það óhönduglega, ef hann ætlar að telja heilbrigðum mönnum trú um, að það standi ekki í verka- hring garðyrkjusamtakanna, að hlutast til um máilefni Garð- yrkjuskólans. Og engum stendur það nær, en gömlum nemendum skólans að gera tilraunir til bess að benda á þá vanrækslu sem á sér stað í skólarekstrinum, og þá að sjálfsögðu í þeirri góðu trú, að fremur sé á þá hlustað, en aðra, þegar þeir eru að leita skóla sínum liðsinnis. Sé ég svo ekki ástæðu til að hafa þessar línur fleiri, enda var fyrst og fremst tilgangur minn með þeim, að koma boðum til þeirra manna, er hafa beðið þess án árangurs, að ég léti til mín heyra vegna þeirra skrifa sem sá ágæti rósariddari, er forð um flýði garðyrkjubaslið hér í Borgarfirði (og stundar nú forar ræktina með fleiri góðum mönn- um í henni Reykjavík), og biðji þá að virða mér það á betri veg, að ég nenni ekki að svara fyrir- spurnum hans frekar, en orðið er með þessu greinarkorni. '' Björn Ólafsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.