Morgunblaðið - 21.06.1966, Qupperneq 30
30
MORGUNBLADID
Þriðjudagur 21. júní 1966
(►* • ' * 1
Frá leik Vals og Akureyringa: Einar markvörður Akureyringa hefur misst af knettinum, en
varnarmanni tekst að forða marki á síðustu stundu. (Sjá frétt neðar á síðunni)
KR — AKRANES JAFNTEFLI 1:1
1 NORÐAN roki börðust hinir
fornu erfðafjendur í I. deild ís-
iandsmótsins á Melavellinum í
gærkveldi. Segja má að liðin
hafi skipt hálfleikjunum nokk-
uð bróðurlega á milli sín, KK-
ingar áttu hættulegri tækifæri
og voru sterkari aðilinn í fyrri
bálfleik. en í þeim síðari sóttu
Akurnesingar meira enda þott
þeim tækist aðeins að ná einu
hættulegu tækifæri. Og það
nægði — leiknum lauk með
jafntefli 1:1.
Leikurinn var ekki nema mín-
útu gamall, er varnarmanni
Akraness urðu mikil mistök á,
og Baldvin miðframherji KR
náði knettinum og brunaði upp
að markinu, en Einari mark-
verði Akraness tókst að afstýra
hættunni. KR-ingar áttu á
næstu mínútum nokkur hættu-
leg tækifæri, enda þótt þeir
léku á móti vindinum, en ekk-
ert þeirra bar árangur. En á
15. mínútu tók Hörður Mark-
an hornspyrnu frá hægri. Ellert
náði að skalla fyrir markið, þar
sem Baldvin tók við knettinum
og spyrnti honum í markið, án
þess að vörn Akraness fengi
við nokkuð ráðið. Minútu síðar
sóttu Akurnesingar, og Þórður
Jónsson átti gott skot á mark-
ið, sem Heimir varði vei. Var
J>etta eina hættuiega upphlaup
Akurnesinga í þessum hálfleik.
KR-ingar léku eftir þetta oft
aiigóða knattspyrnu, og áttu
hættuleg tækifæri, sem þeim
tókst ekki að 'nýta.
í siðari háifleik byrjuðu Ak-
urnesingar á því að halda uppi
nokkuð stöðugri sókn á KR-
mark, en tókst þó aldrei fram-
an af að skapa sér nein hæitu-
leg tækifæri. KR-ingar léku oft
nær hreinan varnarleik, og það
mátti sjá það á leikmönnunum.
að þeir voru orðnir nokkuð vís-
ir með sigurinn, þegar Akurnes
ingar á 79. minútu ná upp eina
verulega hættulega upphlauo-
inu, sem átti eftir að kosta KR
inga sigurinn. Akurnesingar
sóttu hratt upp vinstri vallar
helming, og Björn Lárusson gaf
knöttinn yfir til Matthíasar, sem
þvældist einhvern veginn með
hann í vítateiginn. Honum tókst
að skjóta, en Heimir varði vel.
en knötturinn hrökk til Þórðar
Jónssonar, sem potaði honum í
markið. Það sem etfir var sóttu
KR-ingar meira, en tókst ekki
að skora sigurmarkið.
KR-liðið var allan leikinn tví
mælalaiist sterkári aðilinn á vell
inum. Leikmenn þess ráða yfir
meiri knatttækni en Akarnesing
arnir, en hafa á hinn bcginn
ekki þann baráttuvilja, sem ein
kennir leik hinna síðarneíndu.
Þeim tókst oft í fyrri háifleik
að ná upp allgóðum samleik, en
í þeim síðari einkenndist leikur
þeirra af sigurvissu, og það var
lika hún, sem að síðustu hafði
það í för með sér, að be>r urðu
að sjá af sigrinum. Beztu menn
liðsins voru Heimir í markinu,
Ársæll og Þórður Jónsson.
Tvísýn keppni ■ B:idg«-
stone — Camel keppninni
LEIKNAR hafa verið þrjár um-
terðir i Bridgestone/Camel keppn
inni, eða 54 holur af 72, sem
leiknar verða.
Þátttaka í keppninni hefur ver
ið mjög góð, en 25 kylfingar hófu
keppni, þar af 3 frá Golfklúbb
Reykjavikur og 1 frá Golfk. Ness.
Keppt er um Bridgestonebik-
arinn án forgjafar og Camelbik-
arinn með forgjöf.
Keppnin er mjög tvísýn og má
búast við að úrslit veröi ekki
ráðin fyrr en á síðustu holu, en
lokaumferöin fer fram nk. mið-
vikudagskvöld 22. þ. m.
Mror íþrélto-
íréttir ern a
b!s. 23
Árangur 6 beztu manjia í
hvorri keppni:
Bridgestone — án forgjafar
1.—2. Pétur Björnsson, G. Ness,
38 35 43 41 41 40 = 238.
1.—2. Ólafur Bjarki, G. R.,
41 41 42 38 39 37 = 238.
3. Jón Þorsteinsson, G. S.,
35 40 39 41 42 42 = 239.
4. Þorbjörn Kjærbo, G. S.,
37 37 43 41 43 40 = 241.
5. Einar Guðnason, G. R.,
41 37 41 43 44 36 = 242.
6. Þorgeir Þorsteinsson, G. S.,
46 37 42 44 44 41 = 254.
Camel — með forgjöf
1. Haukur Guðmundss., G. R.,
263 72 .= 191.
2. Ólafur Bjarki, G. R.,
238 42 = 196.
3. Jón Þorsteinsson, G. S.,
239 42 = 203.
4.—5. Pétur Björnsson, G. R.,
238 33 = 205.
4.—5. Þorbjörn Kjærbo, G. S.,
241 41 = 205.
Sex kylfingar hættu keppni, en
19 luku að leika 54 holur.
Eins og áður segir mega Alcur
nesingar þakka baráttuvilja liðs
ins fyrir jafnteflið. Liðið náði
aldrei upp samleik svo heitið
gæti, og tókst ekki að skapa
sér nema eitt eða tvö hættuleg
tækifæri. Beztu menn liðsins
voru Einar markvörður. Jón Le-
ósson og Björn Lárusson, sem
barðist vel í fromlínunm.
Dómari var Magnús Pétursscn
og dæmdi af ákveðni.
Staðan í 1. deild eftir leikinn
í gærkveldi, er þá þannig:
L U J T M S
Akranes 3 1 2 0 4:3 4
KR 2 1 1 0 2:1 3
Valur 3 1 1 1 4:2 3
Þróttur 2 2 0 2 2:2 2
Keflavík 2 0 1 1 2:3 1
Akureyri 2 0 1 1 1:4 1
I
Erlend knattspyrna:
Keimsmeistaraliðin
æfa af kappi
MIKIÐ hefnr verið um að
vera í knaítspyrnuheimimim
erlendis að undanförnu
vegna heimsmeistaramótsius
i knattspyrna sem fram fer
í Englandi núna í júlimánuði
n.k. Þau landslið sem tryggt
hafa sér þáttíöku í úrslita-
keppninni ferðast nú til
hvers landsins á fætur öðru
og leika þar svonefnda „upp-
hitunarleiki* 1' fyrir heims-
meistarakeppnina.
Rússneska landsliðið fór
t. d. af þessu tilefni til Dan-
merkur fyrir réttri viku og
lék þar á móti dönsku til-
raunalandsliði. Sigruðu þeir
fyrrnefndu með 2'1 eftir að
hafa haft 1:0 í hálfleik. Þeir
skoruðu annað mark sitt á
80. mínútu, en Danir skoruðu
eina mark sitt aðeins tveimur
mínútum fyrir leikslok. Má
af úrslitum þessum draga þá
ályktun að Danir séu í mjög
góðri æfingu í ár.
ítalia lék Búlgaríu mjög
grátt, er þessi lið mættust sl.
föstudag. Sigraði Ítalía með
6:1, en í hálfleik var staðan
2:0. Leikurinn fór fram i
Bologna, og vakti mikla hrifn
ingu meðal hinna 25 þús.
áhorfenda. Er álitið að Ítalía
muni koma mjög sterkt til
heimsmeistarakeppninnar.
Uruguay átti í talsverðum
erfiðleikum með ísraelska
landsliðið, pegar þessi lið
mættust í Tel Aviv í sl. viku.
Var staðan í hálfleik 0:0, en
í síðari hálfleik tókst Uruguay
mönnum að skora tvö mörk,
en ísraelsmenn skoruðu 1
mark skömmu fyrir leikslok.
Uruguay mun leika í riðli
með Englandi, Frakklandi og
Mexico í heimsmeistara-
keppninni.
Mexico og Sviss mættust í
Lausanne í Sviss sl. laugar-
dag, og lauk leiknum með
jafntefli 1:1. í hálfleik var
staðan 1:1, en Sviss skoraði
eina mark sitt, eftir aðeins
45 sekúundur, og Mexico jafn
aði á 5. mínútu.
Uruguay tapaði fyrir Rúm-
eníu 1:0 í Búkarest í fyrra-
dag. Eina mark leiksins kom
á 33. mínúlu, og varð það
miðframherjinn Iancu, sem
þar var að verki. Uruguay
sótti allan leikinn, en tókst
ekki að skora, framhjá
rúmenska markverðinum,
Ionescu, sem sýndi frábæran
leik.
Á laugardag sl. léku saman
í Glasgow portúgalska lands-
liðið og hið skozka. Sigruðu
Portúgalarnir með 1:0, og
kom markið á 74. mínútu.
Það var miðframherjinn Jose
Torres sem skoraði markið
með skalla. 40 þúsund manns
fylgdust með leiknum.
Þá sigraði spænska lands-
liðið 1. deildarliðið belgíska
Royal Beerschot með 4:1 á
sunnudag, en í hálfleik var
staðan 2:1.
Vaður sigraði Akureyringa 3:0
Öll mörkin skoruð í síðari hálfleik
ÞAÐ er ekki oft sem veðurguð-
irnir eru hliðhollir íslenzku
knattspyrnunni, en það voru
þeir þó sannarlega sl. sunnudag,
þegar Valur sigraði Akureyringa
með nokkrum yfirburðum á
Melavellinum, eða 3:0. Ekki
bauð þó leikurinn, þrátt fyrir
lyngt veður og steikjandi sól,
upp á mikil tilþrif frekar en
gerist og gengur í knattspyrn-
unni hérlendis, var lengst af
fremur þófkenndur. Valur var
þó tvímælalaust sterkari aðilinn
i leiknum, og ekki er óliklegt að
liðið muni taka þátt í lokabarátt
unni um íslandsmeistaratitilinn
í haust. Akureyringarnir voru
heldur óákveðnir í þessum leik,
— þeim tókst að skapa sér nokkr
um sinnum hin ágætustu mark-
tækifæri, sem runnu öll út í
sandinn fyrir hreinan klaufa-
skap.
Fyrri hálfleikur var fremur
þófkenndur framan af, Dæði Iið
in náðu þó snöggum upphlaup-
um, og áttu ágæt marktækifæn,
sem hvorugu liðinu tókst að
nýta. Lauk fyrri hálfleik því 0 0.
Valsmenn voru mun ákveðn-
ari strax í síðari hálfleik og á
7. mín skoraði Hermann ágætt
mark með skalla eftir að hafa
fengið ágæta sendingu íyrir
markið úr hornspyrnu. Einar,
markvörður Akureyringanna,
var illa staðsettur, og fékk því
ekki ráðið við knöttinn.
Annað mark Valsmanna kom
svo aðeins tveimur mínútum
síðar og var það Hans sem þar
var að verki. Hann lék með
knöttinn upp að vítateig Akur-
eyringa, og skaut fremur lausu
skoti, sem hafnaði ofarlega í
hægra markhorni Akureyring-
anna. Einar stóð einum of fram-
arlega og náði því ekki til knatt
arins.
Nú var þrek og baráttuvilji
þeirra Norðanmanna algerlega
þrotið, og Valsmenn náðu stöð-
ugt meiri tökum á leiknum.
Skömmu eftir miðjan síðari
hálfleik kom þriðja og síðasta
mark Vals, og var það falleg-
asta mark leiksins. Bergsteinn
Magnússon sendi knöttinn af
vinstri vallarhelmingi fallega
fyrir markið, þar sem Berg-
sveinn Alfonsson stóð rétt innan
vítateigsins, spyrnti knettinum
gersamlega óverjandi fyrir Ein-
ar markvörð. Fleira stórvægi-
legt bar svo ekki til tíðinda. Eft
ir þetta skiptust liðin nokkuð
jafnt á upphlaupum, og leikur-
inn varð um leið þófkenndur
á ný.
Valur átti þarna allgóðan leik
og komst vel frá honum í heild.
Þó hefur maður það ætíð á til-
finningunni, að liðið geti meira
en það hefur sýnt að undan-
förnu. í liðinu eru margir góðir
einstaklingar, en það er eins og
berslumuninn vanti til þess að
þeir nái fyllilega saman. Aft-
asta vörn liðsins er mjög sterk,
með þá Björgvin Hermannsson
í markinu og Þorstein Friðþjófs
son, sem beztu menn. Hans
barðist vel, og var beztur fram
varðanna, en í framlínunni áttu
beztan leik Bergsveinn og Her-
mann. Bergsveinn má þó vanda
sendingar sínar betur.
Akureyringarnir voru lakir í
þessum leik, liðið virðist tais-
vert veikara en verið hefur und
anfarin ár, þar sem baráttuvilj-
inn, er verið hefur þeirra sterk-
asta vopn, er nú að mestu horf-
inn. Aftasta vörnin er ákaflega
slök, og framlínan náði illa sam
an, enda þótt þar séu mjög lið-
tækir knattspyrnumenn. Beztu
menn liðsins voru þeir Magnús
Jónatansson og Valsteinn Jóns-
son.
2 pslskir knatt-
spyrnukappar
týndir í Svíðþjóð
Nörrköping, 19. júni. — AP.
GRUNUR leikur á að tveir beztu
knattspyrnukappar Pólverja
muni leita hælis í Svíþjóð sem
pólitískir flóttamenn.
Knattspyrnuliðið „Polonia Byt
om“ kom til Norrköping til
keppni s.l. fijstudag og sama
kvöld hurfu tveir úr liðinu,
Konrad Bajger og Heinz Banas,
úr herbergi sínu á gistihúsinu o.g
hefur ekkert til þeirra spurzt
síðan. - v
Þeir Bajger og Banas voru við
þriðja mann í herberginu en sá
sofhaði sætt og varð einskis var
utan þess er hann vaknaði um
morguninn að félagar hans voru
á bak og burt og höfðu tekið
allt sitt hafurtask, en skilið eftir
knattspyrnuskóna.
Fyrirliðar „Polonia Bytom“
gerðu lögreglunni þegar viðvart
en talsmaður hennar sagði að
ekki yrði gerð leit að mönnun-
um, þar sem þeir hefðu ekkert
af sér gert er varðaði við lög.
Er það hald manna að þeir félag
ar hafizt nú við einhvers staðar
með löndum sinum starfandi í
Nörrköping og hafi í hyggju að
Framhald á bls. 31