Morgunblaðið - 21.06.1966, Side 31

Morgunblaðið - 21.06.1966, Side 31
ÞriðjuÆagur íl. ?An! 196ð MORGU NBLAÐCD 31 Frá hinum harða árekstri á mótum Háaleitisbrautar og Miklubrautar um hádegisbiliS í gær. Myndina tók Helgi Sigurðsson. <$—------------------------------------------—1------------------ Eimreiðin — Nýtt heifi - 7arsis Framhald af bls. 17 >að verið allt öðu vísi en nú. Auk þess drykki hann fullmik- ið Vodka og skrifaði fremur lítið. Tarsis kvaðst sjálfur hafa verið kommúnisti á yngri árum. Hann hefði verið byltingarmað- ur eins og faðir hans — en faðir minn lét engu að síður lífið í fangabúðum kommúnista", sagði hann. Aðspurður hvenær hann hefði endanlega horfið frá kommúnisma og gengið á hönd kristinni siðfræði og trú, svar- aði hann, að það hefði verið í heimsstyrjöldinni síðari.“ Það var með mig eins og Tolstoy á sínum tíma, að ég varð fyrst alvarlega hugsandi maður eftir þritugt. Ég var glaður og rót- tækur, hafði gaman af að skemmta mér, yndi af falleg- um stúlkum og öðrum lysti- semdum lífsins. 1 styrjöldinni varð ég fréttaritari og þar komst ég að raun um, að ég gat ekki sagt sannleikann um það, sem gerðist á vígvöllunum. Vinur minn, aldraður, sem verið hafði fréttamaður, sagði við mig: „ef þú segir sannleik- ann verðurðu skotinn". Sann- leikurinn var sá, að mikill hluti rússneskra hermanna kærði sig ekkert um að berjast fyrir málstað Staiins. Á hinn bóginn hefði enginn rússneskur hermaður viljað stuðla að því að erlendur einræðisherra einc og Hitler hertæki RÚ6sland. Rússar eru stolt þjóð og munu aldrei sætta sig við erlent of- ríki“. Tarsis var að því spurður, hvort satt væri, að hann hefði lagt lagt blessun sína yfir bylt- ingarnar í Ghana og Indónesíu. Hann kvað svo vera — í Ghana hefði hálfbrjálaður kommún- ískur einræðisherra reist sér höll fyrir tugmilljónir dollara meðan þjóð hans svalt og hann hefði verið að því kominn að gera land sitt að kommúnísku leppríki. í Indónesíu hefðu kommúnistar leitt þjóð sína út í alls konar ógæfu. Um herferð ina gegn kommúnistum þar sagði Tarsis, að hann væri vissulega ekki talsmaður of- beldis — „ég álit það glæp að drepa einn mann, hvað þá hundrað þúsund. En við verð- um að horfast í augu við mann- kynnið og þær hættur, sem að því steðja. Sannleikurinn er sá, að mennirnir iifa eins og villi- dýr — ekki eins og menn — Og hvað á til bragðs að taka gegn glæpamönnum, sem ekki hika við að drepa fólk í milljónat'ali og berja niður frelsi og rétt- læti, hvar sem þeir koma því við. Ef við ’ ekki spyrnum við fótum færast yfirráð þeirra um llan heim“. Og Tarsis bætti því við, að Vesturveldin hefðu brugðist skyldu sinni i Ung- verjalandsuppreisninni 1956 — „Hefðu þau veitt frelsissinnum lið þá, er ég viss um að komm- únismi væri hvergi rikjandi í Austur-Evrópu". „Ég er sannfærður um, að kommúnismi er röng kenning og trúi því, að kristin siðfræði og trú sé hið eina, sem getur bjargað mannkyninu“ sagði Valery Tarsis. RÓM — Sextán manna nefnd, skipuð kardinálum og biskup um hinnar rómversk-ka- þólsku kirkju, kemur saman í Róm í dag til viðræðna um afstöðu kirkjunnar til tak- markana á barneignum. Nefndin mun að öllum líkind um þinga alla þessa viku. ANKARA — Dómstóll i Ank- ara hefur dæmt tvo Tyrki til 12árs fangelsisvistar hvorn fyrir njósnir í þágu kommún istalanda. Hafði annar stund- að njósnir fyrir Búlgaríu og hinn fyrir Sovétríkiru I Féll af vélhjóli og fótbrotnaði UM 10 leytiff á sunnudags- kvöld fótbrotnaffi piltur, Jón Þórffarson, Skólavörffustíg 16, er hann féll af vélhjóli á mótum Hringbrautar og Birkimels. Jón var fluttur í Slysavarð- stofuna og síðar í Landspítalann. — Bændafundur Framhald af bls. 32. leggía framleiðslu sína á sem hagkvæmastan hátt. Ákveður fundurinn að kjósa 6 manna nefnd til þess að ieita samninga við ríkisstjómina um lausn málsins ásamt stjórn Stétt arsambandsins og Framleiðslu- ráðs. Fáist ekki viðhlýtandi niður- staða þessara mála við stjórn- völdin, skorar fundurinn á stjórn Stéttarsambandsins að boða til sérstaks fulltrúafundar samtak- anna til þess að taka ákvörðun um sölustöðvun landbúnaðar- vara eða aðrar aðgerðir.“ I framhaldi þessarar tillögu var kjörin 6 manna nefnd í sam- ræmi við efni hennar, en hún var samþykkt samhljóða, og hlutu þessir kosningu: Af Suðurlandi: Ölver Karls- son, Þjórsártúni, Sigmundur Sigurðsson Syðra-Langholti. Varamenn: Siggeir Björnsson. Holti Guðmundur Guðmunds- son, Eifri-Brú. Af Norðurlandi Eystra: Stef- án Valgeirsson, Auðbrekku. Til vara: Hermóður Guðmunds son, Árnesi. Af Norðurlandi vestra: Pálmi Jónsson, Akri. Til vara: Jón Benediktsson, Höfnum, Skaga. Af Vesturlandi: Guðmundur Ingi Kristjánsson, Kirkjubóii. Til vara: Gísli Þórðarson Mýr dal, Hnappadal. Af Austurlandi: Friðrik Sig- urjónsson, Ytri Hlíð, Vopna- firði. Til vara: Hermann Guðriunds- son, Eyjólfsstöðum, Berufirði. Á fundinum með Framleiðslu- ráði í gær höfðu þeir Lárus Ágúst Gíslason í Miðhúsum og Stefán Valgeirsson í Auðbrekku fram- sögu með fyrrgreindri tillögu. — Síðan ur'ðu talsverðar umræður með hinum 47 fulltrúum, en að sögn blaðamannanefndarinnar voru þær einhuga og komu ekki fram ádeilur, nema ef vera skyldi gegn því að Stéttarsam- bandið kallaði ekki saman fund, áður en hún tilkynnti innvigtim- argjaldið. Ekki mætti kalla þetta reiðiöldu bænda og að fundur þessi væri einungis stéttarlegur og ópólitískur og til stuðnings Stéttarsambandinu og Fram- leiðsluráði. Þráspurðir um það, hví bænd- ur hefðu ekki fremur krafizt aukafundar Stéttarsambandsins, sögðu þrímenningarnir áð til- kynning Framleiðsluráðs hefði vakið svo snögg viðbrögð bænda að þau krefðust funda þegar í stað, en vantað hefði skýringar Fram- leiðsluráðs með tilkynningunni. Þá hefði það komið fram á Sel- fossfundinum að formaður sam- takanna, Gunnar Guðbjartsson, hefði mælt gegn slíkum fundi. Hefði því ekki þótt ráðlegt að fara þá leið. Enn, spurðir um hvort þetta væri ekki vantraust á Stéttarsam band bænda, mótmæltu þeir og sögðu þetta stuðning við samtök- in og í þeim anda væri hinni ný- kjörnw nefnd 6 manna ætlað að vinna. — 6. vika Framh. af bls. 1 þingmanns i Bandaríkjunum, og reyna að nota sömu kommúnista- grýluna og hann. Taldi Gollan að það værj ekki fyrir aðgerðir kommúnista, sem samningar hefðu dregizt á langinn, heldur vegna þess óheillasambands er ríkir milli forsætisráðherrans, ríkisstjórnarinnar .útgerðar- manna og blaðanna. Fór á hliðina HARÐUR árekstur varff um hádegisbiliff í gær á gatnamót- um Háaleitisbrautar og Miklu- brautar. Jeppa var ekið norður Háaleit isbraut og inn á Miklubraut og lenti á hlið fólksbifreiðar, sem ekið var austur Miklubraut. Lenti hún á umferðareyju við höggið og fór þar á hliðina. Lítilsháttar eldur kom upp í bifreiðinni, en slökkviliðið réði niðurlögum hans. Aðeins ökumennirnir voru í bílunum og meiddust þeir lít- ið sem ekkert. Jeppinn og fólksbifreiðin skemmdust mikið, sérstaklega fólksbifreiðin. — Ovæntar Framhald af bls. 1 „Við erum vinir“ sagði Maurer. sem þarna var á tali við frétta- menn á flugvellinum í Craiova, þár sem hann beið komu Chou En-lais, forsætisráðherra Kína, og bætti við: „Þið blaðamenn- irhir eruð alltaf að búa til æsi- fregnir og við stjómmálamenn- irnir gerum allt sem við getum til þess að forðast þær“. Chou En-lai ,sem nú er í opin- berri heimsókn í Rúmeníu, kom til Craiova í dag eftir óvæntar viðræður við Nicolae Ceausescu, formann kommúnistaflokksins, og fleiri leiðtoga á sunnudag í Eforie við Svartahaf. Aðspurð- ur um viðræðurnar gaf Maurer loðin svör en sagði er spurt var hvort hann væri ánægður með árangur þann sem náðst hefði: „Ég er alltaf ánægður, ég er mað ur bjaitsýnn að eðlisfari". Maurer staðfesti að Albaniu, bandamönnum Kína í deilunni við Sovétríkin, yrði boðið á fund leiðtoga kommúnistaflokka í Búkarest 5. júlí n.k. og bætti því við, að hann vonaði að boðið yrði þegið, en sagði ekki hvort öðrum löndum yrði boðið að senda áheyrnarfulltrúa. Vel var tekið á móti Chou En-lai og fylgdarliði hans í Crai- ova og sóttu þeir m.a. heim véla verksmiðju. Þar flutti ræðu einn úr sendinefnd Chous Ciao-i-min, fyrstu opinberu ræðuna, sem flutt hefur verið í förinni og hrósáði Rúmeníu fyrir sjálfstæði í skoðunum og oháða afstöðu gagnvart Sovétríkjunum og gaf í skyn að fleiri mættu fylgja því fordæmi, en kom ekki með neinar beinar árásir á Sovét- ríkin. Chou En-Iai fer aftur til Búka rest á þriðjudag til nýrra við- ræðna við Ceausescu og aðra ráðamenn. Viðræður þeirra við Svartahaf á sunnudag voru al- gerlega utan dagskrár og hefur engin skýring verið gefin á þeim. Frá Rúmeníu fer kínverski for- sætisráðherrann 24. júní n.k. og þá til Albaníu að því er talið er. — /jb róttir Framhald af bls. 30 biðjast hælis í Svíþjóð sem jjólitískir flóttamenn. „Polonia Bytom“ er bezta knattspyrnulið Póllands og er í hópi beztu liða í Evrópu. FYRIR nokkru er komið út nýtt hefti að tímaritinu Eim- reiðinni, 1. hefti 72. árgangs. Efni heftisins er fjölbreytt. Eimreiðin hefst áð þessu sinni á kvæðinu Eufori eftir sænska skáldið Gunnar Ekelöf, sem fékk bókmenntaverðlaun Norðurlanda ráðs í janúar síðastliðnum, í ís- lenzkri þýðingu Jóhannesar úr Kötlum. Þá er athyglisverð og ýtarleg grein eftir ungan, danskan menntamann, Jþrgen Wiehe, „Handritadeilan séð frá dönskum sjónarhóli“, ljóð eftir Helgu Þ. Smára, „Golan og blómin", rit- gerðin „Eksistentíalisminn eða tilvistarstefnan“ eftir séra Pál Þorleifsson á Skinnastað og kvæðið Á Jónsmessunótt eftir Þórarin frá Steintúni. Hrákaskirn nefnist saga eftir Sigurjón Jónsson. Þá er birt þingræða eftir Gils Guðmunds- son, Listamannalaun og listasjóð- ur, og Minningar um Guðmund dúllara eftir séra Jón Skagan. Greinin „Smávegis um rím og sanngirni" eftir Þorstein Stefáns- son, rithöfund, er þýdd úr danska blaðinu BT. Kvæðið Vitrun eftir Bertel Gripenberg er í þýðingu Sigurðar Kristins Draumlands. „Frá Lýðháskólanum í Askov“ nefnist skemmtileg endurminn- ingagrein og hugleiðingar eftir Selmu Lagerlöf, sem Einar Guð- mundsson hefur þýtt. Tóö Ijóð eru eftir Ingólf Krist- jánsson, rithöfund, „Björt var sú stund . . . “ og „Árdegi og kvöld“. Guðríðar þáttur Þorbjarnar- dóttur er eftir Jochum M. Egg- ertsson (Skugga), og mun hann vera eitt hið síðasta, sem hann skrifaði. Kvæðið Eiríksjökull er eftir Pétur Ásmundsson, og grein um skáldskap, í mesta meinleysi, eftir Sigurð Jónsson frá Brún. Lerkhúspistill er eftir Loft Guðmundsson, og minnzt er 150 ára afmælis Hins íslenzka bók- menntafélags. Að lokum er Rit- — Vietnam Framh. af bls. 1 hernum tóku í dag sjúkrahúsið í Hue þar sem Tri Quang liggur. Segja talsmenn ríkisstjórnar- innar að með þessu vilji þeir rjúfa tengsli leiðtogans við upp- reisnaröflin i borginni. Fylgir það fréttinni að Quang hafi létzt um 11 kíló frá því hann hóf föst- una fyrir 12 dögum. Hann hefur ekki neitt matar allan þennan tíma, en síðustu dagana fengið te öðru hvoru. Ríkisstjóm Kys hershöfðingja hefur tilkynnt að efnt verði til kosninga í Suður-Vietnam hinn 11. september n.k. Verða þá kjörnir 108 þingmenn, og verk- efni þeirra verður að undirbúa nýja stjórnarskrá. Af því verk- efni loknu verður þingið leyst frá störfum og efnt til nýrra kosninga samkvæmt stjórnar- skránni einhverntíma á næsta ári. Á meðan er til þess ætlazt að herforingjastjómin fari með völd i landinu. sjá, bókmenntagagnrýni eftir ýmsa. Þetta hefti er sex lesmálsarkir, prentað á vandaðan pappír og prýtt fjölda mynda. Ritstjóri Eimreiðarinnar er Ingólfur Kristjánsson, rithöfund- ur. — — De Gaulle Framh. af bls. 1 mála í heiminum frá því de Gaulle heimsótti Sovétríkin sið- ast, en það var árið 1944. Og með tiiliti til þessara breytinga yrði sífellt ljósara hve mjög skoíðanir Sovétríkjanna og Frakklands hefðu samrýmst. De Gaulle svaraði og sagði að heimsókn sín gæfi mjög gott tækifæri til að skiptast á skoð- unum. Kvaðst hann vona að Sovétríkin og Frakkland gætu orðið ásátt um aðgerðir til að stuðla að einingu og öryggi Evr- ópu, og að jafnvægi, framförum og friði í heiminum .Það vakti. mikla ánægju á flugvellinum þegar de Gaulle lauk máli sínu með því áð tala rússnesku. Sagði forsetinn á mjög góðri rússnesku: Sem tákn frönsku þjóðarinnar hylli ég hina merku þjóð Sovét- ríkjanna. Lengi lifi Rússland. Um 15 kílómetra leið er frá flugvellinum inn til höfuðborg- arinnar, og var hún öll fánum skreytt. Talsverður mannfjöldi hafði safnazt þar saman til að fagna komu franska forsetans, sem er fyrstur þjóðhöfðingja vestrænu stórveldanna þriggja til að heimsækja Sovétríkin sið- an byltingin var gerð þar 1917. Eftir komuna til Moskvu ræddi de Gaulle stuttlega við sovézku leiðtogana. En aðalvRS- ræðurnar hefjast ekki fyrr en á morgun; þriðjudag. Ekki er vitað hvað ber helzt á góma í þeim við ræðum, en talið sennilegast að það verði Þýzkalandsmálin og ör- yggi Evrópu. De Gaulle heldur heimleiðis hinn 1. júlí. í kvöldverðarveizlu, sem hald- in var í Kreml í kvöld, fluttu þeir Podgorny og de Gaulle báð- ir ávörp. Sagði Podgorny að ekki væri fráleitt að álíta að leiðtog- arnir gætu komizt að samkomu- lagi áð því er varðaði Víetnam og öryggi Evrópu. Utanríkisstefna Frakka og Rússa ætti það margt sameiginlegt að þar ætti að vera unnt að finna grundvöll til samn- inga. Sérstaklega á þetta við, sagði Podgorny, um ástandið í Evrópu, sem heimsfriðurinn bygg ist að verulegu leyti á. En einnig um þau landsvæði þar sem styrjaldareldar brenna í dag. De Gaulle sagðist vera reiðu- búinn til að hefja nýjar aðgerðir til að draga úr spennu í heimin- um, og til að bæta skilning og samvinnu við kommúnistaríkin í Austur-Evrópu. Sagði hann að Evrópuríkin gætu gegnt mikil- vægu hlutverki varðandi friðinn í heiminum, en frumsktlyrði væri að skapa einingu í Evrópu í stað þeirrar sundrungar, sem nú ríkir. En þar til það tækist leit hann svo á að Sovétríkin og Frakkland yrðu að vinna saman að þessum málum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.