Morgunblaðið - 22.06.1966, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 22.06.1966, Blaðsíða 3
MiSvfluiðagur 22. Júní 1966 MORGUNB LAÐIÐ 3 Lögrcglukórarnir koma eftir Lækjargötu. Eins og rjá má hafði mikili mannfjöldi safnast þarna saman til þess að hlýða á söng kóranna. ÞAB er ekki á hverju kvöldi, sem við Reykvíkingar verð- um þess heiðurs aðnjótandi, að lögreglan syngi fyrir okk- ur. En þetta gerðist hér í gærkvöldi. Þá hlýddu 3—4 þúsund Reykvíkingar á söng um 140 lögregluþjóna frá höfuðborgum Norðurlandanna fimm, óma út yfir Lækjgrgöt una, frá andtíyri Menntaskól- ans. Ástæðan fyrir því, að Reyk víkingar urðu þessa heiðurs aðnjótandi, er að hér stendur yfir um þessar mundir mót norrænna lögreglukóra sem kunnugt er. í tilefni þessa móts fóru al'lir kórarnir undir þjóðfana sínum í skrúðgöngu í gær- Myndin sýnir er allir kórarnir fimm liafa raðað ser upp fyrir franaan Menntaskolann. Hinir syngjandi lögregiuþjónar skemmtu miklum mannfjölda kvöidi kl. 20. Var gengið íra _ um, en í fararbroddi gekk sér allir upp fyrir framan Snorrabraut, niður Lauga- lúðrahljómsveit og lék lett Menntaskólann, og síðan veginn og að Menntaskólan- göngulög. Kórarnir röðuðu hófst söngurinn. Lögreglukór Reykjavikur söng fyrst „Á samhljóma- vængjum" eftir Pál Isólfsson, sem tileinkaði kórnum og söngstjóra þess lagið, við texta Steingrims Thorsteins- sonar. Síðan sungu kórarnir hver fyrir sig 2—3 lög frá heimalandi sínu, en sungu síð an sameiginlega eitt lag frá hverju landi. Skiptust fimm söngstjórar kóranna lögunum á milli sín. Hlýddi mikill fjöldi á söng lögreglukóranna og klappaði þeim óspart lof í lófa. Þó skyggði eitt á þessa úti- tónleika framan af, en það var að tvær kennsluflugvéiar flugu hvað eftir annað yfir þarna skammt frá með háv- aða, og trufluðu sönginn. Hljómar til Ameríku UMBARUMBAMBA, fyrsta kvikmynd þeirra VIÐ þekktum þá um leið og þeir birtust í dyrunum. Þeir voru komnir til að segja okk- ur frá fyrstu kvikmynd sinni og framtíðaráætlunum. Þeir voru ósköp rólegir, hárið var á sínum stað og það var raun- gerast. En samt vissu þeir að þetta var byrjunin á einhverju nýstárlegu og spennandi fyrir þá. Fyrir framan okkur á borðinu lágu tvær plötur og smekklega gerð kápa utan um þær. Auk voru þar myndir af Við höfðum orð á því að þetta væru góðar myndir. Þá brostu þeir og sögðu að þetta væru a'ð sumu leyti frægar myndir. Einu sinni hefði þeim verið „rænt“ úr útstillingar- glugga hjá Kaldal Ijósmynd- ara. En myndunum var fljót- lega skilað aftur, og auðvitað varð allt fyrirgefið á svip- stundu, því i ljós kom að þetta var veikara kvnið sem Gunnar þarna var að verki. Á plötunum eru . sex lög sem Hljómar leika í kvik- fiest þeirra væru ný. Þeir mýndinni UMBARUMBAMBA og heita þau „1 don’t care“, „Country dance“, „Love enough“, „Better days“, „My life“ og „If you knew“. Lögin eru eftir Gunnar Þórðarson, textarnir eftir Pétur Östlund, en eins og kunnugt er skipa þeir hljómsveit „Hljóma“, á- samt Erlingi Björnssyni og Rúnari Júlíussyni. Framhald á bls. 16. Erlingur verulega ekkert merkilegt að „Hljómum". Pétur Rúnar STAKSTIIIUAR Að skilja og breyta rétt í GREIN í Tímanum í gær, sem untíirrituð er Ó. J. segir m.a.: ■- „Viðbrögð bæntía við kjara- skerðingunni eru þess eðlis, að þau áttu að vera forráðamönn- um Morgunblaðsins þörf aðvör- un, sem þeir mega og eiga að draga skýra lærdóma af. Þeir vita að íslenzkt efna- hagslíf er að nálgast hreina ófæru. Því þá ekki að vera menn og snúast með manndómi gegn háskanum? Við hann ræðst ekki nema allir beztu menn þjóðar- innar taki höndum saman til viðnáms. Þetta ber stjórnar- mönnum landsins að skilja og viðurkenna hreinlega og haga sér samkvæmt því, ella á þjóðin ekki annars úrkostar en að hrinda þeim af stóli. Það er aug-% ljóst mál. Það skynja nú flestir fslend- ingar, sem betur fer“. Morgunblaðið fagnar því vissulega, að þessum greinar- höfundi, eins og raunar flestum öðrum, skuli nú vera það ljóst, að nauðsynlegt sé að veita við- nám og stemma stigu við frek- ari verðbólguþróun. Hins vegar kom blaðinu það á óvart, að fulltrúar bænda skyldu á fundi sínum m.a. leggja til að unnið yrði að því að fá útflutnings- uppbætur hækkaðar. Vissulega er sú leið ekki til þess fallin að veita viðnám gegn hækkunum, fremur en almennar kaúphækk- anir, enda telur Morgunblaðið það raunar fullvíst að hvað sem öðrum kröfum líði, þá muni bændur ekki halda fast við þessa. Tarsis og íslenzku > kommúnistarnir Rússneski rithöfundurinn Val- ery Tarsis, sem hér hefur dval- izt síðustu daga, hefur gefið umbúðalausar lýsingar á hinu kommúníska stjórnarfari og glæpum ráðamanna í kommún- istaríkjunum. Hefur koma hans vakið marga til umhugsunar um þær ógnir, sjm fólkið býr við í einræðisríkjunum. Engu að síður er til flokkur manna hér - landi, sem leynt og ljóst styður ofbeldisstefnuna og ver sérhverjar athafnir kúgar- anna. Ráðamenn þessa flokks, sem fyrst hét réttilega kommún- istaflokkur, en síðan Sósíalista- fiokkur og nú Alþýðubandalag, eru dyggir þjór-ar hins erlenda kúgunarvalds. Innan raða þessa flokks eru þó menn, sem í raun- inni ekki eru kommúnistar, en atferli þeirra er ekki miklu betra en hinna, því að þeir styðja vísvitandi til valda og áhrifa þá menn, sem við sérhvert tækifæri verja ofbeldisstefnuna. Lítilla sanda Vissulega eru það geðillir menn, sem taka upp samstarf t við hið kommúníska afturhald hér á laudi 0g lúta forsjá þess, þótt þeir sjálfir telji sig ekki^ kommúnista — og séu í rauninni ekki. AHsstaðar annars staðar liafa andkommúniskir vinstri- sinnar sagt skilið við kommún- ista og einangrað þá, en hér er maður eins og Lúðvík Jósepsson, sem opinberlega hefur lýst því yfir, að hann sé kommúnisti og hafi alla tíð verið, valinn sem helzti talsmaður og sameiningar- tákn hins nýbakaða Alþýðu- bandalags, nýjustu úigáfunnar af kommúnistaflokknum. t

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.