Morgunblaðið - 22.06.1966, Blaðsíða 11
ðTiðvikudagur 22. Jfe)! 1966
MORGUNBLAÐIÐ
11
Karlakórinn Vísir
Apa-
spil og Musica Nova
gerði ég l>að (í trássi við lög og
rétt) að taka það upp á segul-
band úr útvarpinu. Síðan hafa
þau ekki fengizt í rúmið nokk-
urt kvöld, fyrr en þau hafa
fengið slna „óperu“! Þetta sýn-
ist mér taka af öll tvímæli um,
að hér hafi verið sleginn réttur
tónn.
Ég vona, að „Apaspil" verði
tekið til sýningar að nýju í
haust.
KARLAKÓRINN YÍSIR
SIOLUFJÖRÐUR er ekki vel í
sveit settur, nema til þess að
taka á móti síld, þegar henni
þóknast að láta veiða sig fyrir
norðan land. Ekki væri að undra,
þótt sú einangrun, sem staðurinn
hefir búið við, nema um háanna-
tima sumarsins, hefði skilið eftir
eig nokkur merki á menningar-
lífi hans, og það orðið fábreytt
og einhæft. Svo hefir þó ekki
reynzt, og marga góða listamenn
Ihafa Siglfirðingar lagt þjóðinni
til. Enginn þeirra hefir þó lyft
elíku grettistaki sem séra Bjarni
í»orsteinsson. Ævistarf hans á
eviði tónlistarinnar er meðai
hinna mestu afreka sem íslenzk
tónlistarsaga kann að greina frá,
bæði sönglagasmíð hans sjálfs
og einkum þó hið mikla þjóðlaga
safn hans. >að er verk, sem
aldrei verður fullþakkað, og
^engur kraftaverki næst að það
ckyldi vera unnið við þær að-
etæður, sem Siglufjarðarprestur
um síðustu aldamót átti við að
búa.
Séra Bjarni Þorsteinsson var
óvenjulegur og óvenju mikil-
hæfur maður. Hann setti óafmá-
enlegt míark sitt á byggð Sigtu-
fjarðar með skipulagi því, sem
hann gerði kaupstaðnum, þegar
hann var að byrja að byggjast.
Og mér er nær að halda, að
hann hafi einnig með nokxrum
hætti sett mark sitt á andlegt
líf bæjarins, og Siglfirðingar búa
eð því að nokkru enn í dag.
Sönglíf hefir lengi staðið með
miklum blóma á Siglufirði og
naut um áratuga skeið ötullar
forystu Þormóðs Eyjólfssonar,
þótt fleiri hafi þar að vísu lagt
mikið af mörkum. Þormóður
byggði upp karlakórinn Vísi og
igerði hann að einum meðal öfl
wgustu kóra landsins. Þegar
Þormóðs naut ekki lengur við,
■var Vísir um skeið á hrakhól-
«m með stjórnanda, en nú hefir
tekið við stjórninni ungur mað
«r þýzkfæddur, sem orðinn er
íslenzkur ríkisborgari og setztur
eð á Siglufirði, Gerhard Schmidt
Undir stjórn hans hefir Vísi vax
ið ásmegin að nýju, svo sem
heyra mátti er kórinn hélt sam-
söngva hér í Gamla Bíói fyrir
stuttu, þá nýkominn úr vel-
heppnaðri söngför til Danmerk-
ur. Það var löng og fjölbreytt
efnisskrá, sem sungin var á þess-
um tónleikum, og ekki verður
því neitað að nokkuð var mis-
feitt á stykkinu, bæði um verk-
efnaval og meðferð. En það var
hressilegur blær á þessum söng,
og að baki hans býr sönggieðin,
sem hlýtur að eiga drjúgan þátt
í að stytta skammdegiskvöldin
þar norður undir Ishafinu.
Starfsemi sem þessi er ómetan-
leg lyftistöng andlegu lífi á slík-
um stað sem Siglufjörður er, og
þeir sem hafa forystu um hana
eru miklir velgerðamenn síns
byggðarlags. Þetta hefir mér
virzt Siglfirðingar kunna að
meta, og er það vel.
Karlakórinn Yísir er nú skip-
aður hartnær 40 söngmönnum, og
á þeim tónleikum, sem hér um
ræðir, komu fram þrír einsöngv-
arar, sóló-kvartett skipaður
tveim konum og tveim körlum,
og fjórir hljóðfæraleikarar, auk
stjórnandans, sem lék einteik á
trompet með miklum tilþrifum.
Það mun óhætt að segja, að
mesta athygli af einsöngvurun-
um hafi vakið formaður kórs-
ins, Sigurjón Sæmundsson. Hann
tekur nú nokkuð að reskjast og
hefir í full þrjátíu ár verði með-
al fremstu söngmanna norðan-
lands. En það er síður en svo, að
nokkur ellimörk sé á honum að
sjá eða heyra.
Heimsókn Vísis var ánægju-
legur viðburður fyrir þá, sem
hlýddu samsöngvum kórsins
hér, og hefir vonandi ekki síður
orðið til ánægju kórmönnum
sjálfum og fylgdarliði þeirra.
arnar í stað árlegra vortónlaika
skólans. Söngleikur þessi nefnist
„Apaspil", og er í rauninni hcrna
ópera í þrem stuttum atriðum.
Með hlutverk fóru tvö börn úr
Barnamúsíkskólanum, Júiíana
E. Kjartansdóttir og Árni Árna-
son, og auk þess Sigríður Pálma-
dóttir og Kristinn Hallsson. Kór
barna úr Barnamúsíkskólanum
fór með veigamikið hlutverk
Sjö hljóðfæraleikarar aðstoðuðu.
Stjórnandi var höfundurinn,
Þorkell Sigurbjörnsson, leik
stjóri Baldvin Halldórsson, og
skólastjóri Barnamúsíkskólans,
Stefán Edelstein, flutti inm
gangsorð.
Þetta er skemmtileg nýjung og
að minni hyggju mjög vel
heppnuð. Söguþráðurinn er eiu
faldur og tekur barnshugann
við fyrstu heyrn, og músíkin
sameinar gamalt og nýtt á þann
hátt, að ýtt er við ímyndunar-
aflinu, án þess að skilningnum
sé ofboðið.
Þegar ég skrifa þetta, styðst
ég ekki eingöngu við eigin dóm-
greind, heldur einnig óbeint við
álit barna minna tveggja, sem
eru þriggja og fjögurra ára göm-
ul. Þau fengu að sjá „Apaspil“
í Tjarnarbæ, og þegar verkinu
var útvarpað skömmu síðar,
☆
MUSICA NOVA
Musica nova hélt tvenna tón-
leika í Austurbæjarbíói 14. og
15. þ.m. Á fyrri tónleikunum
voru flutt eingöngu verk eftir
Igor Stravinsky, þar á meðal
Saga hermannsins", og munu
þetta vera fyrstu Stravinsky-
tónleikar, sem hér eru haldnir.
Á síðari tónleikunum voru verk
eftir 8 höfunda alls, þar á meðal
tvo íslenzka, Jón Nordal og
Þorkel Sigurbjörnsson.
Stravinsky hefir um hálfrar
aldar skeið verið eitt fremsta og
mest áberandi tónskáld sinnar
samtíðar. Hann hefir verið mik-
ill leitandi og aldrei staðnæmzt
til lengdar við neina eina stefnu
né stíl. Verk hans eru lika mjög
mismunandi, ekki aðeins að yfir
bragði heldur líka að áhrifa-
mætti. Elegía (1944) fyrir ein-
leiksfiðlu þykir mér ekki svip-
mikið verk, og Duo Concertante
(1932) fyrir fiðlu og píanó sýn
ist í dag furðulega úrelt músik,
Ef hin svonefnda nýklassíska
stefna er dæmd eftir slíkum
verkum, er naumast von að dóm
urinn verði lofsamlegur. Mikiu
ferskari svip bera Þrjú auð-
veld (?) píanóstykki (1015), og
sérstaklega þó „Saga hermanns-
ins“, sem ein sér dugði til að
gera þessa tónleika ánægjulega
og eftirminnilega. Þar áttu
mikilsverðan hlut að máli leik-
ararnir Þorsteinn Ö. Stephensen
(sögumaður); Gísli Alfreðsson
(hermaðurinn) og Hóbert Arn-
finnsson (kölski) og dansmærin
Unnur Guðjónsdóttir (prinsess-
an).
Níu hljóðfæraleikarar komu
fram á þessum fyrri tónleikum,
og hvíldi þar mest á ameríska
fiðluleikaranum Paul Zuxofsky;
hann er frábær túlkandi nútíma-
tónlistar á hljóðfæri sitt. Páll P.
Pálsson stjórnaði flutningi á
„Sögu hermannsins".
Aðsókn að þessum tónieikurn
var hörmulega lítil, og mega
margir harma það, að hafa misst
af óvenjulegri lístreynslu, þar
sem „Saga hermannsins" var.
Er mér lítt skiljanlegt, hverju
þetta sætir, nema ef vera skyldi,
að áróðursbumbur hafi verið
slælegar barðar. En þá er að
bæta úr því og endurtaka síðan
flutninginn við fyrsta hentugt
tækifæri.
Á síðari tónleikunum kenndi
margra grasa í efnisvali. Sóna-
tína Jóns Nordals fyrir fiðiu og
píanó (1952) er áður kunn. Verx
Þorkels Sigurbjörnssonar, Víxl
(1965), hefi ég hinsvegar eksi
heyrt áður og hlýt að játa, að
ég er litlu nær eftir þessi íyrstu
kynni af því. Önnur viðfangsefni
voru eftir ýmsa höfunda, allt
frá Erik Satie (1066—1925) til
J. K. Randalls (f. 1930). Einnig
hér bar Paul Zukofsky hita og
þunga dagsins, en aðrir hljóð-
færaleikarar voru Gunnar Egils-
son (klarinett), Pétur Þorvalds-
son (celló) og Þorkell Sigur-
björnsson (píanó).
Jón Þórarinsson.
☆
APASPIL
Barnamúsíkskóli Reykjavíkur
brá á Þá nýlundu nú í vor að
sýna barnasöngleik eftir Þorkel
Sigurbjörnsson, og komu sýning-
Frá Gagnfræðaskóla
Austurbæjar
GAGNFRÆÐASKÓLA Austur-
Ibæjar var slitið laugardaginn
28. maí* en landsprófsdeildum
14. júní. Sveinbjörn Sigurjóns-
eon skólastjóri skýrði í skóla-
eiitaræðu frá störfum skólans á
liðnu starfsári og lýsti úrslitum
prófa.
Innritaðir nemendur á síðasta
hausti voru 416, og var þeim
ekipt i 15 bekkjardeildir. Fastir
kennarar auk skólastjóra voru
23, en stundakennarar 4.
Enginn fyrsti bekkur starfaði
1 skólanum, og voru nemendur
2. bekkjar því allir nýnemar,
tflestir úr gagnfræðadeild Barna-
ekóla Austurbæjar.
Undir gagnfræðapróf gengu 78
nemendur. 76 luku prófi og
brautskráðust, 50 úr almennri
bóknámsdeild 4. bekkjar og 25
úr verzlunardeild. Hæstu aðal-
einkunn í almennri bóknáms-
deild hlutu Einar Símonarson,
ágætiseinkunn 9,11, og Gunnar
Jndriðason, 8.14, en í verzlunar-
deild Ástríður _ B. Steingríms-
dóttir, 8,37 og Ásta Hrólfsdóttir,
6,32.
í 3. bekk almennri bóknáms-
deild og verzlunardeild tóku 115
nemendur próf, 90 luku prófi og
stóðust.
Hæstu einkunn I almennri
deild hlaut Guðmundur Þorgils-
son, 7,77, en í verzlunardeild
Lilja Kristinsdóttir, 8,12.
Landspróf miðskóla þreyttu
50 nemendur. 57 stóðust mið-
skólapróf þar af 39 með fram-
haldseikunn 6 og þar yfir í lands
prófsgreinum. Fjórir nemendur
hlutu ágætiseinkunn í lands-
prófsgreinum: Einar Valur Ingi-
mundarson, 9,34, Sigurjón Páll
ísaksson 9,30, Ragnheiður Guð-
mundsdóttir 9,24 og Jakob Berg-
þórsson Smári 9,11.
Unglingapróf þreytlu 150 nem
endur. 134 luku prófi og stóðust.
Tveir nemendur hlutu ágætis-
einkunn á unglingaprófi, þær
Ragna Briem 9,23 og Anna
Hreinsdóttir 9,00.
Nokkrir nemendur fengu verð
launabækur frá skólanum fyrir
ágætan námsárangur og góða
ástundun. Tvær stúlkur í verzl-
unardeild 4. bekkja, Auður Sig-
urðardóttir og Ástríður B. Stein-
Framhald á bls. 17 .
VANDIÐ VALIÐ -VELJID VOLVO
VOLVO
Amazon
Gflæsilegri, þægilegri og vandaðri innrétting
og stólar en áður hafa sézt
Þér getið valið um:
'A AMAZON 2ja dyra. — AMAZON 4ra dyra.
'A' AMAZON með sjálfskiptingu. — 'A AMAZON station.
'A AMAZON býður yður þægindi stórra og dýrra bifreiða —
en sparneytni og lágan reksturskostnað lítilla bifreiða. >'
AMAZON FAVORIT kostar aðeins kr. 227.000.00.
— Komið, sjáið og akið VOLVO AMAZON —
— Söluumboð á Akureyri: Magnús Jónsson c/o Þórshamri.
GUNNAR ÁSGEIRSSON H.F.
Suðurlandsbraut 16. — Sími 35-200.