Morgunblaðið - 22.06.1966, Blaðsíða 21
Miðvfkudagur 22. júní 1963
21
MQJRGUNBLAÐID
— De Gaulle
Framh. af bls. 1
istaríkjanna I austri.
Þrátt fyrir að Bandaríkin hafi
mikilvægu hlutverki að gegna í
Iheimsmálunum eiga Evrópubúar
sjálfir að leysa vandamál Ev-
rópu. Þangað til Evrópuþjóðirn-
ar byrja að beita áhrifum sínum
í þessa átt, er það hlutverk
Frakka annars vegar og Sovét-
manna hins vegar, að hefja nú
þegar umleitanir til að draga úr
spennu í Evrópu.'í
De Gaulle lagði áherzlu á að
Frakkland myndi áfram verða
frjáls þjóð og vestræn þjóð, en
að Frakkar gætu ekki unað' því
að standa andspænis tveimur
stríðandi aðilum í Evrópu.
Hann sagði einnig, að hann
myndi í viðræðunum við Sovét-
leiðtogana ræða um Þýzkalands-
vandamálið.
Að loknum viðræðunum i
morgun sagði talsmaður Frakka,
að Rússar hefðu sagt að þær
væru „áþreifanleg sönnun þess
— S'ildin
Framhald af bls. 27
S.L. sólarhring voru skipin
einkum að veiðum 120 mílur
austur af Langanesi og 110 míl-
ur SAaA frá Langanesi. Á þess-
um veiðisvæðum var veður
fremur óhagstætt. Við Jan
Mayen voru nokkur skip, en þar
var ekki veiðiveður í morgun.
Alls tilkynntu 21 skip afla s.l.
sólarhring, samtals 1.905 tonn.
Raufarhöfn
Jörundur II RE 160 tonn
Helga RE 150 —
Sæúlfur BA 130 —
Dalatangi
Seley SU 130 tonn
Jón Finnsson GK 100 —
Þórður Jónassor. EA 150 —
Sóley IS 60 —
Guðbjörg GK 20 -
Guðbjörg OF 50 —
Sigurfari AK 25 —
Keflvíkingur KE 50 —
Sigurvon RE 45 —
Guðbjörg IS 40 —
Guðm. Þórðarsor R*' 70 —
Gullberg NS 110 -
Barði NK 200 -
Helga Björg HU 60 —
Ólafur Friðbertsson IS 160 —
Þrymur BA 25 —
Lómur KE 40 -
Ólafur Magnússon EA 130 —
að vilji er fyrir frekari viðræð-
um milli þjóða vorra.“
Eftir því sem heimildir herma
voru helztu viðræðuefnin örygg-
ismál Evrópu og Þýzkalands-
vandamálið. Gerðu Sovétleiðtog
arnir fyrst grein fyrir stefnu
sinni, en síðan De Gaulle.
Ræddi hann gildi gagn-
kvæmra viðræðna milli Sovét-
ríkjanna og annarra þjóða, ekki
aðeins Frakka, heldur sagði tals
maðurinn að forsetinn hefði
sagt að stjórnin í Bonn æfti að
reyna að leysa vandamál sín í
samvinnu við Sovétstjórnina.
Þessi ummæli stinga í stúí við
þá afstöðu NATO, að gagnkvæm
ar viðræður við A-Evrópuþjóð-
irnar séu óráðlegar.
Því næst ræddu þeir sambúð
austurs og vesturs í Evrópu og
sameiningu Þýzkalands. Brezh-
nev minnti á tillögu, sem Gromy
ko utanríkisráðherra, bar fram
fyrir nokkrum mánuðum, um
ráðstefnu Evrópuþjóða um ör-
yggismál. í þeirri tillögu voru
Bandaríkin ákveðið útilokuð frá
þátttöku, en Finnlandsför Kosy-
gin á dögunum gaf hann í skyn
að möguleiki á þátttöku USA í
þessum viðræðum væri ekki úti
lokaður.
Ekki er vitað um viðbrögð De
Gaulle við þessari tillögu, en
bent er á, að stefna hans undan-
farið hafi verið að minnka áhrif
Bandaríkjamanna í Evrópu og
að Evrópubúar ifinni sjálfir
lausn á sínum vandamálum.
í opinberri tilkynningu af
hálfu Sovétríkjanna segir að við
ræðurnar hafi einkennzt af
hreinskilni og einlægni.
Næstu viðræður þessara sömu
aðila fara fram á miðvikudag.
Síðdegis ávarpaði De Gaulle
3000 Moskvubúa af svölum ráð-
hússins í Moskvu, þar sem hann
ræddi hin gömlu vináttubönd
Frakklands og Sovétríkjanna.
Endaði hann ávarp sitt með því
að segja á rússnesku: „Lengi lifi
Moskva. Lengi lifi Rússiand.
Lengi lifi vináttan“.
— SAS-verkfall
Framh. af bls. 1
ekki samþykkt gerðardóm.
Ætluðu dönsku flugmennirn-
ir að hefja störf að nýju á
miðnætti sl. og er gert ráð
fyrir að 80% af flugi SAS
JAMES BOND
Ný höfn, nýr slippur,
ný síldarbræðsla
Miklar framkvæmdir í Neskaupstað
verði komið í eðlilegt horf |
innan 48 klst.
Göte Lindgren fram-
kvæmdastjóri sænska flug-
mannasambandsins sagði í
kvöld að sáttanefndin hefði
kallað deiluaðila á fund
vegna tillögu samgöngumála-
ráðherranna, sem var á þá
leið að sérstakur gerðardóm-
ur fjallaði um þau atriði, sem
deiluaðilar næðu ekki sam-
komulagi um. Sænska flug-
mannasambandið hefði hafn-
að þessari málsmeðferð vegna
þess að hagsmunadeilumál
sem þessi væri ekki hægt að
leysa nema með samningum,
og þar sem ekki varð af frek-
ari samningaviðræðum held-
ur verkfall sænskra flug-
manna áfram“ sagði Lind-
gren að lokum.
Þá var tilkynnt i kvöld, að
við upphaf viðræðnanna í
dag hefði SAS fallist á þá
kröfu danska flugmannasam-
bandsins um að ráða aftur
tvo danska flugmenn, sem fé-
lagið sagði fyrir skömmu upp,
á þeim forsendum að þeir
hefðu ekki svarað í símann
er kalla átti þá til starfa. En
flugmennirnir áttu þá að
vera reiðubúnir til starfa
með litlum sem engum fyrir-
vara í 24 klst.
Flugmannaverkfallið hefur
nú staðið í 8 daga, og hefur
þa kostað SAS 18 milljónir
ísl. kr. á dag ,eða nú alls um
145 milljónir ísl. kr. frá byrj-
un. Má búast við að afleið-
ingar verkfallsins eigi enn
eftir að segja til sín.
MORGUNBLAOIO
Neskaupstað, 18. júní.
MIKLAR framkvæmdir standa
nú fyrir dyrum hér í Neskaup-
stað í sumar. Verður unnið að
byggingu nýrrar hafnar, byggð-
ur stór slippur, reist ný síldar-
verksmiðja, og loks unnið að
stækkun sildarverksmiðju.
Fjöldi fólks er komið hingað til
bæjarins til þess að vinna við
síldina í sumar, en þótt vinna
við hana sé ekki enn hafin að
fullu, þá er næg atvinna handa
fólkinu við fyrrgreindar fram-
kvæmdir.
Varðandi hafnargerðina, þá
verður unnið að 1. áfanga henn-
ar í sumar. Hún mun verða i
hafnarbotninum nokkra kíló-
metra frá innan við innstu íbúð
arhúsin í bænum. Er þegar bú-
ið að mæla fyrir höfninni.
Þá verður unnið- af kappi við
byggingu nýs slipps, og verður
unnið stanzlaust við hann þar
til honum er að fullu lokið. Von
ast menn til að það verði núna
í haust. Slippur þessi á að geta
tekið upp allt að 500 tonna
skip.
Byrjað verður á byggingu
nýrrar síldarverksmiðju ein-
hvern næstu daga. Það er nýtt
hlutafélag, Rauðbjörg h.f., sem
stendur að byggingu þessarar
verksmiðju og eru allflestir hlut
hafar þess frá Neskaupstað.
Verksmiðjan á að geta afkast-
að 1500-2000 málum á sólarhring
en ennfremur er gert ráð fyrir
stækkunarmöguleikum. Ekki er
ráðgert að verksmiðjan verði til
fyrr en á næstu síldarvertíð.
Löks er nú imnið dag og nótt
að því að stækka verksmiðju
Síldarvinnslunnar, og verður
hún stækkuð upp í 7 þús. mála
afköst á sólarhring. Standa von-
ir til að sú stækkun geti jafnvel
verið komin í gang nú upp úr
mánaðamótunum.
— Fréttaritari.
í stuttu
máli
AMSTERDAM — 850 manni
eða rúmlega það undirrituðu
mótmælaskjal sem birt var í
sunnudagsblöðunum, þar sem
víttar eru aðfarir lögreglu-
manna við óeirðirnar sem
urðu í Amsterdam fyrr í vik-
unni. Eru tilfærð ýmis dæmi
um óþarfa hörku lögrsglu-
manna í átökunum.
ADEN — Brezka oliuskipið
„01na“ bjargaði á sunnudag
26 manna áhöfn skipsin3
„Zaneta“ sem isigldi undir
fána Líberíu, þar sem skipið
var að því komið að sökkva
á Arabiska hafinu.
NEW YORK — Haft var eftir
Robert Kennedy að hann
væri því andvígur að Banda-
ríkin tækju upp viðskipta-
bann á S-Afríku, því það
myndi koma harðast niður a
þeim sem helzt væru hjálpar
þurfi. Auk þess myndi við-
skiptabann hafa slæm áhrif á
hina hagstæðu þróua efna-
hagsmála í landinu, sem
Kennedy telur bezta ráðið til
að brjóta apartheid á bak
aftur.
—X— ->f -X— Eftii IAN FLEMING
— Sýknað
Framhald af bls. 19
gæslu starfsmanna ísl. aðal-
verktaka eða lélegum aðbúnaði
á vinnustað yrði kennt um slys-
ið. Segir að lokum í forsendum
að dómi héraðsdóms:
„Samkvæmt framangreindu
verður slysið hvorki rakið til
vanbúaðar á vinnustað né til
mistaka af hálfu manna þeirra,
sem stefndi ber ábyrgð á, enda
verður í því sambandi að líta
á að stefnandi fór ógætilega
með því að fara fremst fram á
þiljur skipsins, þar sem þær eru
mjóstar, en aðeins lág brún á
milli þeirra og opinnar lestar-
innar, og án þess að hafa annan
stuðning en af framangreindum
vír. Verður heldur eigi séð, að
stefnanda hafi borið nauðsyn
til að vera á stað þessum til að
fylgjast með lestun skipsins, og
hefur honum verið í lófa lagið
að verá þar sem hætta var
minni, t. d. aftar á þiljum skips-
ins. Þar sem slysið verður
heldur eigi rakið til annarrar
áhættu, sem stefndi lögum sam-
kvæmt ber ábyrgð á, ber að
sýkna hann af kröfum stefn-
anda, en eftir atvikum þykir
rétt að málskostnaður falli nið-
ur.“
Hæstiréttur komst að sömu
niðurstöðu og héraðsdómurinn
og segir svo í dómi Hæstaréttar:
„Meí skírskotun til forsenda
hins áfrýjaða dóms þykir mega
staðfesta hann.“
James Bond
IV IAH REIMK
DMWWS 81 JOHN iclBS
Eg heyrði kallað úr myrkrinu. „Nú
skulum við fá okkur glas af Raki. En
hvað er nú þetta?“
„Vavra fer sínar eigin leiðir við að
finna út hvað grimumennirnir ætla sér“.
Vavra hafði þegar fundið það út. „Þetta
er undarlegt atferli, James. Vavra segir
að grímumennirnir hafi verið sendir til að
ná í mig, hann og menn hans, vegna þesa
að þeir vinna fyrir mig. En það virðist
sem það hafi ekki átt að særa þig“.
Chieng þykir gaman að gera góð við-
skipti og hann er strax reiðubúinn til að
ganga að tilboði Júmbós.
Hann sýnir Júmbó mikið af fjallgöngu-
klæðnaði og segir að það hafi einmitt
verið þesskonar klæðnaður sem sjómenn-
irnir keyptu, þegar þeir ætluðu að klifa
Isalo-fjallið til þess að komast að „gjótu
Portúgalanna“. Það verða 60 dollarar,
þökk fyrir.
Teiknarr J. MORA
Júmbó tekur strax fram peningana. —
Gjörðu svo vel, segir hann — hérna hef-
urðu 60 dollara og þá 10 sem ég hét þér
í kaupbætir. Við komum bráðum að sækja
dótið . . . Þökk fyrir upplýsingarnar.