Morgunblaðið - 22.06.1966, Síða 10

Morgunblaðið - 22.06.1966, Síða 10
10 MORGU NBLADID l Miðvikudagur 22. júní 1966 Úr blaðamannaför til Sövétrikjanna: 5 Aleksander Tvardovsky rttstjóri NOVI MIR. ! Mikið er gefið út af blöð- um og tímaritum í Sovét- 1 ríkjunium. Af upplýsingum, i sem við fengum um blaða- , útgáfu virðist hún fjölbreytt, en sökum vanikunnáttu á rússnesku máli, hofðuim við engin tok á að kanna gæði , hennar. Hins vegar má nokk uð af því ráða, að flokkur- inn stendur yfirleitt að baki blaðaútgáfu, — oft í sam- 7, vinnu við borga-r- eða bæjar- ij stjórnir á hverjum stað. Þá I standa ýmis samtöik, svo sem i sambönd rithöfunda, blaða- manna, visindamanna o.s frv. 1 að ýmiss konar blaða og tíma ritaútgáfu, einkum á sviði 1 vísinda og menningar. Haft er fyrir satt, að ýmis blöð og tímarit séu gefin út á laun — af andstæðingum stjórnar- valdanna, en um það hef ég engar óyggjandi upplýsingar. Biöð og tímarit eru gefin út á tugum tungumála og ná tiá allra hinna fjölmennari þjóðarbrota. Sem dæmi má nefna, að í Armeniu er gefið út dagblað fyrir Kúrda, sem þar eru búsettir um 27.000 talsins. Mun það fyrsta dag- ' blað í heiminum á máli Kúrda. Skipulagning blaðaútgáfu virtist mér með svipuðu smði í öllum þeim ríkjum, er vjð heimsóttum, en magnið að sjálfsögðu mismunandi éftir fjölda íbúa á hverjum stað. Moskvublöðin stóru, svo sem Pravda og Izvestija, sem gef- in eru út í milljónum ein- taka, eru seld um gervöll Sovétríkin svo og margs kon- ar önnur blöð og tímarit gef in út í Moskvu. Þá eru sér- stök dagblöð gefin út í hverju 1 ríki, sum fyrir lýðveldin í heild, önnur ætluð einsoök- um héruðum og sveitum, — síðan koma dagblöð borga og bæja, mismunandi stór og mörg eftir íbúafjölda. Sérstök blöð fjalla um menningu, leiklist, ilþróttir, og önnur sérsvið og sérstök blöð eru fyrir börn og unglinga. Þá eru gefin út dagblöð í fjöl- mörgum stórum verksmiðjum j og á fjölmennum samyrkju- I búum. Ekki koma öll þessi dag- blöð út daglega, sum þrisv- ar í viku, einkum sérblöðin, 1 Dagblöðin eru ekki stór, al- gengasta stærð 4-6 síður, sem mundu jafngilda 8-12 síðum í Morgunblaðinu. í þeim eru hins vegar engar auglýsingar, myndir fáar og fyrirsagnir fremur litlar, svo að lesmál verður býsna drjúgt. En taep- ast verður sagt að blöðin séu miikið augnayndi. Það bætir mjög upp blaða- útgáfuna, að gefin eru út feiknin öll af tímaritum um alls konar efni, viku og mán- aðarritum og eru sum á við heilar bækur. í öllum helztu borgum eru gefin út svoköll- uð „stór tímarit", mánaðarit um bókmenntir og önnur efni. Eru þau allt að 200-300 blaðsíður í allstóru broti — rúmlega meðal bókarstærð. — Þó eru gefin út sérstök tíma- rit fyrir börn og unglinga, konur, kennara, tæknifræð- inga og aðrar stéttir að ó- gleymdum þeim, sem fjalla sérstaklega um hugtakafræði flokksins. Eitt elzta flokksblað komm únistaflokksins sovézka er dagblaðið CINA í Riga í Lett landi. Hóf það göngu sína árið 1904 en var gefið út með leynd fram að bylting- unni. I viðræðum, sem við áttum við ritstjóra þessa blaðs, var okkur sagt, að sov- ézku dagblöðin væru slkrifuð í anda þeirrar kenningar Len- íns, að dagblöð eigi að vera „collective organizer of pe- ople and collective agitatör and propogandist", sem laus- lega þýðir, að dagblöð eigi að samræma athafnir fólks- ins, hivetja það til dáða og koma á framfæri hugmynd- um kommúnismans. Tekið var sérstaklega fram við okk- ur í þessu sambandi, að „propaganda“ þýddi annað á rússnesku en ensku — á ensku væri „propaganda" af- bökun eða rangtúlkun stað- reynda „distortion of facts“, en á rússnesku þýddi það að koma á framfæri hugmynd- um, eða eittihvað á þá leið. Mér varð á að spyrja, hvort þetta tvennt gæti ekki stund- um farið saman, en því var neitað mjög eindregið, og lögð á það áherzla, að lesendum væru sagðar blákaldar og sannar staðreyndir, ekkert annað. Meðal þess, sem á góma bar í umræðum okkar var fréttaval og þær kröfúr, sem lesendur eiga á því, að blöð flytji sem víðtækastar frétt- ir. Sagði ritstjóri CINA, að í sovézkum blöðum væri fyrst og fremst birtar já- kvæðar fréttir, þ.e.a.s. fréttir sem miðuðu að því að gera þjóðfélagið betra. Ekki svo að skilja að aldrei væri birt gagnrýni, síður en svo, en hún yrði að vera jákvæð, annars væri ekkert mark á henni takandi. Við ræddum um þá venju sovézkra blaða að birta sjaldan eða ekki frétt ir af slysum. Sagði ritsfjór- inn, að slys t.d. bifreiðaslys, brunar og þess háttar væru smámunir, sem engu máli skiptu, jafnvel þótt um bana- slys væri að ræða. Þau kæimu almenningi ekkert við. „Mynd uð þið segja frá því ef fjórir menn biðu bana í árekstri hér fyrir utan skrifstofurnar? spurðum við — og ritstjórinn svaraði „nei, ekki nema bíl- stjórinn væri drulkkinn, þá gæti það orðið öðru fólki til aðvörunar. I Moskvu heimsóttum við íslendingarnir ritstjórnarskrif stofur tímaritanna NOVI MIR og LITERATURNAYA GA- ZETA. Fyrra blaðið höfðum við óskað að heimsækja — hið síðara ákváðu gestgjaf- ar okkar að við skyldum heimsækja. NOVI MIR hefur fengið orð fyrir að vera frjáls lyndasta bókmenntarit Sov- étríkjanna og hafa birzt þar margar hinna nýjustu og um deildustu ritsmíða sem fram hafa kömið í Sovétríkjunum á síðustu árum. Ritstjónnn Alexander Tvardovsky er einnig umdeildur maður, telst frjálslyndur mjög á sovézkan mælikvarða, þótt ýmsum finn- ist hann of þægur stjórnar- völdunum. Tvardovsky átti sæti í mið stjórn sovézka kommúnista- flokksins en á síðasta flokks- þingi varð hann fyrir tölu- verðri gagnrýni. Var því haldið fram, að NOVI MIR hefði varasöm áhrif á sov- ézkt æskufólk, ýtti undir gagnrýni þess og yki bölsýni á framtíð kommúnísks þjóð- skipulags. Þegar kosið var í miðstjórnina á ný náði Tvard ovsky ekki kosningu. Einn fylgdarmanna okkar sagði mér, að sterkur orðrómur hefði verið um það í Moskvu, að Tvardovsky yrði neyddiur til að segja af sér, en honum hefði augljóslega tekizt að snúa sig úr klípunni, án þess þó að breyta stefnu blaðs- ins. Ekki virðist hann þó fulkomlega öruggur í sessi, því að fyrir nokkrum dög- um birtust fréttiir frá Moskvu þess efmis að kvæði hans „Vassily Tjorkin í öðrum heimi“ (sem kom til um- ræðu á blaðamannafundinum með Tarsis og hann sagði óheiðarlegt kvæði) — sem fært var upp í einskonar leik búningi, hefði orðið tilefni harðra árása á einn kunnasta leikstjóra Moskvúborgar, Val- entin Plutjek, leikstjóra Tag- anke leikhússins, þ.e. Theat- er ofComedy and Satire*. Leik hús þetta telst eitt helzta „tilraunaleikhús“ Moskvu- borgar og hefur verið mjög umdeilt. Við sáum sýningu þessa leikhúss á hinni um- deildu „dramatiseringu" á sögunni „Tíu dagar, sem skóku heiminn", eftir banda- ríska blaðamanninn og kocmm únistann John Reed. Sýning þessi var afar skemmtileg og harla torskilið hvað í henni gat talizt andstætt viður- kenndri stefnu. Samkvæmt fyrrgreindum fregnum frá Moskvu hafði málgagn sovézka mennta- málaráðuneytisins „Sovetskja Kultura“ krafizt þess, að Piutjek yrði vikið frá sem leikstjóra, þar eð hann hefði tekið til sýningar ýmis verk án „undangenginna nægi- legra umræðna“ og var eink- um tilgreind uppfærslan á ljóði Tvardovsikys. Þá sagði Sovetskaja Kultura, að nefnd frá samtökum listamanna og leikara hefði komizt að raun um, að meðal leikaranna við Takanka leikhúsið væri ríkj- andi „alvarlegur skortxu- á jákvæðri hugsjónalegri af- stöðu“ — og að nokkrir leiik- aranna, sem hefðu „jáikvæða hugsjónaafstöðu“ hefðu sagt, að Plutjek væri „grófur“ í vinnubrögðum og hlustaði ekki á gagnrýni. Loks hefði nefndin komizt að raun um, að leikstjórinn hefði leitt leikhúsið út í fjárhagsvand- ræði — fullyrðing sem að sögn fréttamanna kom mjög á óvart í Moskvu, þar eð ékikert leikhús þar er eins vinsælt og hvergi eins erfitt að fá aðgöngumiða. Því miður gafst okkur ekki tækifæri til að hitta Tvardovsky að máli fyrr en rétt áður en heimsókn okk- ar hjá NOVI MIR lauk. Það var því fnamkvæmdastjóri eða „ritari" tímaritsins, Zax að nafni, sem gaf okkur allar upplýsingar um starfsemi ritsins og stjórnaði umræð- um. Viðstaddir voru nokkrir aðrir úr ritstjórninni og túlk ur. Ekki treysti ég mér til að rekja svo nokkru nemi viðræður þessar, bæði sakir vankunnáttu minnar á bók- menntum og menningu — þarna áttu fyrst og fremst hlut að máli félagar mínir Sigurður A. Magnússon og Gunnar Bergmann, sem báð- ir fjalla um menningarmál í sínu starfi, — ennfremur sök'um þess, að við kynnt- umst þarna heldur betur þeim margrómaða eiginleika Rússa að fara undan í flæmingi. Svör voru oft og tíðum aiar loðin — þeir notuðu mörg orð en það var býsna erfitt að henda reiður á meimng- unni. Stundum virtust mér heilu setningarnar gersam- lega merkingarlausar, — en svo er reyndar oft um fáfrótt fólk, að það skilur hvorki upp né niður í því sem sér- fræðingar í listum og menn- ingu segja. Fjallað var um rússneskar bókmenntir og listir vítt og breitt, stöðu þeirra í sovézku þjóðfélagi og helztu breytingar, sem bókmenntir hefðu tekið með batnandi lifnaðarháttum og aukinni menntun þjóðarinn- ar. Zax sagði, að innihaid rit- verka skipti öllu máli, vist væri allt gott um ný form og formtilraunir að segja, svo fremi þau sýndu hið raun verulega innihald listaverks- iins í skýrara ljósi. Hann sagði, að skilningur manna á merkingu realismans hefði aukizt og dýpkað og ungir rithöfundar sem sprottnir væru úr öllum sviðum þjóð- félagsins tækju til meðferð- ar hliðar á mannlegu iifi, sem ekki hefði verið fjallað um áður. Þar kæmu fram nýjar manngerðir og ný og flókin sálfræðileg vandamál. Zax sagði, að NOVI MIR væri gefið út í 150.000 ein- tökum. Það væri venjulegt tímarit, upp á gamla mát- ann, 250-300 blaðsíður, þsr af helmingur ný skáldverk og hinn helmingurinn grein- ar um ýmis efni. Tímaritið er gefið út af sovézka rithöfundasamband- inu, er eitt hinna svonefndu „stóru tímarita". Þar starfa um 30 manns, þar af 15 við ritstjórn, en margir rithóf- undar leggja blaðinu til efni. Áður fyrr voru birtar í rit- inu þýðingar á verkum er- lendra rithöfunda og skálda, en ekki lengur, þar sem kom- ið hefur verið á laggirnar sérstöku tímariti er fjallar um erlendar bókmenntir ein göngu. Zax vildi lítið gera úr gagn rýninni á NOVI- MIR, sagði að menn legðu eðlilega mis- munandi mælikvarða á bók- menntir og hugsjónafræði og mismunandi skoðanir væru uppi um stefnu blaðs- ins. Satt væri, að NOVI MIR hefði verið gagnrýnt fyrir að birta ýmis verk, m.a. fyrir birtingu skáldrita eftir Solzhenitsyn. Á hinn bóginn sagði Zax, að ekkert samband væri milili gagnrýn- innar á NOVI MIR á flokks- þinginu og þess, að Tvard- ovsky, ritstjóri, missti sæti sitt í mið&tjórni'imi. Það væri aðeins fyrir tilviljun og eðli- leg tilfærsla á mönnum. Ekki fór hjá því, að mál þeirra Sinyavskys og Daniels bæri á góma, báðir höfðu skrifað fyrir NOVI MIR, eink Framhald á bls. 19 Ritstjórar LITERNATURNAYA GAZETA — talið frá vinstri, Oleg Brudkov, Nikita Rasgovorov og Beata Betskaya. I í 1 !

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.