Morgunblaðið - 22.06.1966, Page 16
MORCUNBLAÐIÐ
16
Mi^yikudagur 22. júní 1966
Rússar kaupa hveiti í
Kanada ffyrir 800 millj. $
Ottawa, 21. júní — AP
SOVÉTRÍKIN hafa óskað eftir
að kaupa hveiti frá Kanada fyr-
ir 800 milljónir doilara á næstu
3 árum. Er þetta stærsta hveiti-
sala sem um getur í sögunni, og
þriðja meiri háttar hveitisaíá
Kanada til Sovétríkjanna síðan
hinn mikli hveitiuppskerubrest-
ur varð í Sovétrikjunum árið
1963.
John J. Greene, iandbúnaðar-
ráðherra Kanada, lýsti í Ottawa
í dag yfir ánægju sinni yfir þess
ari stóru pöntun, en viðurkenndi
að það yrði þjóðarvandamál að
flytja allt þetta magn (336
milljón sekkir. Hver sekkur veg
ur 30 kg.) til hafnarborga í
HARÐIR bardagar geisuðu í nótt
og í morgun milli Bandaríkja-
manna og skæruliða Viet Cong
í frumskógarhálendinu skammt
frá Phu Yen og misstu skæru-
liðar að sögn 70 menn, en mann-
fall í liði Bandaríkjamanna er
sagt litið. Nokkrir bardagar
voru einnig á hálendinu 270 km
NA frá Saigon. Bandariskar
sprengjuflugvélar gerðu harðar
árásir á stöðvar skæruliða
skammt frá Danang. — Misstu
Bandarikjamenn eina flugvél í
þessum aðgerðum.
Tric Tri Quang, leiðtogi Búdda
trúarmanna í mótmæla aðgerð-
unurn gegn stjórn Kys hershöfð-
ingja, var í dag fluttur með her-
flugvél frá Hue til Saigon, og
lagður þar inn í sjúkrahús. —
Quang hefur nú verið í hungur-
verkfalli í 13 daga, en hann hafði
ihótað að svelta sig til bana ef
Ky léti ekki af völdum. Öflugur
hervörður er um sjúkrahúsið þar
sem hann liggur, og er frétta-
menn reyndu að ná tali af hon-
um var þeim sagt að Quang gæti
ekki talað við þá, þar eð hann
væri aðframkominn af þreytu.
Þrátt fyrir þetta var nokkrum
háttsettum Búddamunkum leyft
áð heimsækja hann.
Bandarikjamenn opnuðu í gær
á nýjan leik sendiráð sitt í Hue,
en þar hefur ekkert sendiráð
verið siðan Búddamunkar ger-
eyðilögðu sendiráðsbygginguna
snemma í þessum mánuði.
Waiston lávarður, aðstoðar-
utanrikisráðherra Bretlands, iauk
í dag 4 daga heimsókn til Suður-
Víetnam, þar sem hann ræddi
m.a. við bandaríska og suður-
víetnamska leiðtoga.
Sagði Walston á fundi með
fréttamönnum í dag, áð hann
sæi fyrir endann á stríðinu í
Víetnam á næstu 12 mánuðum.
Hann sagði að frá hernaðarlegu
sjónarmiði vegnaði bandamönn-
um mjög vel í baráttunni gegn
kom-múnistum, og að það væri
auðséð á aðgerðum bandamanna
að enginn möguleiki væri fyrir
kommúnista að fara með sigur
af hólmi í þessari styrjöld, og
hefði stjórnin í N-Víetnam nú
gert sér grein fyrir þessu.
Hann sagði ennfremur, að eng-
inn möguleiki væri á a’ð Bretar
sendu herlið til aðstoðar banda-
mönnum, og værr ein af ástæð-
unum sú, að Bretar væru ásamt
Sovétmönnum formenn á Genfar
ráðstefnunni um Víetnam.
Fréttastofan „Nýja Kína“ í
Peking sagði í dag að flugvélar
N-Víetnamhers hefðu skotið nið,-
ur 2 bandarískar sprengjúþotur
í gær, og að skæruliðar hefðu
ennfremur skotið niður 5 aðrar
þotur yfir N-Víetnam og náð
nokkrurri bandarískum flugmönn
um á sitt vald.
Herstjórn Bandaríkjanna í Sai-
gon skýrði frá því í dag, að
Bandaríkjamenn hefðu nú misst
265 flugvélar yfir Víetnam, síð-
Kanada og skipa því út á til-
settum tíma, en afgreiða á %
af þessu magni fyrir 1. ágúst
1967.
Skipaflutningar frá Kanada
eru nú á eftir áætlun sökum
hafnarverkfalla sem þar ríktu,
og skorts á flutningabílum, og
nú vofir yfir jarnbrautarverk-
fall um gervallt lan<jið.
Ekki var gefið upp verðið,
sem Rússar greiða fyrir hveiti-
lestina, en markaðsverð á fyrsta
flokks hveiti hefur hækkað upp
í rúma 2 dali pr. sekk. Hefur
kanadíska hveitisambandið stöð-
ugt hækkað verðið á undanförn
um mánuðum, þrátt fyrir and-
stöðu Bandaríkjamanna.
an loftárásir hófust aftur í febrú-
ar sl.
— T arsis
Framhald af bls. 28.
þann hátt, er hún gerðl, — en
hægt væri að velta fyrir sér
hver væri iíklegust ástæða.
Rahr sagði, að Tarsis hefði ver-
ið kominn í óvenjulega aðstöðu
i Moskvu. Af hálfu opinberra
yfirvaida hafði hann verið yfir-
lýstur geðveikur og nú hélt
hann uppi opinskárri gagnrýni á
stjórnarvöldin.
Ungir listamenn og rithöfund-
ar, um það bil tvö hundruð tals-
ins, heimsóttu hann tíðum, er-
lendir fréttamenn í Moskvu
heimsóttu hann og hlustuðu á
frásagnir hans af hæiisvistinni
og reynslu af sovézkum yfirvöld-
um. Menn þessir skrifuðu til
biaða sinna, sumir tóku afstöðu
með Tarsis, aðrir á móti — en
allir voru á einu máli um, að
hann væri ekki geðsjúklingur.
Svo hlaut að fara, að Sovétstjórn-
inni þætti nóg komi'ð af svo
góðu og var þá um ýmsa mögu-
leika að ræða. Hinn fyrsti var að
setja hann í fangelsi. En það
var ekki svo gott, því að sam-
kvæmt sovézkum lögum er ekk-
ert hægt að gera við geðsjúkiing,
jafnvel þótt hann fremji morð,
nema úrskurða hann til árs
læknismeðferðar. Annar mögu-
leikinn var að senda hann aftur
á geðveikrahæli. Það var heldur
ekki svo gott, þar sem fyrir lá
vitnisburður fréttamanna og
fjöldi vestrænna rithöfunda og
kunnra manna hafði skrifa'ð und-
ir áskorun til yfirvaldanna um
að leyfa Tarsis að fara úr landi.
Meðal þessara manna voru Bert-
rand Russel lávarður og banda-
ríski rithöfundurinn Arthur Mill
er, sem Sovétstjórnin leit á sem
vini Sovétríkjanna, er oftar gagn
rýndu einræðisstjórnir á Spáni
og Portúgal en Sovétstjórnina.
Þriðji möguleikinn var því að
losna við hann úr landi, í þeirri
von, að hann gleymdist fljótlega,
enda þótt hann yrði hávær í
gagnrýni sinni til að byrja með.
Þegar kom að máli Sinyav-
sky og Daniel sagði Ra.hr, að
sennilega hafi þolinmæði Sovét-
stjórnarinnar verið þrotin og því
hafi þeir verið fangelsaðir —
Sovétstjórnin hafi bugsað sem
svo, að í lagi væri að vera harð-
hent með annarri hendinni úr því
hún sýndist mjúkhent með hinni.
„Þetta þarf ekki að vera rétt
skýring, sagði Rahr að lokum“,
en gæti verið það.‘ Aðeins Sov-
étstjórnin veit svarið.
Meðal spuminga, sem lagðar
voru fyrir Tarsis var þessi:
Með hverjum hætti voruð þér
yfirlýstur geðveikur, var það
gert af dómara eða opinber-
um aðila? Tarsis hló við þess-
ari spurningu og kvað engan
dómara hafa komið þar næi n:
„Eftir því sem ég bezt veit var
Krúsjeff í Berlín, er hann las
söguna mína „Biáa flaskan".
Þegar hann hafði lokið henni
sagði hann æfareiður við tengda
son sinn Adsjubei. „Þessi biilv-
aður Tarsis skal á geðveikra
hæli og það strax“. Ég vissi
ekkert hvað til stóð þega.r lög-
regluþjónn hringdi hjá mér einn
daginn og sagði, að lögreglu-
stjórinn vildi hitta mig að máii.
Var ég beðinn um að ganga út
í lögregluibifreið — og klukku-
stundu síðar var ég kominn
á geðveikrahæil Þetta var nú
alit og sumt.
Tarsis var einnig að því spurð-
ur, hvernig á því stæði, að 90%
kjósenda í Sovétríkjunum
greiddu stjórninni þar atkvæði í
kosningum, úr því andstaðan
gegn henni væri svo almenn, sem
hann vildi vera láta.
Þá hló Tarsis enn 'hærra Og
sagði. „Þið vitið þó, að kosning-
arnar í Sovétríkjunum, eru bara
grín, barnagaman — krakkarnir
taka atkvæðaseðlana og fleygja
þeim í kjörkassana. Þess eru
dæmi, að fram’bjóðendur fái ekki
nema 5% atkvæða, en síðan er
sagf að þeir hafi fengið 96—97%.
Eitt sinn var ég í kjörstjórn.
Þegar atkvæðagreiðslunni lauk
settumst við að áti og drykkju
— þömbuðum vodka, síðan sögð-
um við sem svo: „Ja, hvað eig-
um við að láta Það heita, til
dæmis 97,37% — svo drukkum
við meira vodka. Þár með búið.
Tarsis var að því spurður,
hvort fyrir hendi væri í Sovét-
rikjunum eitthvað afi, sem væri
hægt að beita gegn stjórnarvöld-
unum með von um sigur. Því
svaraði hann, að ekkert skipu-
lagt afl væri fyrir hendi utan
andúð fólksins og sívaxandi hat-
ur. Fyrr eða síðar kæmi að því,
að óánægjan yrði svo megn og
víðtæk, að fólkið tæki til sinna
ráða.
Aðspurður kvaðst Tarsis sann
færður um, að herinn mundi taka
afstöðu með fólkinu ef til bylt-
ingar kæmi. Hann sagði, að í
Ungverjalandsbyltingunni hefði
mikill hluti hersins verið hlið-
hollur uppreisnarmönnum og
iengi neitað að berjast gegn
iþeim. Tarsis var spurður, hvort
almenningur í Sovétríkjunum
hefði góða hugmynd um lífið á
Vesturlöndum og teldi það tii
eftirbreytni. Því svaraði hann
játandi, fólkið vissi að á Vestur
löndum ríkti frelsi og lífskjör
■þar væru betri. Það fylgdist af
áihuga með öllum fregnum að
vestan og drykki í sig vestrænar
bókmenntir, bæði þær, sem
væru gefnar út opinberlega og
Jeynilega.
Lífskjör í Sovétríkjunum sagði
Tarsis hafa versnað frá því fyrir
þrjátiu árum. Hann var spurður
hvort kommúnisminn hefði ein-
hverntíma verið til hagsbóta og
jhvenær hefði snúizt til hins
verra — og svaraði, að vissulega
hefðu Rússar gert sér miklar von
ir uih kommúnismann í upphafi.
85% rússnesku þjóðarinnar hefðu
verið jarðeignalausir bændur,
lifskjör þeirra hefðu verið bág
og þeir hefðu treyst því, að Lenín
mundi skipta upp jörðunum milli
þeirra. Þess í stað hefði þeim
verið hrúgað saman í samyrkju-
bú — þó þannig, að þeir hefðu
dálítinn landskika fyrir sig. En
nú væri svo komið, að samyrkju
búin væru aðeins 5% af sovézk-
um búum, ríkisbúin hefðu tekið
við og landskikarnir væru að
engu orðnir.
Loks var Tarsis að því spurð-
ur, hvort Rússar hefðu fengið
sannar fregnir af uppreisninni í
Berlín 1953 og Ungverjalandi
1956 og var fljótur að svara því,
að þeir hefðu verið mataðir á
eintómum lygum um þá atburði.
Þegar spurningum hafði verið
svarað ávarpaði Aðalsteinn Guð-
jónssen, formaður Stúdentafé-
lags Reykjavíkur, fyrirlesarann,
þakkaði honum og óskaði hon-
um heilia í baráttunni gegn
einræðisöflum, hverju nafni sem
þau nefndust og hvar sem þau
væru. Bað hann vistadda að taka
undir þá ósk með því
að standa á fætur og með lófa-
taki. Var tekið undir það kröft-
uglega — utan einstöku menn,
sem sýnilega voru ekki sammála
m. a. Einar Bragi rithöfundur
og Jón Baldvin Hannibalsson,
hagfræðingur.
— Synódus
Framhald af bls. 2
klausturs, Hofi í Vopnafirði,
Bíldudal, Laufási og Miklabæj-
ar, en veitingu í embætti væri
ekki lokið enn. Óveitt væru nú
eftirtalin prestaköll: Staðar-
hraun, Breiðabólstaður á Skóg-
arströnd, Flatey, Brjánslækur,
Sauðlauksdalur, Hrafnseyri, Núp
ur í Dýrafirði, Ögurþing, Árnes,
Breiðabólstaður í Vesturhópi,
Hofsós, Grímsey, Kirkjubær í
Hróarstungu, Vallanes og Hof
í Öræfum.
Fjórir sóknarprestar voru
skipaðir prófastar á árinu. Voru
það séra Benjamín Kristinsson
í Eyjafjarðarprófastsdæmi, séra
Sigurður Pálssc.n í Árnesprófasts
dæmi, séra Stefán Eggertsson
í V-ísafjarðarprófasdæmi og
séra Sigmar Thorfason í N-Múla
prófastsdæmi.
Ræðu sinni lauk biskup með
bæninni „Gef að blómgist Guð
þín kirkju, Guð oss alla leið og
styð.“
Kl. 4 í gær hófst svo fundur
í hátíðasal Hóskólans og var
þar tekið fyrir aðalmál presta-
stefnunnar, frumvarp nefndar,
sem skipuð var til að gera til-
lögur um endurskoðun á presta-
köllum og skipulagningu þeirra.
Fluttu framsöguerindi þeir Ing-
óifur Ástmarsson bikupsritari og
séra Sigurður Haukdal sóknar-
jirestur að Bergþórshvoli.
Nefnd þessi var skipuð 23.
april 1965 af kirkjumálaráö-
herra og áttu sæti í henni þeir
Ásgeir Pétursson sýslumaður,
sem jafnframt var skipaður for-
maður hennar, séra Sigurður
Einarsson prestur í Holti, PáU
V. G. Kolka læknir, séra Ingólf-
ur Ástmarsson biskupsritari og
Ólafur Björnsson fulltrúi í dóms-
og kirkjumálaráðuneytinu. Lauk
nefndin störfum sínum í marz
s.l. og skilaði þá áliti og frum-
varpi til laga til dóms- og
kirkjumálaróðuneytisins.
f frumvarpi nefndarinnar og
tillögum kemur fram, að stefnt
skuli að því að presturinn skuli
hafa fullt starf, eftir því sem að-
stæður leyfa. Leggur nefndin til
að mörg prestaköll verði stækk-
uð til muna, en telur jafnframt
að sum hinna fyrirhuguðu presta
kalla séu svo eifið, að vonlaust
megi teljast að í þau fáist prest-
ar, nema staðaruppbót komi til
leggur nefndin til að í því efni
verði farin leið, sem þegar á sér
hliðstæðu í setningu laga um
læknaskipan.
Nefndin var sammála um það
að leggja til, að bætt verði úr
þörfinni á sérmenntuðum prest-
um í ýmsum greinum kirkju-
legs starfs og félagsmála. Telur
hún að einkum þurfi úr að bæta
á sviðum æskulýðsstarfs, þjón-
ustu við sjómenn, og sjúkrahús-
starfs, og leggur m. a. til að lög-
fest verði staða sjúkrahúsprests
í Reykjavík.
í frumvarpinu er lagt til að
prófastsdæmum veri fækkað í
13, en þau eru nú 21. Telur
nefndin það eðlilega breytingu
miðað við breyttar samgöngur
og mikla fólksflutninga úr sveit-
um í þéttbýli. Gerir nefndin það
að tillögu sinni að prófastsdæm-
in verði þessi: Múlaprófasts-
dæmi, Austf jarðaprófasdæmi,
Suðurlandsprófastsdæmi, Skál-
holtsprófastsdæmi, Kjalarness-
prófastsdæmi, Breiðafjarðar-
prófastsdæmi, Vestfjarðapróf-
astsdæmi, Húnavatnsprófasts-
dæmi, Hólapróíastsdæmi, Eyja-
fjarðarprófasdæmi og Þingeyjar-
prófastsdæmi.
Varðandi tölu prestakalla, sem
nú eru 120, þar af 6 með tveirn
prestum, leggur nefndin til að
embætti sóknarpresta verði 105,
en tala prestakalla 98. Þess ber
þó að geta, að nefndin leggur
einnig til í frumvarpi sínu, að
lögfest verði 5 ný prestsembætti,
sem ekki eru bundin við sóknir
eða prestaköll, t- e- 2 aðstoðar-
prestar við æskulýðsstörf, einn
farprestur til viðbótar þeim, sem
fyrir er, sjómannaprestur.
sjúkrahúsaprestur og prestur,
Ler starfi meðal íslendinga í Kaup
mannahöfn.
Þá leggur nefndin einnig til að
tveir prestar skuli vera í Skál-
holti og að annar þeirra skuli
skipaður án undangenginnar
kosningar. Rökstyður nefndin
þessa tillögu sína á þennan hátt:
Eins og kunnugt ei var Skál-
holtsstaður afhentur þjóðkirkju
íslands til eignar og umsjár við
vígslu hinnar nýju kirkju í Skál
holti árið 1963. Með þeirri ráð-
stöfun var kirkjunnj falið það
verkefni að hafa forustu um
áframhaldandi uppbyggingu
staðarins og að móta framtíðar-
hlutverk þessa sögufræga helgi»
staðar, sem kirkjulegs menning-
arseturs, er gegni mikilvægu
verkefni í andiegu lífi þjóðai-
innar.
Til þess er þv: ætlazt, að Skál-
holt verði annað og meira en
venjulegt prestssetur. Staðurinn
á að geta orðið miðstöð kirkju-
lífs og kristni alþjoðar. Þar á
að byggja upp margháttað starf
á vegum kirkjunnar og í skjóli
hennar. Full þörf er á því að
búa sem bezt að staðnum, og
innan ramma þessa frumvarps
verður einnig að taka tillit til
þess. Er því vel til fallið að í
Skálholti starfi auk sóknar-
prests prestur í umboði kirkju-
stjórnarinnar, skipaður af henni,
er sinni sérstaklega þeim verk-
efnum er miða að því að efla
Skálholtsstað til þess hlutverks,
sem honum er ætlað að gegna í
þjóðlífinu.
Prestastefnunni verður fram
haldið í dag og á mörgun. í dag
hefst hún með morgunbæn í
kapellu Háskólans, sem séra
Skarphéðinn Pétursson prófast-
ur í Bjarnanesi flytur. Síðan
verða umræður í umræðuhóp-
um um prestakallaskipunina og
kl. 4 flytur séra Ingþór Indriða-
son farprestur erindi er nefnist:
Hugleiðing um prestsstarfið.
Kl. 18,15 verður svo flutt er-
indi um æskulýðsstarf og flytur
það séra Pétur Sigurgeirsson á
Akureyri og í kvöld flytur séra
Sváfnir Sveinbjarnarson á
Breiðabólstað útvarpserindi er
hann nefnir: Sterkasti þáttur-
inn.
Á fimmtudag munu siðan um-
ræðuhópar leggja fram álit og
lýkur synodus með bænagjörð í
kaupellu Háskólans.
— Hljómar
Framh. af bls. 3.
Kvikmyndin, sem þeir fé-
lagar léku í ber nafnið UMBA
RUMBAMBA, og mun það
vera tilkomið frá Reyni Odds-
syni, er tók myndina. Sýning-
artími er áætlaður 20 mínút-
ur, og verður kvikmyndin
fyrst sýnd úti á landi og síðan
í Reykjavík. Nú er Reynir
Oddsson staddur erlendis og
er að semja um dreifingar-
rétt fyrir myndina í Bretlandi
og Ameriku.
Platan með lögunum úr
myndinni kemur á marka’ðinn
í dag, auk þess sem hún kem-
ur út í Bretlandi og Ameríku.
Aðspurðir kváðust Hljómar
hafa lagt töluverða vinnu i
að æfa lögin í myndinni, því
kváðust vera búnir að sjá
„UMBARUMBAMBA", en
vildu lítið segja um álit sitt
á þeirri mynd.
Við verðum að hryggja að-
dáendur Hljóma með því, að
líklega fá þeir lítið að sjá af
þeim á næstunni. í byrjun
ágústmánaðar nk. fara þeir til
Ameríku. Eru þeir komnir
þar á 5 ára samning hjá fyrir-
tækinu Kitazumi & Sands pg
hyggjast þeir freista gæfunn-
ar úti í hinum stóra heimi. En
áður en það verður munu þeir
fara í hljómleikaför um land
allt, og ef til vill efna til
hljómleika í Reykjavík að
henni lokinni.
Þá sögðust Hljómar hafa
gert sjónvarpsmynd fyrir ís-
lenzka sjónvarpið. Hana tók
Gísli Gestsson.
Hafa misst 265 þotur
Saigon, 21. júni. AP.