Morgunblaðið - 12.07.1966, Síða 1

Morgunblaðið - 12.07.1966, Síða 1
24 síður Myiid Jiessi var tekin í Hanoi, höíuðborg Norður \ietnam, fyrir helgina. Sýnir hún bandaríska flugmenn á leið til yfirheyrslu. Fjöldi borgarbúa safnaðst saman umhverfis flugmennina til að láta í ljós hatur sitt á þessum „sjóræningjum lofts. 4 s“, eins og flugmennirnir eru nefndir í Hanoi. Vaxandi vinsældir Johnsons forseta Bandarikiamenn fylgjandi loftárásunum á N-Vietnam Washington, 11. júlí (NTB): — Samkvæmt nýjustu skoðanakönnun í Banda- ríkjunum hafa vinsældir Johnsons forseta aukizt verulega eftir að loftárás- ir hófust á eldsneytis- geyma í Norður Vietnam. Samkvafemt könnun Harris Survey félagsins, sem úrslit birtust úr í Washington Post í dag, telja 62% Bandaríkja manna rétt hjá forsetanum að fyrirskipa loftárásirnar, 11 % þeirra eru andvígir þess- Málgagn kinversku stjórnarinnar segir: Vietnambúar verða að treysta á eigin mátt í baráttunni við Bandaríkin um aðgerðum, en 27% töldu sig ekki hafa (neina skoðun í málinu. Skörnmu áður en loftárás- irnar 'hófust, fór fram skoð- anakönnun um vinsseldir for setans. Voru þá aðeins 42% Bandaríkjarrianna, sem fylgdu ho* íum að málum 1 nýju könnuninni eru það 54 % sem styðja forsetann. Flestir þeirra, sem lýsa sig fylgjandi loftárásunum, segj- ast aðhyllast þær vegna þess að þær muni flýta fyrir því að friður komist á í Vietnam. George Ball, aðstoðar ut- arnríkisráðherra Bandaríkj- anna, kom í dag fram í sjón- varpsþætti í Bandaríkjunum, og vitnaði þá í þessa síðustu skoðanakönnun í sambandi við styrjöldina í Vietnam. Sagði h.ífin að svo virtist sem hernaður Norður Viet- nam byggðist á þeirri trú að bandaríska þjóðin stæði ekki sameinuð um styrjöldina í Vietnam. Sannfæra þyrfti leiðtoga Norður Vietnam um hið gagnstæða, og að Banda- ríkin mrlii halda áfram sömu stefnu í Vietnam, því að öðrum kosti yrði styrj- öldin mjög langvinn. Lmmælin benda til að dráttur verði á virkri aðstoð Kínverja við kommúnista i Vietnam Hongkong, 11. júlí (NTB). „DAGBLAÐ alþýðunnar“, — málgagn kínversku kommún- istastjórnárinnar, sagði í dag í ritstjórnargrein, að Vietnam húar yrðu að treysta á eigin mátt í baráttunni gegn her- sveitum Bandaríkjanna í Viet nam, og vera reiðubúnir að berjast einir, ef komið er í veg fyrir að þeim berist að- stoð erlendis frá. Er litið á þessa yfirlýsingu kínversku stjórnarinnar sem merki þess að Kínverjar hafi ekki í hyggju að senda hermenn til Vietnam, að minnsta kosti ekki eins og er. — Þegar byltingar eru gerðar, verða viðkomandi þjóðir að treysta á eigin mátt, segir blaðið. — Engin utan- aðkomandi aðstoð getur kom- ið í stað eigin baráttu þjóðar- innar, hversu mikil sem sú aðstoð kann að vera. Þá var- ar blaðið íbúa Vietnam við því að framundan séu marg- víslegir erfiðleikar, en jafn- framt er það sannfært um að sigur muni vinnast. — Með áframhaldandi, óbil- andi trausti á eigin mátt, munu íbúar Vietnam — með aðstoð annarra þjóða — geta gjörsigr- að bandaríska árásarliðið og hrak ið sérhvern bandarískan árásar- mann úr landi, segir í ritstjórn- argreininni. Vitna'ð er í orð Mao Tse Tungs um að byltingaröfl verði að treysta algjörlega á eigin mátt og vera reiðubúin til að berj- ast óstudd. En jafnframt segir blaðið, að kínverska þjóðin hafi lagt sig alla fram við að veita kúguðum þjóðum virka aðstoð í baráttu þeirra. „Súkkulaðihúðað eitur“ í þessari sömu grein er enn á ný ráðizt harðlega að leiðtog- um Sovétríkjanna, sem sakaðir eru um samstöðu með Banda- Framhald á bls. 3 Hreinsaður af ákærum um razisma Bonn, 11. júlí NTB. SENDIHERRA V-Þýzkalands í ferael, Dr. Alexander Török, hefur verið hreinsaður af öllum ásökunum um starfsemi í þágu nazista á valdatíma Hitlers. Ósk aði hann sjálfur rannsóknar á máli sínu. Ásakanir þessar í garð dr. Töröks komu upphaflega frá Ungverjalandi. Var þar sagt í blöðum, að dr. Török, sem fædd- ur er í Ungverjalandi og starf- aði þar fram undir stríðslok, hefði verið félagi í samtökum nazista „KReuzpfeil" í Ungverja landi. v-þýzkt vikublað tók mál- ið síðan upp og sagði, að í Búda- pest hefðu fundizt ýmis skjöl, er sýndu fram. á nazistíska starf- semi dr. Töröks og þar á meðal umsókn hans um inngöngu í „KReuzpfeil". Framhald á bls. 3 Opiirber aftaka í Damaskus Damaskus, 11. júlí NTB. í DAG voru teknir af lífi í Damaskus þrír menn, sem fyrir fjórum árum voru dæmdir til dauða fyrir njósnir í þágu ísra- els. Einn mannanna, flóttamaður frá Palestinu var hengdur opin- berlega á torgi í miðborginni, — hinir tveir, sýrlenzkir borgarar báðir, voru skotnir einhvers staðar fyrir utan borgina, að því er skýrt var frá opinberlega í dag. Stjórnarandstaðan vinnur á við kosningar / V-Þýzkalandi Dusseldorf, 11. júlí (AP-NTB): — KOSIÐ var á surliudag til héraðsþings Nordrhein-West- falen héraðs í Vestur Þýzka- landi. Unnu sósíaldemókratar mikið á og hlutu 99 þingsæti af 200. Kristilegir demákrat- ar töpuðu 10 sætum, en frjáls ir demókratar unnu eitt sæti. Er þetta alvarlegt áfall fyrir ríkisstjórnina, sem skipuð er fulltrúum kristilegra demá- krata (CDU) og frjálsra demókrata (FDP). Er talið erfitt fyrir ríkisstjc ) ar- flokkana að skipa heraðs- stjórn í Nordrhein-Westfal- en með aðeins eins atkvæðis meirihluta á héraðsþinginu, eða Landtag, eins og það nefnist. Samkvæm bráðabirgðatöl- um sem eitthvað geta breytzt skiptast atkvæði og þingsæti þw.inig milli flokanna eftir þessar kosningar. Tölurnar í svigum eru niðurstöður síð- ustu héraðsþingkosninga: Framhald á bls. 23. Fiú Indira Gandhi, forsætisráðherra Indlands, kemur í dag, þriðjudag, til Moskvu. Mun hún þar ræða við sovézka leiðtoga um ástandið i Vietnam, og reyna að fá þá til að vinna að friðarviðræð- um Kemur frúin frá Júgóslavíu, þar sem hún ræddi við Tito for- seta um sama mál e;n fyrir helgina ræddi hún við Nasser, for- seta Egyptalands, íKaíró. Var meðfylgjandi mynd tekin af frú Gandhi og Nasser s.l. föstudag.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.