Morgunblaðið - 12.07.1966, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐID
Þriðjudagur 12. júlí 1966
BÍLALEIGAN
FERÐ
Daggjald kr. 409.
Kr. 3,50 per km.
SÍMI 34406
SENDUM
MAGNÚSAR
SKIPHOLTI 21 SÍMAR 21190
eftirlokun simi 40381
"“3-1161
mnim
Volkswagen 1965 og ’66.
LITLA
bílaleigan
Ingólfsstræti 11.
Volkswagen 1200 og 1300.
Slmi 14970
BÍLALEIGAN
VAKUR
Sundlaugaveg 12. Sími 35135.
Daggjald 350 og kr. 4 pr. km.
Fjaðrir, fjaðrablöð, hljóðkútar
púströr o.fl. varahlutir
i margar gerðir bifreiða.
Bílavörubúðin FJÖÐRIN
Laugavegi 168. — Simi 24180.
B O S C H
Háspennukefli
Brœðurnir Ormsson
Lágmúla 9* — Sími 38820.
'A Fávizkufordómar
um læknastéttina
„Kæri Velvakandi: Viltu
vera svo elskulegur að birta
kveðju til eins fréttamanns
Ríkisútvapsins fyrir „uppbyggi
legt“ samtal við fjóra borgara
þessa bæjar næstliðið sunnu-
dagskvöld?
Það var sannarlega furðu-
legt að hlusta á fréttamann-
inn ræða við hina fjóra
„vísu“ menn, sem voru að for-
heimska sig með því að leggja
dóm á læknavísindin. Einn bar
þó af. Að hans dómi þurfti
enga lækna aðra en kannske
skurðlækna, en þeir þyrftu um
fram allt að vera handlagnir,
eins og t.d. smiðir, því að
annars gætu þeir auðvitað í
þekkingarleysi sínu og klaufa-
skap skorið hausinn af manni
í staðinn fyrir löppina. Eftir
áliti þessa manns að dæma er,
(ef þú t.d. færð einhverja nótt-
ina óþolandi kvalir í maga),
ástæðan annað hvort sú, að þú
hefur etið yfir þig, eða matar-
eitrun hefur verið i sælgætinu.
Þá biður þú lækninn að taka
úr þér maganm, en ef hann
getur ekki komið vitinu fyrir
þig, þá uppfyllir hann ósk
þina.
En ef svo skyldi vilja til, að
þú nokkru seinna fengir berkla
í lungun, þá færðu kannske
lækninn til að taka þau úr þér
líkh; þú átt líf þitt sjálfur og
átt að fá að ráða því. En ef þú
skyldir nú um fimmtugsald-
urinn fá kransæðastíflu, hún
er svo algeng núna, þá er eina
ráðið að taka úr þér hjartað,
þá er allt gott og blessað, því
að þú ert ódrepandi. Þá fer
nú að sneiðast um það helzta
innan í þér, en þó er talsvert
eftir, sem hægt er að fjarlægja,
með lagni. En svo færðu
kannske allt í einu gigt í löpp-
ina. Þá ætti ekki að vera nein
vandræði með að taka af þér
fótirm, því að eins og hinn
„vísi“ sgði: „Ef auga þitt
hneykslar þig, þá slít það út“.
En ieyfist mér nú að spyrja:
Af hverju er fólki yfirleitt
svona ilia við lækna? Er það af
öfund, af því að flastir þeirra
hafa allgóðar tekjur? En þeir
verða þó sannarlega að vinna
fyrir þeim. Læknar eru ein
hver umtalaðasta og rógborn-
asta stéttin í landinu. Fólk trúir
langt um betur því, sem Pétur
og Páll segir því, en lækninum,
samt er það alltaf að rápa til
læknis. Eftir að sjúklingurinn
er búinn að kvarta við lækninn
um þetta og hitt, verður hann
óánægður, ef hann fær ekki
meðul og helzt fleira en eina
tegund, sitt við hverjum verk-
inum, eftir því, hvar hann er.
En ef læknirinn segir hins veg-
ar: „Það er ekkert alvarlegt að
þér, góði maður, þú skalt bara
hafa það rólegt um tíma, þá
batnar þér“, þá verður sjúkl-
ingurinn fyrst vondur fyrir al-
vöru og kallar lækninn bölvað-
an asna, og aðrir taka undir
það með honum.
En hvar í heiminum, annars
staðar en hér, skyldi manni
vera boðið upp á að heyra ó-
tíndan almenning ræða um
læknisfræðileg efni í útvarpi
og kveða upp palladóma sína
um heilar stéttir manna, ems
og t.d. læknastéttina? Og ekki
bendir aðsóknin að læknunum
á, að þeir séu ónauðsynlegir,
né heldur sú staðreynd, að á
íslandi er einn hæsti meðaald-
ur manna, nú orðið. Skyldi
þetta ekki breytast eitthvað, ef
það væru jafnfáir læknar hér
og eru í þeim löndum, þar sem
meðalaldur manna er 25 ár,
eins og er í Indlandi og víðar.
Nei, mættum við útvarpshlust-
endur vera lausir við annan
eins fáfræðiþvætting.
Borgari".
'k Súpudiskur á
72 krónur
Kona ein hefur komið að
máli við Velvakanda og skýrt
honum frá því, að hún hafi
komið í veitingastað, sem rek-
inn er í sambandi við gistihús
hér í borg, og fengið sér súpu.
Henni brá, þegar hún sá reikn-
inginn. Súpudfiskurinn kostaði
72 krónur, — segi og skrifa
sjötíu og tvær krónur.
Er að furða, þótt útlendu
ferðafólki finnist það vera fé-
flett á íslandi, þegar það þarf
að greiða sem samsvarar tólf
enskum skildingum fyrir einn
disk af heitri súpu?
^ Óaldarlýður
í strætisvagni
Önnur kona skýrir Velvak-
anda frá því, að hún hafi verið
á ferð í strætisvagni um dag-
inn. Á einum viðkomustaðnum
ruddist strákahópur með há-
vaða og frekjulátum inn í vagn
inn, og þótti konunni það ein-
kennilegt, að enginn drengj-
ana greiddi neitt fargjald,
heldur ruddust þeir fram hjá
bílstjóranum og dalakúti hans,
án þess að inna neitt gjald af
hendi. Vagninn ók af stað, og
voru strákarnir með slík ó-
læti og ærsl, að alveg gekk
fram af konunni. Hún brá sér
því fram í til bílstjórans, og
spurði, hverju það sætti, að
strákarnir voru ekki reknir út,
og af hverju þeir borguðu ekki
fyrir sig. Vagnstjórinn svaraði
því til, að hann þekkti þennan
skríl, og vissi, að ekki þýddi
að koma aga yfir hann. Ef hann
reyndi að hemja þá, mundi það
kosta hörkuáflog, því að lýður
þessi væri afar ófyrirleitinn, og
ef honum tækist að koma þeim
út, mundu þeir hefna sín með
því að rista sætin með hnífum
sínum og mölva allar rúður í
vagninum. Það borgaði sig þyí
ekki að hrófla við strákunum.
Óhugnanleg er þessi saga, og
væri fróðlegt að heyra frá
strætisvagnastjórum, hvort
svona lagað sé algengt.
'A Frá Heródesi
til Pílatusar
Jónas Þorsteinsson skrifar:
„Þann 12. maí vann ég verk
á bifreiðinni R-12749, sam-
kvæmt verkbeiðni nr. 763 frá
Borgarsjóði Reykjavíkur, und-
irrituð: F. Lárusson. Eftirlits-
maður af hálfu verkfoeiðanda:
G. Jónsson. Bílstjóri: Reynir
Jónsson. Verkið kostaði 250 kr.
Til þess að fá reikninginn
greiddan, fór ég í skrifstofu
borgarinnar yfir Reykjavíkur-
apóteki. Neitað var að greiða
reikninginn, nema fleiri undir-
skriftir og stimplar væru á
honum. Það vantaði undirskrif
frá Rafveitu Reykjavíkur (við
Tryggvagötu), sem bifreiðin
var merkt. Þar skrifaði Páll
Guðmundsson „rétt“ á reikn-
inginn. En þetta nægði hvergi.
Næst var mér vísað á skrif-
stofu Atla hjá Véladeild Reykja
víkurborgar í Áhaldahúsi borg-
arinnar, Skúlatúni 1. Hann
stimplaði reikninginn. Þaðan
var ég sendur á II. hæð húss-
ins við Skúlatún 2. Þar skrif-
aði B. Árnason á reikninginn,
og ekki nóg með það, hann
vísaði mér upp á þriðju hæð i
Skúlatúni 2. Þar stimplaði hr.
Beck reikninginn. Eftir þessa
snúninga, sem tóku tvo og hálf-
an klukkutíma, fór ég í fyrst-
nefndu skrifstofuna. Þar var
reikingurinn bókaður, síðan
settur til gjaldkera, sem
greiddi hann þremur dögum
seinna.
Virðingarfylst,
Jónas Þorsteinsson,
Kleppsvegi 42“.
•jg Framburður
íslenzks máls
í Ríkisútvarpinu
„Margir óttast um örlög tun«
unnar, og það geri ég að vissa
leyti líka. Þar er þó ekki því
til að dreifa, að notað sé mik-
ið af erlendum orðum í dag-
legu tali. Það er áreiðanleg*
miklu minna en gert var á Ak-
ureyri, Sauðárkróki og i
Reykjavík um síðustu aldamót
og alt fram að fyrra stríði.
En hér er önnur hætta á ferð
um og raunar miklu alvar-
legri. Framtourður íslenzkunn-
ar í Ríkisútvarpinu er neðan
við allar hellur, þegar um er
að ræða lesara þess. Áherzl-
urnar eru frámunalega vitlaus-
ar. Áherzlur eru lagðar á síð-
ari atkvæði orða, sem er al-
rangt eftir íslenzkri talvenju,
og væri fróðlegt að • vita, hvac
og hvernig í ósköpunum þui-
irnir hafa tileinkað sér þennan.
vitleysiskæk. Útvarpsstjóri sjálf
urber ágætlega fram; sama ger-
ir Þorsteinn ö Stephensen og
reyndar margir fleiri karl-
menn. — Skyldi það vera svo,
að konur séu yfirleitt lélegir
lesarar? Þegar ég var unging-
ur fyrir 50 árum, var oft lesið
á kvöldvökum á heimili minu,
Lesarar voru undantekningar-
lítið karlmenn, hvernig sem á
því hefir staðið, því að konur
voru þá almennt læsar, engu
síður en karlar“.
— Velvakandi heldur það
vera staðreynd, að raddir karl-
manna hljómi undantekningar-
laust betur í útvarpi en raddir
kvenna. í sambandi við rangar
áherzlur má minna á tilgerðar-
legan og útlenzkulegan fram-
burð eins karlþularins, sem
segir alltaf Indónesía, Fíladelf-
ía o^.frv., þ.e. með langri og
hálfsyngjandi áherzlu á ne og
de.
Afgreiðslumenn
Okkur vantar vanan mann til útkeyrslu
og ýmissa annarra afgreiðslustarfa.
Grensáskjör
Grensásvegi 46.
r ALIILIÐA LYITUÞJÓNUSTA'
UPPSETNINGAR - EFTIRUT
OHSIAri LIl sf.
_____Grjófagötu 7 sínii 2-4250^
Cosmetically yours
Snyrtivörur í úrvali
hvítir, sanseraðir varalitir
nýkomnir
Lækjargötu 4 — Akureyri.