Morgunblaðið - 12.07.1966, Qupperneq 23
Þriðjudagur 12. júlí 1966
23
MORGUNBLAÐIÐ
Skrúðgangan í Bankastræti.
Ilngtemplaraþingi
hér lokið
Móti Norrænna nngtemplara
lauk hér í fyrrakvöld, en í gær-
morgun héldu flestir erlendu
þáttakendanna heimleiðis með
Loftleiðavél. Á sunnudag efndu
ungtemplarar til samkomu á
Austurvelli, en áður var safnazt
saman við IOGT-húsið við Eiríks
götu og haldið fylktu liði undir
þjóðfánum allra Norðurlandanna
og Tyrklands að Austurvelli.
Eggert G. Þorsteinsson, félags
málaráðherra flutti ræðu af svöl
um Alþingishússins, en auk hans
Fobiola missir
aftur fóstur
Briissel, 11. júlí NTB.
FRÁ ÞVÍ var skýrt i
Brússel í dag, að Fabiola,
drottning, hefði aftur misst
fóstur. Hafði hún veikzt
skyndilega í gær og verið
flutt á sjúkrahús I gærkvöldi
og gerður á henni holskurður.
Fabiola drottning, sem er
spænskra ætta, er nú 38 ára
að aldri. Hún hefur verið gift
Boudouin, konungi í rúm
fimm ár og á því tímabili
misst fóstur þrisvar sinnum,
áður árin 1962 og 1963. Fyrir
fáeinum dögum var opinber-
lega tilkynnt, að hún ætti von
á barni í vetur ef allí færi
vel.
Samkvæmt opinberri til-
kynningu í dag, er líðan
drottningar góð eftir atvikum
; og læknar hennar segja, að
uppskurðurinn þurfi ekki að
koma í veg fyrir, að hún geti
átt barn seinna. Eins og nú
háttar málum í Belgíu er næst
ur til ríkiserfða bróðir
Boudouins, Albert prins af
Liege, sem kvæntur er ítölsku
prinsessunni Paolu. Þau gift-
ust árið 1959 og eiga nú þrjú
börn.
töluðu séra Árelíus Nielsson og
Arvid Johnsen, formaður Nor-
ræna ungtemplarasambandsins,
en hann flutti opinberum aðilum
þakkir fyrir velvilja og stuðning
við mótið.
Á sunnudagskvöld var lokahóf
í samkomuhúsinu LÍDÓ. Meðal
gesta var Geir Halgrímsson, borg
arstjóri„ og flutti hann ávarp;
þakkaði hinum erlendu þátttak-
endum komuna og óskaði sam-
tökum ungtemplara heilla í fram
tíðarstarfi. Sune Persson, fyrr-
verandi ritari Norræna sam-
bandsins stjórnaði hófinu, en
aðrir ræðumenn voru: Óskar
Franzén, fyrsti formaður NGUF,
Karl Wennberg, fraimkvæmda-
stjóri Norræna góðtemplararáðs-
ins, Henry Sörman, fyrverandi
formaður NGUF, Mustafa Yld-
irim, frá Tyrklandi, Arvid John-
sen formaður Norræna sambands
ins, sem flutti islenzku móts-
stjórninni þakkir sambandsins
fyrir störfin í þágu mótsins, og
fengu stjórnarmenn blómvendi
að gjöf. í>á töluðu Sveinbjörn
Jónsson, forstjóri í Ofnasmiðj-
unni og Sveinn Helgason, sem
flutti kveðjur og árnaðaróskir
frá yfirstjórn IOGT. Að lokum
flutti kveðju og þakkarorð for-
maður Mótsstjórnar, séra Árelius
Níelsson. Hófinu lauk með ýms-
um skemmtiatriðum og dansi.
f mótsstjóm Norræna ung-
templaramótsins áttu sæti: séra
Árelíus Níelsson, formaður, Ein-
ar Hannesson, varaformaður,
Gunnar H. Pálsson, ritari, Sig-
urður Jörgensson, gjaldkeri,
Sigurður Gunnarsson, formaður
dagskrárnefndar, Gunnar Þor-
láksson, skrifstofustjóri mótsins,
Alfreð Harðarson, formaður
tækninefndar, Hilda Torfadóttir,
formaður skemmtinefndar, Grét
ar Þorsteinsson, formaður flutn-
inganefndar, Kristinn Vilhjálms
son, formaður veitinganefndar,
Eiríkur Ingólfsson, Guðmundurc
Þórarinsson, formaður Ferða-
nefndar og Njáll Þórarinsson,
formaður Hótelnefndar.
-------------------------------
Heildarafli sl. viku 11
Seyðisfjörður hæsti
löndunarstaðurinn
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
izt yfirlit um síldveiðar norðan-
lands og austan vikuna 3. til 9.
júlí, frá Fiskifélagi Islands. Fer
hún hér á eftir:
Ágætt veður var á miðunum
síðustu viku, en afli lítill. Fyrri
hluta vikunnar fékkst helzt afli
100—110 sjómílur A af S frá Dala
tanga. Um miðja vikuna varð
vart síldar 20—30 sjómílur VSV
af Jan Mayen. Fjölgaði skipum
þar brátt og fóru aflabrögð held-
ur batnandi út vikuna. Hafði
síldin fært sig suður á bóginn og
í vikulok var veiðisvæðið um
90—100 sjómílur SA af Jan
Mayen. í vikunni fengu nokkur
skip afla við Hjaltalandseyjar,
en hve mikið er ekki vitað með
vissu.
Aflinn, sem barst á land í síð-
ustu viku nam 11.283 lestum.
Þar af fóru í bræðslu 11.168 lest
ir og í söltun 805 tunnur eða 109
lestir. í frystingu fóru 6 lestir.
Heildarmagn komið á land á
miðnætti laugardagskvöld var
134.681 lestir og skiptist þannig:
í salt 284 lestir
(2.101 upps. t.)
í frystingu 22 lestir
í bræðslu 134.375 lestir
Á sama tíma í fyrra var heild
araflinn sem hér segir:
í salt 28.542 L ( 3.853 1)
Mesti síldarafli sumarsins
42 skip tilkynntu samtals 9.085 tonn
LANGBEZTI afladagurinn á
síldarvertíðini í sumar var á
sunnudag og í fyrrinótt. Veður
var hagstætt til veiða á miðun-
um, og voru bátarnir á veiðum
90—100 mílur SA frá Jan May-
en, eða ,160 milur ANA frá Rauf-
arhöfn. Tilkynntu samtals 42
skip um afla samtals 9.085 tonn,
og það er, eins og fyrr segir,
mesti sólahringsafli sumarsins.
Allur síldveiðiflotinn hefur
verið þarna að veiðum að undan
förnu, enda ekki vitað um veiði
á öðrum slóðum. Var síldin
þarna í allstórum torfum, og
fengu bátarnir fullfermi á nær
svipstundu. Tvö síldarflutninga-
skip voru komin á staðinn, Dag-
stjarnan kom á mánudagsmorg-
un, og var orðin full á hádegi í
gær, og Síldin kom á miðin i
gæmborgun og var landað stanz-
laust í hana í allan gærdag.
Vitað var í gærkveldi að áfram-
haldandi veiði var á miðunum,
og höfðu fjölmargir bátar til-
kynnt um afla og voru á leið tii
Raufarhafar.
Síldin, sem þarna veiðist,
sleppur í milliflokk við söltun,
ef hún er tiltölulega ný, en núna
verða bátarnir að sigla með hana
rúman sólarhring í land, svo að
hún er farin að láta allmikið á
sjá, og aðeins er um að ræða
að salta hana.
Raufarhöfn:
Eldborg GK 240 Tonn:
Ögri RE 165
Vigri GK 230
Gísli Árni RE 400
Pétur Sigurðsson RE 170
Sikorsky-þyrla
*
á Islandi
Ingiber Ólafsson II GK 300
Bjarmi H EA 300
Náttfari ÞH 180
Helga RE 260
Arnarnes GK 120
Reykjanes GK 130
Þorleifur OF 140
Súlan EA 240
VonlJn KE 170
Helgi Flóventsson ÞH 230
Stígandi OF 230
Lómur KE 240
Dalatangi:
Gullberg NS 180
Hoffell SU 180
Sigurvon RE 270
Höfrungur III AK 340
Hrafn Sveinbjarnarson III GK
150
Skemmtiferð til
Vestmannaeyja
Vík Mýrdal, 9. ágúst.
SLÁTTUR hófst hér víða með
júlí og er grasvöxtur með meðal
lagi. Þurrkar hafa verið litlir og
gengið Ula að ná saman heyj-
um.
Nýlega fór Búnaðarfélag Dyr
hólaihrepj>s í skemmtiferð til
Vestmannaeyja og var flogið af
Skógasandi og stóð til að koma
aftur samdægurs, en af því gat
ekki orðið sökum óhagstæðs
flugveðurs og kom ferðafólkið
næsta dag eftir. Yfir 40 manns
tóku þátt í ferðijini, fólk á öll-
um aldri. Var þarna margt af
mönnum, er höfðu stundað sjó
og fiskvinnu árum saman í Eyj-
um og höfðu ekki komið út þang
að í áraraðir, og fannst þeim
ekki sízt mikið til um allar þær
stórstígu breytingar, sem orðið
hafa á síðustu árum. Allir létu
hið bezta yfir ferðinni og þeim
mótökum, er þeir nutu hjá Vest-
mannaeyingum. — Sigiþór.
Guðrún Guðleifsdóttir IS 270
Ölafur Friðbertsson IS 230
Sigurfari AK 170
Ásþór RE 200
Akurey RE 230
Þórður Jd.iasson EA 320
Hugrún IS 2J0
Loftur Baldvinsson EA 210
Höfrungur II AK 240
Jón Garðar GK 280
Guðbjartur Kristján IS 200
Ólafur bekkur OF 170
Skírnir AK 170
Ólafur Magnússon EA 150-
Héðinn ÞH ' 340
Haraldur AK 200
Gullfaxi NK 50
Fagriklettur GK 170
Sigurpáll GK 210
Margrét SI 200
Dregið í Happ-
drætti Háskóla
*
Islands
Reykjavík, 11. júlí 1966.
1 gær, mánudaginn 11. júll
var dregið í 7. flokki Happdrætt-
is Háskóla íshiids. Dregnir voru
2,200 vinningar að fjárhæð
6.200.000 krónur.
Hæsti vinningurinn, 500.000
krónur, kom á hálfmiða núm-
er 13755, er seldir voru í um-
boðunum á Siglufirði, Fáskrúðs-
firði og í Vestmarliaeyjum.
100.000 krónur komu á heil-
miða númer 40285 er var seld-
ur í umboði Helga Sivertsen í
Vesturveri.
10.000 krónur komiu á núimer:
959 1.827 3.711 6.735 9.431
10.910 11.618 12.725 14.025 14.398
14.462 17.199 20.929 21.649 24.635
26.732 27.269 30.367 31.399 33.480
33.751 37.491 41.273 41.603 43.135
43.432 44.679 44.921 45.863 47.266
49.775 51.696 54.590 55.121 55.512
56.397 59.426
(Birt án ábyrgðar)
HINGAÐ til lands kom síðdegis
á sunnudag 26 manna þyrla af
Sikorsky-gerð, sem er á leið-
inni til Noregs, en hún er í eigu
Þyrluþjónustunnar í Osló. Þetta
er í annað sinn, sem þyrla af
þessari stærð, og gerð kemur til
íslands.
Mbl. hafði samband við flug-
mann þyrlunnar, Ross Lennox.
Kvað hann þyrluna koma frá
Connecticut-fylki í Bandaríkj-
unum, ,en þar eru Sikorsky-
verksmiðjurnar staðsettar. Sagði
Lennox flugmaður, að hann
væri reynsluflugmaður verk-
smiðjanna en með henni til
Noregs er fjögurra manna áhöfn.
Lennox sagði, að ferðalag þyrl-
unnar. frá Bandaríkjunum tæki
2-3 vikur, en þyrlan hefur við-
komu á fjölmörgum stöðum á
leiðinni. Sagði Lennox, að þetta
væri í annað sinni, sem þyrla
flygi yfir. Atlantshafið án sam-
fylgdar annarra þyrla eða flug-
véla.
.283 lestir
í frystingu 2.380 t. ( 257 1)
í bræðslu 672.248 m (90.753 1)
Samanlagt gerir þetta 94.863
lestir. — Aflinn skiptist á löndunarstaði: þannig
lestir.
Reykjavík 14.524
Bolungavík 2.233
Siglufjörður 586
Ólafsfjörður 1.863
Hjalteyri 411
Krossanes 5.136
Húsavík 1.328
Raufarhöfn 14.753
Vopnafjörður 8.385
Borgarfjörður eystri 591
Seyðisfjörður 32.758
Neskaupstaður 24.044
Eskifjörður 12.067
Reyðarfjör’ður 6.877
Fáskrúðsfj örður 6.565
Breiðdalsvík 798
Djúpivogur 1.762
Þekkt tónlistar-
fólk á Húsavík
Húsavík, 11. júli.
ÞAÐ er að verða fastur liður í
starfsemi Tónlistarskólans á
Húsavík að fá hingað árlega
listafólk úr höfuðstaðnum. 1
gærkvöldi héldu tónleika hér í
kirkjunni Guðrún Tómasdóttir
söngkona og Ingvar Jónasson
fiðluleikari. Aðstoðarmaður
þeirra var Reynir Jónasson,
orgelleikari Húsavíkurkirkju.
Kirkjan var þéttsetin og
áheyrendur mjög hrifnir af flutn
ingi listafólksins á ýmsum tón-
verkum, en efnisskráin var mjög
fjölbreytt. Vernharður Bjarna-
son ávarpaði listafólkið að lokn-
um flutningi og þakkaði því kom
una, og góða og eftirminnilega
skemmtun. Sömuleiðis þakkaði
hann forstöðumönnum tónlistar-
skólans fyrir þeirra framtak og
vonaði að framhald yrði á því.
— Fréttaritari.
- Kosningar
Framh. af bls. 1
Sósíaldemókratar (SPD)
99 sæti (90), eða 49,63%
(43,3%)
Kristil. demókr. (CDU) 86
sæti (96) eða 42,91% (46,4%)
Frjálsir demókr. (FDP) 15
sæti (14) eða 7,44% (6,9%)
Nokkrir simáflokkar buðu
einnig fram, en fengu enga
menn kjörna.
Heinz Kuhn, formaður
SPD flokksins , í Nordrhrein
Westfalen, lýsti því yfir að
kosningum loknum að hann
væri reiðubúinn til viðræðna
við fulltrúa CDU og FDP um
myndun nýrrar samsteypu-
stjórnar fyrir héraðið.
Meðal frambjóðenda, sem
ekki náðu kjöri að þessu
sinni, var dr. Max Adenauer,
sonur Adenauers fyrrum
kanzlara (og formaður ís-
lendingafélagsins í Köln.
Aths. Mbl.). Hlaut hann að-
eins 40.2% atkvæða í heima-
borg sinni, Köln, en fram-
bjóðandi SPD' 52,9%.
TEITUR EYJÓLFSSON
frá Eyvindartungu
lézt á Sjúkrahúsinu á Selfossi mánudaginn 11. júlí sL
Vandamenn.
Jarðarför eiginmanns míns og föður okkar,
GUNNARS BÖÐVARSSONAR
Birkimel 6B,
fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 13. júlí
kl. 13.30.
María Ásgeirsdóttir,
Guðrún Gunnarsdóttir,
Hildur H. Gunnarsdótitr.