Morgunblaðið - 12.07.1966, Side 10

Morgunblaðið - 12.07.1966, Side 10
10 MORGUNBLAÐID Þriðjudagur 12. júlí 1966 ef ur búið í 40 úr Komið við hfá Ingileifi í bæjardyrunum á Svínavatni. Ingileifur og Ingibjörg með sonarsoninn. Jón sonur þeirra í dyrunum. ÞEGAR fréttamenn Mbl. óku austur Grímsnesið góðviðris- dag einn fyrir skömmu, var staldrað við þar sem vegir upp að Laugarvatni og austur að Skál'holti skilja. Frá þeim vegamótum er einkar fagurt að líta niður yfir sveitir. Næst okkur er bær í stóru túni, sem byrjað er að slá, og hallar að lygnu stöðuvatni, þar sem tveir hvítir svanir synda. Myndin er falleg eins og rómantískt póstkort. Á landabréfinu okkar stendur Sveinavatn. Það er þó ekki rétt. í fornum sögum er frá því skýrt, að\Grímur, sem bjó á Öndverðarnesi, hafi numið land til Svina- vatns, sem þá hefur væntan- lega verið i landi Ketils. á Mosfelli. Nafnaruglingurinn mun vera kominn frá vafa- sömum munnmælum um að þarna hafi verið drepnir sveinar Jóns Gerrekssonar. 30 talsins, sem flúðu eftir að Jóni var drekkt í Brúará. Áttu þeir að hafa verið eltir og drepnir í bænum og úti á vatninu, og hvbrt tveggja fengið nafn af sveinum þess- um. Við göngum heim að Svína- vatni. Það kemur í Ijós að full ástæða er til að sækja heim Ingileif bónda Jónsson, því hanii á 40 ára starfs- afmæli, hafði í siðustu far- dögum búið 40 ár á Svína- vatni. Árið 1926 tók hann við búi þar af föður sínum, sem búinn var að búa þarna í 30 ár. Og nú er Jón, einkasonur Ingileifs, farinn að búa með honum. En Jón er kvæntur Þóru Magnúsdóttur úr Holta- hreppi og búinn að eignast tvo erfingja, svo ættin getur þessvegna lengi enn haldið áfram búskap á Svínavatni. Lítil heimasæta sefur vært í fangi afa sins, meðan hann spjallar við okkur. Og kona hans, Ingibjörg Guðmunds- dóttir Ottesen frá Miðfeili, ber fram kaffi. Ingfleifur kveðst hafa kom- ið að Svínavatni, þegar hann var á þriðja án. Þá fluttust foreldrar hans þangað frá Svartagili í Þingvallasveit. Hann rámar aðeins í þá flutn- inga. Sjálfur var hann bund- inn á klifbera, og kom þann- ig á hesti yfir Lyngdalsheiði. Það man hann eitt úr þessari fyrstu ferð sinni, að hann var óskaplega þyrstur þegar hann kom á bæ eftir heiðina. — Á búskaparárum föður míns var hér á Svínavatni 150 hesta tún. Við höfðum 3 kýr og rúmar 100 kindur. Þá dugði þessi bústofn, segir Ingileifur. Og er hann er inntur eftir stærð túnsins nú og bústofninum, svarar hanrw — Við feðgarnir erum með 40 nautgripi og á fimmta hundrað fjár. Túnið, sem var 4 hektarar meðan faðir minn bjó, er nú 40 hektarar. Hey- fengur hefur semsagt tífald- ast og meira en það, því nú er meira borið á. Túnið var kargaþýft, þegar pabbi kom hingað. Svo fórum við að skera ofan af, pæla með skóflu og leggja torfuna yfir aftur. En þetta var þó allt óslétt og var rifið upp aftur þegar vélarnar komú. I raun- inni hefur fyrst komið skrið- ur á ræktun og byggingar síðustu 20 árin. Hvað húsakost snertir, hef- ur verið mikið byggt í bú- skapartíð Ingileifs. Fyrst eftir að hann tók við búi, byggði hann allt upp, bæinn og úti- húsin. — En svo var þetta orðið gamalt og nú eru öll útihús aftur ný, segir Ingi- leifur. Og sonurinn er að hugsa um að byggja nýtt ibúðarhús, byrja jafnvel í vor. Uppi á túninu standa 8 ára gömul fjárhús fyrir á fimmta hundrað fjár. Og heim undir bænum er nýtt og myndar- legt fjós fyrir 40 gripi, og heygeymslur fyrir 2000 hesta af heyi. Kýrnar eru komnar í fjósið, sem er rimlafjós, þar sem þær ganga lausar. Jón kvaðst vera ánægður með það, en Ingileifur segist aftur á móti hafa verið á móti þessu fyrirkomulagi, en nú vera bú- inn að sætta sig við það. Við f. ’.ið er sérstakt mjólkurhús jg mjaltaskáli, útbúin ný- tíaku sjálfvirkum mjaltavél- um, einu rörmjaltavélunum í sveitinni. Mjólkin rennur beint úr kúnum í brúsana eftir rörum, sem gott er að hreinsa. — Ég hef alltaf haft yndi af skepnum, og því tók ég við búi af föður mínum. Þeir ein- ir, sem hafa gaman af um- gengninni við skepnurnar eiga að búa, segir Ingileifur. Mitt skemmtilegasta starf hefur verið umgangur við skepnur og gróður. En ég hefi líka haft gaman af störfum utan heimilis með góðum mönnum. Mikið hefur mætt á Ingi- leifi af slíkum störfum um á Svínavatni æfina. Hann var í rúm 30 ár í hreppsnefnd, leitarstjóri í 35 ár, annaðist fjárkaup í fjár- skiptunum 1950, hafði með tryggingar að gera í sveitinni í áratugi, og var stefnuvottur á fjórða áratug. — Það þótti mér leiðinlegast aö þurfa að stefna fólki, segir hann. En það fór allt vel. Ég hefi alltaf getað umgengizt fólk. — Já, nú er ég hættur þessu öllu, sagði hann. Hætti í hreppsnefndinni fyrir 4 árum og leitars tórastörfunum 1951. Siðan hefi ég ekki farið á fjall. Vil ekki vera undir aðra gefinn. Og hann sýnir okkur fallegan útskorinn tóbaks- bauk, sem honum var færður, þegar hann hafði verið leitar- stjóri i 35 ár. Baukurinn er útskorinn af Ríkarði Jónssyni og á hann er grafið: Frá Vesturleitinni 1950. Þessi gamli leitarstjóri segir okk- ur að aldrei hafi neitt sér- stakt borið til tiðinda í leit- um meðan hann var við stjórn. Allt lánast vel. Þarna er farið í fjögurra daga göng- ur, gengið kringum Skjald- breið, Hrafnabjörg, Tinda- skaga, Hraunin, Lyngdals- heiði o.fl. Aldrei týndu þeir manni öll þessi ár og lentu aldrei í verulegu óveðri, að- eins þoku. — Jú, erfitt var það stundum, segir Ingileif- ur. Ungdómurinn núna rekur upp stór augu þegar hann heyrir hvernig gengið var heilu dagana í srhalamennsku áður fyrr. Nú þarf helzt að fara i bíl upp á túnið. — Það hefur verið sárt fyr- ir fjármann eins og þig að sjá á eftir kindunum þínum á mæðiveikisárunum? — Já, maður var aldrei óhultur. Féð hrundi niður. Árið 1937 átti ég 300 fjár, þá átti ég t.d. 100 framgengna sauði. Um sumarið fóru 12 þeirra úr mæðiveikinni. Svo liðu 14 ár og alltaf fækkaði fénu með hverju ári. En við fengum ágætis fé í fjárskipt- unum og því fjölgaði ört. Það voru allir fegnir þegar nýja féð kom. Það kom norðan úr Þingeyjarsýslum, en var vest- firzkt. Ágætis fé. — Meðan fjárlaust var, þótti mér leiðinlegt að fara um landið og sjá enga skepnu, skýtur Ingibjörg húsfreyja inn í. — Við erum uppalin í sveit. Oft er erfitt í sveitinni, en maður á margar stundir góðar. Það gerir landið og skepnurnar. Ingibjörg er frá Miðfelli í Þingvallasveit. Hún hafði komið sem kaupakona í Grímsnesið, systir hennar bjó á næsta bæ, og síðan ekki farið þaðan. — Við giftum okkur seint. Betra er seirit en aldrei, segja þau hjónin. En ekki farið þið að skrifa það. Nei, nei, það gerum við auð- vitað ekki. Meðan við drekkum kaffið, spjöllum við við húsfreyju um hin 30 áfa gömlu tré í garðinum hennar, sem vetrarbyljirnir hafa öðru hverju unnið á og um fallegu álftirnar á vatn- inu, sem oft er mikið af. Áður verptu þarna alltaf 1-2 pör, svo eitthvert æti hljóta þær að hafa. En í vatninu er engin veiði. Það er svo grunnt og enginn lækur renn- ur í það. Það hefur aðeins af- rennsli í Apavatn. Tíminn líður. Kýrnar bíða eftir þvi að vera mjólkaðar. Þær hafa verið reknar heim í fýrra lagi i dag, því feðgarnir og unga húsfreyjan ætla á héraðsmót að Borg. En Ingi- björg húsfreyja gætir barn- anna heima. Við kveðjum því. Ingileifur fylgir okkur áleiðis að bílnum. Á leiðinni berst í tal, að hann hefur í vetur gegnt sjálfur, gaf á fjórða hundrað kindum. Jón sonur hans hefur vörubíl og fer því oft burt af heimilinu. Hann er vissulega ekki af baki dottinn, gamli maðurinn, eftir 40 búskaparár. — E. Pá. Kúasmalinn og hundarnir fyrir framan nýja fjósið og hlöðuna á Svínavatni. Vé!ritunarskó!i SIGRÍÐAR ÞÓR1>._ .DÓTTUR Ný námskeið hefjast næstu daga. Sími 33292. Hópferðab'ilar allar stærðir » Símar 37400 og 3407. Auglýsingagafl i miðbænum til leigu. — Tilboð scndist afgr. Mbl. merkt: „Miðbær — 4011“ fyrir 15. þ. m.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.