Morgunblaðið - 12.07.1966, Side 3
Þriðjudagur 12. júlí 1966
MORCUNBLAÐIÐ
3
☆
Keflavík, 11. júlí.
A LAUGARDAG lenti á Kefla
víkurfiugvelli lítil hvit og
rennileg flugvél, með einum
hreyfli og einum flug-
manni. Flugstjórinn, vélamað-
urinn og siglingafræðingurinn
var Marion R. Hart, 74 ára
gömul kona, sem gerir svona
smáreisur að gamni sinu, til
þess að sjá svolítið meira af
heiminum og til að rifja upp
gamlar minningar.
Marion R. Hart hefur kom-
ið tvisvar áður til íslands,
fyrst 1954 og dvaldi þá hér
einn dag ©g svo síðar 1964 á
leið sinni til Noregs og hafði
þá flugmann með sér til að-
stoðar. 1 það skipti gat hún
skoðgð landið lítilsháttar,
komst austur í Hveragerði og
til Guilfoss og Geysis. Taldi
hún slíkar ferðir vera öðru-
Eiríkssonar að gamni sínu,
bara til að sjá meira af þessu
fjarlæga landi.
Aðspurð, segir hún landið
sérkennilega fagurt, mótsetn-
ingarnar mjúkar og fallegar
og alltaf opnist ný og ný svið
og þessvegna verði seint full-
skoðað. — En ég geri engar
áætlanir langt fram í timann,
rigningin ykkar getur koll-
varpað því öilu saman — þess
vegna er bezt að biða og sjá
hvað setur. Hótelið hérna í
Keflavík er betur rekið núna,
en þegar ég kom síðast, þá
hafði herinn það en nú hafa
ykkar Loftleiðir það og það
er mikið betra.
— Ég er ekki að leika neinn
Lindberg þó ég skreppi yfir
hafið, mér fannst gaman að
fljúga þessa leið sem Leifur
Eiríksson landnámsmaður Am
eríku fór á sjónum og það er
miklu auðveldara nú en þá að
komast á milli. Heyrðu, svo
viija Spánverjarnir endilega
láta sinn Kolumbus hafa fund
ið Ameríku, en mér finnst
sennilegra að frá íslandi hafi
fyrsti landneminn komið. —
Þið eruð ennþá hraust og dug-
andi þjóð. — Nú ætlar Marion
að vita hvort léttir ekki til og
fljúga þá norður og austur og
siðan til Prestvikur og skoða
Evrópulöndin nokkuð nánar.
hsj.
Marion og flugvél hennar. — Ljósm. Heimir Stígsson.
„Ég er ekki oð leika
neinn Lindberg"
— segir hin 74 úra frækna flugkona
vísi skemmtilegar en að sjá
landið úr lofti.
Nú áformar frúin að fara
norður og austur um land og
ef til vill að ienda þar ein-
hversstaðar og sköða sig um.
Hún var ekki trúuð á að lagt
verði upp í fjórðu íslands-
ferðina.
Þessi unglega gamla kona
mun halda upp á 20 ára flug-
afmæli sitt hér á landi, þvi
hún fékk flugskírteini sitt
hinn 13. júlí 1946 og hefur
síðan flogið um heim allan til
Afríku og Asíu og Austur-
Evrópulöndin, aðeins til að
sjá hvernig heimurinn er.
— Það var mikið kraftaverk
þegar Lindberg ofursti flaug
einn yfir hafið til Parisar, en
nú verður varla vart við það
þó 74 ára gömul kona fljúgi
um slóðir Leifs Eirikssonar,
ein saman í sinni litlu flug-
vél. Frú Marían R. Hart lagði
upp frá Presqve Isle í Maine
ríki og hafði þá 2000 mílna
flug framundan, sem tók hana
11 stundir að fljúga, unz lent
var heilu og höldnu á Kefla-
víkurflugvelli. Þetta þótti af-
rek hjá Lindberg, en nú er
varla á það minnzt, þó að 74
ára kona fljúgi leiðir Leifs
Fréttaritari Mbl. Hsj. í samtali við flugkonuna.
— K'nverjar
Framh. af bls. 1
rikjunum. „Leiðtogar Sovétríkj-
anna eru með-samsærismenn
Bandaríkjanna", segir blaðið,
„og þeir grafa undan byltingum
þjóðanna. Hin svonefnda „að-
stoð“ þeirra er „súkkulaðihúðað
eitur“, og tiigangurinn með að-
stoðinni er að gefa leiðtogun-
um frjálsar hendur til að vinna
gegn byltingarbaráttu þjóðanna
og SVíkja málstað byltingarinn-
ar“.
Ummæli „Dagblaðs alþýðunn-
ar“ hafa vakið mikla athygli, og
talin ben'da til þess að dráttur
verði á því að Kínverjar veiti
Norður-Vietnam og skæruliðum
Viet Cong virka aðstoð í Suður-
Vietnam. Sérstaklega er það at-
hygiisvert að blaðið skuli við-
hafa þessi ummæli daginn eftir
að Chen Yi marskálkur, utan-
ríkisráðherra Kína, flutti ræðu
á útifundi í Peking, sem talin
var benda til þess að Kínverjar
hefðu á prjónunum áform um
virka aðstoð við kommúnista í
Vietnam.
Útifundurinn í Peking var
haldinn í þeim tilgangi að mót-
mæla aðgerðum Bandaríkja-
manna í Vietnam, og er talið að
um 10 þúsund manns hafi verið
viðstaddir. Að sögn fréttastof-
unnar „Nýja Kína“ varaði Chen
Yi Bandaríkjamenn við því að
þeir skyldu ekki búast við a'ð
þjóðir, sem andvígar væru árás-
arstefnu, væru knúnar til að tak
marka gagnráðstafanir sínar.
Bandaríkjamenn hefðu sjálfir
sprengt allar takmarkanir á
árásarstriði þeirra í Vietnam
með loftárásum á úthverfi Hanoi
og Haiphong
Um eitt voru Chen Yi og „Dag-
blað alþýðunnar" sammála, en
það var fordæming á leiðtogum
Sovétríkjanna. Sagði Chen Yi að
áður en árásirnar hófust hafi
leiðtogar Sovétríkjanna verið
búnir að lýsa velþóknun sinni
á þeim. Einnig sagði ráðherrann
áð Sovétríkin væru að fækka
í her sínum í Evrópu í þeim til-
gangi að auðvelda Bandaríkja-
mönnum að gera það sama svo
unnt verði að senda fleiri her-
menn til Vietnam.
Genfarsáttmálinn úreltur.
Á sunnudag flutti Chou En-lai
forsætisráðherra, ræðu þar sem
hann vísaði á bug öllum tilraun
um til að koma á nýjum við-
ræðum í Genf um frið í Viet-
nam. Sagði hann að áður en
unnt yrði að boða til viðræðna
um Vietnam bæri Bandaríkja-
mönnum að flytja allt herlið
sitt á brott úr landinu. Frétta-
stofan Nýja Kína vitnar í dag
í þessa ræðu Chou En-lais og
segir að Genfarsáttmálinn frá
1954 — sem eigi að vera grund-
völlur að friðsamlegri lausn í
Vietnam — sé úreltur. — Genfar
sáttmálinn hefur um langt skeið
ekki verið annað en pappírs-
sneplar, segir fréttastofan, skjöl
sem árásaraðgerðir Johnsons-
stjórnarinnar hafa fyrir löngu
rifið niður í þúsund snepla.
Það var með Genfarsáttmálan-
um frá 1954, sem bundinn var
endi á sjö ára styrjöld Frakka
í Indókína, sem nú er Vietnam,
Laos og Kambodia.
Fréttastofan segir að nýtt
Miinchen-samsæri sé í uppsigl-
ingu í sambandi við Vietnam-
vandamálið, og gangi leiðtogar
Sovétríkjanna feti framar en
allir aðrir, sem þar eigi aðild
að. Sé hlutverk sovézku leiðtog-
anna í svikunum við Vietnam-
búa hið auðvirðiiegasta.
— Meðan Bandaríkin halda á-
fram sprengjuárásum sínum, fá
leiðtogarnir í Washington enn
einu sinni fylgismenn sína til að
koma á framfæri tillögu um frið
samlega lausn. Heimsvaldasinn-
ar, endurskoðunarsinnaðir leið-
togar Sovétríkjanna og aftur-
haldssamir Indverjar hafa nána
samvinnu um framkvæmd sam-
særis Bandaríkjamanna. Mið-
stöð þessarar starfsemi er
Moskva, og helzta áróðursbragð
ið er tillaga um friðsamlega
lausn á grundvelii Genfarsátt-
málans frá 1954, segir Nýja Kína.
— Hreinsaður
Framhald af bls. 1.
Eftir að dr. Török fór fram á
rannsókn vþýzku ríkisstjórnar-
innar á máli þess, fór stjórnih
þess á leit að fá afrit af þessum
skjölum, en ungverska stjórnin
hafnaði þeirri beiðni. Er nú haft
eftir áreiðanlegum heimildum í
Bonn, að rannsókn á ferli dr.
Töröks hafi leitt í ljós, að hann
hafi aldrei verið meðlimur í fé-
lagsskap þessum og hafi alger-
lega vísað á bug stefnu nazista,
þegar hann á árunum 1944 og
1945 starfaði við ungverska sendi
ráðið í Berlín.
— Félag S.Þ.
Framhald af bls. 24
mesta fjölda einstaklinga. Njóta
SÞ-félögin virðingar meðal al-
mennings. ívar sagði að lokum
að hann vonaðist til þess að hér
yrði vel tekið væntanlegri mála-
leitan félagsins um aukinn stuðn
ing við starfsemi þess og ég vona
að félagið efiist að mun og að
það megi verða lyftistöng undir
enn frekari kynningu á tilgangi
og starfsemi hinna Sameinuðu
þjóða í þágu þjóða heims.— ívar
hélt heimleiðis í morgun til
Kaupmannahafnar.
STAKSTflMAR
Samgöngumál
Samgöngumál hafa alltaf ver-
ið mikið vandamál á okkar strjál
byggða landi, og kostnaður við
að haida uppi samgöngum til
allra byggða landsins á landi,
lofti eða legi hefur verið mikill.
En á sviði samgöngumála, eins
og i öðru, verða jafnan miklar
framfarir, og sjálfsagt er fyrir-
okkur Islendinga að fylgjast vel
með þeim framförum, sem
verða í þeim efnum erlendis, og
hagnýta okkur það, sem hentar
okkar aðstæðum.
Þyrlur til vöru- og
farþegaílutninga
Notkun á þyrlum hefur farið
ört vaxandi hin síðari ár, bæði
tii farþegaflutninga og vöru-
flutninga. Ekki er óiíkiegt, að
þetta samgöngutæki mundi geta
komið að góðum notum til þess
að halda uppi samgöngum um
hinar dreifðu byggðir tslands,
eins og t.d. á Vestfjörðum, þar
sem enn eru nokkur byggðarlög
sem ekki eru komin í vegasam-
band, og verða að byggja allt á
samgöngum við sjó. Þar sem
slikar aðstæður eru, er enginn
vafi á þvi, að þyrlur mundu
verða mikil og vel þegin sam-
göngubót. Þá er einnig á það að
lita, að mikill fjöldi fólks fer á
milli staða hér á þéttbýlissvæð-
inu við Faxaflóa, til dæmis milli
Akraness og Reykjavíkur og
Reykjavíkur og Keflavíkur.
Þyrla til farþegaflutninga á þess
um stöðum mundi vafalaust hafa
nægileg verkefni.
Dýrcu í rekstri
Enn sem komið er munu stór-
ar þyrlur, hvort sem er til far-
þegaflutninga eða vörufiutninga,
dýrar í innkaupi og dýrar i
rekstri, og skal þvi ekkert um
það sagt að svo stöddu hvort
hér mundi vera um fjárhagslega
hagkvæmt fyrirtæki að ræða, en
sjálfsagt er að það verði athug
að gaumgæfilega, því að við
verðum jafnan að hafa vakandi
auga fyrir öllum nýjungum í
samgöngumálum, sem leitt geta
til samgöngubóta innanlands,
ekki sizt í I kim strjálbýlari
svæðum landsins.
Islenzki íiskurinn
og EBE
Vísir segir í forystugrein í gær:
„Fimmtnngur allra viðskipta
okkar á fiskimálasviðinu er við
lönd Efnahagsbandaiags Evrópu.
Þess vegna er eðlilegt að við ís-
lendingar lítum til þess með
nokkrum ugg að fyrir dyrum
stendur mótun fiskimálastefnu
bandalagsins. Sérstök nefnd, sem
framkvæmt hefur könnun máls-
ins, skilaði fyrii skeinmstu áliti
um það hvaða váðstafanir banda
laginu væn rétt að gera til þess
að vernda eigiti fiskveiðihags-
muni. Fer varla hjá þvi að þær
ráðslafanir munu hafa í för með
sér óhagræði fyrii okkur og aðra
fiskinnflytjendur til bandalags-
svæðisins, eins og rnálin horfa.
Sérstaklega mun hinn ytri tollur
bandalagsins á fiskafurðum hafa
óhagstæð áhrif. en hann mun
verða mun hætri í gömlum við
skiptalöndum okkar, svo sem
Vestur-Þýzkalandi, en áður hef-
ur tíðkazf.