Morgunblaðið - 20.07.1966, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.07.1966, Blaðsíða 1
28 síður 23. árgangur. 162. tbl. — Miðvikudagur 20. júlí 1966 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Kínverskur sendiráðs- maður rekin úr Hollandi Nam fársjúkan mann af sjúkrahúsi Haag, 19. iúlí - NTB-AP: KÍNVERSKA sendiráðsfulltrúan um í Hollandi, Li En-chiu hefur verið fyrirskipað að fara úr landi innan sólarhrings. Var frá þessu skýrt opinberlega í tilkynn tngu frá hollenska utanríkisráðu neytinu í g'erki-öld. Sendiráðsfulltrúinn var lýstur „persona non grata“, eftir að starfsmaður kinverska sendiráðs ins í fyrri viku hafði flutt kín- verskan sjúkling frá sjúkrahús- inu í Haag, þar sem hann lá, án leyfis læknis. Hinn sjúki var verkfræðingur, sem komið hafði til Hollands til þess að taka þátt í alþjóðlegri tækniráðstefnu. — Fannst hann stórslasaður á göt- unni fyrir framan kínverska sendiráðið sl. laugardag. Hann ver fluttur í sjúkrahús, þar sem í ljós kom, að bann var höfuð- kúpúbrotinn og alvarlega meidd- ur í baki. Er sendiráðsfulltrúinn var kallaður á fund utanríkisráðu- neytisins í gær, skýrði hann frá því, að verkfræðingurinn hefði látizt í sendiráðinu síðari hluta dags á sunnudaginn. Var sendi- ráðsfulltrúanum þá þegar fyrir- skipað að fara úr landi. Ekki er vitað hvernig meiðsli nnannsins bar að Á milli kín- versku sendiráðsbyggingarinnar og götunnar er garður, þannig að ekki er talið að hann hafi hlotið þau við að stökkva út um glugga. Talsmaður lögreglunnar í Haag skýrði frá því á fundi með blaðamönnum, að lögreglan væri þeirra skoðunar að maður inn hefði ekki látizt af völdum slyss. Væri þessi skoðun byggð á upplýsingum, sem læknir sá hefði gefið, en var á vakt, þegar komið var með hinn meidda mann á sjúkrahúsið. í morgun hafði lögreglan sett öflugan vörð um kínversku sendiráðsbygginguna til þess að koma í veg f.yrir að lík verk fræðingsins yrði flutt á brott með leynd. Þá hefur verið skýrt frá því, að Li En-chiu sendiráðsfulltrúi væri þegar farinn frá Hollandi. Fór hann síðdegis í dag með tékkneskri flugvél áleiðis til Moskvu. Hann hafði starfað hjá kínverska sendiráðinu í Haag frá því á árinu 1963. Johnson Bandaríkjaforseti og aðrir æðstu valdamenn í Washington hafa varað forseta Norðnr- Víetnam, Ho Chi Minh (til hægri) eindregið við því að draga bandaríska flugmenn, sem teknir hafa verið til fanga í N-Víetnam (til vinstri tveir þessara flugmanna), fyrir rétt sem striðsglæpa- menn. Á meðan hefur Ho Chi Minh látið fara fram útboð á hluta af varaliði landsins. — Þannig fara átökin í Víetnam stöðugt harðnandi. Sendiherra N-Vielnam í Peking: Bandarísku flugmennirnir dregnir fyrir dóm sem stríðsglæpamenn París, 19. júlí, — AP — FRANSKA fréttastofan AP skýrði fiú því í dag, að sendi- herra Norður-Vietnam í Kína hefði lýst þvi yfir að þeir banda rískir flugmenn, sem teknir hefðu verið og teknir yrðu til fanga í N-Vietnam, myndu verða dregnir fyrir dóm sem stríðsglæpamenn. Á sendiherr- ann að hafa skýrt frá þessu á fundi, sem hann hélt með frétta mönnum í Peking. Fréttastofa skýrði ennfremur frá því, að sendiherrann hefði sagt, að bandarísku flugmennirn ir hefðu aldrei af hálfu N-Viet- nam verið taldir vera stríðs- Kapitalismanum vex ásmeginn í Sovétríkjunum: 400 nýjar verksmiöjur byggja á framboði og eftirspurn Moskvu, 19. júlí AP. NÝJU fyrirkomulagi var kom ið á í 400 sovézkum verk- smiðjum h. 1. júlí s.l. Byggist það á auknu valdi forstjóra verksmiðjanna og þar er lögð áherzla á að ná hagnaði og að sala framleiðsluvaranna verði sem mest. Málgagn sovézku stjórnar- innar, Pravda skýrði frá þessu í dag. Segir þar enn fremur, að sá árangur sem náðst hefði til þessa, sýndi, að hið nýja fyrirkomulag væri betra, en það sem verksmiðjurnar hefðu áður búið við. Gert er ráð fyrir, að sovézk ur iðnaður breyti smám sam- an um fyrirkomulag og taki upp hið nýja fyrirkomulag fyrir 1. janúar 1968. Fyrst munu verksmiðjur, sem hefur gengið vel, taka upp hið nýja fyrirkomulag, en búizt er við erfiðleikum, er verksmiðjur, sem ver hefur vegnað fram- kvæma breytinguna. Það mun vera Kosygin for- sætisráðherra, sem gengst fyrir þessum breytingum, en hann hafði áður lagt til, að róttækar endurbætur færu fram í efnahagsmálum, Sovét ríkjanna: og að tekið yrði til- lit til nýrra sjónarmiða, svo sem eftirspurnar, þar sem verksmiðjurnar eru. Samkv. eldra fyrirkomu- laginu tóku heildaráætlunar- stjórar allar ákvaranir varð- andi framleiðslu einstakra verksmiðja. Síðan var rekst- ur verksmiðjanna metinn eft- ir því, hversu mikið þær fram leiddu án tillits til þess, hvort framleiðsluvörur þeirra seld- ust eða ekki Með þessum hættti söfnuðust feiknarlegar birgðir óseljanlegra vara Áður tíðkuðust bónusgreiðsl ur, sem stóðu í hlutfalli við framleiðslumagn verksmiðj- anna, en munu samkv. hinu nýja fyrirkomulagi fara eftir sölu og hagnaði. Þá skýrði Pravda frá því, að þegar í janúar hefðu 43 verksmiðjur tekið upp hið nýja kerfi og 200 verksmiðjur í apríl. ,Fyrstu tölur“, sagði Pravda í dag, „sanna áþreif- anlega, að hið nýja fyrirkomu lag skapar heppilegar aðstæð- ur til aukningar framleiðslu og framleiðslugetu". Pravda skýrði frá þvi, að allar þær verksmiðjur, sem tækju upp nýja fyrirkomu- lagið, hefðu verið látnar hafa nýjar áætlanir, þar sem gert hefði verið ráð fyrir auknum afköstum, og hefði gengið vel að framkvæma þær. Forstjórum verksmiðjanna væri heimilt að ákveða fjölda starfsmanna verksmiðja sinna. Þeir mættu fækka starfsliði, ef þeim svo byði, í því skyni að lækka fram- leiðslukostnað og auka þannig á hagnað. fangar og þess vegna tæki Gen- farsamþykktin um meðferð stríðsfanga ekki til þeirra, en þar er bannað að draga stríðs- fanga fyrir dóm. Sendiherrnn gat ekkert um, hvenær réttarhöldin yfir flug- mönnunum mydu hefjast, en bætti því við, að örlög flug- mannanna yrðu fengin í hendur þjóðini í Vietam. Sediherrann las síðan upp til- kynningu, þar sem sagði m.a. að sprengjuárásirnar á Hanoi Haipong svæðið hefðu sýnt bet- ur en nokkru sinni fyrr, að Bandaríkin væru árásaraðili. Eina leiðin til þess að binda enda á Vietnamstríðið væri að ganga að þeim skilmálum, sem Norður- Vietnam og Vietcong hefðu sett, en þar er m.a. gert ráð fyrir flutningi alls bandarísks herliðs frá Vietnam. í tilkynningunni voru þeir Har old Wilson, forsætisráðh. Bret- lands, Eisaku Sato, forsætis- ráðh. Japan og Tito frseti Jú- góslavíu einnig sakaðir um sam- vinnu við bandaríska heims- valdastefnu. Talið er, að átök muni nú fara mjög harðnandi í Vietnam, en í ræðu, sem H Chi Minh, for- seti N-Vietnam hélt á sunnudag, tilkynnti hann takmarkað útboð varaliðs í landinu. Johnson Bandaríkjaforseti hefur áður varað stjórn N-Viet- nam við því, að verði þeir bandariskir flugmenn sem hún hefur á valdi sínu, meðhöndlað ir sem stríðsglæpamenn, verði hert til mikilla muna á loftárás- um á N-Vietnam. í dag geysuðu harðir bardag- ar í Vietnam, en þar komu her- menn frá N-Vietnam bandarísk- um herflokki í opna skjöldu— og felldu marga þeirra. Banda- rískar sprengjuflugvélar héldu og áfram loftárásum á olíubirgða stöðvar í N-Vietnam. Frakkar halda áfram kjarnorkutilraunum Vörpuðu fyrstu kjarnorkusprengju sinni úr lofti í gær París, 19. júlí — AP: FRAKKAR héldu áfram kjarn- orkusprengjutilraunum sínum í andrúmsloftinu í dag. Sprengdu þeir þá aðra kjarnorkusprengj- una á sautján dögum og var það gert með því að varpa sprengj- unni úr flugvél á sunnanverðu Kyrrahafi, Franska hermálaráðuneytið skýrði frá því í dag. að sprengjan hefði sprungið í lítilli hæð yfir Mururoa kóralrifunum í Frönsku Polynesiu. Er þetta fyrsta kjarn or kuspreng j an, sem Frakkar sprengja með því að varpa henni úr flugvél. Þetta er önnur kjarn orkusprengj utilr aunin í röð til- rauna, sem Frakkar hófu 2. júlí sl. Átti tilraunin að fara fram 10. júlí en var frestað vegna ó- hagstæðs veðurs. Sprengjan nú var plútonium- Framhald á bis. 12

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.