Morgunblaðið - 20.07.1966, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 20.07.1966, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 20. júlí 1966 MORGU N BLAÐIÐ 15 Stuðlar - strik - strengir * _____________________________ Ný skáldsaga frá S-Afríku Söngfuglinn frá San Francisco í BYRJUN þessa mánaðar var í þriðja sinn haldin í Moskvu hin alþjóðlega tón- listarkeppni, sem kennd er við Tchaikovsky, og fram fer fjórða hvert ár. Að þessu sinni var þar í fyrsta sinn keppt í einsöng og sigur í einsöng kvenna vann 24 ára gömul bandarísk sópransöng kona, Jane Marsh. Jane Marsh býr í San Franc- isco. Á yngri árum iðkaði hún ýmsar íþróttir, keppti m.a. í sundi, stundaði hestamennsku, var knapi og fékkst við tamn- ingu. Áhugi Jane á söng vakn- aði fyrir alvöru, er hún stund- aði nám við Oberlin-háskól- ann, en þaðan lauk hún prófi 1963. Hún hefur síðan stundað söngnám við skóla Metropolitan óperunnar, og fyrsta hlutveric sitt í óperu hlaut hún síðasta sumar er hún kom fram sem Desdemona í „Othello“ Verdis í Spoleto. Síðan hefur hún hafnað tilboðum bæði frá óper unni í San Francisco og ÍMetropolitan óperunni, þar sem hún áleit ekki tímabært að fast ráða sig. Fyrir Tehaikovsky- keppnina stundaði Jane ýmsar ‘þolæfingar sem fyrir íþrótta- keppni, og lærði m.a. nokkuð í rússnesku. Alls tóku 242 tónlistarmenn frá 38 löndum þátt í keppninni, sem kalla má Olympíuleika tónlistarinnar. Dómnefnd var skipuð frægum snillingum á sviði tónlistarinnar og má þar nefna píanóleikarann Emile Gilels, sellóleikarann Mstislav Rostropovitch og fiðluleikar- ann David Oistrakh. ftússar, sem áttu 30 manna sveit í keppninni, hlutu 4 af 5 gull- verðlaununum, en 44 manna sveit Bandaríkjamanna hlaut alls 12 verðlaun, þar af ein gullverðlaun. Sigur - Jane Marsh yfir 57 keppinautum sínum var ótví- ræður og vakti verðskuldaða hrifningu áhorfenda. í upphafi hafði nær farið illa fyrir Jane er hún spreytti sig bæði á hlut verki Paminu úr Töfraflauitumni og Aidu. Hlutverk þessi eru gjörólik og mjög erfítt að syngja þau hvert á eftir öðru. En hún hafði það af og í tveim- ur seinni atrennunum gekk henni mun betur; Og enn jókst hróður hennar, er hún söng aríur á rússnesku. 1 lokakeppn- inni naut hún góðs bæði af lík- amlegri þjálfun sinni og söng- hæfni, er hún söng aríu úr óperunni Eugene Onegin eftir Tchaikovsky, en aría þessi hef- ur verið nefnd „bréfatriði Tatjönu“. Arían spannar mikið raddsvið og það tekur 20 mín- útur að syngja hana. Aðrar söngkonur sungu flestar stutt- ar aríur, sem tóku u.þ.b. 5 mínútur. Strax eftir hinn fræki- lega sigur í Moskvu íór tilboðum að rigna yfir Jane víðsvegar að úr heimin- um, bæði frá óperum og hljómplötufyrirtækjum. En hún kippti sér ekki upp við það. Fyrir keppnina hafði henni verið boðið til Ítalíu til að syngja til reynslu. En nú ætlar Jane að halda út í heiminn og sjá hvað framtíðin ber í skauti sér. Hún segist ekki láta blekkjast af stórkostleg- rær„ MET" ao standa EHSTS og kunnugt er, var hinni fornfrægu Metropolitan óperu í New York lokað 16. apríl sl., og starfsemi óperunnar flutt í hina nýju listamiðstöð í Lin- cóln Center. Hið 83 ára gamia óperuhús komst þá í hendur fasteignafyrirtækis eins, Key- stone Associates, sem sam- kvæmt kaupsamningi á að borga 484.000 daíli á ári í 50 ár fyrir húsið. Keystone Associates hyggjast rífa óperu- húsið gamla og reisa á grunni þess 40 skrifstofuhús. Fjölmargir urðu til að mót- mæla þessum ráðagerðum. Stofnuð voru samtök borgara, sem höfðu það eitt á stefnuskrá sinni að ,,bjarga“ gamla óperu- húsinu. Af þessari baráttu hef- ur nú það leitt, að fyrir skömmu undirritaði Nelson Rockefeller, ríkisstjóri New York-fylkis, lög, sem sett eru byggingunni til verndar. Sam- kvæmt þeim skal stofnað félag — stjórn þess verður skipuð mönnum tilnefndum af borgar- stjóra New York — sem safna á fé til kaupa á byggingunni með það fyrir augum að hefja áfram ? þar aftur óperuflutning. Félag- inu til verndar eru þau ákvæði í lögunum, áð sæki Keystone- fyrirtækið um leyfi borgar- yfirvalda til að hefja niðurrif óperuhússins, er þeim heimilt að tefja leyfisveitinguna um 180 daga, á meðan hinu nýstofn aða félagi er gefinn kostur á að safna fé til kaupanna. For- senda þessarar tafar er þó sú, að félagið hafi þegar lagt fram 200.000 dala tryggingu. Borg- arasamtökin telja hæfilegt kaup verð óperuhússins 8 milljón dali, en eigendur þess vilja fá 12—16 milljónir fyrir það. Forráðamenn óperuhússins nýja í Lincoln Center telja þetta framtak gamla óperu- húsinu til bjargar hið mesta óráð . og segja að með þessu lága tillboði sínu stefni borgarasamtökin frekar að því að drepa niður listir en efla þær. Forsvars- menn samtakanna svara þessu á þá leið, að í Lincoln Center séu menn aðeins hræddir við hina auknu samkeppni, sem leiða myr.di a£ endurreisn óperunnar. Jane Marsh um samningum, telji hún sig ekki nægilega undirbúna. Eitt er þó víst — hún mun snúa aftur til Moskvu næsta haust. Samkvæmt rússneskum lögum fær hún aðeins að taka 25% vinningsfjárins með sér úr Rússlandi, en verðlaunin voru samtals 2500 rúblur (u.þ.b. 120 þús. ísl. kr.). Jane Marsh er annar Bandaríkjamaðurinn, sem vinnur gullverðlaun í Tchaikovsky-keppninni. Van Cliburn, píanóleikari, vann gullverðlaun þar 1958. Kunnur f FYRRI vikn lézt í Kaup- mannahöfn danski teiknarinn Herluf Jensenius, „Jus“, 78 ára gamall. Herluf Jensenius var um ára bil einn kunnasti gamanteikn- ari Dana og lét sig heldur ekki muna um að skrifa sjálfur ef svo bar undir. Um það bil sem Jensenius varð sjötugur kom út eftir hann lítil bók og yfirlætislaus og hét „Lige ud ad Lande- vejen". í henni sagði teiknar- Ilerluf Jensenius FYIRIR nokkru er komin út ný skáldsaga eftir suður-afr- ísku skáldkonuna Nadine Gordimer og fjallar — eins og reyndar töluvert af fyrri skrifum hennar — um ástand- ið í Suður-Afríku þar sem apartheid og fylgifiskar henn- ar tröllríða landsmönnum og enginn má um frjálst höfuð strjúka sem ekki aðhyllist skoðanir yfirvaldanna. Nadine Gordimer hefur skrif- að töluvert áður, bæði skáld- sögur og smærri verk og yfir- leitt af sjónarhóli skoðandans, hlutlaust og ekki haldið fram að neinu marki skoðunum eða tilfinningum sjálfrar sín eða annarra. Þessari síðustu bók hennar „Thé late Bourgeois World“, er svo lýst sem þar segi frá þreyttur mannvinur í landi óréttliætisins. Bókin þykir bera því ljósan vott, hversu erfitt lífið getur orðið heilvita og hugulsömu fólki í Suður-Afríku í skugga kyn- þáttavandamálsins, nærtæks og ógnandi, þar sem svo bætast of- an á styrjaldir og kjarnorkuvíg- búnaður í öðrum heimshlutum eins og fjarlæg blika á sjón- deildarhringnum. Svo virðist sem lífið dragi sig í hlé og haldi sig úti í horni til þess að fá yfirhöfuð nokkurn tilverurétt í 'heiminum. Áður fyrr, segir einn gagn- rýnandinn um bók Nadine, var alltaf að finna í bókum hennar vonarglætu, snefil af sönnun þess að maðurinn gæti sitthvað gert sjálfum sér og öðrum til bjargar ef því væri að skipta. En þessi síðasta bók hennar er dapurleg og vondauf og lýsir kannski betur en nokkuð ann- að, hverju höfundurinn hefur til kostað að mega dveljast áfram í landi sínu í stað þess að fylla sívaxandi flokk bók- menntaútlaganna s-afrisku, eins og t.d. Doris Lessing, Laurens van der Post og fjöldi annarra, sem flúið hafa ófrelsið í ætt- landi sínu og sezt að erlendis. Nadine Gordimer Vei mæft .1 framtíðina bita engin vopn. Jules Romains, áttræður, franskur rithöfundur. Tdáin á náttúruvísindin er hin mikla villutrú vorrar ald- ar. Peter Bamm, þýzkur læknir og rithöfundur. danskur blaða- teiknari látinn „Vitið þér, hver bjó í húsinu handan við götuna?“ spurði Skugginn. — (Teikning méð ævintýri H. C. Andersens, Skugginn), inn frá bernsku sinni og æsku og þótti segja vel frá. Flestir kannast við teikning- ar hans í „Beriingske Tidende11 sem hann hóf störf við 1934 en áður hafði hann starfað við B.T, og fleiri blöð og var lands frægur orðinn í Danmörku fyr ir teikningar sínar í „Blæk- sprutten“. Um tuttugu ára skeið fékkst Herluf Jensenius einnig við að myndskreyta Ævintýri H. C. Andersens, sem út komu i fjölda hefta smátt og smátt eft ir því sem verkinu miðaði á- fram og loks í afmælisútgáfu 52 saman árið 1954. Einnig myndskteytti hann ýmsar bæk ur aðrar, þar á meðal verk Grundtvigs. Kaj Munks og- max-gar fleiri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.