Morgunblaðið - 20.07.1966, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
Miövikudagur 20. júlí 1966
Gísli G. Auðunsson læknir:
Læknaskortur
dreifbýlisins
Frd sjónarhóli ungs Iæknis
NÝLEGA mátti lesa í fréttum
dagblaðanna. að enginn læknir
hafi sótt um héraðslæknisstöð-
ur í 4, fyrrum mjög svo girni-
legum, lækrishéruðum (m.a.
Vestmannaeyium, ísafirði og
Húsavík). Þá var þess einnig
getið, að önnur 4 héruð væru
að losna og jítil von væri til
þess, að þangað fengjust lækn-
ar. Líklegt má telja, að frétt
þessi hafi orðið öllu hugsandi
fólki nokkurt áhyggjuefni, og
vonandi dylzt nú fáum lengur,
hvílíkt vandarnál læknaskortur
dreifbýlisins er. Málið hlýtur
því að vera ofarlega á baugi
og því ekki út vegi, að einhver
úr hópi ungra lækna ræði það
af hreinskilni á opinberum vett
vangi, því lausn þess hlýtur að
vera undir okkur komin öðr-
um fremur
Þó er það vissulega svo, að
þetta vandamál hefur blasað
við undanfarin ár, þar eð telja
má á fingrum annarrar handar
þá nýbakaða lækna, sem setzt
hafa að úti í héruðum til fram
búðar. Það hefur því löngu
orðið ljóst þeim, er hugsuðu
um þessi má! af alvöru, að til
auðnar myndi horfa í héraðs-
læknastétt landsins, þegar
gömlu mennirnir hyrfu frá
starfi, ef ekkert væri að gert.
Og nú — sumarið 1966 — er
svo komið, að ekki eru skip-
aðir héraðslæknar í % hluta
læknishéraða landsins. Þau eru
ýmist setin af læknakandidöt-
um eða stúdentum eða standa
hreinlega auð.
-- XXX ---
Það er nú rétt að athuga <5-
gerðir heilbrigðisstjórnarinnar
og alþingis til lausnar þessu
vandamáli Ég verð að játa, að
ég hef ekki kynnt mér niður
1 kjölinn, hver þrekvirki al-
þingi hefttr unnið á þessu sviði,
en eftir lauslega athugun er
mér nær að halda, að þau séu
næsta lítil. Alþingi hefur með
öðrum orðum skort allan skiln
ing á þessu vandamáli og jafn-
an spyrnt fast við fótum gegn
breytingartillögum lækna á
héraðaskipaninni. Nær ein-
göngu virðast hafa ráðið hin
þrengstu sjómrmið hreppapóli
tíkurinnar, að öllum líkindum
af hræðslu þingmanna við at-
kvæðatap Það hefur því verið
stefna alþingis að hafa læknis-
héruðin sem allra flest. Þegar
læknar hafa svo ekki fengizt
til að setjast að á mestu út-
kjálkunum, hefur verið gripið
til þess bráðsnjalla ráðs að
neita þeim um lækningaleyfi
hér á landi, fyrr en þeir hefðu
afplánað svo og svo langa
skylduvinnu úti í héruðum
landsins.
Rétt er að vekja á því athygli
að slíkrar þegnskylduvinnu er
ekki krafizt af nokkurri ann-
arri stétt landsins. Þessi „hér-
aðsskylda" er nú 3 mánuðir, og
er það ákvörðun alþingis, eft-
ir að landlæknir hafði lagt til,
að hún yrði felld niður (var
áður 6 rnán.) Héraðsskyldan
hefur valdið því, að sums stað-
ar er skipt um lækni á 3ja
mánaða fresti. Ekki hefur þing
njönnum okkar brugðizt boga-
listm á þessu sviði frekar en
öðrum til bjargar dreifbýlinu.
Hvernig skyldi þeim falla að
skipta um lækni á 3ja mán.
fresti eða hafa engan ella?
Þetta var þáttur alþingis.
-- XXX ---
Þá er komið að hinni virku
yfirstjórn heilbrigðismálanna í
landinu. Til er ráðuneyti, sem
nefnist dóms og kirkjumála-
ráðuneytið. Páðuneyti þetta
fæst við það í hjáverkum að
stjórna heilbrigðismálum lands
ins. Mega rnenn af þessu glöggt
merkja, hvílíkur miðaldablær
er yfir þjóðfélagi okkar á ýms-
um sviðum enr.þá. þar sem rík
ið heldur uppi ráðuneyti fyrir
kirkju og klerkdóm, en heil-
brigðismálaráðuneyti finnst
ekkert. Líklegt þykir mér, að
ráðuneyti þetta hafi ærin verk
efni á sviði dóms- og kirkju-
mála og líti því aukagetuna,
heilbrigðismálin, fiemur óhýru
auga. Enda mun raunin sú, að
hinn daglegi rekstur heilbrigð-
ismálanna hvílir ekki með nein
um ofurþunga á dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu, heldur
á herðum landlæknis. Hins veg
ar skilst mér, að hann sé næsta
valdalítill, fyrst og fremst ráð-
gefandi, en vald allt í höndum
ráðherra.
Þá er rétt að athuga aðgerð-
ir þessara aðila til lausnar
læknaskorti dreifbýlisins.
Landlæknir hefur góðfúslega
lánað mér sérprentað plagg,
sem ber yfirskriftina „Frum-
varp til læknaskipunarlaga
(lagt fyrir alþingi á 85. lög-
gjafarþingi, 1964—’65)“. í at-
hugasemdum við lagafrumvarp
ið segir m a.: ,Með bréfi, dags.
15. apríl 1964, lagði landlækn-
ir til við dóms- og kirkjumála-
ráðuneytið, að það gerði „nú
þegar ráðstafanii til þess, að í
samráði við læknasamtökin í
landinu og nokkra aðra aðila
verði rækileg endurskoðun lát-
in fara fran~. á íæknisþjónustu
dreifbýlisins“.
Með bréfi, dags. 22. maí
1964, skipaði ráðherra 6 manna
nefnd, sem var falið það verk-
efni „að framkvæma endur-
skoðun á læknaskipunarlögun
um nr. 16 9. apríl 1955 og lækn-
isþjónustu dreifbýlisins al-
mennt, í bvi skyni að finna
lausn á hinu aðkallandi vanda
máli, sem stafar af skorti á
læknum til heraðslæknisstarfa,
einkum í hinum fámennari og
afskekktari héruðum lands-
ms““.
í nefndinni voru landlækn-
ir, skólayfirlæknir, einn yfir-
læknir á sjúkrahúsi hér í Rvík,
prófessor við læknadeild H.Í.,
ráðuneytisstjóri og ráðuneytis-
fulltrúi.
Enginn héraðslæknir?
Enginn ungur iæknir?
En þó að enginn nefndar-
manna hafi sézt utan bæjar-
marka Revkjavíkur sl. 30 ár
eða svo (nema á skemmtireis-
um um landsbyggðina) þaðan
af síður við héraðslæknisstörf,
grunaði víst engan aðstand-
anda nefndarinnar annað en
hér væru réttu mennirnir til
að leysa úr læknaskorti dreif-
býlisins. Ekki vil ég þó kasta
rýrð á störf nefndarinnar fyrir
fram, hún virðist hafa tekið
verkefni sitt alvarlega, að
minnsta kosti 5 fyrstu, leitaði
álits héraðslækna og ýmissa
annarra og skilaði tillögum „í
frumvarpsformi ásamt athuga-
semdum, og voru þær sendar
dóms- og kirkjumálaráðuneyt-
inu með bréfi, dags. 7. nóvem-
ber 1964“.
Við skulum fvrst líta á grein
argerð nefndarinnar, sem fylgir
frumvarpinu, því þar hlýtur að
vera að finna forsendur allar.
Ég leyfi rnér því að taka upp
kaflann „Um orsakir lækna-
skorts í dreifbýli", en hann
hljóðar svo: „Tregða lækna að
gerast héraslæknar í dreifbýli
á sér margvíslegar og flóknar
orsakir, bæði faglegar, sálræn-
ar og félagslegar. Veigamikil
ástæða, sem á jafnt við um
lækna sem aðra, er hin almenna
tilhneiging landsmanna til að
búa í þéttbýli, en auk hennar
koma til sérstakar ástæður,
sem leggjast á sömu sveif og
eiga að mestu eða öllu leyti
við um lækna eina, og eru þess-
ar helztar:
1. Starfgleg einangrun og
starfsábyrgð Víðast á landinu
hagar svo til. að héraðslæknir
verður að starfa einn. Að jafn-
aði verður slíkur héraðslæknir
að taka ákvarðanir og vinna
læknisverk án þess að geta
leitað álits eða aðstoðar ann-
arra lækna, og Hf sjúklingsins
getur oltið á réttum úrskurði
og viðeigandi aðgerðum. Á hér-
aðslæknum hvílir því mjög
Gísli G. Auðunsson.
þung starfsábyrgð Hin flókna,
marggreinda nútímalæknis-
fræði krefst hópstarfs í æ rík-
ari mæli, og þótt sumir þættir
starfsins hljóti eðli sínu sam-
kvæmt að verða unnir af ein-
um lækni, vilja nútímalæknar
eiga þess kost að taka þátt í
Fyrri hluti
þvílíku hópstarfi sjálfir eða
geta komið sjúklingum sínum
í hendur slíks starfshóps, þeg-
ar þess gerist þörf. Hið fyrr-
nefnda er einangruðum héraðs
læknum fyrirmunað, og hið síð
arnefnda krefst þess, að sjúkl-
ingur sé fluttur burtu, oft með
ærnum kostnaði, mikilli fyrir-
höfn og jafnvel áhættu.
2. Fagleg einangrun og af-
leiðingar hennar. Hin öra þró-
un í læknisfræði leggur lækn-
um á hevðar þá skyldu að fylgj
ast vel með í fræðigrein sinni,
en til þess er þeim jafnnauð-
synlegt persónulegt samband
við stéttarbræður sem lestur
læknisfræðirita. Einangraður
læknir hlýtur að dragast aftur
úr, þegar til lengdar lætur,
hversu vel sem hann leggur sig
fram, og þá er hætt við, að
starfsáhugi hans og starfs-
ánægja dvíni smám saman.
Þetta er engurn ljósara en lækn
um sjálfum, og sú tilhugsun
er ungum læknum mjög ógeð-
felld.
3. Vaktaskylda, vinnutími og
vinnuskilvrði. Héraðslækni er
skylt að sinna kalli jafnt að
nóttu sen degi. Fyrir fram á
hann sér aldrei vísa hvíldar-
stund, og hann tekur ekki á
sig náðir án þess að mega eiga
von á, að ró hans verði raskað.
Starfið er erilsamt og krefst oft
mikils líkamslegs og andlegs
þreks, og ósjaldan verður lækn
irinn að tefla á tæpasta vað í
ferðalögum Vmnutími hans er
óreglulegur og fer ekki aðeins
eftir heilsufari 1 héraði, held-
ur einnig iðulega eftir geðþótta
héraðsbúa Svo látlausrar
vaktskyldu mun ekki krafizt
af öðrum þegnum þjóðfélags-
ins. Vinnuskilyrði héraðslækna
eru að vísu ekki að litlu leyti
háð framtaki þeirra sjálfra, en
augljóslega skortir einangrað-
an héraðslækni með nútíma-
læknisþjálfun ýmis skilyrði til
að hagnýta sér til fullnustu
kunnáttu sína og leikni, og setja
ungir læknar þetta mjög fyrir
sig.
4. Vanmat á almennum lækn-
isstörfum. Almenn læknisstörf
njóta minni virðingar en sér-
fræðistörf bæði í augum sjúkl-
inga og lækna. Fólk treystir
sérfræðingum jafnvel betur til
almennra heimilislæknisstarfa
en almennum Jæknum og virð-
ist lítinn greinarmun gera á
einstökuni sérgreinum. Að
þessu leyti hefur skapazt óraun
sætt ofrnat á sérfræðingum.
Héraðslæknum finnst, að hin-
ir sérfróðu læknar í þéttbýl-
inu líti héraðslæknisstörf smá-
um augum, og í greinargerð
eins af fremstu héraðslæknum
landsins, segir m.a.: „Þar við
bætist, að læknar í Reykjavik
líta yfirleitt heldur niður á al-
menna lækna úti á landi“.
5. Nám og námsuppeldi
læknastúdenta. Skipulegt klín-
iskt nám læknastúdenta fer
nær eingcngu fram á sjúkrahús
um og rannsóknarstofnunum,
og öll kennsla er í höndum
sérfræðinga í misvíðum sér-
greinum. Þessir sérfræðingar
vinna hópstarf þeirri starfstil-
högun kynnast stúdentarnir og
þykir hún sjálfsögð þaðan af.
Sjúklingahópurinn er valinn
og tiltölulega takmarkaður,
þ.e. fyrst og fremst sjúklingar
með meiri háttar sjúkdóma, og
af þeim sjúklingaefniviði mark
ast sjónhringurinn og áhuga-
málin. Hins vegar kynnast
stúdentarnir ekki eða þá að-
eins af tilviljun starfsháttum
og starfsskilyrðum lækna við
störf á lækningastofum og í
heimahúsum og þá ekki held-
ur hinum fjölmenna hópi, er
leitar lækna með smærri kvilla
eða kvartanir, sem líka verður
að sinna, þar sem þeir geta
engu að síður haft ósmá áhrif
á líðan og starfsgetu. Námsupp
eldi læknastúdenta hlýtur með
öðrum orðum að vekja áhuga
þeirra fyrst og fremst á sér-
fræðigreinum og sjúkrahús-
störfum.
Rétt er að benda á, að það,
sem hér hefur verið sagt, á
ekki fremur við um lækna-
kennslu hér á landi en í öðrum
löndum.
6. Ásókn ungra lækna í sér-
fræðinám. Þróun læknisfræð-
innar, ljómi sá. sem leikur um
sérfræðinga, og tlisvarandi van
mat á almennum læknum og
námsuppeldi læknastúdenta
leggst allt á eitt um að beina
ungum læknum að sérfræði-
störfum. Undantekningarlítið
leggja ungir læknar nú stund
á sérnánij og nær engar líkur
eru til, að læknar, sem komnir
eru inn á þá braut, snúi sér
síðar að héraðslæknisstörfum.
En þetta veldur ekki aðeins
skorti á héraðslæknum, heldur
einnig á hæfum heimilislækn-
um hvar sem er á landinu, og
gætir þessa nú tilfinnanlega í
Reykjavik.
7. Atvinnumöguleikar erlend
is. íslenzkir læknar hafa mikla
atvinnumöguleika erlendis, og
ekki eru horfur á, að á því
verði breyting á næstunni.
Þetta bitnar vitaskuld fyrst á
þeim læknisstörfum heima fyr-
ir, sem hafa minnst aðdráttar-
afl, en til þeirra verður að
telja héraðsJæknisstörf".
Síðan ræðir nefndin í grein-
argerð sinni um læknishéraða-
skipanina og segir m.a., að fyrst
af öllu hafi verið haft í huga
„á hvern hátt mætti takast að
sniða af héraðslæknisembætt-
unum þá annmarka, sem bein-
línis virðast fæla lækna frá að
setjast í þau. en meginástæð-
an er tvimælalaust einangrunin
með margvíslegum afleiðingum
hennar, eins og lýst hefur verið
hér að framan (leturbreyting
mín, G. G. A.). Úr hinni fag-
legu og starfslegu einangrun
verður ekki dregið á annan
hátt en þann. að tveir eða
eiri læknar sitji á sama stað
og skipti með sér verkum og
vöktum“ (Leturbreyting mín,
G. G. A.).
Nefndin virðist sem sagt
halda stefnunni beint í þá höfn
sem matini finnst hún allan
tímann hafa stefnt á, þ.e. að
uppbyggingu læknamiðstöðva.
En þá sjá nefndarmenn allt I
einu þvílíkan reginboða, að
þeir snarsnúa skipi sínu og
halda beint út í hafsauga. Og
kemur hér orðrétt framhaldið
af greinargerð þeirra: „Þótt
þetta mætti takast, er einangr-
unarvandamálið samt aðeins
leyst að nokkrum hluta, og
verður engu um það spáð,
hvort sú ráðstöfun hefði veru-
leg áhrif, þótt líklegt sé, að
hún orkaði einhverju, þar sem
vel hagar til Er þegar nokkur
reynsla fyrir því, að læknar
virðast ekki b.Uu fúsari að setj
ast að úti á landsbyggðinni
(þ.e. utan P.eykjavíkur), þótt
fyrir sé læknir eða læknar á
staðnum. Hin félagslega og
menningarlega einangrun virð-
ist hér þv>' þyngst á metunum“.
(leturbreyting mín, G. A. A.).
Það er leitt, að jafnviruleg
r.efnd sem þessi skuli gera sig
seka um að fara með stað-
lausa stafi og gera hæpnar full
yrðingar að meginatriði í mál-
flutningi sínum. Það eru stað-
lausir stafir, að lækna fýsi ekki
frekar að setjast að á þeim stöð
um utan Reykjavíkur, þar sem
fyrir er læknir eða læknar. í
Keflavik og Hafnarfirði, á
Akranesi og Akureyri eru
minnst 4 læknar á hverjum
stað og einir 15 á Akureyri
(meðtaldir 2 á Kristneshæli).
Þá eru 3 læknar í Vestmanna-
eyjum (einn sennilega ekki til
frambúðar) og á Selfossi, 2
læknar á Siglufirði og Sauðár-
króki og víðar, en ég hirði ekki
um að telja þetta frekar.
og víðar, en ég hirði ekki um
Þá finnst mér vægast sagt
hæpin fullyrðing, að félags- og
menningarlíf Reykjavíkur sé
„þyngst á metunum", þegar
skýra skal læknaskort dreifbýl
isins. Og það er ekki of mikið
sagt, að nefndin geri þetta að
meginatriði i málflutningi sín-
um, því þegar að lagasmíðinni
kemur — þegar kemur að því
að draga ályktanir af forsend-
um, — þá virðast þrír fyrstu
og — áð mínu viti — veiga-
mestu liðirnir, sem allir fjalla
um afleiðingar þess, að læknar
sitja einir í hverju héraði, með
öllu gleymdir, og nefndin legg-
ur til, að á laudinu verði eftir
sem áður eingöngu „einmenn-
ings“ læknishéruð, 52 í stað 57
áður. Þó er niðurfelling a.m.k.
þriggja af þessum útkjálkahér
uðum skilyrðisbundin.
Annað bvort hefur nefndina
hreinlega skort ályktunarhæfni
eða hana hefur brostið kjark
til að ráðast gegn vandanum.
—•xxx —
En úr þvi nefndarmenn
guggnuðu á þeirri hugmynd að
steypa héruðunum saman í
stærri heildir og koma upp
læknamiðstöðvum, með hvaða
hætti hugðust þeir þá „sníða
af héraðslæknisembættunum
þá annmarka, sem beinlínis
virðast fæla lækna frá að setj-
ast í þau“?
Ég fæ ekki séð, að nefndar-
menn geri yfirleitt nokkra til-
raun til að sníða þá annmarka
af héraðaskipaninni, sem þeir
áður höfðu lýst svo fjálglega,
— en þó alveg réttilega. Ein
grein frumvarpsins gefur að
vísu heimild til að stofna lækna
miðstöðvar síðar meir, en ein-
göngu, ef öll önnur úrræði
nefndarmanna reynast hald-
laus, og mun það rætt síðar.
Þau úrræði, sem nefndar-
menn eygja eru „einhvers kon-
ar hlunnindi“, og mætti sem
bezt kalla þau bjargráð, því öll
miða þau að því að bjarga
gömlu héraðaskipaninni, — að
bjarga héraðslæknisembættun-
um í afskekktustu héruðunum
Framhald á bls. 21