Morgunblaðið - 20.07.1966, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.07.1966, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 20 júlí 1966 Hreindýraveiðar óheimilar í ár Menntamálaráðuneytið hefur ein* ©g að undanfömu látið fara - fram talningu á hreindýrahjörð- ( inni á Austurlandi. Fóru þeir [ Ágúst Böðvarsson, forstöðumað- ur Landmælinganna og Björn Pálsson, flugmaður, í flugvél yfir allt hálendið sunnan frá Lóni til Smjörvatnsheiðar og að Möðru- daisfjallgarði. Voru teknar ljós- myndir af hreindýrahópunum og síðan talið eftir myndunum. Keyndust fullorðin hreindýr vera 1896 og 494 kálfar eða samtals 2.390 dýr eða 112 hreindýrum fleira en þegar talning fór fram í fyrra. Ráðuneytið telur ekki ástæðu til að leyfa hreindýraveiðar á þessu ári og hefur í dag gefið út auglýsingu um það. Þó verða væntanlega veitt leyfi til að veiða nokkur dýr til þess að halda áfram vísindalegum rann- sóknum á heiibrigði hreindýra- stofnsins, sem Guðmundur Gísla- son læknir að Keldum hefur unn ið að undanfarin ár að beiðni ráðuneytisins. I fyrra voru ekki heimilaðar hreindýraveiðar en þar áður hafði verið leyft að veiða allt að 600 hreindýr árlega á tímaibilinu frá 7. ágúst til 20. sept- ember. En samkvæmt skýrsl- um hreindýraeftirlitsmannsins, Egils Gunnarssonar á Egilsstöð- um í Fljótsdal, sem annast eftir- lit með hreindýraveiðunum, hafði tala þeirra dýra, sem veiddust verið sem hér segir: Árið 1959 484 hreindýr, árið 1960 384, árið 1961 268, árið 1962 285, árið 1963 338, og árið 1964 300. Rannsóknum Guðmundar Gísla sonar læknis á heilbrigði hrein- dýrastofnsins er ekki svo langt komið, að hann hafi gert um þær heildarskýrslu. (Frá menntamálaráðuneytinu). 99Þar sem vinir mætasf9 þar er bezf að vera44 Stefán íslandi kominn heim eftir 38 ára útivist þeirra íslenzku söngvara, sem mesta írægð hefur hlotið erlendis, auk þess sem söngur hans hefur ætíð lifað í hjörtum íslend- inga, þar sem við höfum öðru hverju fengið að heyra hann af hljómplöt- um. Það eru liðin þrjú ár síð- an Stefán söng síðast á óperusviði, en það var í óperunni Don Carlos. Síð- an hefur Stefán verið kenn ari við Konunglega leik- húsið í Kaupmannahöfn allt þar til nú, en hann kom til landsins fyrir rétt- um 20 dögum. „Nei, ég hef ekki í hyggju að halda tónleika hér heima, eða í svipinn hef ég að minnsta kosti ekki áhuga á því. Ég hef verið ráðinn við Tónlistar- skólann í Reykjavík, þar sem ég mun kenna söng“, segir Stefán ennfremur. „Ég veit ennþá ekkert um það, hvernig mér muni farnast þar, en hitt er víst, að hér eru til góðir söng- kraftar, sem með góðri músíkþjálfun, ættu að verða frambærilegir hvar sem er“. „ÉG veit það ekki ennþá, hvernig er að vera kominn heim aftur, en þó efast ég ekkert um að mér muni líða vel. Hér þykir öllum vænt um okkur og eru okk ur góð, og þar sem vinir mætast, þar er ávallt bezt að vera“. Það er Stefán íslandi, sem mælir þessi orð, en hann er nú alkominn heim ásamt fjölskyldu sinni eft- ir 38 ára útivist. Hann fór þá út til Ítalíu til náms, og hefur síðan sungið í óper- um víða um Evrópu. Þó hefur hann lengst dvalið í Danmörku, þar sem hann söng við Konunglegu óper- una um nær 30 ára skeið. Er Stefán án efa einn Stefán íslandi ásamt konu sinni, Kristjönu Sigurðardóttur. (Ljosm. Mbl.: Sv. Þ.) Reykjaborg nær góðum ár- angri með ísun á söltunarsíld það kleift, að koma ísnum í lestina án mikillar fyr- Seyðisfjörður, 19. júlí. 1 FyRBINÓTT komu tvö skip með söltunarsíld til Seyð- isfjarðar, Reykjaborg með 80 tonn og Arnar með 110 tonn tlr Reykjaborg söltuðust 358 tunnur uppsaltaðar, en úr Am- ari ekki nema 275 tunnur. Síid- in úr báðum bátunum var stór og falleg en langt að komin. Elzta síldin mun hafa verið um 40 tíma gömul, er hún var sölt- uð. Báðir bátarnir lönduðu með krabba og skemmdist því svipað magn af síld hjá báðum við löndun. Það sem gerir þennan mikla mun á nýtingu er vafa- lítið að síldin úr Reykjaborgu var ísuð en ekki síldin úr Am- ari. Glöggir menn hafa lengi tal- ið að hægt væri að flytja síld til Stjórnskipuleg- ur neyðar/éttur — sérprentun d erindi dr. Bjarna Benediktss. ÚT er komin á vegum „Uni- versitetsforlaget" sérprentun úr norræna lagatíamritinu „Tids- skrift for Rettsvitenskap“ á er- indi, sem dr. Bjarni Benedikts- son, forsætisráðherra flutti á móti norrænna laganema og lögfræðinga sem haldið var í Reykjavík 1964. Fjallar erindið um stjórriskipulegan neyðarrétt og var birt í tímaritinu nú í ár. söltunar mun lengri leið, ef hún væri ísuð, en þegar hún er ó- kæld. Erfiðleikarnir hafa legið í því, að litlir eða engir ísklef- ar eru í bátunum, en sérstak- lega hefur gengið illa að kasta ísnum í síldina um leið og hún er háfuð. í Reykjaborg er síldar dæla, sem dælir síldinni úr nót- inni. Frá henni er renna, sem flytur síldina ofan í lest. Fram- undir hvalbak er ísvél og undir henni er 20 tonna vel einangrað- ur ísklefi og í honum eru tveir blásarar er halda allt að 25 gráðu frosti. í einu horni klef- ans er amerískur ísblásari, sem blæs skelís fram í lest; Sam- hliða síldarrennunni er ísrenna og blandast þannig ísinn í síld- ia jafnóðum og henni er dælt um borð. Þessi ísblásari gerir irhafnar, þar sem aðeins einn mann þarf til að moka ísum í blásarann. Sl. vetur seldi Reykjaborg ís- aða síld í Þýzkalandi, sem lík- aði mjög vel, enda seldist hún fyrir hátt verð, Sveinn G. Beirut, 19- júlí — AP RÍKISSTJÓRN Baathsósíalista- flokksins í Sýrlandi hefur látið handtaka 150 hægri sinnaða stjórnmálamenn og eru nokkrir fyrrverandi ráðherrar á meðal þeirra. Skýðu dagblöð í Beirut, höfuðborg Líbanons frá þessu í dag. Ekki voru færðar neinar ástæður fyrir handtökunum. í gær var SV átt hér á Austfjörðum og auk þess á landi. Skúrir voru um mest- austanverðu N-landi. Stillt, an hluta landsins en bjart- bjart og hlýtt veður var á viðri var á NA- landi og Norðurlöndum. Gemini 10 fjær jérðu en önnur inonnuð geimför Cape Kennedy. 19. jú!í. — NTB-AP: GEIMFARARNIR John Yoúng og Miehael Collins héldn í dag áfram ferðalagi sínu umhverfis jörðu í geimfarinu Gemini 10. Komuzt þeir f jær jörðu en nokk urt mannað geimfar hefur gert itl þessa eða í 763 km. hæð. — Hins vegar er gert ráð fyrir, að skortur á eldsneyti muni komi í veg fyrir að þeir geti framkvæmt allar þær tilraunir með geim- fari sínu, sem upphaflega voru áformaðar. Geimfararnir eyddu alltof miklu eldsneyti við það að elta uppi Agenaeldflaug þá, sem skot ið var upp 1 klst. og 40 mín. eft ir að geimförunum sjálfum var skotið upp frá Kennedyhöfða. Var talið m.a að Collins yrði af þessari ástæðu að hætta við að fara út úr geimfarinu og taka sér klukkustundar gönguferð í geimnum tii þess að ljósmynda. Seint í kvöld var tilkynnt, að hann hefði stigið til hálfs út úr geimfarinu og væri byrjaður að taka myndir. Átti hann að taka myndir af stjörnum, skýjamynd unum, sj óndeildarhringnum, sem og jörðunni. Hins vegar var þá ekki ráðgert að hann yfirgæfi geimfarið. Er þetta gerðist voru þeir félagar staddir yfir Atlants hafi í 386 km. hæð. Tokyo, 19. júlí — AP UTANRÍKISRÁÐUNEYTI Jap- ans tilkynnti í dag, að það hefði lagt bann við innflurtningi á sykri og járngrýti frá Rhódesíu. Með þgssari ráðstöfun eru kaup Japana á vörum frá Ródesíu nær engin orðin. Jónas J. Snæ- björnsson látinn HINN kunni brúarsmiður og kennari Jónas J. Snæbjörnsson er látinn. Hafði Jónas veikzt á ferðalagi og var fluttur á sjúkra hús Hvítabandsins, þar sem hann lézt sl. mánudagskvöld. Jónas J. Snæbjörnsson var fæddur 21. marz 1890 í Svefn- eyjum í Breiðafirði. Hann lauk sveinsprófi í trésmíðum árið 1912 og var eitt ár við smíða- og teikninám í Kaupmannahöfn. Smíða- og teiknikennari var hann við Menntaskóla Akureyr- ar frá 1914. A sumrin var Jónas verkstjóri við hús, brýr, og vita og smíðaði m.a. kirkjuna í Flatey á Breiða- firði 1926. Kunnastur var Jónas fyrir brúarsmíði sína, en hann smíðaði margar stærstu brýr norðanlands, m.a. brúna á Jök- ulsá í Axarfirði. Eftirlifandi kona Jónasar er Herdís Símonardóttir. Börn þeirra eru Brjánn Jónasson skrif stofumaður, Valborg Jónasdótt- ir húsfrú og Snæbjörn Jónas- son yfirverkfræðingur, hjá Vega gerð ríkisins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.