Morgunblaðið - 06.08.1966, Blaðsíða 2
2
MORGU N BLADIÐ
Laugai'dagur 6. ágúst 1966
Lágt markaðsverð á
grásieppuhrognum
R£iklar birgðir íyrra árs
framleiðslu erlendls
Mbl. hefur fregnað, að sala
saltaðra grásleppuhrogna til út-
landa hafi gengið illa, það, sem
af er á þessu ári. Munu markaðs
horfur erlendis nú langt frá því
góðar.
Verð erlendis á grásleppu-
hrognum hækkaði skyndilega
mjög mikið á síðasta ári, en þá
hófust grásleppuveiðar seint.
Munu erlendir kaupendur þá
hafa talið, að veiðar myndu
bregðast, og því lagt allt kapp
á að tryggja sér nægar birgðir,
og boðið hver í kapp við annan.
Afleiðingin varð sú, að verðið
sem um það bil tvöfaldaðist,
þegar bezt lét, varð mönn-
um mikil hvatning til veiðanna
þá, og í fyrra var selt mun
meira af söltuðum grásleppu-
hrognum úr landi, á hærra verði
en næstu ár á undan.
Hátt verð hrognanna leiddi til
hærra verðs svonefnds „kaví-
ars“, sem úr hrognunum eru
framleidd, en af því mun aftur
hafa leitt meiri eða minni sölu-
tregðu erlendis.
Því raunu^ stærstu framleið-
endur erlendis nú liggja með
miklar birgðir grásleppuhrogna
frá síðasta ári, og hafa því lít-
inn eða engan áhuga sýnt á kaup
um, ef frá eru taldar tæplega
3000 tunnur, sem seldust snemma
á þessu ári.
Má því reikna með, að hátt
útflutningsverð hrogna á liðnu
ári hafi reynzt mönnum fölsk
hvatning til aukinnar fram-
leiðslu þeirra á þessu ári. Kem-
ur þar einnig til hörð samkeppni
frá Noregi og Danmörku (Græn
landi), en hrogn frá þessum
löndum eru nú boðin á erlend-
um markaði á mjög lágu verði,
en sala þeirra gengur þó treg-
lega.
Umgengni veiðimanna
við Blöndu ábótavant
UMGENGNI laxveiðimanna
við Blöndu hefur verið mjög
ábótavant undanfarin ár, og
hafa fjáreigendur á Blönduósi
jafnvel orðið að lóga fé sínu
vegna þess, að önglar hafa festst
í sauðkindum og valdið mikilli
ígerð. Einnig hefur nylongirni
vafizt um fætur kindanna og
skorizt inn í holdið sökum stöð-
ugs núnings og að sjálfsögðu
valdið þeim miklum kvölum.
Blaðið hafði samband við
Soffíu Stefánsdóttur á Blöndu-
ósi, konu Jósefs Indriðasonar
verkamanns þar, en þau hjón
eiga um 20 kindur og hafa orð-
ið fyrir barðinu á óaðgætni
veiðimanna við Blöndu. Sagði
Soffía, að fyrir tveimur árum
hefðu þau hjón orðið að lóga
þremur kindum vegna ígerðar,
sem stafaði af önglum föstum
í fótum eða kvið, og sem lax-
veiðimenn höfðu fleygt á bakka
Blöndu. Hafa þau hjónin, að
sögn Soffíu, gert sér vikulega
ferðir upp með Blöndu í vor
og fundið nokkrar kindur og
lömb, sem haltar voru orðnar
vegna „spóna“ er krækzt höfðu
í fætur þeirra. Tókst hjónun-
um að græða sárin og hafa ekki
misst neina kind í vor eða sum-
ar.
Hins vegar fundu þau við rún
ingu fjárins í sumar, „spón“
sem fests hafði í kviðarull eins
lambsins, en hafði ekki enn
náð að höggvast inn í kviðinn.
Stór girnisdræsa hafði einnig
vafizt um fót annarrark indar
og skorizt inn úr holdinu.
Hirðuleysi eins og laxveiði-
menn hafa gert sig seka að við
Blöndu og efalaust víðar, er að
sjálfsögðu vítavert, og getur
ekki einungis valdið bændum
og fjáreigendum tjóni, heldur og
skepnunum miklum pjáningum.
Ingólfur Jónsson landbúnaðarráðh. (annar f.v.) ásamt forystumönnum búnaðarmála á Norður
löndum er ráðstefnuna sitja.
Frá norræno búfrædiþinginu:
24 fyrirlestrar um áburöarnotkun,
heyburrkun, kvikfjárrækt o.fl.
í GÆR voru fluttir 24 fyrir-
lestrar á norræna búfræðiiþing-
inu, sem stendur yfir í Háskóla
íslands, Hófust fyrirlestrar kl. 9
á 5 stöðum í háskólanum og voru
fluttir 24 fyrirlestrar um bú-
fræðileg málefni. Voru fyrirles-
arar innlendir og erlendir sér-
fræðingar í ýmsum greinum bú-
vísinda.
í 1. kennslustofu flutti Ingólf-
ur Davíðsson fyrsta fyrirlestur-
inn um plöntusjúkdóma á ís-
landi. I>á talaði Daninn Chr.
Stapel um fræðslustarfsemi á
sviði plöntusjúkdóma og mein-
dýra og ásamt Svíanum H. Hell-
quist fjallaði hann um sjúkdóma
og meindýr í kálrótum. Þá voru
fluttir fyrirlestrar um kartöflu-
rækt, en um það fjölluðu Daninn
K. Lindhardt, Norðmaðurinn H
Röed og Daninn Rönde Kristen-
sen, sem talaði um kartöfluvír-
usa. Og eftir kaffihlé var við-
fangsefnið gróðurhúsarækt. Töl-
uðu Danirnir N. Paludan og K.
Lindhardt um sjúkdóma í gróð-
urhúsum.
í 6. kennslustofu var fjallað um
áburðamotkun og gæði uppsker-
unnar. Fluttu fyrirlestra um ýmis
atriði varðandi það Finninn A.
Jantti, Norðmaðurinn A. Sorte-
berg og Daninn Aage Henriksen.
Eftir hádegishlé flutti dr. Bjarni
Helgason fyrirlestur um jarð-
vegstegundir á íslandi. Og Norð-
maðurinn dr. J. Lag talaði því
næst um jarðveg í Evrópu og
loks flutti Svíinn L. Wiklander
fyrirlestur um steinefni í jarð-
veginum og fleira.
HIN nýja kirkja í Ilornafiröi
var vígð í fyrri viku. Hér
hirtum við mynd af kirkj-
unni. Sjálf kirkjan tekur
.220—230 manns í sæti, og
safnaðarheimilið í útbygg*
ingunni fremst á myndinui
tekur um 100 manns. Þrjár
klukkur eru í turninum og á
honum upplýstur kross. Og
gluggarnir sín hvoru megin
út frá turninúm eru með lit-
uðum glerlistaverkum, sem
gerð voru í Þýzkalandi. Arki
tekt kirkjunnar er Ragnar
Emilsson.
(Ljósm.: Anna Þórhallsd.)
1 2. kennslustofu var rætt um
þurrkun á grasi, og fjallað um
ýmsar aðferðir. Norðmaðurinn
Kare Time, Svíinn G. Aniansson
og Daninn Hans R- Junge fluttu
fyrirlestra um ýmsar þurrkunar-
aðferðir.
1 10. kennslustofu var fjallað
um sauðfjárrækt. Stefán Aðal-
steinsson flutti fyrsta fyrirlest-
urinn um aðferðir við afkvæma-
ranns'óknir. Þá flutti Árni G.
Pétursson yfirlit yfir framleiðslu-
aukningu í sauðfjárrækt á ís-
landi undanfarin 10 ár. Norð-
maðurinn Trygve Gjedren talaði
um afkvæmarannsóknir í Noregi
og Finnirm Viljo Vainikainen um
sauðfjárrækt í Finnlandi.
Eftir hádegishlé flutti Þórir
Baldvinsson fyrirlestur um fjár-
húsbyggingar. Og á eftir fóru
fram umræður.
í 7. kennslustofu flutti Torfi
Ásgeirsson fyrirlestur um stöðu
jarðræktanþjóðhagfræði á ís-
landi og Zophonias Pálssoh um
íslenzk skiplagsmál og eftir mat-
arhlé talaði Björn Stefánsson um
samnorræn rannsóknarstörf á
íslandi.
í gærkvöldi sátu fulltrúar
þingsins boð hjá landbúnaðar-
málaráðherra, Ingólfi Jónssyni.
í morgun lögðu fundarmenn
af stað í ferðalag um Suðurland
og Borgarfjörð í tveimur hópum.
Mun annar gista á Laugarvatni
og hinn á Skógum. Munu þeir
koma á ýmsa staði, og skoða m.a.
búin í Gunnarsholti, á Hesti, á
Hvanneyri og heimsækja nokkra
bæi. Skoðað verður gróðurhús,
mjólkurbú, haldinn umræðu-
fundur á Selfossi og fleira.
Sparisjóðurinn reisir hús
að Skólavörðustíg 11
Unnið að því að rífa fyrsta steinhús
borgarinnar, sem þar stendur
UNNIÐ hefur verið að því að
undanförnu að rífa húsið að
Skólavörðustíg 11, þar sem
Sparisjóður Reykjavikur, sem á
lóðina, ætlar að reisa þar ný-
byggingu. Hús þetta sem nú er
verið að rífa, er rúmlega aldar-
gamalt, fyrsta steinhúsið í
Reykjavík, og á sér því merka
sögu. Mun hafa staðið til að
fiytja það að Árbæ, en síðan
horfið frá því.
Að því er Hörður Þórðar-
son, skrifstofustjóri Sparisjóðs-
ins, tjáði Mbl., þá verður hús
það, sem þarna á að rísa, þrjár
hæðir, og gólíflöturinn 320 fer-
metrar. Húsið mun standa eitt
sér en ekki samibyggt á lóðinni
milli Grettisgötu og Skólavörðu-
stígs. Er ráðgert að Sparisjóður-
inn verði á fyrstu hæð hússins,
og kjallara, en hinar tvær efri
hæðirnar verði leigðar út. Standa
vonir til að framkvæmdum við
nýbygginguna verði að mestu
lokið eftir um ár. Gunnlaugur
Halldórsson og Guðmundur Krist
jnsson hafa teiknáð húsið.
Hópferð með garðyrkju-
mönnum um einkagarða
GARÐYRKJUFÉLAG ÍSL.ANDS
gengst fyrir hópferðum í ágúst-
mánuði til að skoða fallega ein-
staklingsgarða í Hafnarfirði,
Kópavogskaupstað og Reykjavík,
og ennfremur grasagarðinn í
Laugardal.
Öllum er heimil þátttaka í
þessum hópferðum.
Mörgum mun vera hugleikið
að skoða marga fegurstu garða
Reykjavíkur og gefst hér gott
tækifæri til þess. Einnig eru
fallegir garðar í Kópavogskaup-
stað og sjálfsagt munu margir
nota þetta einstaka tækifæri til
þess að skoða garðana í Hafn-
arfirði með sínu sérstæða og
margbreytilega landslagi.
Hér kemur svo áætlunin:
Laugardaginn 6. ágúst:
Farið verður frá Miðbæjar-
barnaskólanum kl. 2 e.h. til
Kópavogskaupstaðar og Hafnar-
fjarðar.
Laugardaginn 13. ágúst:
Farið frá Miðbæjarbarnaskól-
anum kl. 2 e.h. og skoðaðir girð
ar í Reykjavík.
Laugardaginn 20. ágúst:
Mætt við grasgarðinn í Laug-
ardal kl. 2 e.h. og garðurinn skoð
aður.
í Öllum þessum ferðum verða
valinkunnir leiðsögumenn.