Morgunblaðið - 06.08.1966, Síða 14

Morgunblaðið - 06.08.1966, Síða 14
14 MORCU N BLAÐIÐ Laugardagur 6. ágúst 196« Örn Bjarnason, læknir, Vesfmannaeyjum: Hópstarf lækna og heilsugæzlustöður FYRIR skemmstu birtist í dag- blöðúnum grein eftir Gísla G. Auðunsson iækni, er hann nefndi Læknaskortur dreifbýlisins frá sj ónarhóli ungs læknis. Á hann þakkir skilið fyrir að kynna þetta mál, þvi allt Oif lítið hefur heyrzt frá læknum fram a'ð þessu opinberlega. Hafa þó verið miklar umræður um þessi mál innan stéttarinnar og undirbún- ingur hafinn til latisnar þessa vanda. Varðandi þau atriði, sem hér eru ekki rædd, vísast til greinar Gísla. í greininni bendir hann rétti- lega á, að sá vandi, sem nú steðj- ar að, verði aðeins leystur, ef læknar sjálfir taki málið í sínar hendur og fyrsta skrefið sé mynd un samstarfshópa. Hópstarf erlendis Samstarfshópar eru ýmist skip aðir almennum læknum (heim- ilislæknum) eða sérfræðingum og víða er algengt að heimilis- læknar og sérfræðingar starfi saman í hóp. Slík hópstarfsemi hefur gefizt vel og eykst hröðum skrefum. í Englandi var fjór’ðungur al- mennra lækna í hópstarfi fyrir 15 árum, en nú er aðeins fjórð- ungur þeirra, sem starfar sjálf- stætt. Eru það læknarnir sjálfir, sem hafa haft forgöngu um myndtm hópa. Finnar, sem búa við lækna- skort eins og við, hafa stuðlað að myndun slíkra hópa, með því að stækka héruðin og færa lækn- ana saman. í Svíþjóð stofnaði læknafélag- ið sérstaka sjóði, sem standa undir byggingu læknahúsa, þar sem fer fram hópstarf allra lækna, er starfa utan sjúkrahúsa, í samkeppni við móttökur (poly- klinik) sjúkrahúsanna. Undirbúningur hérlendis Læknum hefur lengi verið ljóst, að ýmsu er ábótavant 1 lækniaþjónustu, vegna annmarka á skipulagningu læknisstarfa. Hefur undirbúningur veri'ð haf- inn að þeim breytingum, sem nauðsynlegar eru, til þess að leysa læknaskortinn og bæta þjónustuna. „í Reykjavík hefur Læknafé- lag Reykjavíkur látið sig skipu- .agningu læknisþjónustunnar talsvert varða á undanförnum árum. Má þar nefna læknaþjón- ustunefnd félagsins, sem starfað hefur í nokkur ár. Á vegum Reykjavíkurborgar hefur einnig starfað nefnd um það bil háift annað ár, er fjallar um skipulag læknisþjónustu borgarinnar. Loks skal þes sgetið, að læknar í Reykjavík hafa sjálfir gert ýms- ar ráðstafanir til hagræðingar læknisþjónustu á stofum sínum, enda þótt ekki sé enn starfandi hópsamvinna í eiginlegri merk- ingu þess orðs. Slíkur samstarfs- hópur mun þó væntanlega hefja starfsemi í Domus Medica á iþessu ári“. (Læknablaðið, 1. hefti 1966). Utan Reykjavíkur er mikil hreyfing komin á þetta mál. Má nefna að á Saúðárkróki eru læknarnir tveir, sem þar sitja, að undirbúa samvinnu, með sam- eiginlegri vinnuaðstoð og í haust munu tveir læknar fara til Húsa- víkur og setja upp læknamið- stöð. Hér í Vestmannaeyjum hefur tekizt samvinna tveggja lækna í sameiginlegu húsnæði og þegar fulilnægjandi húsnæði, tæki og aðstoð verður fyrir hendi, verð- ur tekin upp hópsamvinna allra læknanna á staðnum. Gerður hefur verið tillöguupp- dráttur að heilsuverndar- og læknamíðstöð (heilsugæzlustöð) og hefur bæjarstjórn samþykkt að reisa slíka stöð og veitti á síð- Beztu þakkir fyrir auðsýnda vináttu, skeyti, blóm og gjafir á sjötíu ára afmæli mínu 22. júlí sl. Maríeinn Ólafsson. Móðir mín, tengdamóðir, amma, og fóstra, REBEKKA ÓLAFSDÓTTIR verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 8. ágúst og hefst athöfnin kl. 10.30 f.h. — Athöfninni verður útvarpað. Hansína Sigurðardóttir, Magnús Magnússon, Kristján Magnússon, Rebekkp Magnúsdóttir, Páll Daníelsson, Rannve'g Jónasdóttir, Ásta Jónasdóttir, GuðbjÖrg Birkis, Ingibjörg H. Jónsdóttir, Ilansína Bjarnauottir. þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför EINARS GUÐMUNDSSONAR ustu fjárhagsáætlun 1 milljón króna til framkvæmdanna og jafnframt óskað eftir því, að rík- ið leggi fram fé ú móti, eftir sörnu reglum og um sjúkrahús. Hefur verið leitað til landlæknis, sem hefur tekið málaleitaninni mjög vinsamlega og mun málið nú í athugun hjá ráðuneyti og húsameistara. Nýskipun mála Eðlilegt er, að nokkurn ótta setji að mörgum, þegar miklar breytingar eru í vændum. Menn spyrja, hvort óhætt sé að láta ungu læknana hafa frjáls- ar ihendur um þessi mál. Því er til að svara, að í hinu nýja skipulagi vedður allt það bezta varðveitt úr gamla kerfinu og við erum ekki að koma með neitt það, sem ekki hefur sannað ágæti sitt annars staðar. Skipu- lag, sem notað er víða erlendis með góðutn árangri, verður tek- ið upp og aðlagað íslenzkum staðtoáttum og þjóðlífi. Hópsamstarf almennra lækna Hópsamstarf almennra lækna (group practice) merkir, að heim ilislækningar eru stundáðar af almennum iæknum, sem starfa mjög náið saman, leita ráða hver hjá öðrúm um rannsóknir og meðferð og hafa sameiginlega spjaldskrá yfir sjúklinga, en sjúklingi er heimilt að leita til þess læknis, sem hann óskar. Hópurinn hefur nokkra starfs- skiptingu, þannig að læknarnir kynna sér sérstaklega eina eða fleiri greinar læknavísindanna. Hópurinn hefur sameiginlegt húsnæði fyrir starfsemina í læknamiðstöð (medical centre) og stjórna þeirri stofnun sjálfir. Slíkur hópur nýtur aðstoðar sérþjálfaðra aðila: 1. Einkaritari, sér um að vél- rita öll bréf, vottorð og skýrslur og að spjaldskrá sé í röð og reglu og ritarinn er tengiliður milli að- stoðarfólksins og læknanna inn- byrðis og sér um skipulagningu hins daglega starfs. 2. Sé vinnuálag ekki mikið, getur ritarinn annast móttöku sjúklinga og símavörzlu, ella verður að ráða stúlku til þeirra starfa. 3. Hjúkrunarkonur aðstoða læknana við störf þeirra, svo sem við slys og smærri aðgerðir og við skoðanir, sem ekki verða framkvæmdar án hjáipar eða nærveru hjúkrunarkonu. Annars vinnur hún sjálfstætt, skiptir á sárum, gefur flestar sprautur, sér um alla sótthreinsun og sér um ýmsar einfaldari rannsóknir. 4. Læknamiðstöðvar, sem liggja fjarri stórum rannsókna- stofum, þurfa að geta annazt slíka þjónustu og hefur því á að skipa sérþjálfuðum aðila í þess- um efnum (laborant). í stuttu máli má segja, að þannig er heimilislæknum búin lík vinnuskilyrði og sjúkrahús- læknar hafa. Nökkvavogi 32. Rósamunda Jónsdóttir, dætur, fóstursonur. Hjartans þakkir færum við öllum þeim, er auðsýndu okkur samúð við andlát og jarðarför móður okkar, JÓHÖNNU VALENTÍNUSDÓTTUlt frá Bifröst, Ólafsvík. Ennfremur þökkum við hjúkrunar- og starfsfólki, her- bergissystrum og öllum þeim er heimsótlu hana á Elli- heimilið Grund. Baldur Guðbrandsson, Skarphéðinn Guðbrandsson, Torfhildur Guðbrandsdóttir. Heilsugæzlustöðvar En breytingarnar þurfa að vera víðtækari, ef þær eiga að koma að fullu gagni, því lækn- ingar eru aðeins einn þáttur læknisþjónustunnar. Til þess að starfskraftar lækn- anna nýtist vel og öll læknis- þjónusta komi að sem beztum notum, þarf hópsamvinna heim- ilislæknanna að ná til allrar al- mennrar læknisþjónustu, sem fram fer utan spitala. Fyrir slíka starfsemi þartf að koma upp sérstökum stofnunum, heilsugæzlustöðvum. Slíkar heilsugæzlustöðvar, sem tíðkast víða í Englandi, eru þann ig uppbyggðar, að þær sameina undir eirtu þaki læknamiðstöð, eins og að framan er lýst, og heilsuvemdarstöð fyrir mæðra- eftirlit og barnaskoðun, sjúk- dómavarnir o. s. frv. >á er þar húsnæði ætlað almennri tann- læknaþjónustu, aðstaða til að taka röntgenmyndir, sinna smærri slysum og gera minni- háttar aðgerðir. Hið daglega starf Mjög misjafnt hlýtur að vera á hvaða tíma starfstfólk heilsu- gæzlustöðvar er við vinnu, eftir því hvort um er að ræða kaup- stað eða hverfi í borg eða á hinn bóginn sveit eða kauptún. í kaupstað má hugsa sér að stö'ðin sé opin frá klukkan 8 að morgni til klukkan 6 að kveldi. Símaþjónusta hefst klukkan 8, en klukkan 8:30 eða 9 byrja læknar að taka á móti sjúkling- um. Klukkan 10 hittast þeir á skrifstofunni, bera saman bækur sínar og skiptast á upplýsingum. Að því búnu fara þeir í vitjanir og ljúka þeim fyrir næsta stofu- tíma, sem gæti veri'ð frá klukk- an 14. Símaviðtalstími er alltaf hinn sami hjá hverjum lækni. Endra- nær er læknirinn aðeins ónáðað- ur í aðkallandi nauðsyn og síma- stúlkan tekur niður öll skilaboð, t.d. beiðnir um endurnýjunarlyf- seðla, fyrir lyif, sem sjúklingur á að nota að staðaldri, beiðnir um vitjanir og viðtöl á stofu. Þriðji stofutíminn gæti verið milli klukkan 6 og 7 á kvöldin og gætu læknar skipzt á um að vera vfð á þeim tíma, enda skipta þeir meá sér kvöld- og næturvöktum. Tímapantanakerfi Til þess að losna við alla þá sóun á tíma sjúklinga, sem nú iíðkast, verður viðhötfð tima- pöntun. Er þá hægt að panta tíma dag- inn áður eða sama dag. Sé upp- pantað hjá þeim lækni, sem sjúklingurinn kýs helzt að tala við og viðkomandi læknir getur ekki skotið honum inn á milli, á sjúklingurinn þess völ að bíða, þar til læknirinn getur sinnt honum, t.d. næsta dag eða annar læknir úr hópnum tekur að sér að leysa vanda hans. Komi í Ijós að sjúklingur þarf á ýtarlegri rannsókn að halda, en tíminn leyfir, er hann látinn koma aftur sama dag eða næsta og þá ætlaður ríflegri tírni. Vel uppbyggt tímapantana- kerfi tryggir það, að sjúklingur kemst að á réttum tíma, læknir- inn hefur næði til þess að <ala við hann, skoða og skrá athuga- semdir á spjaldskrá hans, enda er hann laus við allt óþarft kvabb. Spjaldskrá Allar upplýsingár um sjúk* linga eru skráðar á sérstök spjöld og þeim fylgja bréf frá sjúkraihúsum, álit sérfræðinga, vottorð og skýrslur, Eru þannig á einum stað að finna allar upp- lýsingar um sjúklinginn. Flytji sjúklingur burt eru öll plöggin send til vfðkomandi heilsugæzlumiðstöðvar. Sérfræðiþjónusta Þar sem ekki eru starfandi sér- fræðingar, þarf að gera ráð fyrir að þeir komi öðru hverju, til að rannsaka sjúklinga, að tilvísun heimilislæknanna. Er að því augljóst hagræði fyr- ir alila aðila. í fyrsta lagi hittir sérfræðing- urinn sújklinginn við beztu skil- yrði. Hann fær aðgang að öllum upplýsingum um fyrri rannsókn- ir og me'ðferð og hann nýtur að- stoðar heimilislæknisins, sem að jafnaði þekkir sjúklinginn betur en nokkur annar. f öðru lagi væri hægt, að kom- ast hjá að senda nema mjög fáa sjúklinga til Reykjavíkur, miðað við það, sem nú er og má þannig spara sjúklingum óþarfa útgjöld og vinnutap. í þriðja lagi myndu þannig fást starfsskilyrði fyrir marga af þeim sérfræðingum, sem erlendis dveljast. Því að ef gert er ráð fyrir, að allir þeir, sem erlendis eru og ekki hafa tekið sér fasta búsetu þar, kæmu heim á næsta áratug, má búast vi'ð að þröngt yrði um þá í þéttbýlinu. Vitað er, að langflestir þeirra, sem erlendis eru við sérfræði- nám hyggjast koma heirn, séu starfsskilyrði fyrir hendi. Og það er okkar, sem heima störfum að búa þekn viðunandi skilyrðL Lokaorð Það sem hér hefur verið rakið, eru aðeins fá atriði í iausn mikils vandamáls. Miklu varðar áð þjóð in skilji, hvað það er, sem yngri læknar vilja gera og munu gera, ef þeim er veitt tækifæri til þess, því þær breytingar, sem hér hefur verið iýst, munu brátt komast á og verður það aðeins háð áhuga almennings hversu fljótt og víða það verður. Skarphéðinn Bfarna- son — Hvammsfianga F.: 2. ágúst 1885. — D.: 13. maí 1966. Áægti vinur, laus við sviða sára, sézt ekki skuggi ncinn á kynningunni. Þakka ég fyrir fjörutíu ára, falslausa tryggð og gleðst í minningunni. Yndi þitt var að segja öðrum sögur, sagðir þær vel, því traust þú áttir minni. Ljóðelskur mjög, og bjóst til hnittnar bögur, blindur þú hlúðir vel að konu þinni. Aðstoð var hoðin ykkar hjóna beggja, aðrir ef þurftu hjálp í stærsta vanda. Mállausum dýrum lið þið vilduð leggja, ljósmóðurstörf þar kröfðust nettra handa. Þið höfðuð bæði þungan kross að bera, þjakaði margt, en söm vai karlmanns lundin, glaðlynd og samhent virtust ætíð vera, vinan þín horfna mætir bak við sundin. Vinur minn kæri, þú varst sveitar sómi, sakna ég þín, en geymi minninguna, þorpsbúar segja einnig einum rómi: ástkærar þakkir fyrir kynninguna. Vinur. (Þessi erindi voru flutt yfir kaffiborðum, er erfi hans var' drukkið á Hvamxnstanga laugardaginn 21. maí 1966).

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.