Morgunblaðið - 06.08.1966, Page 16
16
MORGU N BLAÐIÐ
taugardagur 6. ágúst 1966
Hinir geysivinsælu TOXIC leika fyrir dansi.
^ Hin efnilega hljómsveit „FLAMINGO“ lætur
til sín heyra.
Ný hljómsveit kynnt.
(Hún mun koma á óvart).
Munið að: Hvar sem Toxic fer, þar f jörið er.
P.s. Það verða líka kynntir tveir nýir þjóðlaga-
söngvarar, svo að í kvöld verða þrjár hljómsveit-
ir og tveir þjóðlagasöngvarar.
ALLIR í IÐINIÓ í KVÖLD
8TÓRDAIM8LEIK1JR
í KVÖLD í
IÐNÖ
Kappreiðar „HARÐAR44
Hinar árlegu kappreiðar félagsins verða við Arnarhamar,
sunnudaginn 14 .ágúst og hef ja st kl. 2,30 síðdegis.
Keppt verður í: 250 m skeiði — 250 m nýliðahlaupi —
300 m stökki — 400 m stökki.
Einnig fer fram góðhestakeppn i og naglaboðreið á milli Kjalar
ness, Mosfellssveitar og Kjósar.
Þátttaka tilkynnist Kristjáni Þ orgeirssyni, Leirvogstungu eða
Bjarna Kristjánssyni, Reynivöllum, fyrir miðvikudag, 10. ágúst.
Félagsreiðtúrinn verður farinn sunnudaginn 21. ágúst nk.
STJÓRNIN.
Haf nfirðingar
Þá loksins einnig í Hafnarfirði
KílóhreSnsun
Flióthreinsun
Það er einungis unnin 1. flokks vinna
fyrir Hafnfirðinga í
Komið með
allan fatnað
ykkar í
ykkar eigin
EFNALAUG
H.AFNARFJARÐAR
Gunnarssundi 2.
Sími 50389.
Efnaluug HafnfSrðSnga
Ath.: Sama verð hjá okkur og í Rvík.
Um lýðræöi /
prestskosningum
og Möðruvallamál hin nýju
Enginn efast um, að Bern-
harði Stefánssyni fyrrverandi
alþingismanni gangi gott til að
reyna að bera í bætifláka fyrir
séra Ágústi Sigurðssyni í kosn-
ingamáli hans, sjá grein í Degi
9. júlí sl., en vafasamur greiði
er honum þó gerður með því að
ræða mál hans opinberlega,
enda sýnist Bernharð naumast
vera málavöxtum svo vel kunn-
ur, að hann geti um þetta mál
dæmt af skynsemi. V'\rða því
vangaveltur hans um lýðræði
í þessu sambandi mjög út í hött.
Bernharð slær því föstu til að
byrja með,„að séra Ágúst hafi
verið ,kosinn lögmætri kosn-
ingu“ í Möðruvallaklausturs-
prestakalli, og í öðru lagi, að
misfellur á kosningunni hafi
verið „hégóminn einber", en úr
þessu vilja kærendur einmitt
fá skoriij af dómstólnum. Og
þar sem saksóknari ríkisins eða
fulltrúi hans hefur nú fyrir-
skipað rannsókn í málinu, virð-
ist hann ekki vera eins viss um
þetta og Bernharð, annars hefði
hann látið rannsókn niður falla.
Það kemur kjarna málsins ekk-
ert við, þó að héraðsdómari hafi
vegna kunningsskapar við
kærða færst undan að þurfa að
dæma í málinu. Slíkt getur ver-
ið eðlilegt og segir ekkert til
um sök eða s^ýknu.
Kærendum þykir það dálítið
óvenjulegt athæfi af manni, sem
sækir um embætti í íslenzku
þjóðkirkjunni, að sækja kosn-
ingu sína með þvi ofurkappi,
að leitast við með brellum að
láta þá fylgismenn sína kjósa,
sem aldrei hafa verið löglega
settir á kjörskrá og yfirkjör-
stjórn hefur úrskurðað, að ekki
eigi að hafa kosningarétt. Er
þetta auðvitað fyrst og fremst
frámunalega heimskulegt, og
ber vitni um meiri vanþekk-
ingu á reglum, sem um kosn-
ingar gilda, en ætlandi er full-
orðnu fólki, enda hefði kosning
í viðkomandi sókn orðið ógild,
ef formaður kjörstjórnar hefði
ekki komið í veg fyrir það. Enn
hitt sýnist þó öllu meiri ófyrir-
leitni og alvarlegra brot á vel-
sæmi, þegar presturinn sendir
föður sinn, farinn að heilsu, inn
á kjörfund og 'lætur hann þar
bera þau skilaboð frá prófasti
að umræddir menn eigi að fá
að kjósa, enda þótt prófastur
hefði þann sama dag varað séra
Ágúst við þessu og skýrt hon-
um frá úrskurði yfirkjörstjórn-
ar. Verður því ekki annað séð,
en séra Ágúst hafi vísvitandi
sent föður sinn með röng skila-
boð, og hafi jafnframt reynt að
koma ábyrgðinni af þessum af-
glöpum á yfirmann sinn, pró-
fastinn. I>að má vel vera, að í
stjórnmálum kunni svona blekk
ingarvefur að þykja „héfíóminn
einber“. En þó efast undirrit-
aðir stórlega um, að Bernharði
Stefánssyni hefði þótt það fara
eftir réttum lýðræðisreglum, né
látið kyrrt liggja, ef andstæðing
ar hans í alþingiskosningum
hefðu haft slík brögð í frammi.
Segir svo 136. grein almennra
kosningarlaga, að hægt sé að ó-
gilda kosningu þingmanns ef
þmgmaðurinn sjálfur eða um-
boðsmenn hans hafi átt vísvít-
andi sök á misferlum í kosningun
um, jafnvel þó að atkvæðamunur
sé ótvíræður. Væri það undarlegt,
ef í þessum efnum ætti að gera
lægri siðferðiskröfur til prests
en þingmanns, enda óvíst hvern
ig fer um lýðræðið, ef gengið
er að kosningum með slíkum
ofsa og yfirgangi til að troða
sjálfum sér fram.
Einnst kærendum, að þá lág-
markskröfu verði að gera til
prests, og reyndar allra, sem
sækja um trúnaðarstöður hjá
islenzka ríkinu, að ekki segi þeir
ósatt vísvitandi, og einkum þyk-
ir oss það óviðeigandi af prest-
um að hafa það athæfi í frammi
í kirkjum, þar sem ætlast er
tii, að þeir brýni fyrir ungura
og öldnum að halda 8. boðorð-
ið í heiðri.
Nú finnst alþingismanninum
fyrrverandi það vera ofsókn á
hendur séra Ágústi, ef mönn-
um geðjast ekki að þessu hátta-
lagi hans, og þá líklega einnig
það, að nokkur skyldi dirfast
að sækja á móti honum og nokk
ur leyfa sér að kjósa annan
mann fyrir sálusorgara. Ætti
Bernharð þó að vita, að þetta
telst með mannréttindum í lýð-
ræðisríkjum. Enda þótt séra
Sigurður Stefánsson væri vin-
sæll prestur í sóknum sínum,
getur þó séra Ágúst ekki ætlast
til að vera kosinn nema á sín-
um eigin verðleikum, og var þó
hinu óspart á lofti haldið í kosn-
ingunum, hvílík móðgun það
væri við fjölskylduna að kjósa
ekki soninn og lætur Bernharð
mjög liggja að því í grein sinni.
En þá fer að ruglast lýðræðið,
ef einskonar ríkiserfðir eiga að
gilda í þessum efnum, hvað sem
verðleikum líður.
Það er á margra vitorði, að
ýmislegt hefur gerzt í kirkjunni
á Möðruvöllum, sem söfnuðin-
um geðjaðist ekki vel að á sín-
um tíma. Og enda þótt Bernharð
kalli þetta barnabrek, þá mun
kirkjuagi sums staðar vera svo
strangur að á þetta hefði verið
litið mjög alvarlegum augum.
En einhvern tímann verður mæl
irinn fullur. „Ögætnisorð“ séra
Ágústar voru of mörg í kosn-
ingunum, og við fleiri tækifæri.
Einnig leyfði hann að aug-
lýst var kosningaskrifstofa að
heimili sínu, gegnt kjörstað, á
Möðruvöllum á sjálfan kosninga
daginn og mundi slíkt vera tal-
in lögleysa í alþingiskosning-
um.
Að lokum þetta. Kærendur
vilja fá úr því skorið af dóm-
stólinum, hvort íslenzk þjóð-
kirkja sé svo hörmulega á vegi
stödd að engu máli skipti hvern
ig þeir menn haga sér, sem
gegna þar embættum.
Steinn Snorrason.
Eggert Daríðsson.
Kaupmaimafélag
á Sauðárkróki
FÖSTUDAGINN 29. júlí sl. var
stofnað kaupmannafélag á Sauð-
árkróki.
Félagið var stofnað að tilhlut-
an Kaupmar.nasamtaka íslands.
Fundinum stýrði formaðiu:
Kaupmannasamtakanna Sigurð-
ur Magnússon, en Knútur Bruun
hdl., framkvæmdastjóri K. í.
gerði grein fyrir aðdraganda að
stofnun félagsins, og lagði fram
frumvarp að lögum þess. Fund-
arritari var Jón I. Bjarnason.
Formaður Kaupmannafélags
Sauðárkróks var kjörinn Har-
aldur Árnason, en aðrir í stjórn,
Árni Blöndal, Evert Þorkelsson,
Pétur Helgason og Steingrímur
Arason.
Fulltrúi félagsins í stjórn Kaup
mannasamtaka fslands var kjör
inn Anton Angantýsson.
Á Sauðárkróki eru starfandi
um 30 verzlunarfyrirtæki.
SKÚLI J. PÁLMASON
héraðsdómslögmaður.
Sambandshúsinu, Sölfhólsg. 4.
Símar 12343 og 23338.