Morgunblaðið - 06.08.1966, Side 24
Helmingi útbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt blað
Langstærsta og
fjölbreyttasta
blað landsins
Heildaraflinn lítið
minni en í fvrra
FYRSTU fjóra mánuði ársins
var heildaraflamagn lands-
manna 332.796,’ lestir, en var
á sama tíma í fyrra 334.585 lest-
ir. Skiptist aflinn nú eftir teg-
undum þannig: (Hliöstæðar töl-
ur fyrra árs í sviga). Bolfiskur
190.313,4 lestir (234.146,5), síld
17.393,8 lestir (50.294,8), loðna
Reytings
síldveiði
HAGSTÆTT '/eður var á síldar-
miðunum sl. sólarhring. Voru
skipin einkum að veiðum 20—70
mílur S og SSV af Jan Mayen.
Á þessum slóðum fannst tölu-
vert magn af smátorfum, en síld
in var mjög stygg og _gekk því
mjög illa að ná henni.
Sl. sólarhring tilkynntu 9 skip
um afla, samtals 832 lestir.
lestir:
Guðbjörg IS 60
Sigurður Bjarnason EA 20
Haraldur AK 90
Ásþór RE 105
Helga Guðmundsd. BA 150
Guðmundur Péturs IS 100
Loftur Baldvinsson EA 107
Víðir II GK 120
Guðbjartur Kristján IS 80
123.969,6 lestir (49.734,9), hum-
ar 0,4 lestir (4,3) og rækja 1.119
lestir (404,3).
Af bolfiskinum var nú 174.
014,2 lestir bátafiskur (211.776)
og 16.229 lestir, togarafiskur
(22.370.5)
Heildaraflinn skiptist þannig
eftir verkunaraðferðum: Þorsk-
aflinn: Frysting 76.520,2 lestir
(98.752.5) , söltun 58.040,8 lestir
(70.578.4) , herzla 37.526,9 lestir
(43.189.6) , niðursuða 1.5 lest
(31,7), mjölvinnsla 591.8 lest
(631.6) innlend neyzla 4.630,4
lestir (4.940,8) og ísfiskur 13.000
lestir (16.021,7).
Síld og loðna: Frysting 2.918,6
(11,236,9) söltun 1.45-1 lest
(3.137), niðursuða 14,8 lestir
(17.4) , mjölvinnsla 136.041,6
lestir (85.092,3) og sfiskur 936,
5 lestir (545,959).
Suzíe Wong
í Eyjum
PILTARNIR tveir, sem eru
nú í hringferð í kringum landið
á hraðbátnum Suzie Wong,
héldu um miðjan dag í gær frá
Þorlákshöfn til Vestmannaeyja.
Ferðin gekk að óskum, og kom-
ust þeir heilu og höldnu til Vest
mannaeyja. Síðdegis í gær
mátti svo sjá þá þeysa kring-
um eyjuna á sjóskíðum.
Skipverjar á Maríu Júlíu vinna að slökkvistarfi í Fiskakletti.
(Ljósm. Mbl. Vig.)
Eldur í bát úti á reginsió
Enn finnst kind
drepin í Holtum
Holtum, 5. ágúst.
EKKI hefur enn tekizt, að
finna vágest þann, sem drepið
hefur fjölda kinda fyrir bænd-
um hér í sveitinni. Talið er full-
víst að um hunda hafi verið
að ræða og eru nú tveir í haldi
en eigandi þess þriðja hefur af-
lífað hann, af ótta við, að hann
hefði drepið féð.
Fundizt hefur ein dauð kind
í viðbót við þær 18-20, sem þeg-
ar hafa fundizt dauðar eða þurft
að lóga sökum sára, en sú kind
hefur legið dauð í nokkurn tíma.
Er enn e’Jki séð fyrir endann
á hversu margar Jrindur hnnd-
arnir hafa drepið fyrir bænd-
um hér í Holtum.
— Fréttaritari.
María Júlía kom og slökkti eldinn
- Talsverðar skemmdir á bátnum
Um bor’ð í Maríu Júlíu 5. ágúst
frá fréttamanni Mlbl., Vigni
Guðmundssyni:
KLXJKKAN 8.30 í morgun kall-
aði skipstjórinn á Fiskakletti
GK-131 til okkar, og sagði skip-
stjórinn þá að kviknað væri í
vélarrúminu, og að illvært væri
í brúnni. Á þeim tíma var María
Júlía með vörpuna úti, og var
að toga í fiskrannsóknum, en
skipið hefur verið að þeim starfa
sl. þrjár vikur allt í kringum
landið.
Varpan var strax tekin inn, og
haldið að Fiskakletti, sem var
um eina mílu frá okkur. Kl. 8.50
var lagzt að síðu Fiskakletts, en
þá var norðaustan slampandi, og
nokkur alda, enda urðu nokkrar
skemmdir á borðstokkum beggja
skipanna. Slökkvistarf var hafið
þegar í stað, og slöngur settar
um borð í Fiskaklett. Þá þegar
var svo komið að hiti var það
mikill í olíutönkum skipsins að
ýlfraði með lokunum. Var þá
hafizt handa um að dæla sjó í
olíutankana.
Skömmu eftir að María Júlía
kom að Fiskakletti tók að rjúka
úr skipinu, þar sem þá höf’ðu
verið brotin kýraugu í vélar-
rúmsreisn. Fyrir þann tíma hafði
skipstjórinn, Ástþór Guðnason á
Fiskakletti, gefið skipshöfninni
fyrirmæli að halda til frammi á
Framhald á bls. 23.
14 jbiís. kr. stolid
frá drukknum manni
700 kr, voru eftir er veskið fannst
Steypustööin kaupir
sement frá Póilandi
Skip vœntanlegt með 1750 t. í nœstu viku
MORGUNBLAÐIÐ hefur fregn-
að að væntanlegt sé hingað til
landsins einhvern tíma í næstu
Lárus Jónsson
Kjördæmismót ungra Sjdlfstæðis
munno ú Norðurlundi vestru
KJÖRDÆMISMÓT ungra
Sjálfstæðismanna í Norður-
landskjördæmi vestra verður
haldið í Sjálfstæðishúsinu á
Siglufirði, sunnudaginn 7. ág.
og hefst kl. 2 e.h. Þar flytur
Lárus Jónsson, bæjargjald-
keri á Ólafsfirði erindi um
sveitarstjórnarmál en að því
loknu verða frjálsar umræð-
ur um efni þess, svo og
flokksmál. Öllum ungum
Sjálfstæðismönnum er hcimil
þátttaka og eru þeir hvatlir
til að fjölmenna.
viku sementsflutningaskip með
sementsfarm til Steypustöðvar-
innar hf., sem keyptur er í Pól-
landi. Var skipið væntanlegt til
landsins á mánudag, en mun
hafa tafizt eitthvað vegna véla-
bilunar, og því ekki fullljóst
hvenær það verður hér á ferð-
inni.
Steypustöðin mun hafa feng-
ið þetta sementsflutningaskip í
gegnum Hafskip hf., en stöðin
hafði áður fengið innflutnings-
leyfi á 3500 tonnum af sementi.
Er ráðgert að það magn komi
í tvennu lagi til landsins, og
er þetta skip með 1750 tonn.
Ekki er ennþá ljóst hvenær hinn
helmingur sementsins kemur til
landsins.
MAÐUR nokkur kærði til
lögregunnar í fyrradag að liann
hefði verið rændur veski sínu
með 14 þús. krónum í.
Maðurinn hafði verið að öl-
teiti um daginn, og var hann orð
inn alldrukkinn. Hann lét leigu-
bifreið aka sér að ófengisverzl-
uninni í Lindarg., og þar hitti
hann fyrir 2 menn. í fyrstu ætl-
aði hinn drukkni að bjóða mönn-
unum með sér í leigubifreiðinni,
en þegar leigubifreiðastjórinn
neitaði að aka með þá lengra,
slóst hann í för með mönnunum
tveimur fótgangandi. Þeir fóru
allir þrír inn í hús hér í bæ,
þar sem drykkjunni var haldið
áfram. Missti maðurinn þar
minnið, og rankaði ekki við sér
aftur fyrr en heim hjá sér síð-
ar um kvöldið, og var þá veski
hans horfið.
Lögreglunni tókst að hafa upp
á leigubílstjóranum, sem ekið
hafði manninum, og gat hann
gefið nákvæma lýsingu á mönn-
unum tveimur, sem slegizt höfðu
í för með hinum drukkna. Síð-
ar um kvöldið var svo kært til
lögreglunnar um drykkjulæti I
húsi einu í austurbænum. Lög-
reglan fór á vettvang, og þar
hittu þeir fyrir mann, sem kom
mjög heim við lýsingu leigu-
bifreiðastjórans. Peningaveskið
fannst á hinn bóginn í vasa fé-
laga þessa manns, og voru þá
aðeins eftir um 700 krónur í
veskinu, fyrir utan ávísun og
erlendan gjaldeyri. Ekki gátu
mennirnir tveir gert grein fyrir
því, hvernig veskið hafði lent
í fórum þeirra, og voru þeir
settir í varðhald, en rannsókn
málsins áfram.
FJ. beðið um að
flytja hvalinn -
en töldu sér það ekki fært
FLUGFÉLAGT ÍSLANDS barst
beiðni um það frá Færeyjum, að
það tæki að sér að flytja hval-
inn, sem geymdur er lifandi þar
í sundlaug, og greint var frá í
blaðinu í gær. til Englands.
Ráðgerðu Færeyingarnir að
setja hvalinn á fleka og ausa
yfir hann vatni öðru hvoru á leið
inni til Englands. Friendshipvél
ar FÍ voru hinar einu, sem gátu
flutt hvalinn, en Flugfélagið
vildi ekki láta þær í þessa flutn
inga, þar sem þeir hefðu farið
mjög illa með vélina að innan.
Er því útlit. fyrir að Færeyingar
verði að flytja hvalinn með skipi
yfir til Bretlands.