Morgunblaðið - 24.08.1966, Side 2

Morgunblaðið - 24.08.1966, Side 2
f MORGUNBLAÐID Miðvikudagur 24 ágúst 1966 Erfiðleikar að koma barni í sjúkrahús vegna símabilunar VEGNA staekkunar Selássím- stöðvarinnar ciga íbúar, sem búa á svæðinu í kringum Elliðavatn, Vatnsenda og við Rauðavatn ákaflega erfitt með að ná simasambandi, og getur oft tekið langan tima. 1 fyrra dag hafði þetta nær haft hin- ar aivarlegustu arfleiðingar. 1 gær hafði Erna Kristjáns- dóttir, sem býr rétt fyrir ofan stífluna við Elliðavatn, sam- band við Mbl. og hafði hún eftirfarandi sögu að segja. Erna býr þarna ein ásamt þremur börnum sínum, en eitt þeirra er 3M> árs gömul telpa, sem þjáist af sykursýki. Hún hafði fengið iyf við þess um sjúkdórni, og þennan dag var hún svo hress að móðir hennar leyfði henni að fara á fætur og ieika sér. Móðirin fór á meðan út til að hengja upp þvott, en þegar hún kom inn aftur skömmu síðar var litla telpan komin með heift- arlegan hitakrampa, og orðin blá í andliti, þar sem hún átti ákaflega erfitt um andar- drátt. Erna reyndr þegar að hringja í sjúkrabifreið, en henni tókst ekki að fá són í símann. Þá hljóp hún yfir í næsta liús, og bað húsmóður- ina þar um að reyna að hringja fyrir sig. Henni tókst loks að fá samband við slökkvistöðina, en á meðan hafði Frna misst þolinmæð- ina, og liljóp með barnið eina 100—200 metra niður að veg- inum. Þar hitti hún bifreiða- stjóra, sem tók hana upp í bíl sinn og ók með hana nokkurn spöl. f>á vildi svo til að þau mættu lögreglubif- reið, og var barnið flutt yfir í hana, þar sem lögreglu- mennirnir hófu þegar lífgun- artilraunir með blástursað- ferðinm, meðan ekið var áleiðis til borgarinnar. Þegar komið var á móts við hest- húss Fáks mættu þau sjúkra- bifreiðinni, sem beðið hafði verið um, og var súrefnis- kassi úr henni þegar fluttur yfir í lögregiubifreiðina, þar sem lífgunartilraunir héldu áfram, þar til komið var í sjúkrahús. Var þá liðin um klukkustund frá því að Erna fyrst reyndi að ná sambandi við slökkvistöðina. Erna taldi, að það hefði orðið barninu til lífs, að hún skyldi hlaupa með það niður að veginum, þar sem hún hafði ekki í uppnámi haft rænu á að reyna blástursað- ferðina við það. Erna sagði ennfremur að þetta ólag með símann væri geysilegt örygg- isleysi fyrir íbúana á þessu svæði og drap á, að þetta væri í þriðja skipti, sem at- burður sem þessi ættu sér þarna stað í öll skiptin hefði reynzt illkleiít að ná sam- bandi við slökkviliðið vegna ólags á símanum. Hlyti öllum að vera ljóst, hve brýn þörf væri á að þetta yrði lagað sem fyrst. Nýja hraunið í Surts- ey mjög oliviniríkt Gosið í Surtsey og þar í kring annað lengsta frá því að land byggðist »,ÞAÐ sem er kannski einna skemmtilegast við gosið í Surts- ey, frá vísindalegu sjónarmiði", sagði dr. Sigurður Þórarinsson, jarðfræðingur, er Mbl. rabbaði ,við hann stuttlega í gær um nýja gosið í eynni, „er hve langt það er orðið, og hve oft vísinda- mönnum hefur gefizt kostur á því að endurtaka rannsóknir á hinura ýmsu sviðum þarna í eynni. Visindamenn hafa kannski verið að vinna úr eldri rannsóknum á gosinu í eynni, og óskað sér að mögulegt væri að endurtaka þær, þegar eyjan hef- ur allt í einu tekið upp á því að gjósa aftur, og uppfyllt þar með óskir vísindamannanna. Til dæmis hefur nú verið hægt að endurtaka hitamælingar á hrauninu, o. s. frv.“ „Það er einnig mjög athyglis- vert við þetta gos“, sagði dr. Sigurður ennfremur, „hve oli- _ viniríkt hraunið er, og hve oli- vinið í því eykst. Það var meira olivini í Syrtlingi en í Surtsey, og meira olivini í Jólni en í Syrtlingi, og þykir vísindamönn um því ákaflega fróðlegt að sjá, hvort að olivinimagnið í þessu gosi verður meira en í Jólni. Þá er það mjög athyglisvert, að þegar tengdar eru saman allar gosstöðvarnar þarna í heild, er stefna þeirra lína I norður 65 gráður austur, en stefna minni sprunganna, eins og í þessu nýja gosi, og eins í Jólni og þeg- ar Surtur byrjaði fyrst, liggja allar mun meira í norður.“ „Gosið þarna í kringum Surts- ey er orðið annað lengsta sem sögur fara af síðan land byggð- ist, og hefur nú staðið yfir í hátt á þriðja ár. Það eru aðeins Mý- vatnseldar sem hafa staðið leng- ur yfir, enda má segja að gosið við Surtsey sé líkt Mývatnseld- um að því leyti, að það gýs ár- um saman úr einstökum gígum, og eins að gamlir gígar, sem hafa legið niðri um nokkurt skeið, taka aftur að gjósa. Á hinn bóginn er hraunið í Surts- ey orðið miklu basískara, en Mývatnshraunið." Gosstöðvar þarna hafa að sjálfsögðu mjög mikla þýðingu fyrir vísindamenn, bæði jarð- fræðinga og líffræðinga. Það hlýtur t.d. að vera ákaflegá fróð- legt fyrir líffræðinga að fylgjast með því hvernig líf myndast og þróast þarna í Surtsey. En núna LÆGÐJN yfir Grænlands- blíðuveður, 16 — 17° hiti á hafi var nærri kyrrstæð í gær Akureyri. Á miðunum fyrir og bar með sér litla rigningu Austurlandi var hægviðri og til Suðúr- og Vesturlands, en víða þoka. fyrir norðan og austan var undanfarið hefur verið mikill straumur manna yfir í eyjuna, og hef ég heyrt líffræðinga lýsa ótta sínum, að það geti haft áhrif á þróun lífsins í eynni. En það er von þeirra, sem með þess um málum fylgjast, að fólk taki tillit til þessa, og venji ekki komur sínar í eyna að óþörfu". Þýzka skólaskipið „Gorch Fock“ kemur í heimsókn til Reykja- víkur á morgun, 25. ágúst, og verður hér til 28. ágúst. Siðan mun skipið heimsækja ísafjörð í tilefni af lðO ára afmæli kaupstaðar- ins. Þetta er í fjórða sinn, sem skólaskipið „Gorch Fock“ kemur til íslands. Á því eru nú alls 170 liðsforingjaefni, en yfirmaður er Peter Lohmeyer kafteinn. Sumarmót Bridge samb. á Laugarv. SUMAKMÓT Bridgesambands íslands verður haldið í lok þess- arar viku að Laugarvatni. Mót- ið hefst með ávarpi forseta sam- takanna kl. 20.30 á föstudags- kvöld. Verður þá háð tvímenn- ingskeppni. Á laugardag verður Ályktanir aðalfundar Skógræktarf. íslands Á AÐALFUNDI Skóræktarfé- lags fsiands, sem haldinn var að Laugum í Þingeyjarsýslu dag- ana 19. — 20. ágúst voru gerðar áiyktanir um eftirtalin atriði. „1. Fundurinri vekur athygli á því að í nágrenni kaupstaða og kauptúna er víða um ofbeit að ræða og hætt við að þar fari land í örtröð. Skorar því fundurinn á yfir- völd ríkis- og sveitarfélaga að skylda eigendur búpenings í og við kaupstaði og kauptún til að hafa búpening sinn í heldum girðingum, svo að hann valdi hvorki jarðeigendum í þéttbýli né nærliggjandi sveitum vand- ræðum með ágangi. Sömu skipan verði komið á, þar sem stór landsvæði eru í hættu fyrir ofbeit og þurfa frið- unar, 2. Fundurinn vill vekja at- hygli landbúnaðarráðherra og annarra, sem með gróðurmál fara að víða er nú gengið á skóga og kjarr, svo að til auðnar horfir. Fundurinn telur að vinda verði bráðan bug að því að hefta slíkar gróðurskemmdir og væntir þess, að lög um skógrækt og lög um landgræðslu verði fram- kvæmd samkvæmt ákvörðun þeirra og lagt verði nægilegt fjár magn til framkvæmda laganna. 3. Fundurinn beinir því til landgræðslustjóra, að nú þegar 1 verði hafizt handa um áætlun um heftingu landeyðingar á Reykjanesskaga og endurgræðslu þar, samkvæmt 42. gr. laga um landgræðslu. 4. Fundurinn fagnar setningu laga um styrki til ræktunar skjól belta og væntir þess að tillögur skógræktarstjóra um fjárveitingu til þessa verði teknar upp á nagstu fjárlög. 5. Fundurinn telur brýna nauð syn að skógarvörður verði skip- aður á Vestfjörðum. 6. Fundurinn vill láta í ljós þakklæti til sambandsstjórnar Þýzkalands í Bonn fyrir hin ágætu rannsóknartæki, sem stjórnin hefur gefið Skórækt ríkisins.“ keppt í sveitakeppni og lýkur mótinu á laugardagskvöld með verðlaunaafhendineu. Ekki er að efa að margir munu hafa hug á því að taka þátt í sumarmótinu nú eins og jafnan áður. Þátttöku ber að tilkynna til Friðriks Karlssonar, sími 20554 eða til Óskars Jóns- sonar, Selfossi, sími 201. Á aðalfundi sambandsins fyrr jTrsmhald á bls. 2’i Rotary - Leiðrétting I FRÉTT í blaðinu í gær af heimsókn forseta alþjóðasam- taka Rotary var sagt, að Sigur- geir Jónsson bæjarfógeti væri forseti Rotary-klúbbs Kópavogs, en það er sr. Gunnar Árnason. Sigurgeir er aftur á móti um- dæmisstjóri Rotary á íslandi. Þá var sagt að Pétur Guðmunds- son væri forseti Rotary-klúbbs Keflavíkur en hann er ritari klúbbsins. Forseti hans er Þór- arinn Ólafsson. Blaðburðarfólk vantar í eftirtalin hverfi: Háaleitisbraut — jöfnutölurnar Rauðalæk írá 31—74 Meðalholt Eskihlíð I frá 5—13 Sjafnargötu Talið við afgreiðsluna sími 22480. Tjarnargötu Sörlaskjól Ægisstíðu Laugaveg frá 1—32 Selás Hvassaleiti I frá 1—30 JN*i$fittft(gifeUk i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.