Morgunblaðið - 24.08.1966, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 24. ágúst 196C
,t,
Eiginkona mín, móðir okkar og tengdamóðir
JÓNÍNA JÓNASDÓTTIR
andaðist í Landsspítalanum, sunnudaginn 21. ágúst.
Jarðarförin tilkynnt síðar.
Jón Sigurðsson,
Viktoría Jónsdóttir,
£iín Jónsdóttir, Höskuidur Ólafsson,
Sigurður Jónsson, Valgerður Ingólfsdóttir.
Systir okkar,
LAUFEY GUNNARSDÓTTIR
andaðist sunnudaginn 14. þ.m. — Útförln hefur farið
fram.
Gyða Gunnarsdóttir, Unnur Gunnarsdóttir,
Svana Gunnarsdóttir.
Útför konunnar minnar
SIGRÍÐAR GUÐJÓNSDÓTTUR
frá Laxnesi,
fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 25. ágúst
kl. 13,30. — Blóm afbeðin. — Þeim, sem vilja minnast
hennar er bent á líknarstofnanir.
Jónas Thorstensen.
Útför eiginkonu minnar
SYLVÍU HALLDÓRSDÓTTUR
Goðatúni 3, Garðahreppi,
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 26. ágúst kl.
10,30. — Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna.
Sóftis Halldórsson.
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og jarðarför
HARÐAR GUNNARSSONAR
rafvirkja.
Jóhanna Jónsdóttir og börn,
Steinunn Helgadóttir, Gunnar Guðmundsson,
Erla Guðjónsdóttir, Stefán Gunnarsson,
Bogga Sigfúsdóttir, Almar Gunnarsson.
Þökkum innilega sýnda samúð og vinavhug við andlát
og jarðarför móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
KRISTÍNAR OKTOVÍU ÞORSTEIN SDÓTTUR
Árni Sófusson, Katerín Eðvaldsdóttir,
Ingibjörg Sófusdóttir, Gunnar Guðmundsson,
Anna Sófusdóttir, Alfred Nordgulen,
Þorsteina Sófusdóttir, Guðmunda Guðmundsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn.
Þökkum innilega samúð og hluttekningu við andlát
og jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu
KRISTÍNAR EIRÍKSDÓTTUR
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð og hluttekn-
ingu við andlát og jarðarför eiginkonu minnar
ALDÍSAR GUÐMUNDSDÓTTUR
Bakkaveg 4, Selfossi.
Kristinn Vigfússon.
Þökkum innilega auðsýnda samúð vegna andláts
ÞÓRÐAR ÞÓRÐARSONAR
Borgarnesi.
Vandamenn.
Innilegt þakklæti til allra er sýndu mér samúð og
vinarhug við andlát og jarðarför konu minnar
ÞÓRU ÞORSTEINSDÓTTUR
Amarhóli, Vestur Langeyjum.
Þorgeir Tómasson.
ÖHum sveitungum mínum, ættingjum og vinum er ó-iéV8-
sendu mér hlýhug og gjafir á 60 ára afmæli mínu þakka ;' vy É-.4
ég af heilum huga.
Guð launi ykkur öllum. ' ■'* ;
", Jón Jónsson,
frá Ásólfsskála V.-Eyjafjallahreppi. VjlP 5r':!
Öllum þeim sem gerðu mér daginn ógleymanlegan '• WL' ^
með heimsóknum, gjöfum, kveðjum og góðum óskum
á sjötugsafmæli mínu flyt ég alúðarþakkir. Jafnframt þakka ég liðna tíð og bið ykkur öllum Guðs blessunar. Guðni Þórðarson, Akureyri. iiiin HMlr iWP’ni 1 iíBíihI^^^MI
Svo skemmtilega vildi til, að daginn sem Ólafsfirðingar fögnuðu Sigurbjörgu ÓF, voru öll
börn, tengdabörn og barnaböm Magnúsar Gamalíelssonar og konu hans samankomin í Ólafs-
firði. Myndin er tekin af fjölskyldunni á sviði samkomuhússins í ólafsfirði, að lokinni veizl-
unni, sem Magnús hélt Óiafsfirðingum.
— Eg heíbi
Framh. af bls. 15
stjóra, um möguleika á smíði
skipsins á Akureyri. Hjálmar
taldi strax að á Akureyri væri
nægilegt af góðum iðnaðarmönn
um til að vinna við skipasmíð-
ina. Þó gætu orðið örðugleikar
á veginum, þar sem þetta væri
fyrsta skip. Æsktum við þess
að hann yrði okkar ráðunautur
og tjáði hann sig mjög fúsan til
þess. Hefur Hjlmar reynst okk-
ur mjög vel og kann ég honum
beztu þakkir.
— Hvað með fjármálin?
— Það sem reið baggamuninn
um að skipið var smíðað á Ak-
ureyri, var hin góða og ákveðna
fyrirgreiðsla Elíasar Halldórsson
ar, framkvæmdastjóra fiskveiða
sjóðs, og skilningur sjóðsstjórn-
arinnar á málinu. Án aðstoðar
þeirra hefði aldrei verið lagt út
í smíðina. Einnig veittu þeir
Magnús Jónsson, fjármálaráð-
herra og Jónas Rafnar, alþing-
ismaður, ómetanlega aðstoð.
Sturlaugi Jónssyni og Co. og
starfsmönnum hans í Reykja-
vík vil ég færa þakkir fyrir
góða og hrekklausa afgreiðslu.
— Var kostnaðurinn samsvar-
andi við erlenda skipasmíði?
— Þegar ég samdi um smiði
skipsins, þá samsvaraði það
skipsverði í Noregi. Síðan hefur
dýrtíðin hér á landi vaxið og
ég sem kaupandi skipsins hef
orðið að greiða allar launahækk
anir sem orðið hafa. Einnig eru
í skipinu mörg tæki sem ekki
var reiknað með í samningnum.
T.d. hliðarskrúfur, Loran, tvö
sjálfvirk fiskileitartæki, tveir
radarar og helmingi stærra raf-
magnskerfi. Þess má geta í því
sambandi að skipið framleiðir
jafnmikið rafmagn og allur Ól-
afsfjarðarbær notaði árlega
fram til ársins 1955.
■— Hvernig hefurðu hugsað
þér útgerð skipsins?
— Ætlun mín er að það færi
helzt allan aflann til Ólafs-
fjarðar. Ég hef góðar vonir um
að þetta takist, með tilliti til
hins ágæta skipstjóra og áhafn-
ar sem eru um borð í Sigur-
björgu.
— Að lokum Magnús, telurðu
þig hafa valið réttu leiðina?
— Þegar ég var að fara út í
þetta hugsaði ég oft hvort nokk
urt vit væri í þessu. í dag er ég
þess fullviss að ég hef gert rétt.
Ég hefði hvergi getað fengið
vandaðra né betra skip.
Xr
í KAFFISAMSÆTINU sem
Magnús bauð til eftir móttöku
skipsins hittum við tvo gamla
skipstjóra frá Ólafsfirði, þá
Magnús Jónsson og Ásgeir Frí-
mannsson.
Magnús er 73 ára gamall og
stundar sjóinn ennþá af fullum
krafti og segist ekki hafa hugs-
að um að fara í land næstu árm
Hann hefur róið á trillu um ára
bil, en segir aflann í sumar með
tregasta móti.
— Hvenær byrjaðir þú til
sjós Magnús?
— Ég byrjaði af fullum krafli
14 ára en hafði gutlað dálítið
við sjóinn áður svona eins og
gengur og gerist, og síðan hef
ég verið sjómaður og ekki ann-
að.
— Ert þú fæddur í Ólafsfirði?
— Ég er fæddur hér fram í
sveit. Þegar ég var strákur voru
hér aðeins 3 hús og nokkrir kof
ar svo að þú getur séð að ég hef
lifað talsverðar breytingar hér í
Ólafsfirði.
— Hvenær varðstu skipstjóri?
— Ég byrjaði hjá Magnúsi
Gamalíelssyni um 1930 og var
með skip fyrir hann, þar til ég
fór að róa á trillu um 1940 og
síðan hef ég eingöngu stundað
handfæri.
— Hvað hugsaðir þú, Magnús,
þegar Sigurbjörg sigldi hér inn
fjörðinn?
— Ég hugsaði að gaman
hefði verið að vera úm borð í
slíku skipi þegar maður var
ungur. Það er ekkert líkt með
þessu skipi og seglskipunum og
kútterunum í gamla daga.
— Og þú ert ekkert að hugsa
um að fara í land?
— Nei, meðan ég get staðið
við færið ætla ég að stunda sjó-
inn.
Ásgeir Frímannsson segist vera
fæddur í Fljótunum en flutzt
til Ólafsfjarðar 7 ára gamall og
búið þar síðan.
— Hvað ert þú búinn að vera
lengi sjómaður Ásgeir?
— Ég byrjaði á sjónum fyrir
alvöru 16 ára gamall, en hafði
þó bleytt færi áður. Ég var síð-
an á sjó þar til ég varð sextug-
ur fyrir 5 árum, þá fór ég í
land og er nú vigtarmaður og
lóðs hér í Ólafsfirði.
— Hefur þú ekki verið skip-
stjóri hjá Magnúsi?
— Jú, ég var skipstjóri hjá
Magnúsi um 10 ára skeið. Ég
fór í stýrimannaskólann 43 ára
gamall og strákarnir sem voru
í bekk með mér kölluðu mig
afa.
— Var ekki dálítið erfitt að
setjast á skólabekk svona ganr
all?
— Jú blessaður vertu. Maður
þurfti að byrja á þessu öllu upp
á nýtt. Ég var búinn að gleyma
barnalærdómnum, en þetta hafð
ist allt á endanum.
— Hvernig lízt þér á Sigur-
björgu?
— Ég segi eins og Magnús að
gaman hefði verið að vera ung-
ur og fylgjast með tækninni eina
og framfarirnar hafa verið örar.
Skipið er stórglæsilegt og fall-
egt og við Ólafsfirðingar bind-
um við það miklar og góðar
vonir, enda ekki ástæða til ann-
ars en vera bjartsýnn. Það er
munur á síldveiðunum nú og
áður fyrr. Þá þurftum við að
bíða eftir að hún kæmi upp á
yfirborðið, en nú taka þeir hana
bara á sextugu dýpi eins og
ekkert sé.
. — ihj.
-<í>
„Með þokklæti og virðingu“
ÞÓ nokkuð sé liði'ð frá dánar-
dægri Jóns Sigurðssonar, slökkvi
liðsstjóra, langar mig til þess að
biðja Morgunblaðið að birta
þetta minningarljóð um hann,
frá mér, með þakklæti og virð-
ingu:
Frá liðnum dögum við ljóða-
streng,
og lundinn sem geislum skin.
Ég geymi minning um góðan
dreng,
sem gladdist við störfin sín.
í huganum oft með honum geng
ér hverfa burt árin mín.
Þú áttir þinn lífsdraum í sól-
hlýrri sál,
og sumar í lundum þeim.
Og lékst þér stundum við Ijó'ða-
mál
með léttum, og glöðum hreim.
Þú vildir slökkva hin vondu bál,
og verja okkar fagra heim.
í, íþróttamálum þú markaðir
braut,
þár mörgum er torsótt leið.
Enn öllum er hollt að þreyta
þraut
til þroska er síðar beið.
Og sá fær launin er sigur hlaut
og sveik ei sitt æviskeið.
Hve gott var að starfa, og þjórn
með þér
svo þekkur við hvern, og einn.
Þú gladdist við alit, sem bar sig-
ur í sér.
og sæmd, þar sem gróður var
hreinn.
Þau kynni geymast í minni mér
um mann, sem ei lastaði neinn.
Þú áttir þín Ijós, og létta brag
og lékst þér við gýjustreng.
Því syng ég þér ekki sorgarlag,
enn sæll í því Ijósi geng.
— Að Guð búi eilífan upprisudag
þeim ástsæla góða dreng.
Kjartan Ólafsson.
t,
Móðir okkar,
INGIBJÖRG ÓLAFSDÓTTIR
Traðarkotssundi 3,
lézt á Landakotsspítala 23. þessa mánaðar.
Ása M. ÞórhaJIsdóttir,
Haltdór Þc-rhallsson,
Ólafur Þórhallsson.