Morgunblaðið - 25.09.1966, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 25.09.1966, Blaðsíða 32
Helmingi útbreiddara en nokkurt annað íslenzkt blað Langstærsta og fjölbreyttasta blað landsins 219. tbl. — Sunnudagur 25. september 196€. Byrjar sjónvarpið á miðvikudag? ÞAR EÐ einhvern tíma var ympraö á að íslenzka sjónvarpið myndi e.t.v. hefja útsendingar í dag, hafði Mbl. samband við Vil- hjálm Þ. Gíslason og spurði frétta af þessu. Sagði útvarps- stjóri að fyrsta sending yrði lík- iega 28. eða næstkomandi mið- vikudag, en endanlega yrði séð næstu daga hvort af því gæti orðið. Gengið hefur vel með allar myndasendingar og svo að segja allt tilbúið, helzt að „umbrotið" Hafnarfram- kvæmdir vegna Kísiliðju HÚSAVÍK, 14. sept. — Hafnar- framkvæmdir eru hafnar í Húsa vík í sambardi við aukna að- stöðu fyrir Kísiliðjuna. Verið er að fylla upp og mynda stórt plan í Krikanum sunnan undir Höfðanum. Á þessu plapi á að rísa stór og mikil vöruskemma sem Kísiliðjan byggir. Á skemman að risa næsta sumar. — Fréttaritari. hafi gengið seint, eins og sagt er á blöðunum. Hefur sambandið milli hinna ýmsu liða ekki geng- ið nógu liðlega. Verður æfing á mánudag og gangi hún vel verð- ur byrjað á miðvikudag. Strax fyrsta kvöldið er áform- uð full dagskrá í 2 tíma. Þá verður líklega sjónvarpað aftur á föstudag eða laugardag, og ákveðinn tilraunatíma verður sjónvarpað 2 kvöíd í viku. Ef það gengur vel, þá hefst full dag- skrá 6 kvöld í viku. Nemendur Menntaskólans við Hamrahlíð. Alla sína menntaskólatíð verða þeir í efsta bekk skol- ans og á þeim hvílir sú ábyrgð að skapa þann anda, sem ríkja mun í skólanum í framtíðinni. Nýr menntaskóli tekur til starfa Skólinn við Hamrahlíð seftur í gær NÝl menntaskólinn við Hamra- hlíð var settur í gær, laust fyrir hádegi, við hátíðlega athöfn í húsakynnum skólans í Hamra- hlíð að viðstöddum menntamála ráðherra, dr. Gylfa Þ. Gíslasyni; fjármálaráðherra Magnúsi Jóns- syni; borgarstjóranum í Reykja- vík Geir Hallgrimssyni; rektor MR, Einari Magnússyni; skóla- meistara ML, Jóhanni Hannes- syni; skólastjóra VÍ, dr. Jóni Gíslasyni; skólastjórum gagn- fræðaskólanna í Reykjavík, kenn urum og nemendum hins nýja skóla og fleiri gestum. Athöfnin hófst með því að rektor, Guðmundur Arnlaugsson, rakti aðdraganda að stofnun skólans. Hann gat þess í upp- Síðustu söltunardagarnir hjá mörgum stöðvum Samningarnir við Rússa ganga erfiðlega GERA má ráð fyrir að dagarnir nú um helgina verði siðustu sölt- unardagarnir hjá mörgum sölt- unarstöðum, þar sem flestir munu vera búnir að salta upp í veitt leyfi. Eins og áður hefur verið skýrt frá var samið um 385 þús. tunnur af saltsíld í ár, en samkvæmt siðustu söltunar- skýrslum, sem síldarútvegsnefnd hefur, er þegar búið að salta 360 þús. tunnur. Samkvæmt upplýsingum, sem Mbl. fékk frá fréttariturum sín- um á helztu síldarstöðum norð- anlands og áustan var söltun alveg um það bil að ljúka. Til Raufarhafnar hefur ekki borizt síld í tvær vikur, þar sem síld- veiðin hefur öll verið út af Aust- fjörðum, en fréttaritarinn taldi með ólíkindum að eitthvað yrði reynt að salta til viðbótar, ef síld bærist þangað næstu daga. Sömu sögu var að ségja á Vopnafirði — þangað hefur ekki borizt síld í þrjár vikur fyrir utan 1000 tunnur í bræðslu, og kvað fréttaritarinn að söltun mætti heita lokið, þar sem ekk- ert mætti salta nema sérverk- anir, og lítið orðið eftir af þeim. Á Seyðisfirði var verið að salta í gær, en fréttaritarinn þar taldi líklegt að það yrði síðasti dagurinn, og á Eskifirði hafði nær allt verið saltað. Flestir síldarsaltendur bíða í óþreyju eftir því, hvort samn- ingar takist við Sovétríkin urn sölu á saltsíld þangað. En Knút- ur Jónsson hjá Síldarú' vegs- nefnd á Siglufirði taldi það heldur ósennilegt. Samninga- umleitanir að undanförnu hefðu allar verið árangurslausar, þar sem mikið bæri á milli tilboða Rússa og þess, sem nefndin setti upp, eða um tvö sterlingspund. Samningaumleitunum hefði enn ekki verið slitið formlega, en á hinn bóginn þyrftu báðir aðilar að gefa mikið eftir, ef samning- ar ættu að takast. hafi að setning skólans væri viku fyrr en ráð hefði verið gert, enda þessi áfangi ekki endanlega full- gerður. Guðmundur gat þess að tilefni þessa skóla væri nokkuð með öðrum hætti en annarra menntaskóla. Allir gömlu skólarn ir hefðu Vaxið upp úr öðrum skólum, þeir hefðu byggzt á grunni þeirra. Menntaskólinn í Reykjavík ætti sér elzta sögu, sem rekja mætti aftur í aldir; Menntaskólinn á Akureyri hefði vaxið upp úr gagnfræðaskólan- um þar og Menntaskólinn á Laugarvatni upp úr héraðsskól- anum. Allir væru þeir nýjar greinar á gömlum meiði. en hér væri verið að gróðursetja nýjan sprota, sem vonandi dafnaði og efldist er fram í sækti. Guðmundur Arnlaugsson sagði að laust eftir síðari heimsstyrj- öldina hefði tala menntaskóla- nemenda aukizt mjög og hafi þá þegar farið að bera á röddum sem talið hefðu að reisa þyrfti nýjan menntaskóla í Reykjavík. Ekki hafi menn í fyrstu verið sammála um hvort skólarnir skyldu verða tveir eða hvort stækka skyldi gamla skólann. Þetta hefði verið mikið tilfinn- ingamál og valdið deilum. Sum- arið 1946 hefðu svo menntaskóla kennararnir Einar Magnússon og Sigurkarl Stefánsson ritað í sam einingu grein í Morgunblaðið, þar sem þeir bentu á að heppileg- ast væri að reisa annan skóla. Tillaga þeirra fékk ekki í fyrstu neinar undirtektir að ráði, en nú væri hún komin í fram- kvæmd. Þó hefðu menn verið sammála um að leggja þyrfti á- Framhald á bls. 5 Fundur matvæla og kjötkaup- manna NÆSTKOMANDI þriðju3ag halda matvæla- og kjötkaup- menn almennan félagsfund i Átthagasal á Hótel Sögu. Hefst hann kl. 8.30. Rætt verður um verðlagsmál almenn og síðus’ u afgreiðslu sexmannanefndar á búvöruverði. Bílar fyrir milljón krónur Sjálfstæðisflokkurinn efnir til glæsi- legasta landshappdrættins til þessa SJALFSTÆÐISFLOKK- UKINN hleypir nu al stoKK unum landshappdrætti, og helur flokkunnn aldrei staðið fyrir glæsilegra happdrætti en nú. Vinn- ingarnir eru þrír, allt spiunKunýjar, Dandarísnar luxusbitreioir, argerð I9b7, og er samanlagt verðmæu þeirra liðlega ein milljón króna. Bilarnir eru af gerð unum Dodge Dart, Ply- mouth Valiant og Rambler American. Koma þeir til lanasins með bílaskipi í u«g. isaumast mun þurfa að taxa það íram, að her er um aö ræða glæsilegasta bíla- happdrætti landsins i ár. Verð miðans er aðeins 100 krónur, og er óbreytt frá fyrri lands- happdrættum, en hinsvegar hefur flokkurinn aldrei geng- izt fyrir stærra happdrætti en nú. Verður dregið í happ- drættinu 8. nóvember nk. Útsending miða til stuðn- ingsmanna og velunnara Sjálf stæ'ðisflokksins hefst nú í vik- unni, en að auki verða miðar seldir í sjálfum happdrættis- bílunum í Miðbænum, svo og í skrifstofu flokksins í Sjálf- stæðishúsinu við Austurvöll. Eins og fyrr greinir er hér um að ræða landshappdrætti, og verða miðar seldir um allt land. Ljóst er að sívaxandi starfsemi Sjálfstæðisflokks- ins krefst aukinnar fjár- öflunar frá stuðningsmönnum flokksins. Hefur þessi vandi verið að verulegu leyti leyst- ur með happdrættum flokks- ins, sem gefið hafa góða raun. Á undanförnum tveimur kjörtímabilum hefur staðið eitt örasta framfaraskeið í sögu þjóðarinnar. Einstakling ar og félög hafa endurheimt frjálsræði í viðskiptum og at- vinnuiháttum og losnað úr úr- Framhald á bls. 31.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.