Morgunblaðið - 27.09.1966, Qupperneq 1
32 síður
FRÁ því var skýrt fyrir fyrir
nokkrum dögum, að áströlsk
flugvéi af gerðinni „Viscount“
hefði farizt og með henni 24
manneskjur. Á meðfylgjandi
mynd eru yfirmenn ástralskra
flugmála, þar á meðal R.
Swartz, flugmálaráðherra (til
vinstri) að skoða flugvélar-
fiakið. Vélin var í eigu ástr-
alskra flugféiagsins Ansett
— ANA.
Kínverskir
hermenn ■
Laos . . . ?
Vientiane, Laos, 26. sept. NTB
STJÓRNIN í Laos staðhæfir, að
hermenn frá Suður-Kína séu
komnir til Norður-Laos og hafi
komið sér þar fyrir á nokkrum
stöðum. Komi Kínverjarnir í stað
inn fyrir hermenn frá N-Viet-
nam, sem höfðu tekið sér stöðu
norðan við Luang Prabang, sem
er um 200 km. norður af höfuð-
borginni, Laos.
Bæði í Laos og S-Vietnam er
búizt við sókn af hálfu N-Viet-
nam manna áður en langt um
líður.
Kaupmannahöfn,
26. sept. — NTB
t ÞRÍTUG kona úr ná-
grenni Álaborgar hefur
gengið á fund lögreglunnar í
Óðinsvéum og lýst sig seka
um að hafa rænt þriggja mán
aða gömlum dreng, Basse,
sem týndist þar í borg 7. febr.
sl. — Kveðst konan hafa tek-
ið drenginn úr vagni sínum
og reikað með hann um borg
ina nokkra stund, en síðan
misst hann ofan í vatn. Kon-
an er sögð ákaflega tauga-
Stórtjón af völdum
fellibylja í Japan
A. m. k. 211 fórust, 103 saknaó
Tókíó, 26. sept. — NTB
t MJÖG hefur nú dregið úr
fellibyljunum „Helen“ og
„Idg“, sem gengu yfir Japan
um helgina og ollu stórtjóni.
Eru þeir að verða að venju-
legum lágþrýstisvæðum — en
nú hermir japanska veður-
stofan, að þriðji fellibylurinn
sé á leið yfir Japanseyjar og
muni skella á suðureyjunum
á þriðjudag. Hefur honum
verið gefið nafnið „Júní“.
t Samkvæmt síðustu fregn-
um munu 211 manns hafa
farizt af völdum fyrrgreindra
fellibylja og 103 er enn sakn-
að. 813 manns meiddust meira
og minna og 91.492 urðu að
yfirgefa heimili sín. Lýst hef-
ur verið yfir neyðarástandi í
56 bæjum og þorpum. Óveð-
ur þetta var hið versta, sem
gengið hefur yfir Japan frá
því árið 1959, er rúmlega 5000
manns týndu lífi.
Mestu tjóni olli fellibylurinn
„Ida“, er skall á stóru svæði
sunnan við Tókíó á laugardags-
kvöldið. Á mánudag sveigðist
„Ida“ til austurs og beindi för
yfir Kyrrahaf. Fellibylurinn
„Helen“ skall á Shikokueyju á
sunnudag og var á mánudag yfir
Hokkaidoeyju. Báðir fellibylirn-
ir höfðu í för með sér geysilega
úrkomu, er olli gífurlegum
skriðuföllum. Vegir skemmdust
á 1305 stöðum, segir í opinberri
tilkynningu, flóðið skolaði burtu
336 brúm og járnbrautarlínur
skemmdust á 146 stöðum. Tjón á
uppskeru emni er lauslega áætlað
um nálægt 2000 milljónum kr.
(ísl.), en ógerlegt er, að svo
stöddu að áætla heildartjón af
völdum þessa óveðurs.
jr
Osamlyndi milli
Krag og Hækkerup?
Kaupmannahöfn, 26. sept. NTB
• Kvoldberlingur gerir að um-
' talsefni þann orðróm, sem legið
hefur í lofti að undanförnu, að
! ósamlyndi sé milii Jens Otto
Krag, forsætisráðherra og Per
, Hækkerups, utanríkisráðherra
Danmerkur. Ræðir blaðið mál
þetta í sambandi við skipan hins
nýja ráðherra, Tyge Dahlguards,
til þess að fjalla um markaðsmál
og þá fyrst og fremst um hugsan
lega aðild Danmerkur að Efna-
Framhaid á bls. 3
veikluð og hefur verið lögð
inn á sjúkrahús til geðrann-
sóknar. Treystir lögreglan
sér ekki til að taka framburð
hennar gildan að svo komnu
máli.
Lögreglan hefur hinsvegar
hafizt handa um að kanna ævi-
feril konunnar og einkalíf. Er
haft eftir talsmanni lögreglunn-
ar, að konan hafi í þunglyndis-
kasti sagt eiginmanni sínum, að
hún hafi rænt barninu. Hafi
nann í fyrstu vísað fullyrðingu
Framhald á bls. 31
Hærri vextir Al-
þjóðobankans?
Washington, 26. sept. NTB.
FORSETI Alþjóðabankans,
Georg Woods, lét í dag að
því liggja í Washington, að
bankinn kynni senn að neyð-
ast til þess að hækka útláns-
vexti sína.
Wood lét þetta á sér skilja
í ræðu, sem hann hélt á árs-
þingi Alþjóðabankans og Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins.
Framkvæmdastjóri síðar-
nefndu stofnunarinnar, Pierre
Paul Schweitzer, sagði í sinni
ræðu, að innan árs ætti tækni
lega að vera unnt að leggja
fram frumdrögin að áætlun
um nokkurs konar alþjóðleg-
an gjaldeyri, sem verið gæti
hluti þess varasjóðs, sem þörf
krefst í alþjóðaviðskiptum.
Töpuðu tveim
til viðbótar
Stokkhólmi, 26. sept.
TALNING utankjörstaðaat-
atkvæða hófst í Stokkhólmi í
morgun og varð þegar Ijóst
í fyrstu talningu, að sósíal-
demókratar höfðu tapað tveim
ur fylkisþingsætum til viðbót
ar. Sætin unnu Hægri flokk-
urinn og Miðflokkurinn.
Ræningi drengs-
ins Basse fundinn?
Þannig er að falla kommún
istum í SA-Asíu í hendur
„I>EIR bundu mig við tré, og
höfðu mig fyrir skotmark.
Sá, sem skotið gat næst höfði
mínu, án þess að særa mig
eða drepa, var talinn bezta
skyttan“.
Þannig fórust bandaríska
flugmanninum Dieter Dengl-
er, 28 ára gömlum, orð, er
hann skýrði frá meðferð
þeirri, sem hann hlaut, með-
an stóð á fange’sun hans í
Laos. Þar var hann í höndum
Patet Laö, systurhreyfingar
Víetcong í Víetnam.
Dengler var telunn höndum
í febrúar sl., eftir að flugvél
hans var skotin niður. Harin
var þá á leið til N-Víetnam,
en flugvél hans féll til jarðar
innan landamæra Laos. í júlí
sl. tókst honum a’ð flýja, og
var loks bjargað af banda-
rískri þyrlu.
Dengler skýrði nýlega frá
því opinberlega, hvernig með
hann var farið, meðan hann
var fangi hjá kommúnistum.
Bezta heimildin um þjáning-
ar hans eru þó myndir þær,
sem birtast hér að ofan. Önn-
ur þeirra er tekin áður en
hann var tekinn höndum, hin
rétt eftir að honum var bjarg-
að úr frumskóginum.
Dengler segir, að fanga-
verðir hans hafi ætíð nefnt
hann „nazistann". (Dengler
er fæddur í Þýzkalandi, en
Dengler — léttist um 60 pund;
fluttist síðar til Bandaríkj-
anna). Strax eftir að hann
féll í hendur Víetcong, var
hann bundinn á höndum, og
látinn hírast þar sem engin
vörn var fyrir moskítóflugum
og öðrum hættulegum skor-
Framhald á bls. 16