Morgunblaðið - 27.09.1966, Page 10

Morgunblaðið - 27.09.1966, Page 10
10 MO»*"N*lADIO T>riftinrtíipuv 77 sept. 1966 Tónlíst: Karkkór Reykjavíkur KARLAKÓR Reykjavíkur leggur af stað í dag í hina miklu söng- og skemmtiför sína til suður- og austurlanda og kvaddi áheyrend- ur hér heima með samsöng í Austurbæjarbíói sl. laugardag. Söngstjóri er Páll Pampichler Pálsson, einsöngvarar Svala Niel- sen, Guðmundur Guðjónsson og ' Friðbjörn G. Jónsson, og undir- leikari Guðrún Kristinsdóttir. Efnisskrá þessara tónleika var löng og mikil, líklega óþarflega löng. Eins og vera ber um utan- fararsöngskrá var meiri hluti viðfangsefnanna íslenk lög, þar á meðal tveir rímnadansar eftir Jón Leifs (ofrausn má það telj- ast að eigna honum tvísöngsgerð- ina af laginu „ísland farsælda frón“) og tvö ný og athyglisverð lög eftir söngstjórann. I þeim kvað við ferskan og hressilegan tón, og er líklegt, að Páll Pam- pichler eigi eftir að leggja merk- an skerf til kórbókmennta okk- ar, ef hann verður lengi við rið- inn þessa starfsemi. Tíu íslenzk lög höfðu verið sett saman í „syrpu“ af Jóhanni Moravek Jó- * hannssyni, og hlýt ég að játa, að sá samsetningur hneykslaði mig stórlega. Þar voru alkunn lög ágætra og mikilsvirtra höf- unda afbökuð hryllilega og þeim raðað saman að því er virtist al- veg án tillits til stíls eða smekks. f stuttu máli sagt: hræðileg graut argerð. London, 23. sept. AP. RANNSÓKN, sem fram hefur farið á 94 Japönum, er lifðu af kjarnorkusprengingarnar, sem varpað var á Japan í heims- styrjöldinni síðari, sýnir engin merki um sjúkdóma nú að liðn um 20 árum, að því er brezkt læknatímarit skýrði frá í dag. Á síðari hluta efnisskrárinnar voru lög eftir Toivo Kuula og Sibelius, „Die Allmacht“ eftir Schubert, sem vafalaust var ris- mesta viðfangsefni tónleikanna, tveir negrasálmar og loks önnur lagasyrpa eftir Jóhann Moravek Jóhannsson, „Fantasia Napolit- ana“, saman sett af fimm eða sex ítölskum lögum af léttasta tagi. Þar hafði Guðmundur Guð- jónsson veigamikið einsöngshlut- verk á hendi og hlaut fýrir mak- legt lof áheyrenda. Einsöngur Svölu Nielsen í „Die Allmacht" var einnig með miklum ágæt- um, svo og meðferð Friðbjörns G. Jónssonar á lítilli vögguvisu eftir Karl O. Runólfsson. Guð- rún Kristinsdóttir lék sitt hlut- verk — stundum heldur van- þakklátt — með hinni mestu prýði. Kórinn er mjög vel æfður, sam tök og samstilling með ágætum og öryggi í hljóðfalli meiri en oftast áður. Páll Pampichler Pálsson er röggsamur og ná- kvæmur stjórnandi, kannski svo lítið „kaldur“, en þá líka bless- unarlega laus við óþarfa við- kvæmni. Með því ágæta liði, sem hann hefir á að skipa, munu honum flestir vegir færir. Að svo mæltu óska ég Karla- kór Reykjavíkur, söngstjóra og fylgdarliði skemmtilegrar ferð- ar og góðrar heimkomu. Jón Þórarinsson. „The Beatles" senn úr sögunni? Af því sem haft hefur verið eftir hinum frægu „Beatles“ frá Liverpool að undanförnu, er helzt að ráða, að þessi frægasti söngkvartett í heimi muni ef til vill bráðlega leysast upp og verða úr sög- unni. Eins og sakir standa eru þeir félagar dreifðir hing að og þangað um heiminn. George Harrison er í Indlandi í því skyni að læra að spila á citar og iðka yoga. John Lennon er að leika í stríðs- mynd alvarlegs eðlis í Vestur- Þýzkalandi og Paul McCart- ney lætur sér bara leiðast í húsinu sínu, sem hann er ný- búinn að kaupa í London. Hvað Ringo snertir virðist varla vera nokkur, sem láti sig hann nokkru varða. George hamingjusamur í útvarpsviðtali í Vestur- Þýzkalandi þar sem hinn nú næstum stutthærði John Lennon er að leika í kvik- mynd samkv. framansögðu, komst hann svo að orði, að sá tími hlyti að koma að sam- vinnan milli „The Beatles“ tæki enda. í viðtali við blað- ið „Sunday Times“ gaf Paul McCartney einnig í skyn, að eins og væri þá væri nú tími umhugsunar fyrir þá fé- laga. „John reyndi nú aftur til við kvikmyndirnar og George hefði feiknarlegan á- huga á citarleik og öllu sem indverskt væri. George væri hamingjusamur, eins og sá sem fundið hefði hin sönnu trúarbrögð. Ég er að leita fyrir mér um hvort ég get fundið nokkuð, sem ég gæti haft ánægju af að spreyta mig á. Það liggur ekkert á, ég hef tíma og peninga". Eitt af því, sem til greina kemur, eftir því sem hann segir, er að læra að leika á píanó. Hann hefur reynt það þrisvar áður, en aldrei enzt lengur en þrjár vikur f senn. Paul, en hús hans er næstum allan sólarhringinn umkringt flissandi stelpum, sagði ný- lega í viðtali, að í rauninni væri ekki svo erfitt fyrir hann að ganga um í London án þess að þekkjast. „Fólk trúir því nefnilega aldrei, að ég er sá, sem ég er“. Ragnheiður Clausen Minningarorð Tónleikar Tón- listarfélagsins Hún fæddist í Stykkishólmi 24. ágúst 1879. Foreldrar hennar voru Holgeir Clausen stórkaup- maður og Guðrún Þorkelsdótt- ir prests að Staðarstað. Hún ólst því upp í stórum systkinahóp og á fjölmennu, Iglæsilegu rausnarheimili. Til Reykjavíkur fluttist Ragn- heiður með foreldrum sínum nokkru fyrir aldamót og átti þar heima síðan. Ragnheiður giftist fyrra manni ^sínum, Benedikt Jónssyni verzl- unarmanni við Fisherverzlun í Reykjavík. Eignuðust þau hjón eina dóttur, Guðrúnu Olgu, sem gift er Árna Árnasyni kaup- manni, sem á sínum tíma var eigandi vöruhússins hér í Reykja vík. Benedikt lézt árið 1901. Síðara manni sínum, Gísla Gíslasyni verzlunarmanni hjá Geir, eins og sagt var, giftist Ragnheiður 30. október 1910. Eru börn þeirra Hólmfríður gift Har aldi Halldórssyni kaupmanni hér í bænum, og Holgeir rafvirkja- meistari giftur Guðrúnu Sæ- mundsdóttur frá Eyjarhólum í Kýrdal. Gísli, síðari maður Ragnheið- ar, andaðist 29. maí 1963. Hann var sonur Gísla Tómassonar bróð ir Þorsteins járnsmiðs, og er sú ætt kunn og margmenn hér í bæ. Eftir að hafa misst fyrri mann sinn, fór Ragnheiður til Dan- merkur og lærði þar kvenfata- saum, sem hún síðan stundaði hér í Reykjavík í nokkur ár. Hún tók mikinn þátt í félags- málum kvenna m. a. í Thorvald sensfélaginu, og var þar í stiórn og formaður í mörg ár. Fyrir starf sitt, var hún gerð þar að heiðursfélaga. Enda var hún list feng hannyrðakona. Gísli maður Ragnheiðar átti sín síðustu ár við mikla van- heilsu að stríða., og var til þess tekið, með hve mikilli um- hyggju og sálarþreki hún ann- aðist mann sinn í þeirri raun. Enda var Ragnheiður dugnaðar og mætis ’manneskja í hvívetna, og minnast hennar skyldir og vandalausir 'vinir með ástsemd og virðingu. G. M. FYRSTU tónleikar Tónlistar- félagsins á þessu hausti voru haldnir í Austurbæjarbíói í gær- kvöldi. Þar kom fram listafólk frá Ráðstjórnarríkjunum, fiðlu- leikarinn Mark Lubotsky og píanóleikarinn Lubov Edlina. Á efnisskránni voru fjórar sónötur, eftir Hayden (nr. 7, F-Dúr), Prokofiev (nr. 2, D-Dúr); Schn- itske, ungan þýzk-rússneskan höfund (op. 108, d-moll). Mark Lubotsky er mjög þrótt mikill og skörulegur fiðluleik- ari og tekur viðfangsefni sín föstum og myndarlegum tökum. Hitt getur orkað tvímælis, hvort þau tök eru alltaf í fyllsta sam- ræmi við anda og efni þess sem flutt er. Meðferð hans á hlnni Haydns var t.d. nokkuð ábúðar- mikil og rómantískt að yt;r- bragði. Rússnesku verkin tvó nutu sín vel, þótt hvorugt þeirra skilji mikið eftir. Til þess eru þau of yfirborðsleg — of miklar hamfarir af litlu skynjanlegu tilefni. En dýpst áhrif hafði sónatan eftir Brahms, enda vata- lítið efnismesta verkið á þess- um tónleikum. Lubov Edlina er bráðsnjall píanóleikari og gefur mótleikara sínum í engu eftir. Átti hún ekki minni þátt í að gera þessa tón- leika svo áheyrilega sem raun bar vitni. Samleikur þeirra mátti yfirleitt teljast með ágætum og var oft tilþrifamikill og glæsileg ur. Blaðbur&arfólk vantar í eftirtalin hverfi: Þingholtsstræti Laufásveg 2—57 Bergstaðastræti Skólavörðustígur Miðbær Hverfisg. frá 4—62 Snorrabraut Karlagata Skipholti II Aðalstræti Leifsgata Tómasarhagi Seltjarnarnes (Meiabraut) Tjarnargötu Vesturgata 2—44 Lynghagi Ægissiða Hringbraut 92—121 Hávallygata Nesvegur Víðimeiur Fálkagata Skerjatjörður sunnan flugvöll Lam ba>taðah verfi Kjartansgata Hvassaleiti II Talið við afgreiðsluna snni 22480. hugljúfu og skemmtilegu sónötu Jón Þórarinsson. Rifflar — Haglabyssur Rifflar 22 cal og 222-243. Rifflar, einskota, verð frá kr. 1675,00. Haglabyssur, verð frá kr. 2.235,00. Norsk nitedals haglaskot, aJlar stærðir. Riffilskot, allar stærðir. PÓSTSENDUM. Sportval Laugav. 48 Sími 14390. Sportval Hafnarf. Sími 51938.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.