Morgunblaðið - 27.09.1966, Síða 17
ÞriSjuðagur 27. sejft. 196«
MORGU N BLAÐIÐ
17
Me& Baltika í Suðurlanda-
ferðí dag
Oddur í Glæsi í káetu Krús|effs
í DAG leg>.;ur rússneska skipið
Baltika aí stað i Miðjarðar- og
Svartahafsreisu sína, sem á að
standa tii 31. október. 430 ís-
lendingar eru um borð, í raun-
inni 9 manns fleira en áætlað
var í fyrstu. 1 gærdag um kl. 6
kom Baltika til Reykjavíkur, og
var fréttamönnum boðið um
borð, ásamt st.iórn Karlakórs
Reykjavíkur, fararstjóranum,
Gísla Guðmundssyni, stjórnand-
anum Páli P. Pálssyni, fram-
kvæmdastjóra ferðaskrifstof-
unnar Lar.dsýn, Kjartani Helga-
syni o. fi. Ragnar Ingólfsson,
formaður Karlakórsins fer að
sjálfsögðu með. Þetta er hans
brúðkaupsferð, pví kl 8 í morg-
un gifti faf'ir nans, Ingólfur Þor-
Fá „ný'
andlit
Stokkhólmi, 26. sept. NTB.
# Tvær tólf ára telpur frá
Jemen komu í nótt til Sví-
þjóðar til þess að fá þar „ný“
andlit. Stúlkur þessar höfðu
báðar afmyndazt í andliti,
önnur af Ijónsárás, hin af völd,
um sjúkdóms. Koma þær
til að fá bót meina sinna, fyrir
forgöngu sænskrar hjúkrunar
1 konu, sem sá fram á að þær
mundu eiga ömurlegt líf fyrir
i höndum, yrði ekki að gert.
Hjúkrunarkona þessi, Ruth
Johansson, hefur starfað við
sjúkrahús samtakanna „Bjarg
ið barninu“ í Taiz í Jemen.
Hún fann telpurnar tvær í
fátækrahverfi þar í borg, og
sá að æfi þeirra yrði ill, ef
svo færi sem horfði. Foreldrar
þeirra höfðu þegar sýnt þeim
vítaverða vanrækslu og aðrar
aðstæður þeirra voru eftir því.
Hjúkrunarkonan hafði þegar
samband við samtökin „Bjarg
ið barninu" í Svíþjóð, sem
tókst í samvinnu við dagblöð
og einstaklinga að afla fjár
til ferðar stúlknanna og sjúkra
dvalar í Svíþjóð. Gera þarf
marga uppskurði á andlitum
þeirra og er þess vart að
vænta, að nokkur árangur
sjáist fyrr en eftir u.þ.b. ár.
valdsson hann og Sigurbjörgu
Sigurjónsdóttur. Fara nýgiftu
hjónin og lngólíur og frú með
í ferðina, ásamt mörgum öðrum
kunnum ísiendingum, svo sem
Þorbergi Þorðaisyni og frú Mar-
gréti, Þótaini Björnssyni, skip-
herra og frú, Kristjáni Jóhanni
Kristjánssyni og frú, Sigurði
Þórðarsyni og frú o. fl. Munu
þetta verða fyrstu farþegar, sem
fá að fara til Russlands án vega-
bréfsáritunar.
Baltika fer kl. 12, en farþegar
verða fluttir um borð kl. 10.30
og 11.30 með Akraborginni.
Brytinn á Baitika ei kona. Hún
hafði mestar áhyggjur af því að
maturinn murdi ekki henta ís-
lendingum. Þó hefði hann verið
undirbúinn í langan tíma. Við
sáum rússnesku súpuna „Borch“
á matseðUnum fyrsta daginn. En
guð má vi'a hvað íslendingum
hentar sagði brytinn. Skipstjór-
inn, MAJOROV kapteinn,
kvaðst ánægður nreð að haía
íslendinga sem fyrstu farþega til
Miðjarðarhdfslandanna og Svarta
hafs. Fyrst yiöi farið til Oran
í Alsír, eftir ö solarhringa sigl-
ingu, og þar mundi Karlakor-
inn haida konsert í Alsír mun
ferðamálaráð haida boð fyrir
Islendingana í hoteli þar i borg.
Þá verður farið tii Alexandriu í
EgyptaianJt, par sem skoðuð
verður Aæxandria og Kairo.
Þá verður farið til Libanon og
stanzað í tvo daga. Farþegum
er gefinn kostur á að fara til
Jerúsalem, Betlehem, Olífuhæð-
anna, Bíd'.ijs og fleiri staða.
IVfál Tsafendas
tekið fyrir
17. okt. n.k.
Höfðaborg, 26. sept. NTB
Tilkynnt var í Höföaborg í
dag, að mál Dimitris Tsafendas,
þess er myrti Verwoerd, forsætis
ráðherra landsins, muni tekið
fyrir í Höfðaborg 17. október nk.
Verður málið iagt beint fyrir
hæstarétt, án þess að um það
verði fyrst fjallað í undirrétti.
Verjandi Tsafendas hefur verið
skipaður kunnur lögfræðingur
að nafni W. E. Cooper.
Talið að Janos
Kadar segi af sér
Búdapest, 26. sept. NTB.
• Haft er eftir góðum heimild-
um í Búdapest, að Janos Kadar,
Ieiðtogi ungverskra kommúnista,
muni segja af sér áður en langt
um líður, að nokkru leyti af
heilsufarsástæðum.
Búizt er við, að því er heim-
ildir þessar herma, að leiðtoga
skiptin fari fram á landsfundi
kommúnistaflokksins í nóvem-
ber n. k. Vinir Kadars munu
hafa talið hann á að gegna
hafa talið hann á að gegna
embætti þangað til.
Kadar er 54 ára að aldri. Hann
komst til valda í október-upp-
reisninni 1956 með hjálp Sovét-
stjórnarinnar. Framan af var
löngum sagt, að Nikita Krúsjeff
héldi yfir honum verndarhendi,
en staða hans í flokknum hefur
virzt jafn sterk og áður, frá því
Krúsjeff fór frá völdum í Sovét-
ríkjunum.
Á sunnudag kom núverandi
leiðtogi sovézka kommúnista-
flokksins, Leonid Brezhnev, til
Búdapest, og var Kadar meðal
þeirra, sem tók á móti honum
á flugvellinum. Hann og Brez-
hnev ræddust við lengi í gær —
en í dag hélt hinn síðarnefndi
heim til Moskvu. Ekki er vitað
hvort heimsókn Brezhnev stóð
að einhverju leyti í sambandi við
fyrirhugaða afsögn Kadars. Hann
kom til Búdapest frá Júgóslavíu,
þar sem hann ræddi við ráða-
menn, m.a. Tító forseta. Að
viðræðum þeirra loknum var gef
in út yfirlýsing, þar sem sagði,
að Sovétstjórnin og stjórn Júgó-
slavíu mundu halda áfram að
veita N-Vietnam nauðsynlega að
stoð í baráttunni við bandaríska
heimsvaldasinna. Skuldbundu
þeir sig til að vinna sameiginlega
að því að varðveita frið í heimi
hér og efla veldi sósíalista. í yfir
lýsingunni var ekki minnzt einu
orði á Kína.
Næsti áftmgi er Istambul, þar
sem skipulagðar verða 4 ferðir.
Þá er Yaba á Krímskaga, þar
sem dvalizt verður í tvo daga
og farnar skoðnnarferðir og
kórinn hek.ur konsert. Næst er
Odessa, þar skoðunarferðir
verða og einnig hægt að sjá
ballettinn Svanavatnið. í Varna
í Búlgaríu varður stanzað í einn
dag og geta farþegar þá farið til
Soffíu fljúgandi eða skoðað
Varna og umhverfi. Þá verður
dvalizt í 2 daga í Pireus í Grikk-
landi og er boðiö upp á fimm ferð
ir, til Delpnv, Olympos, Aþenu,
Korinthu og fleiri staða. í
iNapoii á Italiu er hægt að fara
til Pompei og Róm og skoða
Napoli. En þaðan er farið beint
til íslands á - solarhringum. Kór-
inn mun syngja í Kairo, Yalta:
Odessa og e.t.v. í Beiruth og
Napoli. Sér Landsýn um ferðir
í landi.
Baitika hefur í 11 ár siglt
milli Leningrad og London, með
viðkomu í Helsinki og Kaup-
mannahöfn og jaínvel í Stokk-
sólmi, Gautaborg og Osló og kom
nú úr sinm síðustu ferð frá
London. SkipiC er 136 m. á lengd
og 18,5 á breidd, 9000 tonn og
aðalvél 12.800 ha. Það siglir upp
í 21 hnúta hraða. í skipinu eru
2>"veitingasalir 2 vínstúkur, 425
farþegarými og þar af tvær
laxuskabínur, þai sem Oddur í
Glæsi og F.agnar í Þórskaffi
verða með frúi sinar. En Oddur
tekur kleía þann er Krúsjeff
hafði á fevð sinn: til Sameinuðu
þjóðanna á sínum tima. Kvaðst
skipstjórinn vona að þetta yrði
ekki fyrsta ferðin með íslend-
inga til Miöjarðarhafslanda,
hann gæti e.t.v. endurtekið ferð-
ina næsta ar. Un. þessa næstu
ferð sagði hann að seinni hluti
september væri alltaf góður við
Miðjarðarhaf og Svartahaf og
góðu veðri væn spáð frá Reykja
vík og suður eftir.
Sagði skipstjonnn að ýmislegt
vævi að geva um borð, þar væri
kvikmyndasalui, og sýndar kvik
myndir fra stoðunuro sem komið
yrði á, bokasaín, þar sem m.a.
yrðu 150 hindi íré. Borgarbóka-
safninu í Roykjavík, leikir eru á
dekkinu, felagsvist yrði spiluð,
bingó o. t'l. í áhöfninni væru
179 mann.s, með nljcmsveit, sem
leikur á hverju kvöld o. fl. Og
vonaði hann að allir yrðu ánægð
ir.
Loks vo:u blaðamenn beðnir
um að birta utanáskriftir þeirra,
sem með skipinn fara. Þá er
fyrst nafn viðkomandi og C/o
Baltika, Landsyn group, Pomonis
Abov, Chalach Verunstreet,
BEIRUT, LIBANON (bréf send-
ist í síða.sta lagj 4. október),
næsta utanáskiift er: c/o T/S
Baltika, Landsyn group, Pomnis.
28 Ave. Alexandras, ATHENS
Greece (bréf sendist í síðasta
lagi 15. október). Og loks: c/o
Baltika, Landsyn group, I Grandi
Viaggi, Via Dui Macelli 23,
Qalleria Ina, ROMA, ITAKY
is, 28 Ava. Altxandas, ATHENS,
19. okt.
Komið í veg
fyrir þurrk
í Svíþjóð
Stokkhólmi 26. sept. NTB
• Tekizt hefur að koma í veg
fyrir, að Svíar búi við þurrk
á næstunni. Verkfalli því sem
verða átti hjá afgreiðslumönn
um í áfengisútsölunum, var
aflýst í nótt, eftir að samkomu
lag hafði tekizt á elleftu
stundu. Verkfailið, sem náð
hefði til 2500 manna, átti að
hefjast kl. 5 í morgun.
Nasser, forseti Egyptalands, var fyrir skemmstu í opinberri
heimsókn í Tanzaníu. Myndin sýnir, hvar Nasser endurgeldur
kveðju innfædds dansara á stultum yzt til hægri. — Við hlið
Nassers gengur Julius Nyerere, forseti Tanzaníu. Myndin var
tekin við komu Nassers til Dar-Ee-Salaam, höfuðborgar Tanz-
aníu.—
De Gaulle hyggsl
berjast til sigurs
— í komandi jbingkosningum
París, 26. sept. NTB.
• HAFT «r eftir áreiðanlegum
heimildum í París í dag, að
de Gaulle, forseti, ætli að taka
virkan þátt i kosningabaráttunni
í vetur. Leggur hann, að sagt
er, mikið kapp á að Gullistar
vinni verulegan sigur í komandi
þingkosningum, einkum vegna
þess, að Atlantshafsbandalags-
samningurinn rennur út árið
1969 og taka þarf mikilvægar
ákvarðanir varðandi framtið
bandalagsius, áður en þar að
kemur.
Um það bil er NATO samning-
urinn gengur úr gildi, má búast
við, að Fvakkiand verði orðað
viðurkennt kjarnorkuveldi, verði
búið að smíða sinar vetnis-
sprengjur, korna sér upp kjarn-
orkuknúnum kafbátum og lang-
drægum e’dflaugum. Með þetta
í huga — og til þess að festa
enn betur í sessi ýmsar grund-
vallarstofr.amr fimmta lýðveld-
isins, er de Gauile sagður stað-
ráðinn í að berjast til vinnings.
Kosningarnar verða að öllum
líkindum ekki síðai en í marz
1967 — og e. t. v. fyrr, að sögn
NTB.
Skoðanakannanir benda til
þess, að vinsæiuir de Gaulle fari
vaxandi. Nýiustu tölur herma,
að 66% þjóðarinnar séu ánægð
með stjórn forsetans, bæði í inn-
anríkis og utani íkismálum.
— Flótti
Enn meðvitund-
arlaus
ER Mbl. hafði samband við
Landakotsspítala í gærkvöldi og
spurðist fyrir um líðan Hannesar
Arnórssonar, er slasaðist í bíl-
veltu á föstudagskvöldið við
Kópavogsbrú, fékk blaðið það
svar, að líðan Hannesar væri við
það sama. Hann var enn með-
vitundarlaus í gærkvöldi.
Framhald af bls. 1
dýrum. Þegar á öðrum degi
fangelsunarinnar var tekið að
hafa hann að skotmarki.
Er tali'ð var, að hann teldi
ekki lengur ráðlegt að malda
í móinn, var honum fenginn
penni og pappír, og honum
sagt að skrifa heim. Bréfa-
skriftirnar voru þó því skil-
yrði háð, að hann skrifaði
jafnframt undir sérstaka áróð
ursyfirlýsingu kommúnista.
Hann neitaði, en var þá bar-
inn, þar til hann misstf með-
vitund. Næsta dag hófust mis
þyrmingarnar á ný. Þá var
hann bundinn við uxa, sem
dró hann á eftir sér í gegnum
frumskóginn. Enn neitaði
hann að verða við skipuninni.
Þá var hann barinn á ný.
Á áttunda degi tókst honum
að flýja. en var þó handtek-
inn á ný. í refsingarskyni var
hann bundinn og barinn, þar
til hann missti meðvitund.
Nokkru síðar var Dengler
fluttur í bráðabirgðafangabúð
ir. Þar tókst að hrinda í fram-
kvæmd fjöldaflótta. Nokkrir
fanganna komust yfir vopn
fangavarðanna, og skutu
nokkra þeirra til bana, í upp-
hafi flóttans.
Sá, sem flýði með Dengler,
var Whitney Martin, liðsfor-
ingi, en hann týndi lífinu í
frumskógum N-Víetnam. —
Dengler sá, hvar skæruliði
kom auga á Martin, réðst að
honum og hjó af honum höf-
uðið.
Dengler komst undan á
hlaupum, þótt kraftarnir
væru senn á þrotum. Eftir 23
daga flótta um frumskóginn
— á þeim tíma nærðist hann
aðeins á ávöxtum og rótum
— var honum loks bjargað á
áðurnefndan hátt.
Dengler mun nú hafa náð
sér.