Morgunblaðið - 27.09.1966, Síða 30
3U
MUKiaU N tSLAUItf
JÞriðjudagur 27 sept. 1966
Æsispennandi ursiitaleik Keflvíkinga
og Vals lauk með jafntefli 2-2
Valsmenn jöfnuðu á 120. mínútu
LOKSINS fengu íslenzkir knattspyrnuáhorfendur verulega
æsandi leik milli tveggja í&lenzkra liða — leik, eins og þeir
gerast beztir hvað snertir spenning og æsandi augnablik. Og
ekki stóð á því að áhorfendur væru „með í leiknum“. Frá
byrjun til leiksloka í úrslitaleik Keflvíkinga og Valsmanna
á sunnudag var hver taug spennt í áhorfendaskaranum, sem
var eitthvað á 9. þúsund, ef allt er með talið. Þetta var eins
og landsleikur á að vera — en er aldrei hér á landi. Þetta var
leikur baráttunnar, þar sem hver leikmaður leggur allt sem
hann á til í leikinn. Þetta var leikur hinna æsandi augna-
blika þar sem allt getur skeð — þar sem menn fá ekki upp-
skeru eftir frækilegt upphlaup og góðan samleik, af því að
fingurgómar frábærs markvarðar stöðva knöttinn, en svo
ræður tilviljun því frekar en góður leikur að knötturinn
skoppar fram hjá nokkuð slösuðum markverði — og leika
verður annan leik. 2 mörk gegn 2 urðu urslitin í „auka“-
úrslitaleik iBK og Vals í Islandsmótinu.
Bæði lið sýndu á köflum íeikinn, en vegna mistaka komst
ágætan leik en liðsmönnum
beggja liða urðu einnig á mikil
mistök í æsingi augnabliksins og
sakir mikílvægi leiksins. í heild
séð var leikur Keflvíkinga
sterkari og þeir voru nær sigri
— enda sk'ldu ekki nema 40 sek-
úndur þá frá því að taka við ís-
landsbikarnum og þeirri dýrð er
honum fyigir.
f>að sem auðkennir þennan
leik öðrum fremur eru meiðslin
og viku tveir Keflvíkingar af
velli — anr.ar á sjúkrabörum —
pg hinn þriðji Kjartan mark-
vörður ha’.traði með til leiksloka
en var vart hálfur maður.
t
Leikurinn var frá byrjun til
loka æsispennandi en einkennd-
ist þó verulega af taugaæsingi
beggja liða. Úthaldsleysi beggja
sagði til sín er á leið og voru leik
menn beggja örmagna er að
leikslokum dro, enda leikvöllur
þungur og erf.ður.
Mest bar á taugaspennu í upp-
hafi og lá við marki á Keflvík-
inga þegar á 1. min. ÍBK hóf
Hermann í gegn, óð að marki og
ekki varð bjargað nema með
naumindum á hástigi hættunnar.
Mínútu síðar var sótt að Vals-
markinu eg Grétar Magnússon
og Björn Júl. miðv. Vals lenda
í árekstri og Grétar er borinn
út af á sjukrabörum og gengur
kemst í gott færi, spyrnir og Vals
maður reynir á si'ðustu stundu
að verja með skalla en koll-
spyrna hans stefnir í mark. Sig-
urður Dagsson greip eldsnöggt
inn í og lyfti yfir. Að öllum
skotum Keflvíkinga ólöstuðum
var þetta ein snaggaralegasta
vörn Sigurðar í leiknum.
26. Kjartan ver mjög vel ská-
skot Bergsteins eftir að Reynir
gaf fyrir frá vinstri.
32. Ingvar er í góðu færi við
mark ÍBK eftir horn — en lyftir
yfir markið.
34. Bezta tækifæri Keflvík-
inga. Gefið fyrir frá vinstri. Jón
Jóh. leikur að marki — og er
reyndar tekið í hann af varnar-
manni Vals — en hann fær skot-
ið í stöng og knötturinn hrekkur
út til Rúnars, sem hitti ekki
opið mark.
34. Magnús Torfason á skot rétt
utan stangar eftir laglegan leik.
37. Reynir tekur við knettin-
um á miðju, gefur fram til Her-
manns sem sækir að marki Kefl-
víkinga og leikur snilldarlega á
tvo varnarmenn svo marki'ð opn-
ast og Hermann skorar laglega
af stuttu færi.
Þannig var sótt og hin hættu-
legu tækifæri skiptust á. En til
hlés gengu Valsmenn með eitt
Sigurður
— hin ir horfa spennlir
mark ytir.
í síðari hálfleik tóku Keflvík-
ingar leikinn hreinlega í sínar
hendur og sóttu nú án afláts.
Var stanzlaus hætta við Vals-
markið og hófst nú fyrir alvöru
Sigurðar þáttur Dagssonar í
Sigurður hefur varið í horn gott skot Högna. (Knöttinn má sjá skáhalt
t. v.) Upp ur horninu kom Siðara mark ÍBK. — Myndir Sv. Þorm.
ofan
' : ' .
markvinkils
þessum leik, en þeim þætti lauk
með því að án hans frábæru
markvözlu hefðu Valsmenn verið
gersigraðir á skömmum tíma.
En Sigurður Dagsson fékfe
varizt öllu — fram á 12. mín.
að Jón Jóhannsson kemst enn
einu sinni inn fyrir vörn, sækir
að marki og Sigurður hyggst
stöðva með úthlaupi, en Jón lyft
ir knettinum meistaralega vel
yfir hann.og leikur með hann i
mark. Var þetta sérlega vel gert
hjá Jóni.
Mínútu síðar máttu Valsmenn
enn þakka fyrir að ekki fór illa.
Hinir sóknglöðu Keflvíkingar
höfðu yfirunnið alla vörn og Jón
Ólafur stóð einn fyrir opnu og
mannlausu marki Vals með knött
inn innan markteigs — en á
óskiljanlegan hátt tókst honum
í æsing og spenning leiksins að
spyrna framhjá.
Og þrátt fyrir meiri sókn Kefl-
vikinga en alltaf hættuleg færi
Vals, þar sem Keflavíkurvörnin
reyndist auðveldari viðfangs og
Framhald á bls. 31
Meiðslin
— Ég verð með á sunnu- :
daginn, sagði Kjartan mark- ■
vörður IBK Sigtryggsson er :
við ræddum við hann í gær- ■
kvöld. Ég fékk mikið högg í :
síðuna af fæti Hermanns — •
■
en það var síður en svo meint ;
þannig og skeði aðeins í hita •
augnabliksins, óvart. ;
— Ég hef Iegið með bakstra •
í dag og geri áfram í þeirri ;
von að verða góður á sunnu- •
daginn kemur. Það var afleitt ;
að tapa þessu svona á síðustu |
sekúndunum, sagði Kjartan. ;
Hafsteinn Guðmundsson var I
áhyggjufyllri. Hann óttaðist ;
að Keflavíkurliðið væri stór- !
lega lamað eftir meiðslin. ;
Grétar er alls óleikfær og :
sennilega Rúnar, sem hefur ;
brjósklos í hné og Hafsteinn I
taldi alls ekki víst að Kjart- j
an gæti leikið með. Hafsteinn !
kvað það súrt að Keflavíkur- ;
liðið hefði orðið að sjá af sigr- •
inum á síðustu stundu en ;
kvaðst að vísu vona að það ■
væri aðeins — í bili.
nú í spekliim með slitið liðband
og leikur ekki knattspyrnu á
þessu ári, hvorki í íslandsmóti
né í bikarkeppni.
Inn kom Hógnj Gunnlaugsson,
en með þessum meiðslum fóru
allar „leikaðferðtr" Keflvíkinga
út um þúfvr þvi Karl sem var
hinn beitti innherii vék út í út-
herjastöða og bit ÍBK-liðsins var
ekki sem áður.
Leikurinn einkenndist mjög
af spennandi augnablikum og
látum við minnisbókina tala:
5. mín. Kjartan' markv. bjarg-
ar með ú'Maupi af tám Her-
manns. Sig. Albertsson
missti Hermann inn fyrir.
9. mín. Karl og Jón Ólafur
brjótast gegnum Valsvörn.
Þvaga og stórhætta. Þorsteinn
hreinsar fyrir opnu marki.
12. mín. Jón Jóhanns kemst í
gegn á vmstri væng — skot í
hliðarnet.
12. mín. Reynir leikur upp
kantinn Og sendir Hermanni á
miðju sem kemst í gott færi, en
á síð. stundu er hreinsað.
22. mín. Keflvíkingar sækja
upp v. megin. Jón Ólafur kominn
í gott færi en ágætt skot hans
er varið snilldarlega af Sigurði
Dagssyni.
2. Magnús Torfason leikur lag-
lega á varnarmenn Vals og
Svíar sigruðu í tugþraut
eítir horða keppni við íslendinga og Doni
Ölafur Guðmundsson
setti unglingamet
UM helgina fór fram í Olufström
í Svíþjóð landskeppni í tugþraut
milli Svía, íslendinga og Dana.
Keppnin var mjög jöfn og spenn
andi og varð ekki séð er síðasta
grein þrautarinnar, 1500 metra
hlaup hófst, hvert landanna bæri
sigur úr býtum.
Upphaflega var gert ráð fyrir
því, að hvert land sendi þrjá
menn til keppni og stig tveggja
beztu yrði reiknuð, en á síðustu
stundu var þessu breytt og á-
kveðið að reiknuð yrðu stig
þriggja manna frá hverju landi.
Þessu mótmæltu Islendingar þar
sem þeir höfðu aðeins sent þrjá
keppendur til leiks, en Danir og
Svíar fjóra. Voru mótmælin tek-
in til greina og það ákveðið að
fslendingar lykju keppni yrðu
reiknuð stig þriggja manna, en
ella aðeins tveggja, eins og upp-
haflega var gert ráð fyrir.
Eftir fyrri daginn leiddu ís-
lendingar keppnina og höfðu þá
hlotið 10.628 stig. Svíar voru í
öðru sæti með 10.626 stig og Dan
ir höfðu 10.336 stig. Ólafur Guð-
mundsson hafði flest stig ein-
staklinga, 3646, Valbjörn var
þriðji með 3592 stig og Kjartan
9. með 3390. Leit því vel út, að
fyrri degi loknum, að ísland
mundi sigra, og jafnvel voru horf
ur á íslenzku meti, þar sem Val-
björn hefur ekki áður hlotið svo
mörg stig eftir fyrri dag.
Það var annars Ólafur Guð-
mundsson sem vakti mesta at-
hygli fyrri daginn. Hann sigraði
örugglega í þrem greinum og
náði í þeim góðum árangri. Hann
setti nýtt unglingamet í lang-
stökki með 7,23 metra, hljóp
100 metrana á 11,0 sek., og 400
metra á 49,9 sek sem er hans
bezti tími í því hlaupi. Ólafi
tókst einnig vel upp í hástökkinu
og stökk 1,75 metra, en kúluvarp
ið misheppnaðist hinsvegar hjá
honum, — aðeins 10,99 metra.
í fyrstu grein síðari dags, 110
metra grindahlaupi voru svo þeir
Kjartan og Valbjörn ekki í essinu
sínu og tímar þeirra um sek.
lakari en venja er, og þegar
kringlukastið tókst ekki sem
bezt hjá þeim heldur, minnk-
uðu sigurlíkur mjög. Valbjörn
sigraði svo í stangastökkinu með
4,20 metra og Kjartan náði einn-
ig góðum árangri þar stökk 3,65
metra.
, ' '■ Framhald á bls 25