Morgunblaðið - 29.09.1966, Blaðsíða 2
MORCUNBLAÐIÐ
FlmTntudaeur 29. sept. 1966
Z
Valiant 1967
fyrir 100 kr.
HÉR að ofan getur að líta Ply-
mouth Va<iant, árgerð 1967, einn
af þremur vinningsbílum í hinu
glæsilega Landshappdrætti Sjálf
stæðisflokksins. Þrir bílar falla í
skaut hinutn heppnu handhöfum
vinningsmiðanna þann 8. nóv-
ember nk. Verðmæti bílanna er
á aðra milijón, en miðinn kostar
aðeins 100 krónur.
Landshappdrættið er að þessu
sinni nánast skyndihappdrætti,
Hannes Wöhler
sigraði
í góðahstri
HANNES Árni Wöhler, sölumað-
ur hjá íslenzk-erlenda verzlun-
arfélaginu, sigraði í góðaksturs-
keppni BFÖ, sem haldin var um
síðustu helgi. Hannes ók Volks-
wagenbifreið sinni í keppninni,
og var fjölskylda hans með hon-
um. Verðlaunin voru silfurbikar
með inngreyptum gullskildi með
nöfnum sigurvegara og fjöl-
skyldu hans.
Önnur verðlaun hlaut Skúli
Ólafsson, verzlunarmaður. Ók
hann Saabbifreið. Þriðji varð
Bjarni Hannesson, bifvélavirki, á
NSU-Prinz. Ómar Ragnarsson,
gamanvísnasöngvari, hreppti 4.
sæti á Bronco.
Um næstu helgi verður góð-
aksturskeppni í Ólafsvík á veg-
um BFÖ.
Enginn hvít-
ur hrafn til
í Náttúmgripasafninu
í FRÉTT í blaðinu í gær varð
sá misskilningur, að sagt var að
Náttúrugripasafn íslands ætti í
fórum sínum hvítan hrafn, grá
hrafna og gráflekkótta. Hið rétta
er, að safnið hefur aldrei eignast
slíka hrafna, en hinsvegar ber
við að þeir sjást úti í náttúr-
unni. Fy;ir nokkrum árum
náðist hvítur hrafn í Ólafsvík
og var harm sýndur hér í Reykja
vík. Farið var aftur með hrafn-
inn til Ólafsvíkur og honum
sleppt. En nokkru síðar var
hann skot.nn. Enginn veit hvað
um hrafn þennan varð, en ef
einhver, som þessar línur les,
hefur vitneskju um þann hrafn,
og hvort hann er ennþá til t. d.
uppsettur, væri Náttúrugripa-
safninu mikil þökk að því, að
viökomancu gerði safninu aðvart.
aðeins liðlega mánuður þar til
dregið verður. Er því fólki bent
á að verða sér úti um miða tím-
anlega.
Unnið er nú að því að senda
miða til s'uðningsmanna og vel-
unnara Sjálfstæðisflokksins um
land allt. Miðar fást einnig í
Sjálfstæðishúsinu við Aústur-
vöU.
Vinningsbilarnir koma brátt
„á götuna'* og verða þá miðar og
seldir úr þeim í Miðbænum í
Reykjavík.
KAUPIÐ MIÐA STRAX í
DAG.
66 skip tilkynntu
afla sl. sólarhring
S. 1. sólarhring tilkynntu 66
skip um afla, er nam samtals
8.620 lestum.Var veiðisvæðið
í Norðfjarðar- og Reyðarfjarðar-
dýpi 30—50 mílur undan landi.
Suðvestan kaldi var á miðunum,
og sæmilegt veiðiveður. Eftir-
talin skip tilkynntu um afla:
Dalatangi
Lestir
Sunnutindur SU 80
Sigurbjörg OF 320
Guðrún Jónsdóttir IS 70
Þórður Jónasson EA 330
Snæfell EA 160
Hallc’/r Jónsson SH 80
Guðjónn Sigurðsson VE 65 j
Guðmundur Péturs IS 180 |
Gísli Árni RE 230 j
Ófeigur II VE 75 ;
Pétur Thorsteinsson BA 140
Þórkatla II GK 140 j
Ársæll Sigurðsson GK 180 j
Sig. Jónsson SU 180
Miklar framkvæmd-
ir á Stokkseyri
Stokkseyri, 28. sept.
Framkvæmdir á vegum Stokks
eyrarhrepps hafa verið mjög
miklar í sumar. Verið er að
leggja vatnsveitu í þorpið úr bor
holu, sem er ofan til við miðju
þorpsins. Framkvæmdum hefur
miðað vel áfram í sumar en þær
hófust í fyrrahaust og vonir
standa til, að rúmlega helm-
ingur þorpsins fái vatn frá veit-
unni í haust.
Seinnihluta júlímánaðar var
byrjað að lengja bryggjuna og
var hún lengd um 14 metra, og
mun því verki ljúka næstu daga
en þá verður hafizt handa við
að dýpka í kring um bryggjuna
og er það áfangi af áframhald-
andi dýpkun hafnarinnar og inn
siglingarinnar.
Héðan reru fimm bátar í sum
ar og voru allir á humarveiðum
Var afli þeirra flestra betri en
í fyrrasumar. Nú eru þeir hættir
humarveiðum og stunda veiðar
í dragnót og troll, en afli þeirra
er mjög rýr.
Hafizt hefur verið handa um
söfnun hlutafjár til byggingar
niðursuðuverksmiðju fyrir sjó-
lax hér á Stokkseyri. Er að kom
ast verulegur skriður á söfnunina
Hefur verið leitað til ýmissa
fyrirtækja hér og í næsta ná-
grenni. Ennfremur hefur verið
leitað til burtfluttra Stokkseyr-
inga, og hafa margir tekið vel
þeirri málaleitan.
Unnið er bér af miklu kappi
á vegum Landssímans því verið
er að tengja Stokkseyri við sjálf
virku símstöðina á Selfossi, sem
mun taka til starfa á morgun.
Eftirleiðis munu Stokkseyringar
hafa símaþjónustu allan siílar-
hringinn.
Steingrímur.
Guðmundur Pétursson
útgerðarmaður látinn
Mikil síld til
Vopnafjarðar
Vopnafirði í gær:
HINGAÐ til Vopnafjarðar hafa
komið 25 skip frá kl. 12 í gær
til kl. 12 í dag með um 4800
tonn. Vitað er um nokkur skip
sem eru á leiðinni með góðan
afla. Má heita að öll þessi síld
fari í bræðslu. Landað hefur
verið úr fjórum skipum í einu,
það er að segja, tveimur við
verksmiðjubryggjuna og úr
tveim með bílum. Ufsi hefur
verið töluverður í síldinni, allt
upp í 10 tonn í skipi, og hefur
hann verið keyptur hér, og er nú
verið að flaka hann til söltunar.
Nú er dumbungsveður hér og
hefur verið svo undanfarna
daga. Þó er hlýtt. — Ragnar.
Jón Eiríksson SF 110
Ól. Sigurðsson AK 210 1
Ófeigur III VE 30 |
Öskar Halldórsson RE 190
Sigurpáll GK 110 j
Baldur EA 60 j
Jón Finnson GK 120
Hafrún IS 80
Grótta RE 140
Jón Þórðarson BA 70
Þorleifur OF 160
Kap II VE 45
Jón á Stapa SH 100
Runólfur SH 90
Þorsteinn RE 250
Jón Garðar GK 230
Helgi Flóventsson ÞH 120
Ingiber ólafsson II GK 120
Ásþór RE 155
Mummi GK 70
Freyfaxi KE 100
Þráinn NK 155
Náttfari ÞH 170
Vigri GK 140
Sigurvon RE 190
Arnar RE 170
Gullfaxi NK 140
Æskan SI 70
Geirfugl GK 170
Skírnir AK 110
Höfrungur II AK 210
Andvari KE 65
Akurey SF 30
Sæþór OF 110
Guðbjartur Kristján 100
Ögri RE 30
Svanur IS 75
Bergur VE 100
Húni II HU 140
Heimir SU 80
Garðar GK 150
Gullberg NS 90
Barði NK 120
Sæúlfur BA 100
Sólfari AK 150
Framnes IS 110
Sigurfari AK 105
Reykjaborg RE 150
Halkion VE 150
Fagriklettur GK 90
Skarðsvík SH 80
Sigurey EA 280
Guðmundur Pétursson útgerðar-
maður á Akureyri lézt í gær-
morgun í Kristnesi nær níræður
að aldri. Hann var fæddur að
Neðri Dálkstöðum í Svalbarðs-
strandarhreppi í Suður-Þingey-
jarsýslu 17. nóvember 1876. For
eldrar hans voru Pétur Péturs-
son bóndi þar og kona hans Guð
rún Guðmundsdóttir.
Guðmundur var gagnfræðingur
frá Möðruvallaskóla 1900 og
stundaði verzlunarnám í Kaup-
mannahöfn 1903. Hann var um
fjöldamörg ár umsvifamikill út-
gerðarmaður og þekktur borgari
Akureyrarbæjar og lét ýmis fram
faramál bæjarins mjög til sín
taka. Hann var frumkvöðull að
stofnun Vélbátatryggingar Eyja-
fjarðar og stjórnarformaður til
1938. Lengst af stjórnarformaður
Vélbátatryggingar Eyjafjarðar
1937—1957, umboðsmaður Dansk
Lloyd og síðar Sjóvátrygginga-
félags íslands h.f. um skeið, auk
fleiri tryggingafélaga.
j Hann var formaður Útgerðar-
I félags Akureyrar fjölmörg ár,
j stjórnarformaður Fiskideildar
! Norðlendinga um skeið, í stjóm
, Síldareinkasölunnar 1930—1931,
j sat Fiskiþing 1934, 1936 og 1940,
j stofnandi og stjórnarformaður
; Dráttarbrautar Akureyrar hf.,
auk fleiri trúnaðarstarfa. Hann
var heiðursfélagi Útgerðar-
| mannafélags Akureyrar, Vélbáta
tryggingar Eyjafjarðar og Sjálf-
stæðisfélags Akureyrar.
| Guðmundur var kvæntur Sig-
j urlínu Valgerði Kristjánsdóttur
' bónda Jóelssonar að Mógili á Sval
bar’ðsströnd.
Hafnarfjörður
Blaðburðarbörn vantar í nokkur hverfi.
Talið við afgreiðsluna, Arnarhrauni 14.
Sími 50374.
SlysáReykjanes-
braut
ÞAÐ SLYS varð á Reykjanes-
braut í gær, að ungur drengur á
reiðhjóli varð fyrir bifreið með
þeim afleiðingum að hann og
ökumaður bifreiðarinnar slösuó-
ust nokkuð, svo að flytja varð
þá í Slysavarðstofuna.
Drengurinn var að hjóla eftir
Reykjanesbraut, en mun haca
runnið til á hjólinu, og lent á
bifreið, sem var á suðurleið, með
fyrrgreindum afleiðingum.
HÆÐIN yfir Grænlandi stóð vindstig). Víðast á landinu j
allfast íyrir lægðunum í gær, var rigning eða þokusúld ;
og var NA hvassviðri á haf- með köflum, og flugveður ■
inu milli Vestfjarða og Græn- erfitt til Norðurlands. Hitinn :
lands, en í Æðey og á Horn- var 10' sunnan lands, en ;
bjargsvita var allhvasst (7 4* í Látravík og Grímsey. :