Morgunblaðið - 29.09.1966, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 29.09.1966, Qupperneq 32
Helmingi útbreiddara en nokkurt annað íslenzkt blað 0t0«ntÞIilíkUkr 222. tbl — FiitimtndaKur 29. september 1966 Langstærsta og fjölbreyttasta blað landsins íslenzka sjónvarpið næst illa í Garði, Keflavík og Sandgerði Loftnetin ekki nógti sterk SJÓNVARPSÁHORFENDUR í Sandgerði munu ekki fyrst um sinn geta náð íslenzka sjónvarp- inu á skerma sína, að því er Sigurður Jónsson, yfirmaður tæknideildar Keflavíkursjón- varpsins tjáði blaðamanni Mbl. í gær. Einnig munu Keflvíking ar og Garðsbúar fá mjög slæma mynd frá Reykjavíkursjónvarp Eggert Kristjánsson stórkaupmaður látinn SÍÐDEGIS í gær lézt í Reykja- vík Eggert Kristjánsson, stór- kaupmaður, á 69. aldursári. Bana mein hans var hjartabilun. Eggert heitinn Kristjánsson fæddist hinn 6. febrúar 1897 að Mýrdal í Kolbeinsstaðahreppi. — Foreldrar hans voru Kristján Eggertsson, bóndi í Dalsmynni í Eyjahreppi, og kona hans, Guðný Guðnadóttir. Eggert Kristjánsson útskrifaðist frá Gagnfræðaskólanum í Flens- 'borg í Hafnarfirði árið 1918 og hóf síðan verzlunarstörf í Reykja vík árj síðar. Árið 1922 stofnaði hann fyrirtækið Eggert Krist- jánsson & Co hf. og var forstjóri þess frá upphafi, auk þess, sem hann var stjórnarformaður í fjölda fyrirtækja. Eggert átti sæti í stjórn Félags íslenzkra stórkaupmanna 1931— ’49, þar af formaður félagsins í 17 ár. Hann átti sæti í stjórn Verzlunarráðs íslands árin 1934— ’56, þar af varaformaður ráðsins í 22 ár og formaður þess frá 1949—’56. í stjórn Félags ís- lenzkra iðnrekenda frá stofnun þess 1933 til 1939. Hann átti sæti í stjórn Vinnuveitendasambands íslands frá stofnun sambandsins. Aðalræ'ðismaður Finna var Egg- ert frá árinu 1954 til ársins 1965. Eggert Kristjánsson tók mik- inn þátt í milliríkjasamninga- gerð fyrir hönd ríkisstjórnarinn- ar og einnig í mörgum Norður- landafundum um verzlunarmál, auk þess, sem hann var einn af fulltrúum íslands á alþjóðlegri verzlunarráðstefnu í Bandaríkj- unum 1944. Á yngri árum starf- aði Eggert mikið að íþróttamál- um og var hann í eina tíð lands- þekktur glímumaður. Egge^t var heiðursfélagi Félags íslenzkra stórkaupmanna. — Kvæntur var Eggert Guðrúnu Þórðardóttur og lifir hún mann sinn. Haust- og vetrar- síld seld Pólverjum 108 kr. hærra verð pr. tunnu en í fyrra GUNNAR Flóventz, framkvæmda stjóri Suðvesturlandsdeildar Síld arútvegsnefndar, hefur verið í Varsjá að undanförnu að leita samninga við Pólverja um kaup á saltsíld. í gær tókust samning- ar um sölu á 20 þúsund tunnum af haust og vetrarsíld til Pól- lands. Má fitumagn síldarinnar vera allt niður í 17% og eru seldir tveir stærðarflokkar, 400 —700 stykki í tunnu og 700—900 stykki í tunnu. Síldin á að afhendast í janúar- mánuði n.k. og er heimild til að Auglýsendur athugið! AUGLÝSINGAR í sunnudags- blað Morgunblaðsins verðaj að berast sem fyrst, helzt fyrir kuikkan fimm í dag. Auglýsinguro í laugardags- blað se skilað fyrir hádegi á morgun. Auglysingum í föstudags-, blað sé skilað fyrir hádegi ’ í dag. ) salta upp í samninginn hvort heldur er Suðurlandssíld eða síld veiddri fyrir Austurlandi. Pólverjar hafa samkvæmt samn- ingnum heimild til þess að auka kaupin um 15 þús. tunnur. Verð þetta fyrir síld er 18 shillingum hærra pr. tunnu en var á síðasta ári á samskonar síld seldri til Póllands Uppskera ■ minna lagi KARTÖFI.UUPPSKERAN í ár er heldur roinni en í meðalári. í Þykkvabænum og í Flóanum er nú búið að taka upp kartöfl- ur að mestu Uppskeran í ár í Þykkvabær.um er um 6—7 föld, og fengu Þykkvbæingar um 25 þúsund tunnur upp úr görðum sínum í ár, mest megnis rauðar kartöflur íslenzkar. Veðrið var sæmilegt um uppskerutimann, heldur þó votviðrasamt. Nú er sláturtíðin hafin í Þykkvabæ, og mun verða slátrað 8—9 þúsund fjár í haust hjá verzlun Friðriks Friðrikssonar. inu_ Stafar þetta af því, að loft- net þau, er menn hafa keypt fyrir tæki sín, reynast ekki nægilega sterk fyrir sendingar Reykjavík- ursjónvarpsins. Sigurður sagði, að fólk á þess- um stöðum hefði keypt fjögurra greina loftnet (af sömu stærð og Reykvíkingar nota) í þeirri trú að þau reyndust nógu sterk. Nú þegar komið hefur á daginn, að þau duga ekki til, þykjast menn illa leiknir og vilja skila netum sínum aftur og fá önnur sterk- ari. Sigurður, sem selur loftnet og viðtæki í Keflavík, sagðist hafa tekið fyrir sölu fjögurra greina loftneta þegar hann hafði veður af hversu veik þau væru. Hefur hann gert ráðstafanir til að fá innflyíjendur til að festa kaup á 14 greina loftnetum, þeim sterkustu sem til eru. Er gert ráð fyrir að þau séu nógu sterk til að ná góðri mynd frá íslenzka sjónvarpinu á tæki Suðurnesja- manna. Nú eiga margir í Garði og í Keflavík 6—10 greina loftnet, og segist Sigurður búast við því að menn gætu notað þau þar til hin sterkari verða fáanleg, þó með frekar lélegum árangri. Þess má að lokum geta, að ís- lenzka sjónvarpið sendir út á rás 10, en 6—10 greina loftnetin eru sniðin fyrir rásir 5—7. Smábarn nærri drukkn- að á Stokkseyri Stokkseyri, 28. sept. Á FJÓRÐA tímanum í dag vlldi það óhapp til, að drengur á öðru ári var nærri drukknaður í fjörunni framan við Stokkseyri. Fjögur börn, sem voru að leik saman fyrir framan sjóvarnar- garðinn — þau elztu fjÖgurra ára — voru komin út í fjöruna áður en móðir litla drengsins vissi af. Innan lítillar stundar kölluðu elztu börnin á móðurina og sögðu henni að drengurinn væri á kafi í lóninu. Brá hún skjótt við og náði honum. Var drengurinn þá orðinn meðvitundarlaus og helblár. Hóf hún þegar lífgunartilraunir á honum með blástursaðferðinni og í sömu mund bar þar að Sig- urð Petersen, sem var að vinna nærri, og tók hann við með sömu aðferð, og tókst honum að koma drengnum til meðvit- undar á skömmum tíma. For- eldrar drengsins eru Hólmfríð- ur Steinþórsdóttir og Páll Bjarnason að Jaðri á Stokks- eyri. Steinþór heitir litli dreng- urinn. — Fréttaritari. Reyndu að smygla gulli U P P hefur komið all- óvenjulegt smyglmál hér- lendis. Er hér um að ræða smygl á nokkru magni af gulli. Morgunblaðið fékk staðfest í gærkvöldi, að gerð hefði verið tilraun til að smygla inn gulli hér í Reykjavík. Er málið í rann sókn hjá rannsóknarlög- reglunni, en ekki var unnt að fá nánari upplýsingar um það á þessu stigi. Þó er blaðinu kunnugt um, að viðkomandi aðilar hafa ját að á sig tilraun til að smygla þessari vöru til landsins. Þess má geta, að 40% toll- ur er á gulli fluttu inn til landsins. Kemur það einkum frá Englandi, Þýzkalandi, Belgíu og Hollandi. Þar sem viðkomandi aðilar hafa orðið að kaupa gullið í bönkum er- lendis, er vafasamt að þeir hefðu grætt verulega á því að smygla því til landsins, þar eð innkaupsverð löggiltra kaupenda á gulli er talsvert lægra en útsöluverð banka erlendis. Haförninn með fullfermi til Siglufjarðar Tók 3330 tonn á tveim sólarhringum Síldarflutningaskipin þrjú, Haförninn, Sirion og Askita eru nú á leið til hafna með fullfermi síldar. Blaðareæ'ur Mbl. hafði í gær tal af Eiriki Kristóferssyni, skipstjóra Haí arnarins og Guðmundi Ara- syni, stýrimanni sama skips. Haförninn var þá á leið tii Siglufjarðar að landa 3330 tonnum af síld, sem skipió liaiði hlaðið undanfarna tvo s .u-.i.iiiga á miðunum um 80 i*i*i.*r út af Reyðarfjarðardýpi «... Norðfjarðardýpi. .... .iiur sagði að gott veður verið á miðunum að .-..emu, og afli bátanna g öur a miðunum. Tutt u vg tvö skip skipuðu afla -.um um borð í Haförninn, ,*r á meðal eitt skip, Reykja borgin, tvisvar samtals 500 tonnum. Guðmundur sagði að Haf- örninn myndi landa þegar við komuna til Siglufjarðar og myndi löndunin ekki taka nema um einn og hálfan sólar hring. Kvað Guðmundur svo fljóta afgreiðslu að þakka hin um nýju löndunarlyftum, sem hingað til lands hafa verið keyptar í sumar frá Dan- mörku og eru mjög afkasta- miklar. Þessar lyftur eru nú i notkun á mörgum höfnum við Austfirði, þar sem lönd- unarstöðvarnar hafa ekki und an að taka við því sildar- Framhald á bls. 31

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.