Morgunblaðið - 29.09.1966, Síða 18

Morgunblaðið - 29.09.1966, Síða 18
18 MORCUNBLAÐIÐ Fimmtudagiir 29. sept. 1968 Nýir söluskilmálar olíufélaganna í íneira en tvo áratugi hefur álajningf á vörur þær, scm olíufélögin selja verið ákveðin af verð- lagsyfirvöldum. Segja má, að allan þann tíma hafi álagning á fuelolíu, gasoliu og bílabenzín verið þannig ákveðin, að hún hafi tæplega staðið undir kostnaði við innflutning og dreifingu á þessum vörum, hvað þá, að sala þeirra skilaði eðlilegum hagnaði. Fjármagnsþórf olíufélag- anna, til þess að standa undir aukinni sölu og vegna þynningar gjaldmiðilsins hefur hins veg- ar, svo sem augljóst má vera. ankizt ár frá ári. Stefna verðlagsyfirvalda hefur því óhjákvæmilega leitt til þess, að olíufélögin hafa stöðugt orðið að leita til viðskiptabanka sinna um aukin lán til þess að standa undir auknum innflutningi og hækkandi kostnaði. Viðskiptabankarnir hafa eð lilega talið þessa þróun bæði óæskilega og hættu- lega. Af þessum ástæðum var svo komið í júlímánuði sl., að viðskiptabankar olíufélaganna synjuðu um opnun ábyrgða fyrir olíuförmum frá Rússlandi, og hélzt það ástand fram yfir miðjan ágústmán- uð, en á því tímabili höfðu útflytjendur í Rússlandi sent þrjá olíufarma til félagíinna, án þess að ábyrgðir væru opnaðar fyrir þeim samkvæmt gildandi samningum við Rússa, sem olíufélögin hafa tekið að sér að framkvæma í umboði ríkisstjórnarinnar sem samningsaðila gagnvart hinum rússnesku útflytjendum. Til þess að koma í veg fyrir að olíuinnflutningur stöðvist, féllust bankarnir loks á. að opna nauð- synlegar ábyrgðir, gegn því skiiyrði, að olíufélígin tækju upp nýja hætti, að því er varðar útlán og innheimtu. í samræmi við þetta hefur nú verið ákveðið, að taka upp í allri olíusölu staðgreiðslu viðskipti, að svo miklu leyti sem mögulegt er. Til þess að hvetja til staðgreiðsluviðskipta hafa verðlagsyfirvöld heimilað olíufélögunum að taka sérstakt aukagjald, ef viðskipti eru ekki stað- greidd. Samkvæmt þessu gilda eftirfarandi reglur frá 1. október nk.: 1. Öll smásala frá benzínstöðvum skal fara fram gegn staðsreiðslu. Ef um félög eða firmu er að ræða, sem hafa minnst 5 bíla eða tæki, er heimilt að selja gegn mánaðarviðskipt- um, enda sé greitt aukagjald, kr. 25,00 fyrir hverja afgreiðslu, vegna vinnu við bókhald og innheimtu. 2. Öll sala til húsakyndinga skal fara fram gegn staðgreiðslu. Ef viðskiptamaður af ein- hverjum ástæðum greiðir ekki við afhendingu vörunnar skal reikna sérstakt aukagjald, kr. 100,00 fyrir hverja afhendingu, vegna vinnu við bókhald og innheimtu. 3. önnur vörusala olíufélaganna beint til nnotenda skal að jafnaði vera gegn staðgreiðslu. Þó skal olíufélögunum heimilt að semja við stóra viðskiptamenn um mánaðarviðskipti, enda greiði þeir sömu aukagjöld og um getur í 1. og 2. grein. Skulu þeir greiða úttektir sínar fyrir 15. dag næsta mánaðar eftir úttektarmánuð. 4. Hafi mánaðarviðskiptamaður ekki greitt skuld sína að fullu fyrir lok greiðslumánaðar, skal reikna honum dráttarvexti, 0,83% á mánuði, miðað við skuld í lok úttektarmánað- ar að frádregnum innborgunum í greiðsl umánuði. Jafnframt skal stöðva reikningsvið- skipti og befja venjuiegar innheimtuaðgerðir. Reykjavík, 13. september 1966. Olíufélagið hf. Olíuverzlun íslands hf. Olíufélagið Skeljungur hf.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.