Morgunblaðið - 29.09.1966, Side 28

Morgunblaðið - 29.09.1966, Side 28
28 MORGUNBLAÐID Fimmtudagur 29. sept. 1966 Bab Thomas: HVER LIGGUR f GRÖFMINNI — Sagði Henry nokkuð um, hvað lögreglan vildi mér? spurði hún. — Nei, írú. — Segðu þá Henry, að ég komi niður undir eins og ég er klædd. — Já, frú. Vill frúin fá ofur- lítið að borða fyrsj,? ■— Nei, ekkert. Ég er ekkert svöng. Janet gekk út og Edith nall- aði sér aftur á bak í rúminu og blés reyknum i loft upp. Hún velti því fyrir sér, hvort þetta mundi verða annað en skamm- vinnur skrípaleikur. Hvað gat hún hugsanlega sagt, ef lögregl- an færi nú að saka hana Um að hafa myrt systur sína? Kannski hafði hún rekizt á einhver verksummerki, sem kæmu upp um þetta bragð hennar. Og þá hryndi öll þessi vandlega gerða áætlun hennar í rúst. Hún settist upp í rúminu og drap í vindlingnum. Askorunin beið hennar niðri og það var eins gott að bregðast manniega við henni. Hingað til hafði hún verið úrræðagóð Kannski gæti hún sigrazt á þessari nýju hættu? Hún fór fram úr og valdi sér einfaldan, svartan kjól. Lengi sat hún fyrir framan spegihnn og sjálfstraust hennar jókst, er hún greiddi á sér hárið eins og Margaret hafði gert. Loks le't hún á sjálfa sig með velþóknun og gekk til dyranna. Þar sem hún stóð úti í gang- inum, fannst henni draumurinn ljóti vera kominn aftur. Hann var eins og svo margir aðrir hveimleiðir draumar, sem hún hafði átt, þar sem hún fann sjálfa sig villta í óþægilegu og óviðkunnanlegu umhverfi. Nú stóð hún hérna í þessu stóra húsi, sem hún var talin kunoa á fingrum sér, en samt þekkti hún ekkert af því nema sveín- bergið þar sem hún hafði sofið í nótt. Grænlandshundurinn stóð fyr- ir neðan stigann og sá hana, og samstundis tók hann undir sig stökk og þaut tii hennar. Hún klappaði hundinum eins og ósjálf rátt, meðan hún hugsaði út næsta leik sinn, en gekk svo hægt niður stigann. Henry kom út úr brytabúrinu sínu og varð hverft við, er hann sá, hve hund- urinn lét vel að henni. — Komdu, Duke, komdu! kallaði hann snöggt. Hann horfði hissa á, er hundurinn gekk áfram við hlið hennar, eins og lamb. Edith tók eftir svipnum á honum. — Hvar er logreglan, Henry? sagði hún. — Þeir bíða í setustofunni, frú. En hvar var setustofan? Hún reyndi að hugsa það út. — Ég held ég verði að tala við þá hérna, sagði hún. Hún þóttist sjá einhvern undr- unarsvip á stirðnuðu andliti brytans. Hún vissi, að viðmöt hundsins við hana hafði vakið hjá honum undrun. Skyldi hann gruna, að hún væri alls ekki Margaret? Var hann að prófa hana? Hún sá hann ganga að eikar- hurðinni að setustofunni. — Það gerir annars ekkert til, Henry, 8 sagði hún. — Ég skal tala við þá þar. — Já, frú. Viðbrögð hans voru algjörlega ópersónuleg, eins og endranær, er hann opnaði dyrn- ar fyrir hana. Edith gekk inn i setustofu de Lorca með hátíðleik, er huldi hræðsluna, sem inni fyrir bjó. Stofan var geysistór og búin að — Ég verð að hætta að tala — ég þarf að búa til matinn. öllu með miklum smekk, sem ættin var fræg fyrir. Þegar hún kom inn, stóðu upp tveir leyni- lögreglumenn, hávaxnir og vel- búnir. — Góðan daginn, herrar mín- ir, sagði hún. — Ég er Garcia liðþjálfi, sagði laglegi, hörundsdökki lögreglu- maðurinn. — Og þetta er Hay- ward liðþjálfi. Hún kinkaði kolli og settist á legubekkinn, og benti þeim að fá sér sæti. — Við erum hér viðvíkjandi systur yðar, frú de Lorca. Henni sem rak veitingastofuna í Temple Street, sagði Garcia. — Hún fannst látin í gærkvöldi. Edith lét tortryggnina skína út úr svip sínum. — Það er ómögu- legt, sagði hún. — Ég sem var sjálf hjá henni í gærkvöldi. — Því miður er þetta satt, sagði Garcia. — Þetta virðist hafa verið sjálfsmorð. Og hún skildi eftir bréf til yðar. — Hræðilegt! Hún fór að gráta og þetta voru ósvikin tár, enda þótt þau væru ekki vegna Margaret. Orðin vöktu fögnuð hjá henni. Þetta virtist vera sjálfsmorð. Lögreglumennirnir létu hana vera í næði með sorg sína stund- arkorn en viku svo að efninu aftur. — Okkui þykir leiðin- legt að leggja þetta á yður, frú ! de Lorca, sagði Garcia. En líkskoð unin heimtar, að þér komið til að þekkja líkið. i Nú var hryllingur hennar eng in uppgerð. — Æ, nei, sagði hún. Ég gæti beinlínis ekki komið mér að því! - Ég er hræddur um, að hér sé ekkert undanfæri, sagði Garcia. — Þið áttuð víst ent,.n önnur skyldmenni, eða hvað? — Nei. É 52SCLÍON MEÐ PARKER „45“ skólapenninn er sterkur penni, sem þolir álag ungra eigenda. PARKER er ávallt fremstur, gerir skrift yðar hreinlegri og áferöar- fallegri. PARKER „45“ skólapenninn er trausrur fylginautur í skólanum. PARKER „45“ skólapenninn er serstaklega sniömn fyrir skólafólkið. Hann er mjög hreiniegur í notKun — Þér skiptið aðeins um blekhyiki og hann er reiöu- búinn til að skrifa næstu 10000 orðin. Blekhylkm fást í uppáhalds bleklit yðar. PARKER „45“ genr skriftina ánægjulega fyrir skólafólk á öllum aian. PARKER „45“ Student kr. 160.00 PARKER „45“ Junior kr. 218.00 PARKER „45“ Standard kr. 331.00 A PRODUCT OF«J>THE parker PEN COMPANY— makers of the WORLD'S most wanted pens Parker 45 i — Þá verðið þér því miður að gera þetta. — Og Johnson höfuðsmaður þarf líka að tala við yður, frú, bætti Hayward við. — Bara nokkrar formlegar spurningar, svo að hann geti lokið við mái- ið. — Já, en hvaða upplýsingar gæti ég gefið? sagði Edith í mót mælaskyni. Ég var alveg ókunn- ug öllum högum systur minnar. — Að því er við bezt vitum, voruð þér síðasta manneskja, sem sá hana á lífi, sagði Garcia. Edith sá, að hér var ekkert unuanfæri. — Gott og vel, sagði hún. — Ég skal vera tilbúin eíiir fáeinar mínútur. 12. Garcia fylgdi Edith inn í skrif stofu Johnsons höfuðsmanns og kynnti hana. Johnson sem var gildvaxinn, vingjarnlegur maó- ur, mælti: — Þetta er Hobbson liðþjálfi, vinur systur yðar. Edith var feginn, að hún skyldi vera með andlitsblæju, ■ að ekki gat sézt, að hún ._.maðist neitt víð Hobbson. En jafnvel bak við blæjuna, var hún óróleg yfir því, að hann skyldi vera viðstaddur þetta óróvekj- andi mót þeirra. Hann heit áfram að stara á hana og hún velti því fyrir sér, hversu mik- ið af svip hennar hann gæti séð í sólbjartri skrifstofunni. Johnson leiddi hana til sætis og hélt áfram, hóglega: Ég skil vel, að þetta hefur komið illa við yður, frú de Lorca, sv na rétt ofan á andlát manns yður. Ég skal vera eins stuttorður og ég get. — Þakka yður fyrir. Henni var forvitni að vita, hvort að Jim mundi þekkja röddina. Johnson sneri sér að hraðrit- aranum, sem sat þar skammt frá, og hélt áfram: — Rétt vegna skýrslunnar — þér áttuð systur, sem hét Edith Philips? — Já. — Hobbson liðþjálfi þekkti ungfrú Philips í nokkur ár — og barþjónninn hennar, Daniel Lister líka — og þeir segja báð- ir, að hún hafi aldrei nefnt það á nafn, að hún ætti nokkra syst- ur, fyrr en í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.