Morgunblaðið - 29.09.1966, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 29.09.1966, Qupperneq 30
•r« v n w v «« k #t c# i u jnmmtutíagur zy. sept. I96t> Umntræður um „einræiis- herra" í danskri knattspy rnu Athyglisvert fyrirkomulag 6SIGUR danskra knattspyrnu manna í landsleikjum að und- anfórnu hafa verkað eins og atomsprengjur meðal danskra knattspyrnuunnenda. Danir töpuðu fyrir Finnum 1—2 og héldu síðan til Búdapest og töpuðu 0—6 fyrir ungverska landsliðinu í „þjóðakeppn- inni“ eða með öðrum orðum bikarkeppni landsliða. Dönsk- um blöðum ber saman um að sá ósigur hafi getað verið helmingi meiri, því svo gjör- samlega léku ungversku snill ingarnir sér að Dönunum. Stóð 3—0 eftir stundarfjórð- ung og 5—0 í hléi. Rifjuðu blöðin upp „Breslau-hneyksl- ið“ en þar beið danskt knatt- spyrnulandslið mesta ósigur sinn 8—0 fyrir mörgum árum. Til gamans má geta þess að Berlingske Tidende hafði í leikhléi í leik Dana og Ung- verja beðið Ijósmyndara að stilla sér upp við danska mark ið og taka mynd er Ungverjar skoruðu 9. mark sitt. Það yrði sögulegt er „Breslau-hneyksl- ið“ yrði yfirstigið. Og nú ræða menn hvað til bjargar megi verða fyrir danska landsliðið — og danska knattspyrnu. Knud Lundberg hinn frægi leikmaður, blaða- maður og læknir, ritar á sunnudaginn grein í Aktuelt undir fyrirsögninni: „Gerið hann að einræðisherra" og birtum við hér glefsur úr þeirri gein. Fjallar greinin um Jörgen Leschly, feril hans og þekk- ingu og það talið einasta bjarg ráðið að hætta með sundur- leita landsliðsnefnd en skipa beri einræðisherra í danska knattsprynu — og hann eigi að heita Jörgen Leschly, af því að enginn þekki betur til alþjóðaknattspyrnu og danskr ar knattspyrnu. í greininni segir m.a.: „Fyrirkomulag okkar með 5 landsliðsnefndarmenn, þjálf- ara og framkvæmdastjóra, hefur marga vankanta. f fyrsta lagi er mjög erfitt að finna fimm — eða sjö — menn, sem gerþekkja bæði al- þjóða knattspyrnu og beztu leikmehn Danmerkur. Þetta hefur ekki tekizt. í öðru lagi skapar það að- eins upplausn, þegar svo margir kokkar eiga að hræra í graútnum — og sérstaklega ákveða, hvað í hann á að fara. Það er kominn tími tií að við lærum að skilja að knatt- spyrna hér í landi er ekki svo frábrugðin annarri knatt- Reykjavíkur- æótið hefst um miðjan október REYKJAVÍKURMÓTIÐ í hand- knattleik hefst um 15. október og eiga þáUtckut.ilkynningar að berast Handknattleiksráðinu 1. október. Reiknað er með að leikið verði í íþróttahöllinni í Laugardal að minnsta kosti leik- ir meistaraflokka karla og kvenna og et.v. einnig leikir í 2. fl. karla. spyrnu, að viðhalda eigi allt öðru kerfi á skipulagi mála en talið er bezt víðast annars staðar. Bæði vegna leikmannanna Jörgen Leschly — vrður hann einræðisherra danskrar knattspyrnu? Evrópu bikarkeppni ÞRÍR leikir í keppni meistara- liða um Evrópubikar fóru fram í gær. í Málmey vann Atletico Madrid heimalið.'C Málmey með 2—0. í Glasgow vann Celtic sviss- neska liðið Zurich 2—0. í Liverpool vann Liverpool rúmenska liðið Ploesti einnig með 2—0. og vegna árangursins er kom- inn tími til að við fáum ein- ræðisherra 1 knattspyrnu. Og hann á að heita Jörgen Lesc- hly Sörensen. Að sjálfsögðu á hann að hafa landsþjálfara til ráðstöfunar og hjálpar. Og að sjálfsögðu á hann að hafa í sinni þjónustu eins marga aðstoðarmenn (njósn- ara) og hann vill — *ienn, sem hann getur haldið fundi við eða rætt við einslega eftir því sem hann sjálfur kýs. Og þetta á ekki að vera ævi starf — sem Jörgen Lesc- hly heldur ekki vill. Hann vill heldur vera skólakennari — og það getur hann jafnframt. En öll ábyrgðin á að hvíla á hans herðum. Það á öllum að vera ljóst, ekki sízt leik- mönnunum. í greininni bendir Knud Lundberg á að alls staðar í heiminum hafi menn tekið upp þann hátt að láta einn mann fá heiðurinn — og ábyrgðina. Austurríkismenn voru víst fyrstir til er Hugo Meissl skapaði á sínum tíma hið fræga „Wunderteam" sem náði jafntefli móti Englending um £ Englandi. Síðan hafa all- ar stærri „knattspyrnuþjóðir” farið að dæmi þeirra. Síðastir urðu Englendingar, sem fengu Alf Ramsey völdin í hendur — og hann sigraði í Heims- meistarakeppninni. Lundberg segir: Fyrirkomu- lag okkar með val í landslið er úrelt og gamaldags — eins og svo margt annað í danskri knattspyrnu. Einræðisherra — framkvæmdastjóri, eða hvað hann verður nefndur er lausn in. Rökstyður hann uppá- stungu sína á Leschley Sören- sen með því að rekja ferin hans, minna á hans frægðar- tíma hjá Milan og segir sög- una um það er Milan fékk honum óútfylt tékkeyðublað en undirskrifað og buðu hon- um að skrifa þá upphæð er hann vildi fá fyrir eitt keppnis tímabil til viðbótar. Leschley Sörensen hafnaði tilboðinu og tók upp sitt kennarastarf, sem hann metur mikils. Glefsur þessar úr grein Knud Lundbergs eru hér birt ar af því að knattspyrnufor- ystan hér á landi á ekki við minni vandamál að stríða en Danir. Og hvað snertir val í landslið á tillagan um „ein- ræðisherra" ekki síður heima hér á landi en þar. Vandinn er bara að velja manninn, en séu menn sammála um að taka upp þetta fyrirkomulag, þá finnst maðurinn án efa. Og því fyrr — því betra. — A. St. f borgakeppninni vann Dun- fermline norska liðið Frigg með 3—1 og ér því komið í 2. umferð með saman'agða markatölu 6—1. 22-1-75 Judoæfingar að byrja MÁNUDAGTNN 3. október hefj- ast vetraræfingar í JUDO á veg- um hins nýja félags juðomanna, JUDOKWAI. Verður vetrarstarf semi félagsins langtum fjölþætt- ari nú en að undanförnu, má nefna m. a. að r ú verða skipu- lagðir sérstakir æfingatímar fyrir kvenfólk. Einnig verða skipulögð kapprnót og e.t.v. verð ur haldið meistaramót félagsins í judo. Enska knattspyrnan 9. umferð ensku dejldarkeppn- innar fór fram s.l. laugardag og urðu úrslit leikja þessi: 1. deild Blackpool — Manchester City 0-1 Chelsea — Arsenal 3-1 Leeds — Everton 1-1 Leicester — Aston Villa 5-0 Liverpool — Sunderland 2-2 Manchester U. — Burnley 4-1 Newcastle — Fulham 1-1 Sheffield U — Sheffield W. 2-2 Tottenham — N. Forest 2-1 W.B.A. — Stoke 0-1 West Ham — Southampton 2-2 2. deild Blackburn — Ipswich 1-2 Bolton — Wolverhampton 0-0 Carlisle — Bristol City 2-1 Charlton — Cardiff 5-0 Coventry — Bury 3-0 Derby — Huddersfield 4-3 Norwich — Preston 1-1 Plymouth — Crystal Palace 1-0 Portsmouth — Millwall 0-1 Hull — Northampton 6-1 í Skotlandi urðu úrslit m.a. þessi: Ayr ■— Dundee U. 0-7 Clyde — Kimarnock 1-3 Dundee — Celtic 1-2 Rangers — Aberdeen 3-0 St. Mirren — Motherwell 0-5 Staðan er þá þessi: 1. deilð 1. Chelsea 14 stig 2. Stoke 13 — 3. Tottenham 13 — 4. Leicester 12 — 5. Manchester U. 12 — 2. deild 1. Boston 14 stig 2. Ipswich 13 — 3. Hull 12 — 4. Coventrjr 12 — 5. Crystal Parace 12 — Reynt verður að haga æfing- um svo að sem flestir geti notið þeirra, einnig verður reynt að haga svo til, að starfsmannahóp- ar eða fétcg. sem óska eftir að æfa judo í sér tíma á öðrum tíma dags en hin almenna dag- skrá tekur til, geti komist að. Aðstaða til æfinga er nú góð, ágæt steypiböð og heitar ker- laugar til að hvílast í eftir erfiða æfingu. Æfingaskráin verður fyrst um sinn, sem hér segir: Námskeið fyrir byrjendur 18 ára og eldri verður á þriðjudög- um og fimmtudögum kl. 8 — 9 s.d. Námskeið fyrir kvenfólk verð- ur á mánudögum kl 7,30 — 8,45 og á fimmtudögum kl. 5,30 — 7 s.d. Æfingar fyrir „old boys“ verða á þriðjudögum og föstudögum kl. 6,15 — 7,15. Drengir 10 — 14 ára eiga að æfa á þriðjudögum og föstudög- um kl. 5 — 6. Almennar æfingar verða svo á mánudögum kl 8,45 — 10, og miðvikudcgum og föstudögum kl. 8 — 10 í þessar almennu æfingar er ætlast til að mæti allir, sem ein- hverja reynslu hafa í judo og svo auðvitað nemendur í byrj- endanámskeiðinu jafnóðum og þjálfari þe'.rra telur þá hæfa til þess. Æfingar fara fram í húsi Júpiter & Mars, á Kirkjusandi, efstu hæð gengið inn í n. a. enda hússins, frá Laugalæk. 12 badminton- veUir í íþróttahöllinni TBR fœr þar tíma AÐSTAÐA Tennis- og band- mintonfélags Reykjavíkur stór- batnar með tilkomu íþróttahall- arinnar í Laugardal. Fær félag- ið til umráða tíma tvo daga i viku þar. Eru 12 veliir á hallar- gólfinu. Og af þessum sökum er hægt að veita fleirum úrlausn með tíma en áður. Þeir sem sótt hafa um æfinga- tíma í vetur hjá TBR eru beðnir að vitja æfingaskírteina á skrif- stofu ÍBR í Laugardal milli kL 5 og 7 í dag og á morgun og kl. 2—5 4 laugardag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.