Morgunblaðið - 09.10.1966, Qupperneq 2
2
MORGU NBLAÐIÐ
Sunnudagur 9 okt. 1966
Úhróðri
hnekkt
ÞJÓÐVILJINN heldur því
fram á 'orsíðu í gær að Bygg-
ingarfélagið Brú hafi lent í
vanskitum við starfsmenn
sína vegna greiðsluerfiðleika
borgarsióðs, en byggingarfé-
lagið hefur haft með höndum
nokkur verkefni fyrir Reykja
víkurbovg.
Hér er nm hreinan upp-
spuna að ræða og lið í óhróð
ursherferð kommúnistablaðs-
ins á nendur Reykjavíkur-
borg. t borgarráði hefur ver
ið gerð grein fyrir viðskipt-
um borgarinnar við Bygginga
félagið Brú og í þeirri grein
argerð hefur komið skýrt
fram að ekki er um nein van
skil af hálfu borgarinnar að
ræða gagnvart Byggingafélag
inu Brú. Hefðu verið hæg
heimtök hjá kommúnistablað
inu að afla sér réttra upp-
lýsinga um mál þetta.
Spónoplötur
brjóta Ijósostaui
Akureyri, 8. október: —
í GÆR var verið að flytja spóna
plötur frá geymsluhúsi Eimskips
áleiðis að verziun Jóns Loftsson
ar h.f. við Glerárgötu. Á móts við
húsið nr. 3 í götunni vildi svo
óheppilega til, að 13 búnt af
spónaplötum runnu til hliðar út
af pallinum, lentu á Ijósastaur úr
járni og mölbrutu hann.
Þyngd ækisins, sem þarna rann
af bílnum, mun hafa verið ná
lægt þremur tonnum. Svo lán-
lega tókst til, að einginn var
staddur á gangstéttinni þessa
stundina, en eila hefði getað
orðið stórslys af óhappi þessu.
Engin viðhiytandi skýring hef
ur fengizt á þessu atviki, bíllinn
ók hægt ng gatan er rennslétt,
enda malbíkuð, Þess má þó geta,
að spónaplóturnar voru óbundn
ar, enda mun það vera venja í
flutningum milli húsa.
Leiðrétting
í FREGN í Mbl. í gær, þar
sem skýrt var frá verðlagi á
frystri þorskblökk í Bandaríkj-
unum, slæddist inn villa um
söuverð á blokkinni fyrr á ár-
Leifs Eiríkssonar
minnst í Reykjavík
Utiathöfn við Leifsstyttuna
1 DAG verður dags Leifs Ei-
ríkssonar minnst í Reykjavík
b t! f þ .
' 5 S C N’
c V' —
:-
■v"'"r K •: .
o.'
sinn sem at.höfn sem þessi fer
fram á þessum stað, og hefur
ávallt verið þar fjölmenni.
f kvöld verður árshátið ts-
lenzk-amerískafélagsins haldin
að Hótel Borg, hefst hún með
kvöldverð kl. 7. Gestur kvölds-
ins er Hjörvarður H. Árnason,
listfræðingur, sem flytja mun
ræðu kvöldsins. Fjailar hún um
þýðingu lista til þess að efla
menningartengsl og bæta sam-
búð milli þjóða. Ennfremur
mun koma fram á árshátíðinni
Magnús Jónsson, óperusöngvari,
og syngja nokkur lög, en síðan
verður dans stiginn fram eftir
nóttu. Meðal gesta í hófinu verð
ur forseti íslands, herra Asgeir
Ásgeirsson. Óseldir aðgöngumið
ar að árshátíðinni verða seldir
að Hótel Borg í dag.
Leifsstyttan 1 Reykjavík
ÞESSI mynd var tekin af hafði verið tilkynnt í ríkis-
Margrétu Danaprinsessu og ráði. Mikill mannfjöldi fagn-
Henri greifa, unnusta hennar aði hinum konunglegu hjóna-
er þau óku frá Kristjánsborg- efnum er þau óku um götur
arhöll til Amalíuborgar s.l. Kaupmannahafnar. Eins og
miðvikudag, er trúlofun þeirra kunnugt er fer brúðkaup
þeirra fram hinn 27. maí n.k.
Gífurleg sala á
sjónvarpstækjum
Tæki, sem eingöngu eru fyrir Reykjavíkur-
sjónvarpið ódýrari en hin
Líðan eftir atvik-
um góð
MBL. hafði í gær samband við
handlækningadeild Landakots
spítala og spurðist fyrir um líð-
an Þórunnar Jónsdóttur, sem
varð fyrir bifreið á Austurbrún
í fyrradag. Samkvæmt upplýs-
ingum er blaðið fékk var líðan
hennar eftir atvikum góð.
SALA á sjónvarpstækjum hefur
aukizt gífurlega síðan íslenzka
sjónvarpið hóf regluundnar út-
sendingar, og er svo komið, að
sjónvarpsverzlanir í borginni
selja tækin í kössum af götunni,
þar eð tími vinnst ekki til, að
taka utan af þeim. Meðfylgjandi
mynd er tekin fyrir utan Radíó-
búðina að Klapparstíg 26 og sýn-
ir nokkur sjónvarpstækjanna,
sem seld voru samdægurs og þau
komu til landsins.
Erfiðleikum var bundið að ná
sambandi við hina önnum
köfnu sjónvarpstækjakaupmenn,
en Halldór Laxdal eigandi Radíó-
búðarinnar tjáði blaðinu fyrir
skömmu, að viðskiptavinirnir
biðu í stórhópum eftir tækjum
sínum. Þakkaði hann þessi öru
viðskipti tilkomu íslenzka sjón-
varpsins. Hann sagði að stórar
sjónvarpssendingar væru á leið-
inni til landsins eða þegar komn-
ar.
Þess má geta, að sjónvarpstæki,
sem eingöngu eru gerð fyrir
Reykjavíkurstöðina eru nokkuð
ódýrari en þau, sem bæði eru
gerð fyrir Keflavíkur- og Reykja-
víkursjónvarpið. Samt er það svo,
að 90% kaupenda kaupir tæki,
sem gerð eru fyrir báðar stöðv-
arnar, eflaust með þá von í huga,
að Keflav.sjónvarpið hætti við
að takmarka útsendingar sínar
við næsta nágrénni Keflavíkur-
flugvallar.
Þá hefur mikið borið á því, að
fólk, sem átt hefur sjónvörp, er
eingöngu eru gerð fyrir Kefla-
víkursjónvarpið, hefur frestað
því fram á síðustu stundu að láta
breyta rásunum, þannig að ís-
lenzka sjónvarpið náist einnig i
tækin. Eru því geysimiklar annir
hjá fyrirtækjum þeim, sem slík-
ar breytingar annast, og hafa
fyrirtækin því hvergi nærri und-
an.
Það mun láta nærri, að sjón-
varpstæki seljist fyrir um milljón
kr. á dag undanfarið, enda þéttist
nú sjónvarpsnetaskógurinn með
degi hverjum
með athöfn við styttn Leifs á
iu. Orðrétt átti málsgreinxn að | Skólavörðuholti, og með hóti að
hljóða sem hér segir:
„Samkvæmt nýjustu fregnum
mun sem stendur ekki vera unnt
að fá í Bandaríkjunum yfir
24-25 cent fyrir pundið (lb) af
þorskblokkinni. Til samanburð-
ar má geta þess, að fyrr á ár-
inu var söluverð á þessari teg-
Hótel Borg í kvöld.
Athöfnin að SkótavórðuhoJti
hefst kl. 1.50 með því að lúðra-
sveit leikur nokkur lög. Siðan
flytja þeir stutt ávórp Fmil
Jónsson, utanríkisráðherra >‘g
sendiherra Bandaríkjanna á ís-
ladi, James Penfield. Að því
und blokk 29.5 -30 cent per j loknu mun Lögreglukórinn
pund.______________I syngja tvo lög. Þetta er í þriðja
Ók á hús og kyrr-
stœða bifreið
Harður árekstur á Akranesi
MJÖG harður árekstur varð á in áfram og lenti á húsi sunnan
Akranesi í fyrakvöld, er öku-
maður missti stjórn af bifreið
sinni, og lenti á húsi og kyrr-
stæðri bifreið.
Slysið var, er ökumaður Volvo
bifreiðar beygði inn á Suður-
götu af Skagabraut. Bifreiðin
mun hafa verið á talsverðri
ferð, því ökumaðurinn missti
stjórn á henni með þeim afleið-
ingum að hún lenti á umferð-
areyju. Þaðan kastaðist bifreið-
við Suðurgötu, en hélt síðan
áfram og lenti á húsi sunnan við
Suðurgötu, en hélt síðan áfram
eftir gangstéttinni' og fór aftur
þvert yfir Suðurgötu, og lenti
á fkyrrstæðri bifreið. Þar stað
næmdist hún loks.
f bifreiðinni voru þrír ungl-
ir piltar, og sluppu þeir allir
ómeiddir Bifreiðin er á hinn bóg
inn mjög mikið skemmd
Aukin fjölbreyttni í ieik
völlum borgarinnar
Starfsleikvellir og umferðarleikvellir
til umræðu i borgarstjórn
Á FUNDI borgarstjórnar Reykja-
víkur sl. fimmtudag var sam-
þykkt tillaga frá borgarfulltrú-
um Sjálfstæðisflokksins, þess
efnis, að barnaheimila- og leik-
vallanefnd athugaði möguleika
á að auka fjölbreyttni í leiktækj-
um og aðstöðu til leikja á leik-
völlum borgarinnar, skapa að-
stöðu til aukinnar starfsemi á
íþróttavöllum borgarinnar og
koma upp starfsleikvöllum og
umferðarleikvöllum.
Styrmir Gunnarsson (S) sagði
að nauðsynlegt væri að fylgjast
með nýjungum leikvallagerðar
og skapa fjölbreyttni í leiktækj-
um á leikvöllunum. Þá væri
ennfremur ástæða til að efla þá
starfsemi, sem nú fer fram á
íþróttaleikvöllum borgarinnar,
svo sem sparkvöllum og körfu-
boltavöllum en þeir njóta nú
mikilla vinsælda.
Erlendis ryðja sér nú til rúms
svonefndir starfsleikvellir, þar
sem börnum er veitt aðstaða til
þess að byggja hús og rækta
blóm og garðávexti. í Aðalskipu-
lagi Reykjavíkur væri gert ráð
fyrir að komið yrði upp slíkum
leikvöllum. Þá eru ennfremur
komnir fram erlendis svonefndir
umferðaleikvellir, þar sem kom-
ið er fyrir götum, húsum, ljós-
um og ökutækjum og börn fá
mikilvæga leiðbeiningu í um-
ferðarreglum. Þessi fjögur atriði
í leikvallamálum Reykjavíkur er
nauðsynlegt að taka til rækilegr-
ar athugunar, sagði borgarfull-
trúinn.
Umræður þessar spunnust út
af tillögu Sigurjóns Björnssonar
(K) þar sem hann leggur áherzlu
á nauðsyn þess að auka fjöl-
breyttni í leikvöllum Reykja-
víkurborgar, þannig að þeir hæfi
fleiri aldursflokkum en nú.
Slæm prentvil’a
í iorystugreín
SLÆM prentvilla varð í upp-
hafi fyrstu forystugreinar Morg
unblaðsins í gær. Fyrsta máls-
grein forystugreinarinnar átti
að vera á þessa leið:
„Fyrir nokkrum dögum birti
Tíminn samtal við Gísla R.
Pétursson, sem er ungur kaup-
félagsstjóri á Þórshöfn í Norð-
ur-Þingeyjarsýslu.“
í blaðinu stóð hins vegar
„Fyrir nokkrum árum —“ Leið
réttist þetta hér með.
í SÍÐARI forustugrein Mbl.
félu niður nokkur orð, svo að
misskilningi getur valdið. Þar
átti að standa: í ræðu borgar-
stjóra kom fram, að borgarsjóð-
ur hefur nú yfir 40 milljór.um
króna minna fé til ráðstöfun-
ar vegna lakari innheimtu út-
svara og aðstöðugjalda og ann-
arra tekna en búast mátti við, en
þessi upphæð er mun hærri en
sem skilur á milli þess hvort um
greiðsluerfiðleika hefði verið
að ræða eða ekki. Þetta leið-
réttist hér með.
Volur vann 3-1
VALUR og Akureyringar léku 1
Bikarkeppninni í gær. Valur
vann 3-1. í hálfleik var staðan
2-0.