Morgunblaðið - 09.10.1966, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 09.10.1966, Blaðsíða 10
10 MORCUNBLADIÐ Sunnudagu: 9 okt. 1966 f hlýjum skála á Keflavíkur- flugvelli sátu tólf ungir Bret ar og ræddust við um ferða- lagið, sem þeir áttu fyrir hönd um. Hér var á ferðinni hóp- ur fjallgöngunianna í ferð á vegum brezka flotans — og var förinni heitið á Græn- landsjökul. I>að varð þögn andartak — svo leit einn þeirra upp allt í einu — Noel Dilly, þrítug- ur kennari í líffærafræði við University College í Lund- únaháskóla, maður eir'ðar- laus og félagslyndur. „Hvað mig varðar sagði hann snöggt, fari svo, að ég hrökkvi upp af, þá fleygið mér í sprungu og haldið svo áfram“. Þessir ungu og hraustu menn, sem þarna eru saman komnir, tóku ferðalag sitt ekki sérstaklega alvarlega — hugsuðu sem minnst um þær hættur, sem framundan vóru, sumir gerðu sér raunar enga Buuðinn í ífðUimu Frá GrænlandsSeiðangti brezkra f^all- göngumanna grein fyrir þeim, — en þarna gerðu þeir með sér þegjandi samkomulag um, að förinni skyldi haldið áfram þó svo eitthvað kæmi fyrir einhvern þeirra. Ein af meginástæðunum fyrir því, að fólk klífur fjöll er sú. að bví finnst hættan, sem dreifðir eru í smáhópa hér og hvar um landið, eru ekki fleiri en í venjulegum smákaupstað á Englandi. Áhugi þessara ungu Breta beindist nú fyrst og fremst að smásvæði í einu horni þessa mikla landflæmis — fjallahéráði, sem um seitluðu nokkrar jökulár, einn af ör- fáu stöðum í heiminum, þar sem óhætt væri að strá far- angri sínum í slóð sína og geta verið viss um að rekja sig aftur eftir honum til baka. Af leiðangursmönnunum tólf voru tíu úr hernum, þar af tveir liðsforingjar, annar úr landhernum, hinn úr flug- hernum. Leiðangursmenn höfðu sett sér nægilega mörg Roger Wallis, stjórnaði heim- förinni sem sífellt vofir yfir, auka ánægjuna og hina iíkamlegu áreynslu. Þar með er ekki sagt, áð fjallgöngumenn láti stjórnast af ómeðvitaðri ósk um að binda enda á líf sitt, eins og sumir halda fram — því trúir a. m. k. enginn, sem séð hefur hætt kominn fjall- göngumann. Hinsvegar eru ekki allir gæddir því sálarjafnvægi, sem til þarf að takast á hend ur slíkar ferðir — eða á ann- an hátt ekki undir það búir að mæta þeim hættum, sem þær geta haft í för með sér. Það gerði Dilly sér ljóst. XXX Grænland er næstum eins stórt og Evrópa. Af 2,177,600 ferkílómetrum eru hátt í 1900,000 ferkílómetrar ein ó- slitin í&breiða — og íbúarnir, Chris Stocken, fyrirliðinn sem fórst og virðuleg markmið meó för inni til þess að fá styrk til hennar, grasafræði- og landa fræðirannsóknir, samstarfs- þjálfun hermanna úr hinum ýmsu greinum hersins, þjálf un ungra foringjaefna og þar fram eftir götunum — en hið raunverulega takmark var að komast inn á hið ógenga mMMrc Schweitzerlandssvæði, sem fjallgöngusveitir frá Sviss, Skotlandi og Norðurlöndum, höfðu áður gefizt upp við. Ennfremur ætluðu þeir að reyna að vera sem fyrstir á sem flesta tinda. Tii far- arinnar höfðu þeir félagar þrjú þúsund sterlingspund, sem að nokkru voru fengin frá landvarnarráðuneytinu og Everest-stofnuninni, auk þess, sem hver þeirra hafði lagt tveggja mánaða laun sín í sjóðinn. Þeir fóru fljúgandi frá Eng landi til íslands 12. júlí með flugvél frá brezka flughern- um en tóku þaðan ieiguvél til Grænlands og síðan bát upp Tassisarsik fjörð. 14. júlí skrifaði Dilly í dag- bók sína: — Þá erum við komnir hingað og orðnir einir. Bát- urinn, sigldi með okkur u. þ. b. hálfa leiðina inn fjöfð- inn. Þar fórum við í land. Heldur vorum við þegjanda- legir, er við drukkum te sam an, áður en báturinn sneri við. En þetta vildum við“. Leiðangursstjórinn Chris Stocken Lt. Crd. hélt einnig dagbók, en einungis yfir aðal atriði ferðarinnar. Gaf hún því jafn naumar upplýsingar um ferðalagið og við var að bú- ast af Stocken. Hann sjálfur og stjórn hans báru öll merki þjálfunar hans. Hann stjórn- aði mönnum sínum méð því að vera þeim fyrirmynd í öliu — en tók allar ákvarð- anir sjálfur og án þess að ráðgast um þær við nokkurn þeirra. Hann var jafnframt aðal-grasafræðingur leiðang- ursins og voru latnesku orð- in í dagbók hans eins og ljóð: „Epilobium Arctium Papaver radicatum Oxalis digna Taraxacum arcticum?" X X x Leið þeirra lá yfir nærri 250 kílómetra vegalengd, sem þeir urðu að ganga á móti vindi, ýmist í tveggja stiga hita eða 30 stiga frosti. Var yfir skriðjökla og jökulruðn- inga að fara, með tugi kíló- gramma farangurs á bökun- um auk þess, að þeir urðu að draga hlaðinn sleðann yfir allskonar torfærur. Ógnvekj- andi sprungur voru svo að segja við hvert fótmái — jök ulpyttir allt að 50 metra djúp- ir. Þeir voru átta daga að ná fyrsta áfanga — komust þá til aðalbækistöðvarinnar við Conniats fjall — og höfðu þá lagt að baki þriðjung vega- lengdarinnar. „Við héldum, að við værum hraustir menn, þar til við hófum þetta ferða lag. Allir höfðum við lifað íþrótta- og útilifi, en við komumst brátt að raun um, að við vorum engir hörkukarl ar“. Þegar þeir komu til Conni ats stöðvarinnar hittu þeir fyrir þrjá menn úr öðrum leiðangri frá Imperial Coll- ege í London. Einn þeirrá var fótbrotinn. Þegar hér var komið ákvað Stocken, að óhugsandi væri, að allir leiðangursmenn héldu áfram alla leið til Schweitzer landssvæðisins. Ferðin var miklu erfiðari en þeir höfðu vænzt — og augljóst var jafn framt, að þeir urðu að létta byrðar sínar. Fjórir urðu eftir í Conni- ats til þess að klífa fjöll þar í grenndinni. Roger Wallis aðstoðarmaður við 'vísinda- rannsóknir landfræðideildar Cambridge háskóla, Roy Dear man úr flughernum, Peter Garden, skapmikill maður og glaðlyndur, sem uppnefndur hafði verið „Fixit“ vegna þess, að hann hafði alltaf í fórum sínum þá hluti sem þurfti á að halda, einmitt þeg ar þeirra var brýnust þörf, — og Kenneth Rowe. Wallis var þeirra reyndastur fjallgöngu- maður en Garden sérfræðing ur í björgun fjallamanna. Þeir sem áfram héldu und- ir forustu Stóckens voru Douglas Keelan úr fótgöngu- liði flotans, óvenju duglegur maður og harður af sér, John Corner og Ronald Twigg, báð ir kunnir fjallagarpar og þaul vanir að klífa hina bröttu kletta í Wales, — þessir þrír menn mynduðu eins konar forystulið — og síðan komu þeir Dilly, Tom Kirkpatric, Collins og Crispin Agnew. 25. júlí skildu hóparnir. Þeir sem erftir urðu, sáu allt um kring næg verkefni, hvar vetna blöstu við tindar, sem gaman yrði að klífa. Hinir héldu áfram förinni, sem varð æ erfiðari. Þeir voru rúma þrjá klukkutíma að ganga hvern kílómetra, sprungur voru við hvert fótmál og hvað eftir annað fór einhver þeirra niður. En þeir voru allir bundnir saman og engum varð meint af. Þá var ekki síður erfitt að eiga við sleð- ann, þar sem krækia þurfti fyrir sprungur og pytti. Þeir gengu 20 mín. í einu og tóku sér síðan fimm mínútna hlé. Stundum gengu samræð ur stirðlega, stundum þögðu allir, — þess á milli reyndu þeir að bregða á glens þrátt fyrir þreytuna. í nesti höfðu þeir meðal annars haframiöl, — bræddu snjó og suðu sér af því graut. Ennfremur höfðu þeir kjöt- stengur, sem sumir voru ekki beint hrifnir af — og mjólk- urduft — mjólkurskammtur- inn var hálfur lítri á dag. á mann. Þeir komust brátt að raun um, að of langa stund tók að bræða snjóinn í graut inn og komust upp á lag með að búa sér til holu í snjóinn, þar sem þeir helltu hafra- mjölinu og salti og létu standa yfir nótt. A'ð morgni var þar kominn einskonar grautur. Eftir tveggja daga ferðaiag sáu þeir, að óhugsandi var að halda áfram með sleðann Framhald á bls. 12 Varðan á leiði Stockens Skíðaganga milli íjallstinda á Grænlandsjökli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.