Morgunblaðið - 09.10.1966, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 09.10.1966, Blaðsíða 27
Sunnudagur 9. olct. 1966 MORGUNBLADID 27 Afgreiðslutími verzlana ræddur ■ borgarstjórn LOKUNARXÍMI verzlana kom til umræðu í borgarstjórn s. 1. fimmtudag, vegna tillögu, sem Óskar Hallgrímsson (A) hefur flutt um afnám reglugerðar um lokunartíma verzlana. Magnús L. Sveinsson (S) sagði Kaupmannasamtökin og V.R. gerðu samning sem heimilaði á- kveðnum fjölda verzlana, að hafa opið til kl. 9 á kvöldin frá mánu- degi til föstudags, og gerði sam- komulagið ráð fyrir að vakta- skipti skyldu verða í verzlunun- — Hertækni Framh. af bls. 1 sjálfvirkum vopnum í stórum stíl, en svo virðist, að því er Pelou segir, sem þá hafi til þessa skort nauðsynlega samræmingu á hersveitum sínum og vopnabún- aði til þess að árangur yrði góð- ur. Talsmenn Bandaríkjahers segja hinsvegar, að framför i þessum efnum sé augljós, bar- dagaaðferðir og skipulag sveita þeirra verði æ áhrifaríkari með hverri viku. Loks segir Pelou, að fótgöngu- liðssveitir bandarískar sem komn ar séu um 70 km frá næstu birgðastöð eigi oft í vandræðum vegna erfiðra birgðaflutninga. Skæruliðar geri sér sérstakt far um að eyðileggia samgönguæðar þeirra og því aðeins sé hægt að ná tróðum árangri, að birgðir séu sendar flugleiðis. Hinsvegar segir hann slíka samkeppni ríkja milli fl"<*hers og flota, að ekki sé gott að beita fótgönguliðum flotans og fh’f’sveitum á sama stað. í öðrum fréttum frá Víetnam segir, að hersveitir Bandaríkj- anna, Suður-Kóreu og Suður- Víetnam hafi fellt eða tekið til fanga um þúsund Víet Cong skæruliða síðustu fimm daga á svæðinu Phu Cat, sem er strand- hérað um miðbik Suður-Víetnam. Þar hafa verið hörð átök að und- anförnu. I oftárásum á Norður-Víetnam hp’^ur áfram. Voru farnar 99 árásarferðir sl. sólarhring og ein flugvél skotin niður. Loft- árásirnar voru gerðar á marga stoði, meðal annars í nágrenni Dien Pien Phu, Hanoi og Haip- hong. — Surveyor Frámhald af bls. 1 Vísindamennirnir í Pasadena höfðu gefið upp alla von um að ná sambandi við flaugina aftur. Talsmaður þeirra sagði í dag, að ekki væri hægt að segja um hvort takast megi að ná mynd- um frá flaugina, því af rafhlöður hennar eru mjög orkulitlar. Verður tilraunum í þessa átt haldið áfram næstu daga. — 58 skip Framhald af bls. 28 Freyfaxi KE 60 Sigurfari AK 90 Skírnir AK 100 Haraldur AK 145 Bjartur NK 170 Bergur VE 130 Sæúlfur BA 100 Ingiber Ólafsson H. GK 220 Engey RE 160 Faxi GK 175 Gullver NS 100 Sæþór ÓF 115 Ól. Tryggvason SF 110 Sólfari AK 100 Sig. Jónsson SU 100 Arnfirðingur RE 160 Guðbjörg IS 80 Ásbjörn RE 60 Valafell SH 80 Keflvíkingur KE 140 Fákur GK 100 Hólmanes SU 80 Arnar RE 120 Þrymur BA 80 Gullberg NS 50 Halkion VE 140 Árni Geir KE 35 Súlan EA 125 Oddgeir ÞH 60 Skálaberg NS 40 um, og með því átti að tryggja að vinnutími þessa fólks lengd- ist ekki. Þetta kerfi var reynt í 5 mán uði á síðasta ári og tóku um 120 verzlanir þátt í því. Og hvaða reynsla fékkst af því? Sú reynsla fékkst m.a., að ekki var hægt, í nærri öllum til- fellum, að koma vaktaskiptum við í verzlunum, vegna þess að það var ekki til fólk á vinnu- markaðinum, enda þótt aðeins 20 verzlanir væru opnar í senn. Það leiddi því til þess, að vinnutími stórs hóps verzlunar- fólks lengdist stórlega og varð margt fólk að standa í verzlun- um allt frá kl. 8 á morgnana til kl. 10 og 11 á kvöldin, án þess að fá hvíld eða frí á móti. En fleira kemur til. Það er óhjákvæmilegt að aukin þjónusta fram eftir á kvöldin, hlýtur að hafa í för með sér verulega aukinn reksturskostnað verzlananna. Veltuaukning í mat vöruverzlunum verður ekki þó við hefðum 14 tíma til að verzla, dag hvern, í stað 9 eða 10 tíma nú. Þannig kom það fram á þeim 5 mánuðum, sem skiptiverzlunin var reynd í fyrra, að í flestum tilfellum var um sáralitla verzl- un að ræða á kvöldin og stóð hvergi nærri undir kostnaði. Þannig myndi aukin kvöld- þjónusta, fyrr en síðar, leiða til hækkaðs vöruverðs, og vil ég leyfa mér að efast um að neyt- endur yrðu mjög hrifnir af því. Það kom t.d. strax í ijós hjá lyfjabúðum, að þegar tekið var sérstakt gjald af kvöldafgreiðslu, dró stórlega úr henni. Óskar Hallgrímsson (A) rakti gang málsins undanfarin ár og lagði áherzlu á nauðsyn aukinnar þjónustu af hálfu verzlana við neytendur. Hann sagði að for- ustumenn vrzlunarmanna hefðu jafnan þegar þessi mál hafa verið til umræðu reynzt ófáanlegir til þess að gera greinarmun á vinnu tima verzlunarfólks og starfs- tíma verzlana. Böðvar Pétursson (K) varpaði fram þeirri spurningu hvar hin- ar háværu kröfur neytenda um lengri afgreiðslutíma verzlana hefðu komið fram og taldi að þær bergmáluðu einungis í höfði Óskars Hallgrímssonar. Sagði borgarfulltrúinn að afleiðingin af samþykkt tillögu óskars yrði sú, að aukinn kostnaður yrði við vörudreifingu í landinu og til þess þyrfti meiri vinnukraft, þar af leiðandi hærra vöruverð. Tillögunni var vísað til ann- arrar umræðu og athuganar borg arráðs. ísborg taiðist ekki ÚTGERÐ flutningskipsins fs- borgar hafði samband við Mbl. í gær og iét þess getið, að skipið hefði ekkert tafizt i Aberdeen vegna kvrrsetningarhótunnar hafnaryfirvalda þar. ísborg er nú á leið til Noregs með koks. OXAN er lágfreyðandi þvottaefni, sérstaklega framleitt fyrir sjálfvirkar þvottavélar. Afgreitt í handhægum og sterkum plastumbúðum. Jafn gott í allan þvott. TÆKIÐ SKIPTIR MIKLU EN ÞVOTTAEFNIÐ ÖLLU H F. H R E I N N © Vinnustöðvun hjá Brú hf, KOMH> hefur til vinnustöðvun- ar hjá byggingafélaginu Brú h.f. vegna vanskila á launum starfs- manna þess. Byggingafélagið hefur fengið frest til að greiða kaup starfsfólks síns og fyrir næi hálfum mánuði var helm- ingur skuldanna greiddur. Fékk félagið þá enn frest til að greiða afganginn til mánudngs s.l. Er það tókst ekki, boðuðu þau þrjú félög, sem hlut átti að máli vinnustöðvun, en þau eru Dags- brún, Trésmiðafélagið og Múr- arafélagið. Mbl. hafði samband við Eðvarð Sigurðsson formann Dagsbrúnar, sm sagði að er verkfallið kom til framkvæmda hafi Brú h.f. verið með verk í Borgarsjúkrahúsinu í Fossvogi, sundlauginni í Laug- ardal og fyrir ýmsa einstaklinga. Ekki vildi Eðvarð spá neinu um hversu lengi vinnustöðvunin stæði, félagið ætti fastar eignir en rekstursfjárskortur hamlaði kaupgreiðslum. Kvaðst hann þess fullviss ,að fyrirtækið reyndi allt, sem unnt væri til að vinna gæti hafizt að nýju. F.í. bauð Þjóðverfunum ■ útsýnisflug HÉR Á LANDI dvelst nú hóp- ur Vestur-Þjóðverja, sem eru áhugamenn um íslenzk málefni. f hópnum er 31 maður, en að boðinu standa Germanía og Loft leiðir. Flugfélag íslands bauð Þjóð- verjunum í gærmorgun í útsýnis flug yfir ísland. Var farið kl. 10 árdegis frá Reykjavík í Fokker Friendship vélinni Snarfaxa. Flagið var yfir Borgarfjörð, Holtavörðuheiði, Drangey og I Grímsey, inn Eyjafjörð, suðuv j Kaldadal, yfir Kerlingafjöll og | Heklu, en þaðan yfir Gullfoss og Þingvelli. Komið var til Reykjavíkur um hádegi. ■ Veður var skínandi fagurt all an tímann og voru Þjóðverjarn- ir mjög ánægðir með ferðina. Með hópnum fóru þeir Birg- ir Kjaran, stjórnarformaður F.f. Örn Johnson, forstjóri og Sveinn Sæmundsson. blaðafulltrúi. Blaðburðarfólk vantar í eftirtalin hverfi: Sörlaskjól Tjarnargötu Lynghagi Lambastaðahverfi Fálkagata Lindargata Túngata Meistaravelli Miðbær Laugaveg — neðri Hverfísg. frá 4—62 Kjartansgata Leifsgata Meðalholt Fossvogsblettur Nesvegur Talið við afgreiðsluna suni 22480. Jf¥loyjgwwMw$j$ Systir mín , KRISTÍN EINARSDÓTTIR Bragagötu 25B sem andaðist 5. þ.m. verður jarðsett frá Aðventkirkj- unni þriðjudaginn 11. okt kl. 1,30 e.h. — Blóm afbeðin en þeir, sem vildu minnast hinnar látnu, vinsamlegast láti það ganga til systrafélagsins Alfa. — Fyrir hönd systkina. Gróa Einarsdóttiir. Móðir okkar, HALLDÓRA FRIÐBJÖRNSDÓTTIR frá Sauðárkróki, andaðist 7. október að heimili sínu, Norðurgötu 36, Akureyri. — Jarðsett verður frá Sáuðái'krókskirkju. Jarðarförin ákveðin síðar. Börn hiunar látnu. Útför systur okkar og mágkonu, INGIBJARGAR JÓNSDÓTTUR frá MófeHsstöðum, fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 10. okt. kl. 1,30. Ólína Jónsdóttir, Sigríður Jónsdóttir, Guðfinna Sigurðardóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.