Morgunblaðið - 17.11.1966, Page 6
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 17. nóv. 1966
6
Fannhvítt frá Fönn Fönn þvær skyrturnar. Ath. Rykþéttar plastum- búðir. Sækjum — sendum. Fannhvítt frá Fönn Fjóiugötu 19 B. Sími 17220.
Trommukennsla Tek að mér að kenna byrjendum á trommur. — Uppl. í síma 51440 milli kl. 10 og 12 og 1 og 4.
Ford 1959 Til sölu Ford vöruhifreið, 3ja tonna, sjálfskipt. Uppl. í síma 38220 og 32874.
Trésmíðavél Til sölu er sambyggð tré- smíðavél; þykktarhefill og afréttari 24 tommur. Upp- lýsingar í síma 38220 og 32874. Sanngjarnt verð ef samið er strax.
Innheimta Tek að mér innheimtu íyr- ir fyrirtæki. Tilboð sendist Mbl. fyrir laugard. merkt: „Reglusemi — 8426“.
Skuldarbéf ríkistryggð og fasteigna- tryggð, eru til sölu hjá okkur. Fyrirgreiðsiuskrifstofan Fasteigna- og verðbréfasala Austurstr. 14. Sími 16223.
Rafmagnsrör Vt” fyrirliggjandi. Vald Paulsen, Klapparstíg 29.
Ungur og áreiðanlegur maður óskast nú þegar til aksturs og afgreiðslustarfa. Uppl. í síma 13893 og 13024 Vald Pauisen, Klapparstíg 29.
Skrifstofuherbergi að Suðurlandsbraut 10 til leigu. Upplýsingar í sím- um 13893 og 13024. Vald Paulsen, Klapparstíg 29.
Fil leigu Geymsluherbergi, upphitað I kjallara. Upplýsingar í síma 16771.
Akranes Hreinsum teppi og húsgögn á Akranesi, næstu daga. Pantið í síma 37434 og 36367.
Elna hraðsaumavél til sölu. Lítið notuð. Hag- kvæm kjör. Upplýsingar í heildverzl. Áma Jónssonar. Sími 15524.
Húsmæður Jólin nádgast. Verið ekki of seinar með gluggatjöld og dúka í strekkingu að Langholtsv. 53, sími 33199. Sæki og sendi.
16 ára stúlka óskar eftir atvinnu. Hefur landspróf. Vön afgreiðslu. Uppl. í síma 30865.
Til sölu Stór amerísk heimilis- strauvél. Kittaxprjónavél, með kambi. Westinghouse steikari og bökunarofn. — Tækifærisverð. Sími 24999
Ö/I©fj katta og kettllnga
Þessir kettir hafa mesta yndi af tónlist. í hvert sinn, sem
tónleikar eru í útvarpinu, skríða þeir upp á viðtækið og hlusta
— mala ekki, bara hlusta. Af þessari mynd sjáum við, að heimur
versnandi/batnandi fer. — Tónlistaráhugi þessara katta er svo
mikill, að þeir fást varla lengur til að drepa mýs sér til viður-
væris, og þykir þá bleik brugðið. Kettirnir eiga heima í Stein-
móðarbæ í Vestur-Eyjafjaliahreppi. (Ljósm. Árni Long).
Jórunn Halldórsdóttir frá
Bringum er 75 ára í dag. Einnig
á hún 40 ára starfsafmæli sem
saumakona.
Jórunn er nú búsett í Blóm-
vangi í Mosfellssveit.
LÆKNAE!
FJARVERANDI
Eyþór Gunnarsson fjv. óákveðið.
Guðjón Lárusson, læknir verður
fjarverandi um óákveðinn tíma.
tiunnar Guðmundssoc fjarv. um
ókveðinn tíma.
Gunnlaugur Snædal fjv. fram i
byrjun desember.
Jón G. Hallgrímsson fjv. allan
nóvember Stg.: Þórhallur Ólafsson.
Jónas Sveinsson fjv. 3—4 vikur Stg.
I>órhallur Ólafsson viðtalstími 10—11
alLa virka daga nema miðvikudaga
5—6 sími 12428.
Kjartan Guðmundsson fjv. óákveðið.
Magnús Þorsteinsson, iæknir, fjar-
veranal um óákveðinn tíma.
Richard Thors fjarv. óákveðið.
Tómas Jónasson verður ekki við á
stofu um óákveðinn tíma.
Valtýr Bjarnason fjv. frá 19. okt
óákveðið. Stg.: Jón Gunnlaugsson.
>f Gengið X-
Reykjavík 27. október 19««.
Kaup Sala
1 Sterlingspund 119,88 120,18
1 Bandar. dollar 42.95 43,06
1 Kanadadollar 39,80 39.91
100 Danskar krónur 622,30 623,90
100 Norskar krónur 601,32 602,86
100 Sænskar krónur 830,45 832,60
100 Finsk mörk 1.38Ó.30 l .338.72
100 Fr. frankar 868,95 871,19
100 Belg. frankar 85,93 86,15
100 Svissn. frankar 994,10 996,65
100 Gyllinl 1.186,44 1.186,50
100 Tékkn kr. 596.40 598.00
1()0 V.-þýzk mörk 1.080,15 1.082,91
100 Austurr scú. 166.18 166,60
100 Pesetar 71,60 71,80
FRÉTTIR
Dráttur í merkjasöluhappa-
drætti Blindravinafélags íslauds
hefur farið fram.
Upp kom no. 8329. Sjónvarps-
tæki með uppseaimgu.
Vinningsins má vitja í Ing. 16
Blindravinafélag íslands.
Kvenfélag Ásprestakalls heldur
basar 1. desember í Langholts-
skóla. Treystum konum í Ás-
prestakalli að vera basarnefnd-
inni hjálplegar við öflun muna.
Gjöfum veitt móttaka hjá Þór-
dísi Kristjánsdóttur, Sporða-
grunni 5, Margréti Ragnarsdóttur>
Laugarásvegi 43, Guðrúnu Á. Sig-
urðardóttur, Dyngjuvegi 3 Sigríði
Pálmadóttur, Efstasundi 7 og Guð
rúnu S. Jónsdóttur, Hjalavegi 35.
H j álpr æðisherinn.
Við minum á samkomuna í dag
kl. 20,30. Kafteinn Bognöy talar.
Allir velkomnir.
Fíladelfía Reykjavík. Almenn
samkoma í kvöld kl. 8.30. Glen
Himt og fleiri tala.
Kvenfélag Bústaðasóknar held-
ur sinn árlega basar í Rétar-
holtsskóla laugardaginn 3. des.
kl. 3. Félagskonur og aðrir vel
unnarar félagsins styðjið okkur
í starfi með því að gefa og safna
munum til basarsins.
Upplýsingar hjá Sigurjónu
Jóhannsdótur, sími 21908 og Ár-
óru Helgadóttur, sími 37877.
Stúdentar MA 1961.
Bekkjarkvöld verður haldið í
Bláa salnum á Hótel Sögu föstu
dagskvöldið 18. nóv. kl. 8,30.
Frá Guðspekifélaginu.
Afmælisfundur Reykjavíkur-
stúkunnar verður í kvöld kl.
8,30 Guðjón Baldvinsson flytur
erindi um P. Th. Dechardin.
Píanóleikur: Halldór Haraldsson
Kaffiveitingar.
Austfirðingafélagið heldur spila
kvöld með dansi á eftir í Átt-
hagasal Hótel Sögu sunnudaginn
20. nóv. kl. 8,30. Allir Aust-
firðingar velkomnir.
Æskulýðsfélag Laugarnessókn-
ar. Fundur í kirkjukjallaranum
í kvöld kl. 8,30. Fjölbreytt fund
arefni. Séra Garðar Svavarsson.
Heimatrúboðið.
Munið samkomuna í kvöld kl.
8,30.
Fermingarbörn Óháða safnaðar
ins eru beðin að koma til viðtals
í kirkjunni kl. 6 í kvöld (fimmtu
dag). Safnaðarprestur.
Austfirðingafélagið Suðumesj-
um heldur aðalfund sinn sunnu
daginn 20 nóv. kl. 4 í Æskulýðs
húsinu. Stjórnin.
Kvenfélag Neskirkju heldur
basar í Félagsheimili kirkjunnar
laugardaginn 26. nóvember.
Treystum á stuðning allra
kvenna í söfnuðinum. Nánar aug
lýst síðar.
Frá kvenfélagssambandi Is-
lands. Leiðbeiningarstöð hus-
mæðra Laufásvegi 2 sími 10205
er opin alla virka daga frá kl.
3—5 nema laugardaga.
Kvenfélag Laugamessóknar,
heldur bazar í Laugarnesskóla
laugardaginn 19. nóv. kl. 14. —
Gjörið svo vel að skila munum
föstud. 18. nóv. í kirkjukjallar-
ann kl. 2 til 7. — Tekið á móti
kökum á laugard. sama stað kl.
10—1. Bazarnefnd.
Konur í Styrktarfélagi van-
gefinna halda fund að Báru-
götu 11, fimmtudaginn 17. nóv.
kl. 8,30. Elsa E. Guðjónsson, flyt
ur erindi með skuggamyndum
um þjóðlegan útsaum.
Munið bazar Sjálfsbjargar 4.
Drottmn lætur ekki réttVátan
mann þola himgur, en græðgi
guðlausra hrindir hann írá sér.
(Orðskv. 10, 3).
í DAG er fimmtudagur 17. nóvem-
ber og er það 321. dagur ársins 1966
Eftir lifa 44 dagar. ÁrdegiisUæði kl.
8,22. Síðdegisflæði kl. 20,45.
Upplýsingar um læknaþjón-
ustu i boiginni gefnar í sím-
svara Læknafélags Reykjavikur,
Síminn er 18888.
Slysavarðstofan í Heilsuvernd-
arstöðinni. Opin allan sólarhring
inn — aðeins móttaka slasaðra —
sími: 2-12-30.
Kvöldvarzla í Reykjavík vik-
una 12. nóv. — 19. nóv. er í
Reykjavíkurapóteki og Garðs-
apóteki.
Næturlæknir í Hafnarfirði að-
faranótt 18. nóv. er Jósef Ólafs
son sími 51820.
Næturlæknir í Keflavík 11/11.
Kjartan Ólafsson sími 1700,
12/11. — 13/11. Arnbjörn Ólafs-
son sími 1840, 14/11. — 15/11.
Guðjón Klemenzson sími 1567,
16/11 — 17/11. Kjartan Ólafs-
son sími 700.
Apótek Keflavíkur er opið
9—7 laugardag kl. 9—2 helgidaga
kl. 1—3.
Hafnarfjarðarapótek og Kópa-
vogsapótek eru opin alla daga frá
kl. 9 — 7 nema laugardaga frá
kl. 9 — 2, helga daga frá kl. 2 —
4.
Framvegis verOur tekið á möti þelm,
er gefa vilia blóð i Blóðbankann, sem
hér seglr: Mánudaga, þriðjudaga,
fimmtudaga og föstudaga frá kl ">—11
r.h. og 2—t e.h. MIÐVIKUDAOá fr*
kl. 2—8 e.h. Baugardaga frá kl. 9—11
f.h. Sérstök athygli skai vakin á mið-
vikudögum, vegna kvöldtímans.
Bilanasími Rafmagnsveitu Reykja-
víkur á skrifstofutíma 18222. Nætur-
og helgidagavarzla 18230.
Upplýsingaþjónusta A-A sam-
takanna, Simiðjustíg 7 mánu-
daga, miðvikudaga og föstudaga
kl. 20 —23, sími: 16373. Fundir
á sama stað mánudaga kl. 20,
miðvikudaga og föstudaga kl. 2L
Orð lífsins svara I sima 10000.
Toastmaster. — Fundur 1 kvöld kl. T,
venjulegum stað.
IOOF 7 = 14811168Va = Sp. 9.
RMR-16-11 -20-HS-MT-HT.
■ GIMLI 596611177 = 5.
fxl HELGAFELL 596611187 VI: 2.
I.O.O.F. 5 = 14811178^4 = F. L.
3 kátir í GSaumbæ
Söngtríóið The Harbour Lites frá Englandi byrjar að syngja í
Glaumbæ fimmtudaginn 17. nóvember á Iðnnemaskemmtun.
Þeir hafa sungið á öllum helztu skemmtistöðum í Evrópu og
inn á margar plötur. Þeir munu nú um nokkurt skeið syngja í
Glaumbæ sunnan við Frikirkjuna.
des. Vinsamlegast, þeir, sem
ætla að gefa pakka, skila þeim
á skrifstofuna, Bræðraborgarstíg
9 eða Mávahlíð 45.
Reykvíkingafélagið heldur
spilakvöld með happdrætti í
Tjarnabúð (Oddfellow) niðri
fimmtudaginn 17. nóvember kl.
8.30 Félagsmenn fjölmennið.
Stjórnin.
Frá Breiðfirðingafélaginu. Fé-
lagsvist og dans í Breiðfirðinga-
búð fimmtudaginn 17. nóv. kL
8,30.
Keflavik. Munið hina árlegu
hlutaveltu Slysavarnadeildar
kvenna fimmtudaginn 17. nóv.
kl. 8 í Ungmennafélagshúsinu.
Margir góðir munir.
Kirkjunefnd kvenna Dómkirkj
unnar hefur sinn árlega basar og
kaffisölu í Tjarnarbúð sunnu-
daginn 20. nóvember. Safnaðar-
fólk og velunnarar, sem vil a
gefa basarmuni eða kökur snúi
sér til: Elínar Jóhannesdóttur,
Ránargötu 20, Súsönnu Brynjólfs
dóttur, Hávallagötu 3, Gréiu
Gíslason, verzlunin Emma Skóla
vörðustíg 3, Margréti Schram,
Sólvallagötu 38 og Ingibjörgu
Helgadóttur, Miklubraut 50.
Styrktarféiag lamaðra og fatl-
aðra, Kvennadeildin. Konur
munið bazarinn verður haldinn
20. nóv. í Skátaheimilinu, kl. 14,
er því áríðandi að munum sé
skilað hið allra fyrsta að Sjafn-
argötu 14. Föndurfundir eru
þriðjudagskvöld kl. 20. Stjórnin.
sá NÆST bezti
Kona nokkur mætti vinnumanni sinum, er var að koma út af
drykkjukrá.
Konan: „Það hryggir mig, að sjá þig koma út af þesum stað‘‘.
Vinnumaðurinn: „Nú, jæja, ég skal fara strax inn aftur“.