Morgunblaðið - 17.11.1966, Síða 8
8
MORCUNBLADIÐ
Fimmtudagur 17. nóv. 1966
ALÞINGI
Endurkaupin koma ekki
að nægjanlegu gagni
— frekari úrræða leitað
Á FUNDI sameinaðs þings í gær
var enn framhaldið 1 umræðu
iim endurkaup Seðlabankans á
víxlum iðnaðarins, og var um-
ræðu ekki lokið, auk heldur
tveir á mælendaskrá, þegar
fundi var slitið.
Þórarinn Þórarinsson (F): Iðn-
aðarmálaráðherra sagði, að erfi-tt
væri í framkvaemd að endur-
kaupa víx.la iðnaðarins. En hvað
segja staðreyndirnar. Hv. 10. þm:
Reykjavíkur sagði, er hann bar
fram þessa tillögu fyrir 9 árum,
að gild regla væri að kaupa víxla
af útvegi og landbúnaði, sem
svaraði % af átæluðu söluverði
til sex mána’ða. Og væri það eins
hægt að gera það með víxla iðn-
aðarins, þótt auðvitað verði í
sumum tilfellum að víkja frá
því. Ráðherra fullyrti einnig að
íhér væri um sýndartillögu að
ræða. Hvað segir 10. þm. Reykja-
víkur um það? Hann segir að
þessi ráðstöfun muni tvímæla-
laust efla íðnaðinn og gera
fjöldaframleiðslu mögulega. Það
sama segir í málgagni iðnrek-
enda, en það harmar tregðu
Seðlabankans til að kaupa víxla
iðnaðarins. Það segir ennfremur,
að ef endurkaupin séu of flókin
verði að finna nýjar leiðir.
Forsætisráðherra talaði manna
lega um ve r ð b ól gu ráösta fa nir
ríikisstjórnarinnar, og sagði, að
ég og stjórnarandstaðan hefðu
gert allt trl að auka verðbólg-
una. Jóhannes Nordal segir 1
ræðu, sem birt var í Morgun-
þlaðinu, að ekki hafi verið beitt
nógu öflugum hagstjórnartækj-
um, t.d. með því að hækka
skatta, frysta fé fyrirtækja
meira en gert sé, og teppa fram-
kvæmdir sveitarfélaga. Bjarni
eegir, að stjórnin hafi beitt öllum
ráðum gegn verðbólgunni, sem
tæk eru.
Hann segir einnig, að ég berj-
fet fyrir eflingu ver’ðbólgunnar,
er ég vil bæta kjör verkamanna
og bænda. Skýrslur ,sanna, að
verkamanni er ómögulegt að
lifa af dagvinnu einni saman,
alllir vita líka, að kjör bænda
eru algjörlega óviðunandi. Er
það að efla verðbólguna, er ég
æski þess, að þessar stéttir fái
’hlut sinn bættan.
Forsætisráðherra minntist
einnig á sparifjárbindinguna, og
spurði mig, hvort ég vissi um
nokkurt land, sem ekki beitti
þessu ráði til að hafa hemii á
verðbólgunni. Vissulega nota
önnur lönd þessar ráðstafanir,
en þau eru líka miklu þróaðri og
ráða yfir mun meira sparifé en
við.
Bjarni Benediktsson (S): Hv.
þm. var að halda því fram að
það væri síður
en svo, að þessi
tillaga væri
nokkur sýndar-
tillaga og vitn-
aði þar í 9 ára
gömul ummæli
10. þm. Rvk.
Það er aúðvitað
töluvert annað
______ ____ hvort tillaga er
ýndartillaga fyrir 9 árum, þegar
lún er fyrst borin fram eða nú.
Það hefur komið á daginn, því
niður, að hún verður ekki að
>ví gagni, sem gert var ráð fyrir.
Hvað segir málgagn iðnrekenda
im tillöguna" segir þm. Við vit-
im það að það á jafn við um
nálgagn iðnrekenda eins og ann
ara að slík einhliða málflutninga
gögn eru til að skýra málin frá
sjónarhóli málflytjanda, en ekki
að segja endanlega hvað rétt er
En málgagn íðnrekenda ber ein-
ungis fram veik mótmæli og
biður um að leitað sé annara
úrræða, ef þetta dugi ekki. Og
það er einmitt það sem verið er
að gera. Að leita nýrra úrræða
í þessu máli. Ég skil ekki hví
þm. vill ekki viðurkenna þetta,
því það er margbúið að skýra
frá því. Jóhannes Nordal segir
í ræðu, ég hygg sömu ræðu og
þm. vitnaði í áðan, að nú sé
verið að leita nýrra úrræða sem
komi iðnaðinum að meira gagni
en framkvæmd þeirrar till., sem
borin var fram í góðum tilgangi
en reynslan sýndi hins vegar að
leysti ekki allt þetta vandamál.
Háttvirtur þingmaður tekur
Jóhannes Nordal til vitnis um, að
ríkisstjórnin hafi ekki gert allt
sem hægt var til að stöðva verð
bólguna. Nú er það þannig, að
ég tek ekki Jóhannes Nordal
sem einhvern guð, og ég vil
spyrja hv. þm. hvort hann álíti
þessar ráðstafanir sem Jóhannes
nefndi í ræðu sinni skynsamlegar
(þingmaður svarar alveg hik-
laust nei). Er það þá ekki rétt,
að við höfum gripið til allra
skynsamlegra ráð til að stöðva
verðbólguna, en ég sagði aldrei
að við höfðum beitt öllum líka
þeim óskynsamlegu. Ég læt 5.
þm. Rvk. það eftir að beita þeim
Svona lenda menn í rökþrotum
Framhald á bls. 31.
2 nýjar þyrlur
verii keyptar
Á FUNDI sameinaðs þings í
gær, bar Sigurður Bjarnason
fram þingsályktunartillögu
ásamt Sigurði Ágústssyni, Jón-
asi Péturssyni, Þorvaldi K.
Kristjánssyni, Matthíasi Bjarna-
syni og Jónasi G. Rafnar, öllum
úr Sjálfstæðisflokknum, um að
Alþingi skori á ríkisstjórnina, að
beita sér fyrir því, að landhelg-
isgæzlan fái hið fyrsta tvær nýj
ar þyrlur og verði önnur þeirra
notuð í þágu strandgæzlu, björg-
unar- og heilbrigðisþjónustu við
Breiðafjörð, á Vestfjörðum og
við Húnaflóa, en hin á Norð-
austurlandi og Austfjörðum.
Skal stefnt að því, að þessi
tæki verði að jafnaði staðsett í
þeim landshlutum, sem þau eiga
að þjóna.
Sigurður Bjamason (S.): Al-
kunna er, að flugtækni fleygir
fram, einkum
hvað varðar
þyrlur, sem
verða æ stærri,
öruggari og lang
fleygari. Land-
helgisgæzlan á
nú þyrlu, sem
reynzt hefur
mjög vel. Er
hún staðsett í
Reykjavík, en getur lent á þil-
fari tveggja varðskipanna. Enn
fremur er auðsætt, að slík tæki
að hið nýja varðskip, sem hafizt
verður handa um að byggja í
byrjun næsta árs, verði einnig
þannig útbúið.
Forstjóri Landhelgisgæzlunnar
er á þeirri skoðun, að þyrlur
muni í framtíðinni gegna þýð-
ingarmiklu hlutverki við strand-
gæzlu og björgunarstörf. Enn-
fremur er auðsætt, að slíkt tæki
geta bætt verulega úr þeim
vanda og erfiðleikum, sem lækna
skorturinn hefur haft í för með
sér víðs vegar um land og þó
sérstaklega í strjálbýlustu héruð-
unum. Það gefur og auga leið, að
það væri ómetanlegt hagræði að
þyrlunum til sjúkra- og lækna-
þjónustu, ekki sízt eftir að fyrir-
hugaðar læknamiðstöðvar hafa
verið settar upp á hinum ýmsu
landshlutum. Úr hinu hörmulega
öryggisleysi fólksins í þeim hér-
uðum, sem skortir lækna, verður
að bæla og má einskis láta ó-
freistað í því máli.
Þá ber einnig áð getja þéss, að
iþyrlur geta einnig komið að
gagni á annan hátt. Hafa þær
þegar komið að notum hér á
landi við flutning milli byggðar-
laga, sem áttu sér stað á Aust-
fjörðum í fyrravetur, þegar
þyrla var notuð til samgap.gna
milli Fjarða og Héraðs, ef-tir að
vegir höfðu teppzt.
Hér er um merka nýjung að
ræða, sem ég tel óhjákvæmilegt
að taka í þjónus-tu okkar.
Reynsla annarra þjóða sýnir að
hafa má mikil not af þyrlum, og
það kom fram í ræðu dómsmála-
ráðherra fyrir skömmu, er hann
talaði fyrir frumvarpi um heUd-
arlöggjöf fyrir landhelgisgæzl-
una, að landhelgisgæzlan hefur í
undirbúningi að auka þyrLuflota
sinn, en hún á nú eina litla þyrlu.
Það er því skoðun flm. þessar-
ar til’lögu, að brýna nauðsyn beri
tU þess að afla slíkra tækja og
hafa þau að jafnaði staðsett í
þeim landshlutum, sem þau eiga
að þjóna. Hugsanlegt væri að
hætta rekstri minnstu varðbát-
anna, sem eru mjög dýrir í
rekstri, en ná þó ekki tilgangi
sínum, hvorki sem varðskip né
björgunarskip. Er því óvíst, að
rekstur þyrlanna og kaup hefði
tilfinnanlegan aukakostnað í för
með sér.
Jóhann Hafstein (S): Ég tel
næsta eð'lilegt, að fram komi til-
laga um þetta mál, og vil ég
segja örfá orð um hana. í frv.
til laga um landhelgisgæzluna er
mótað nokkru nánar verkefni
landhelgisgæzlunnar, sbr. 1. gr.
frv., en þar segir hvað starf
gæzlunnar sé. Það er nú til at-
hugunar, að hætta jafnvel rekstri
minnstu varðbátanna og er Pét-
ur Sigurðsson, forstjóri gæzlunn-
ar, utan, til að kanna reynslu
Dana og Norðmanna af stærri
þyrlum, og bera saman getu
þeirra og minni varðbátanna.
Vona ég, að skýrsla um þetta
verði komin það fljótt, að nefnd-
ir þær, sem hafa með þessi mál
að gera, geti notfært sér hana.
Umræðu var frestað og mál-
inu visað til allsherjarnefndar.
Skíðasle5ar
09
snjóþotur
í fjölbreyftu
úrvali nýkomin
Ceysir hf.
Vesiurgötu 1
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
Kvennadeildin
Bazar verður haldinn í Skátafélaginu við Snorra-
braut sunnudaginn 20. nóvember kl. 14.
Konur skilið munum að Sjafnargötu 14.
STJÓRNIN.
Tilboð óskast í Commer sendiferðabifreið árgerð 1963
í því ástandi sem bifreiðin nú er í, nokkuð skemmd
eftir árekstur. Bifreiðin verður til sýnis í Bílaskálan-
um, Suðurlandsbraut 6, í dag (fimmtudag) og á morg-
im. Tilboð sé skilað í skrifstofu Samvinnutrygginga,
tjónadeild, fyrir hádegi á laugardag n.k.
RAÐHÚS Á SELTJARNARNESI
Höfum til sölu glæsilegt raðhús á einum bezta
stað á Seltjarnarnesi. Húsið er endahús 140—
150 ferm. að stærð, auk innbyggðs bílskúrs.
í húsinu eru fjögur svefnherbergi, samliggjandi
stofur, eldhús, bað, W.C., þvottahús og geymsla.
Selst uppsteypt. Góðir greiðsluskilmálar.
RAÐHÚS Á SELTJARNARNESI
Höfum til sölu nokkur raðhús í smíðum á Sel-
tjarnarnesi. Húsin, sem seljast fokheld og múruð
auk innbyggðs bílskúrs. Á hæðinni eru 3 stór
og máluð að utan, eru alls ca. 170 ferm. að stærð
svefnherbergi, tvær stofur, eldhús með góðum
borðkrók og bað. Á jarðhæð er auk bílskúrs,
1—2 sérherbergi með baði, þvottaherbergi og skáli
Hagkvæmt verð og greiðsluskilmálar.
RAÐHUS VIÐ KAPLASKJOLSVEG
Til sölu er ca. 150 ferm. raðhús við Kaplaskjóls-
veg. í húsinu eru þrjú svefnherbergi, húsbónda-
herbergi, stór stofa, eldhús, bað, gestasalerni,
stórt þvottahús og tvær geymslur. Húsið selst
fokhelt, en einangrað að innan. Verð: kr. 950.000.
FASTEIGNA
SKRIFSTOFAN
BJARNI BEINTEINSSON HDL JÓNATAN SVEINSSON LÖGFR. FTR.
AUSTURSTRÆTI 17 (HÚS SILLA OG VALDA) SÍMI 17466