Morgunblaðið - 17.11.1966, Side 10
10
MORCUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 17. nðv. 1966
„Kæri lygari"
Höfundur: Jerome Kilty
Þjóðleikhúsið:
Leikstióri: Gerda Ring
SÍÐASTLIÐINN sunnudag frúm
sýndi ÞjóðleLkhúsið verk að
nafni „Kæri lygari" eftir banda-
ríska leikarann Jerome Kilty,
sem fjallar um bréfaskipti
George Bernhard Shaws við leik-
konuna Patrick Campell. Var
sýningin snoturlega uppfærð og
leikin, sæmilegasta dægrastytt-
ing, en engin leið er að koma
auga á neina kosti þessa leik-
rits, sem rjéttlætt geti, að það er
tekið hér til sýningar. Ef til-
gangur leikhússins er sá að
kynna Shaw, liggur ólíkt beinna
við að sýna eitthvert verka hans.
Um síðustu aldamót bar tvær
kvenstjörnur einna hæst í
ensku leikhúslífi, Ellen Terry
og Patrick Campell. Sú síðar-
nefnda var m. a. fyrsta Elísa
í' Pygmalion. Bréfaskipti Shaws
"og frú Campell virðast hafa haf-
izt um aldamótin og haldizt
næstum fjóra áratugi. Frú
Campell var í fjárkröggum síð-
ustu ár æfi sinnar og sendi
Shaw henni öll bréfin, sem hún
hafði skrifað honum, ef til þess
kæmi, að hún vildi gefa þau út
ásamt bréfunum frá honum. Úr
þessari útgáfu varð þó ekki þá
og fundust öll bréfin undir rúmi
frú Campells, eftir dauða henn-
ar í Frakklandi árið 1940. Eftir
heimsstyrjöldina voru þau gef-
in út í bókarformi, sem vafa-
laust hæfir þeim bezt.
Leikritið „Kæri Iygari“ var
fyrst sýnt í Chicago árið 1956 og
léku höfundurinn, Jerome Kilty,
og kona hans hlutverkin tvö.
Höfundurinn virðist hafa lagt
höfuðáherzlu á að tína upp
beztu brandarana úr þeim bréf-
um, sem vörðuðu helztu við-
burði lífs frú Campells, eftir að
bún kynntist Shaw. Ein undan-
. tekning er þó, — bréfið, þar
sem Shaw skýrir frá jarðar-
för móður sinnar. Er það bezta
atriði verksins, einn af fáum
köflum þess, sem hefur nægi-
legt samstætt efni og tíma-
lengd til þess að framkalla veru-
leg leikræn áhrif og gefa ráð-
rúm til áhrifamikillar túlkunar.
Hversvegna erlendur leik-
stjóri er fenginn til að stjórna
sýningu á leikritinu „Kæri lyg-
ari“, sem nær eingöngu byggist
á framsögn íslenzks texta, er
mér jafnóskiljanlegt og hvers
vegna leikrit þetta er valið til
sýningar í „repertoir" leikhúsi,
sem á 16 ára starfsferli sínum
hefur aðeins sýnt eitt af verk-
um Shaws. Hefði ekki verið
betur til fundið að fá brezkan
leikstjóri til að setja upp leikrit
eftir Shaw, á sama hátt og frú
Gerda Ring var fengin til að
stjórna ,Pétri Gaut“ og „Aftur-
göngum“ eftir landa sinn, Hen-
rik Ibsen?
Engri rýrð skal þó kastað á
vinriubrögð frú Ring. Sýningin
og umgjörð hennar virðast unn-
ar af fullri smekkvísi og hafa
tekizt eins og efni standa til. En
efni standa ekki til neinna stór-
ræða. í fyrsta lagi er leikritið
aðeins miðlungsgott skemmti-
efni, sem hvergi væri sýnt, ef
það hefði ekki nafn Shaws að
skrautfjöður. í öðru lagi passar
annar leikendanna tveggja ekki
1 hlutverk sitt. Og í þriðja lagi
er þýðing Bjarna Benediktsson-
ar ekki hnökralaus. Honum hef-
ur þó verið mikill vandi á hönd-
um, þar sem hætt er við, að
orðalag bréfanna sé að ýmsu
leyti óhentugt til lifandi flutn-
ings, enda hefur Shaw tæpast
haft í huga, að hann væri að
semja leiktexta, er hann hripaði
frú Campell ástleitnar kerknis-
línur, eða jós yfir hana brenn-
heitri skammasúpu úr skálum
reiði sinnar, þegar hún hafði
sært hégómagirnd hans. Þýðand-
anum hefði samt verið vorkunn-
arlaust að draga skýr mörk,
hvenær bréfritararnir taka að
þúast. Það skeður yfirleitt ekki
smátt og smátt, heldur í einu
vetfangi. Ef þéringar tíðkuðust
á enska tungu, væri þá ekki
sennilegt, að Shaw og frú
Campell hafi orðið dús á títt-
nefndu kvöldi er þau voru ein
í húsinu við Kensington Square?
Einföld sviðsmynd Lárusar
Ingólfssonar var í senn látlaus
og fáguð. Sérstaka athygli mína
vöktu þó kjólar frú Campell,
sem voru hreint afbragð á sinn
hátt.
Þeir kaflar úr bréfum frú
Champells, sem Kilty hefur tekið
upp í leikriti sínu, nægja auð-
vitað ekki til að lýsa að nokkru
gagni bréfritaranum. í þeim
er fátt sem bent geti til þess,-að
frú Campell hafi ekki aðeins
verið skapmikil og duttlunga-
full leikkona, heldur yfirþyrm-
andi persónuleiki og frægur
háðfugl, sem t. d. setti á sínum
tíma alla Hollywood á annan
endann með hrokafullri fram-
komu og lítilsvirðandi tilsvör-
um við höfuðspámenn kvik-
myndaiðnaðarins þar. Þessvegna
þarf sú leikkona, sem valin er
í hlutverk frú Campells, fyrst
og fremst, að gera með persónu
sinni og fasi trúlegt, að hún
Herdís þorvaldsdóttir og Rúrik Haraldsson í hlutverkum frú Campells og Shaws
góðar, vel unnar, en það nægir
ekki. Það skortir eitthvað per-
sónlegt, einhverja útgeislun, sem
ekki er hægt að lýsa, — aðeins
finna.
Þá er ekki auðvelt að fara í
föt þess manns, sem kannski
hefur haft mest áhrif í menn-
ingarlífi Vesturálfu á fyrri
helmingi þessarar aldar, George
Bernhard Shaws. Rúrik Haralds-
syni verður hins vegar talsvert
mikið úr þessu hlutverki. Setn-
ingarnar eru margar ágætar,
eins og vænta má, og Rúrik nýtir
þær afbragðsvel. Atriðið, þar
sem Rúrik segir fram bréf
Shaws um útför móður sinnar,
Herdís Þorvaldsdóttir
gæti hugsanlega verið slík kona.
Það hefur ekki tekizt hér.
Það er, að mínum dómi, mis-
ráðið að fela frú Herdísi Þor-
valdsdóttur þetta hlutverk, en
ég verð að játa, að ég get ekki
bent á aðra leikkonu í hennar
stað. Útlit Herdísar er prýðilegt,
en það er ekki útlit frú
Campells. Framsögn hennar er
tæknilega lýtalaus, en það þarf
meira en gáskafullan stríðnis-
tón til að krydda setningar þess-
arar konu. Leiktækni og sviðs-
hreyfingar Herdísar eru afburða
er mjög áhrifamikið og hið eina
í verki þessu, sem hefur nokkra
dýpt. Frásögn og túlkun voru
aðdáanlega laus við væmni og
með þeim sjaldgæfa tóni, sem
fæst við það að slá margar nótur
samtímis, — að gráta með bros á
vör.
Þess má geta, að þrír ágæt-
lega skemmtilegir kaflar leik-
ritsins sýna æfingar eða sam-
lestur Shaws með frú Campell.
Mæðir þar meira á Herdísi, sem
gerir þessum atriðum prýðileg
skiL
Frumsýning Þjóðleikhússins á
leikritinu „Kæri lygari“ var hin
þriðja á þessu leikári (önnur á
stóra sviðinu). Mun óhætt að
segja, að ekki hafi um margra
ára skeið verið farið eins dauf-
lega af stað. Hvorugt hinna leik-
ritanna hefur hlotið teljandi að-
sókn. Einkennilegt er, að stjórn
leikhússins skuli ekki hafa
frumsýningu á a.m.k. einu af
hinum athyglisverðari verkefn-
um sínum fyrr á starfsárinu,
Örnólfur Árnason.
Einstakt verð
Gæruskinn í gjafapakkningu.
Verð aðeins kr. 395.—
Hljóðfærahúsið
Hafnarstræti 1 — Sími 13656.
IMýkominn
jólaumbúðapappír 40 og 57 cm. rúllur.
Eggert Kristjánsson & Co.
Sími 1 1400.
250 ferm.
lagerhúsnæði
óskast. Tilboð sendist afgr. Mbl. merkt: .Lagerhús-
næði — 8275“ fyrir föstudagskvöld.
TeryEenebuxur
á drengi og karlmenn í úrvali.
Verð og gæði við allra hæfi.
*
Verzlun O. L.
Traðarkotssundi 3 (á móti Þjóðleikhúsinu).
3 herb. íbúð til leigu
3 herb. íbúð til leigu. Fyrirframgreiðsla. Tilboð sendist
blaðinu merkt: „Vogar — 8427“.
IJng barnlaus hjón
óska eftir 1—2 herbergja íbúð sem næst Miðbænum.
Upplýsingar i síma 40645 milli kl. 3—6.