Morgunblaðið - 17.11.1966, Síða 17

Morgunblaðið - 17.11.1966, Síða 17
Fimmtudagur 17. nóv. 1966 MORGUNBLAÐIÐ 17 Handritamálið: Allt í óvissu um dóm Hæstaréttar, sem kunngerður verður í dag S V O sem I^sendum er kunnugt sendi Morgunblaðið einn blaðamanna sinna, Björn Jóhannsson, til Kaupmannahafn- ar til að fylgjast með málaferlum í handritamálinu svo og dómsuppkvaðningu, sem fram fer í dag. — í eftirfarandi grein lýsir Björn því, hvernig honum sem íslendingi litust málaferlin þá fjóra daga, sem þau stóðu yfir. Handritamálið var tekið fyrir í Hæstarétti Darvmei*kur mánudaginn 7. nóvember sL í>á hófst munnlegur málflutn- ingur, sem stóð yfir á fjórða dag. Þann tima voru færð rök með því og móti, að handritin í Árnasafni færu til íslands. Árla morguns þennan mánu- dag var stór hópur manna sam an kominn á göngunum í salar- kynnura Hæstaréttar Dan- merkur, sem eru í Kristjáns- borgarhöll, skammt frá Thor- valdsenssafninu. Þetta var sundurleitur hópur manna og kvenna, en allir áttu það sam- merkt að hafa áhuga á úrslit unum í þessari deilu. Þarna voru þeir, sem hat- ramlegast hafa barizt gegn því, að gömlu íslenzku handritin hverfi úr kóngsins Kaup- mannahöfn. Þarna voru þeir Bröndum-Nielsen, fyrrum stj jrnarformaður Árnasafns, og Westergaard-Nielsen, núver- andi formaður. Umhverfis þá var hópur skoðanabræðra þeirra. Ef til vill er þessum mönnum annt um handritin i raun og veru, — ef til vill byggist andstaða þehra á með- fæddri íhaldssemi. Þarna var líka stór hópur danskra lögmanna, en þó eink- um laganema, sem þykir mal- ið fyrst og fremst forvitnilegt vegna þeirrar lagalegu spurn- ingar, sem Hæstiréttur verður að svara. Þeir áttu það sam- merkt að heillast af leyndar- málum lögspekinnar. Þá voru þarna líka allmarg- lr blaðamenn. Þeir áttu það sammerkt að hafa áhuga á handritunum vegna fréttagildis þeirra í nútímanum, og af því að þeir vilja veita almenningi sannar upplýsingar um það, sem gerðist í hinum háa rétti án tillits tii eigin skoðana á málinu. Á göngum Kristjáns'borgar- hallar var einnig þennan morg- un allstór hópur íslendinga. Þeir voru ekki beinlínis aðilar að þessu danska réttarmáli, en þeir áttu það sammerkt að telja íslenzka þjóðarsál og handritin óaðskiljanleg í eilífðinni. Þess vegna var svo mikið í húfi í þessum dönsku réttarsölum. Þarna var Gunnar Gunnars- son, rithöfundur, aldraður heiðursmaður, sem sjálfur er lifandi tákn þess menningar- arfs, er fslendingar eiga vegna handritanna. Einhvern veginn var sem þeir Bröndum-Nielsen og Westergaard-Nielsen hyrfa í skuggann vegna nærveru Gunnars. Á slaginu klukkan níu vís- uðu réttarþjónarnir mönnuni inn í dómssalinn. Þar sátu hæstaréttardómararnir klædd- ir purpurarauðum skikkjum með gullleggingum. Þeir voru 13 talsins, og einhvern veginn reyndi maður að hugga sig við, að það væri einskær ímyndun, að óhappaeiginleikar fylgdu þeirri tölu. í þessum hvítgráa og gyllta dómssal tóku réttarritararnir að lesa upp dóm Eystri-Lands- réttar í máli Árnasafnsnefndar gegn menntamálaráðuneytinu. Það var langur lestur, tók 50 mínútur. Fyrir Eystri-Lands- rétti hafði lögmaður Árna- safnsnefndar, Gunnar L. Christrup, byggt mál sitt á því, að handritalögin væru stjórn- arskrárbrot, þar sem Árna- safn væri sjálfseiginarstofnun, og handritin tekin eignar- námi án þess að bætur kæmu fyrir. Að auki krefðist al- mannaheill ekki þessara laga. Lögmaður menntamálaráðu- neytisins, Poul Schmith, kammeradvokat eða ríkislög- maður, byggði vörn sina á þvi, að Árnasafn væri hrein ríkis- eign eða þá eign Kaupmanna- hafnarháskóla, sem væri eign ríkisins. Þess vegna hefði Þjóðþingið ótvíræðan rétt til þess að ráðstafa eignum sínum. Eystri-Landsréttur sýknaði menntamálaráðuneytið, en dómurinn gekk í tveimur mikilvægum atriðum á móti ráðuneytinu. Rétturinn komst að þeirri niðurstöðu, að Árna- safn væri sjálfseignarstofnun og að um lögþvingun væri að ræða, þótt lögin gerðu ráð fyrir skiptingu safnsins. Eystri-Landsréttur tók mjög varfærnislega á málinu og ætlaði greinilega Hæstarétti að fella hinn endanlega dóm, og nú var komið að því, að málið yrði reifað fyrir hinum háa dómi. Gunnar L. Christrup stóð á fætur og hóf sókn sína. Hér var maður, sem vissi hvað hann söng. Christrup er einhvsr eftirsóttasti lögmaður í öllu Danaveldi, og honum eru falin flest hin flóknustu og erfiðustu mál, en það er dýrt að njóta lögmannshæfileika hans. Hann hefur marga unga og snjalla lögmenn í þjónustu sinni, og þeir höfðu unnið mánuðum saman við gagnasöfnun í hand- ritamálinu. Christrup var ákveðinn í því að gera sitt bezta til að koma mennta- málaráðuneytinjj á kné. Christrup er roskinn maður, ekki óviðfelldinn, og hann flutti mál sitt skörulega. í fyrstu reyndist blaðamanni Mbl. nokkuð erfitt að fylgjast með málflutningi hans, en það gekk betur, þegar hann var farinn að venjast hrynjandinni. Það varð brátt ljóst, að Christ- rup ætlaði að byggja sókn sína á sama grundvelli og fyrir Eystri-Landsrétti, þ.e. að Árnasafn sé sjálfseignarstofn- un, þar sem hvorki er gert ráð fyrir bótum vegna eignarnáms, né almannaþörf krefjist þeirra. Röksemdafærsla Christrups var kröftug, og hann lagði ríka áherzlu á, að hér væri um að ræða árás ríkisvaldsins á borgarana. Ef ríkisvaldinu yrði ekki takmörk sett af dóm- stólunum, gæti enginn borg- ari eða stofnun verið óhult um eignir sínar. Christrup var líka fyndinn, og oft mátti sjá bros breiðast yfir andlit hinna virðulegu dómara, og áhorfendur í sal-n- um reyndu að halda hlátrinum niðri í sér. Því lengur sem Christrup talaði og vitnaði í fleiri og fleiri bækur mál sínu til stuðnings, því lengra seig hjartað í blaðamanninum. í hvert skipti, sem Christrup minntist á fsland, gerði hann það af vinsemd, en hann lagði ríka áherzlu á, að hér væri um danskt innanríkismál að ræða, þótt óskir íslendinga væru eðlilegar og skiljanlegar, ættu þær samt enga stoð í lögum. Christrup talaði allan mánu- daginn og fram undir hádegi á þriðjudag, og alltaf virtist mál hans byggjast á traustari grunni. Blaðamanninum var nú orðið ljóst, að handritamál- ið var ekki eins einfalt og hann hafði haldið. Nú var komið að kammeradvokatnum að svara fyrir sig. Poul Schmith er yngri mað- ur en Christrup, málfar hans skýrara, og hann þykir ekki siður fær í sinni grein en Christrup. Schmith byggði vörn sína fyrst og fremst á því, að Árnasafn sé hrein rík- iseigin eða þá eign Háskólans í Kaupmannahöfn, sem sé eign ríkisins. Hann kvað almanna- heill krefjast laganna, og hann kvaðst mótmæla því, að dóm- stólarnir hefðu rétt til þess að dæma um, hvað væri almanna- heill og hvað ekki. Þann rétt hefði þjóðþingið eitt. Því lengra sem leið á ræðu kammeradvokatsins, því rórra varð blaðamanninum. Hér var líka maður, sem vissi, hvað hann söng. Það gladdi íslend- ingana í salnum mjög, þegar þessi danski lögmaður lýsti því yfir, að Árni Magnússon hefði án nokkurs efa ánafnað handrit sín Háskóla íslands, ef hann hefði verið tiL Schmith rakti fullyrðingar Ohristrups lið fyrir lið. Hann vitnaði í sömu bækur til að hrekja tilvitnanir hins. Sér- staklega var Schmith í essinu sínu á miðvikudaginn. Eitt sinn, þegar Schmith kvað orð nokkurt hafa aðra merkingu en Christrup hafði notað það i, fór kliður urn salinn, er Christ- rup gekk rólega til Schmiths og lagði stóru dönsku orðabók- ina fyrir framan hann. Séhmith brosti og svaraði hiklaust á stundirtni, að fleiri orðabækur væru til en sú stóra danska. T.d. væri til lagaorðabók, og þar væri að finna sömu orð- skýringu og hann hefði notað. Þetta voru fimir skylminga- menn, en þó má enginn halda, að þetta hafi verið einhver Perry-Mason-réttar.höld, — fjarri því. Þegar Schmith hafði lokið hinni skipulögðu og snjöllu ræðu sinni, tók Christrup aft- ur til máls og talaði í rúma hálfa klukkustund. Svaraði hann ýmsum atriðum í mál- flutningi kollega síns, kom ekki fram með neitt nýtt, en lagði þunga áherzlu á, að dóm- urinn hefði bæði rétt og skyldu til að kveða á um, hvað væri almannaheill. Svarræðu sína flutti Schmith á fimmtudagsmorguninn og talaði þá í 20 mínútur. Kvað hann dómarana hafa um sex leiðir að velja í málinu, og rakti hann þær hverja fyrir sig og afleiðingarnar, sem hverri þeirra fylgdu. Að því búnu lýsti Aage Lorenzen, forseti Hæstaréttar, yfir þvi, að hand- ritamálið yrði nú tekið til dóms, og var öllum vísað út úr salnum. Inni sátu dómar- arnir 13, og hófu þeir atkvæða- greiðslu í málinu, um leið og dyrum réttarins hafði verið læst. Fimmtudaginn 10. nóvember 1966 lágu endanleg úrslit i handritamálinu fyrir, aðeins fáum minútum eftir að mál- flutningi lauk, en dómurinn er algert leyndarmál enn þá, leyndarmál, sem vandlega er gætt. Meira að segja minnis- blöðum dómaranna var brennt eftir atkvæðagreiðsluna, svo að ekkert skyldi vitnast um niðurstöðuna, fyrr en Aage Lorenzen gengur inn í réttar- salinn og les dóminn upp. í heild fannst mér Paul Schmith flytja málflutning sinn á traustari grunni en Christrup, en ljóst er, að ekki er öruggt, að dómurinn falli á þann hátt, er íslendingar óskm. Hins vegar finnst mörgum ólíklegt, að Hæstiréttur ógildi lög, sem samþykkt hafa verið með miklum meirihluta af tveimur þjóðþingum með kosningum á miili. Björn Jóhannsson. □------------□ □--------□ Þessi mynd er tekin á 300 ára afmæli Hæstaréttar Dana árið 1961. Yfirleitt er myndataka ekki leyfð í réttarsalnum, en á afmælinu var gerð undantekning og þessi mynd tekin. Hæstiréttur Dana var stofnaður af Friðriki konungi 3. hinn 14. febrúar 1661. í salarkynnunum, sem eru í Kristjánsborgarhöll verður í dag kunngerðurdómurinn um handritin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.