Morgunblaðið - 27.11.1966, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 27.11.1966, Qupperneq 1
Tvo bloð 56 síður - í garð Israels - Hótað efnahags og hernaðarlegum refisaðgerðum Myndin lier að ofan er frá Regent-Street í London, en þar var kveikt á jólaljósum í fyrradag. — Þessi hluti Lundúna er þekktur fyrir jólaskreytingar. — AP. Holt og Holyoake munu báðir hafa sigrað - Kosningar i Astraliu og Nýja-Sjálandi stóðu fyrst og fremst um afstöðuna til Vietnam Sydney, Wellington, 26. nóv. — AP - NTB: ALLT BENTI til þess árdegis í dag, að samsteypustjórn Harolds Holts, forsætisráðherra, myndi halda velli í þingkosningunum, Bem þar fara fram í dag. Að stjórninni standa Frjáls- lyndi flokkurinn og Landsflokk- urinn. Þá er ljóst, að Ríkisflokkur- Inn, flokkur Keiths Holyoakes, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, Síðustu tölur frá kosn- ingunum herma, áð sam- steypustjórn Holts hafi hlotið 65 sæti á þingi, en st j órnarandstaðan aðeins. 43. Hafa stjórnarflokkarn- ir því unnið á í kosningun- um. — □----------a hafi borið sigur úr býtum i þing kosningunum þar. Þær fara einn ig fram í dag, laugardag. Það voru um sex milljónir manna, sem tóku þátt í kosn- ingunum í Ástralíu, en það, sem fyrst og fremst er nú kosið um, er afstaða Ástralíumanna til Viet »am, og styrjaldarinnar þar. Stjórn Holts hefur sent 4.500 éstralska hermenn til að taka þátt í bardögum í Vietnam. Fyr ir kosningarnar bentu skoðana- kannanir til þess, að samsteypu stjórn Holts myndi sitja áfram við völd, en Frjálslyndi flokkur inn og Landsflokurinn hafa far- ið þar með völd í 17 ár. Nú var kosið um 124 sæti í fulltrúa- deildinni, og 6 í öldungadeild- inni. Endanlegar tölur liggja ekki fyrir, en eins og fyrr segir, þyk ir ljóst, hver úrslitin hafa orðið. Talningu var lokið í austurhluta landsins, en ekki vesturhluta. í Ástralíu er það skylda að kjósa. Þeir, sem ekki mæta við kjör- borðið, eiga á hættu að vera sekt aðir, geti þeir ekki fært fram gild rök fyrir fjarveru sinni. Kosningaþátttaka er því alla- jafna mjög mikil. Sömu sögu er að segja af kosn ingunum í Nýja-Sjálandi. Þar var afstaðan til Vietnam einnig aðal deilumálið. Þar eru úrslit að mestu kunn, og mun flokkur Holyoakes hafa fengið 44 sæti (tapað einu), Verkamannaflokk- urinn 35 og Sósíakreditflokurinn 1. Mun stjórn sú, sem þar hefur verið við völd, því fara með þau næstu 3 árin. Stjórnin hefur set- ið síðan 1960, en alls hefur Ríkis flokkurinn verið við völd 14 af síðustu 17 árum. Holyoake hefur verið mikill stuðningsmaður Bandaríkjanna í Vietnam, og sent þangað her- menn, eins og stjórn Holts Ástralíu. New York, 25. nóv. — NTB. HIN harðyrta ályktun og hótan- ir um refsingu, sem Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur sam- þykkt varðandi ísrael gefur aug- ljósa vísbendingu um áhyggjur ráðsins um hvaða afleiðingar árekstrar á landamærunum myndu hafa á ástandið í Jórdan- íu. Erlendir sendimenn hér benda á, að Öryggisráðið hafi brugðizt við árásum ísraels- manna á þrjú jórdönsk þorp 13. nóv. sl., með harðyrtustu álykt- un, sem það hafi nokkru sinni samþykkt gagnvart ísrael í 15 ár. Á föstudag samþykkti Örygg- ráðið með 14 atkvæðum gegn engu ályktun, þar sem hótað er efnahagslegum og hernaðarleg- um aðgerðum gegn ísrael, og er þetta í fyrsta sinn, sem slík álykt un er samþykkt síðan að Ör- yggisráðið fór að hafa afskipti af landamæramálum í Mið-Austur- löndum. Eina landið, sem sat hjá við atkvæðagreiðsluna, Nýja Sjáland, taldi engu að síður að aðförum ísraelsmanna væri ekki bót mælandi. Hinsvegar greiddi landið ályktuninni ekki atkvæði þar sem það taldi að í henni væru engar jákvæðar til- lögur um að koma á friði á þess- um slóðum. fsraelsmenn eru sagðir vera að athuga gaumgæfilega samþykkt ráðsins, en sendiherra þeirra sagði í New York í gær að grund vallarástæðan fyrir spennunni milli ísrael o g Arabalandanna væri „hernaðarógnanir og stríðsæsingar Araba gegn ísra- el“. Sendiherra Bandaríkjanna hjá SÞ, Arthur Goldberg, sagði, að Bandaríkin hefðu greitt atkvæði með ályktun Öryggisráðsins sök um þess að stefna Bandaríkjanna væri sú, að landamæri allra rikja Mið-Austurlanda yrðu virt. ' Erlendir diplómatar telja, að í þessum orðum Goldbergs fel- ist lítt dulbúin aðvörun til Ara- baríkja á borð við Egyptaland að færa sér ekki í nyt ókyrrð þá, sem nú er í Jórdaníu. Palestínuhersveitir Jórdaníu hafa gert uppsteit gegn stjórn Husseins Jórdaníukonungs fyrir að stjórn hans hefur ekki látið þeim í té vopn til þess að berja á ísraelsmönnum fyrir árásir þeirra 13. nóv. Krag og Larsen ræðast við enn Khöfn, 26. nóv. — NTB. Jens Otto Krag forsætisráð- herra og leiðtogi danska Só- Síaldemokrataflokksins, ræddi fram eftir nóttu við Aksel Larsen, leiðtoga Sósíaliska þjóðaflokksins. Er viðræðum þeirra lauk um eitt-leytið í nótt, hafði enn ekki náðst samkomulag með þeim um stjórnarmyndun Leiðtogarnir tilkynntu þá báðir, að þeir myndu hefja viðræður á nýjan leik síð- degis í dag, laugardag. Haft er eftir áreiðanleg- um heimildum í Kaupmanna höfn að bæði Krag og Larsen hafi hætt það miklu í við- ræðum sínum, að framtíð þeirra kunni að vera í hættu stefnt, takist þeim ekki að ná samkomulagi. * 3 Mengun andrúmslofts New York nær hámarki Fólk beðið að kynda ekki hús; helztu eiturefnin brennisteinsdíoxið og kolsýringur Saigon, 26. nóv. — AP. DAKOTAFLUGVÉL, DC-3, frá bandaríska flughernum, hrapaði til jarðar í morgun, skömmu eftir flugtak í Sai- gon. 27 manns, sem með vél- inni yoru, týndu lífi. Óstað- festar fróttir herma, að allir, sem með vélinni voru, hafi verið bermenn. New York, 26. nóv. — AP. ÓHREINKUN andrúms- lofts í New York hefur sennilega náð hámarki til þessa. Á fimmtudag mæld- ist óhreinkunun fimm sinn um meiri en eðlilegt telst, og mun hún ekki áður hafa orðið meiri í milljónaborg- inni. í gær gætti mengunar- innar enn mjög, og þá á- kvað sérstök nefnd, sem fylgist með þessum mál- um, að fara þess á leit við íbúana, að þeir gripu til sérstakra ráðstafana. Er urn það að ræða, að menn kyndi hús sín ekki meira en nauðsynlegt er, noti bifreiðar ekki nema ítrustu nauðsyn beri til og noti ekki sorpbrennslutæki, sem algeng eru. Sú mengun andrúmslofts- ins, sem hér um ræðir, hefur náð að magnast jafn mikið og raun ber vitni, vegna þess, að síðustu daga hefur kyrrstætt loft legið yfir New York. Þau eiturefni, sem finnast í loft- inu, eru aðallega brennisteins díoxið og kolsýringur. Nelson A. Rockefeller, rík- isstjóri í New York, tilkynnti í gær, að hann hefði ákveðið, vegna tilmæla heilbrigðisyfir- valda, að taka undir tilmæli nefndar þeirra, sem að ofan getur. Lagði ríkisstjórinn ein- dregið að fólki að stuðla ekki að frekari mengun, þar eð á- standið síðustu sólarhringa hefði verið alvarlegt. Ekki hefur komið til dauðs- falla, vegna mengunarinnar, svo vitað sé. Búizt er við batn andi ástandi í kvöld, en þá er búizt við rigningu og roki. Öryggisrá&ið aldr ei harðyrtara

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.